Morgunblaðið - 27.01.1933, Page 3
I
JfHorgunRaM^
f't*er H.f. Árvakur, RaykJaTtk.
fcstiit j'.rar: Jðn KJartanaaon.
Valtýr Btef&naaon.
Eitaijðrn og afKrelOala:
Austurstrœtt 8. — Slml 1»00.
á UKlí'Blng-ftstjðrl; B. Hafber*.
Au*l fstHKaskrif stofa:
Austurstrœtl 17. — Slml Í700
Helaaasímar:
Jðn KJartansson nr. Í742.
\ altýr Stefánsson nr. 4220.
E. Hafberg nr. 3770.
Áakrl'tagjald:
Innanlands kr. 2.00 & mánuBi.
Ðtanlands'kr. 2.60 1 mánuOi.
1 lausasölu 10 aura elntaklO.
20 aura meO Lesbðk.
lnflúensan.
Það er nú komið á daginn, að
inflúensan, hin bráðsmitandi pest,
sem gengið hefir um Bandaríkin
•og víðar í Ameríku og geisar nú
í Englandi og á meginlandi Ev-
rópu, er kominn hingað til lands.
Hefir hún þegar náð fótfestu í
landi á tveimur stöðum, í Hafnar-
firði og á Ásmundarstöðum á
Sljettu norður.
Þórður Edilonsson hjeraðslækn-
Ir í Hafnarfirði hefir lýst yfir því,
að það sje talinn venjulegur tími,
frá því að menn smitist af inflú-
ensu og þangað til þeir veikjast,
2—3 dagar. Og þegar Sviði kom
til Hafnarfjarðar, eftir 5 daga
ferð frá Englandi og enginn var
veikur um borð, var skipverjum
leyft að fara í land. En reynslan
hefir nú sýnt að menn geta gengið
lengur með smitun í sjer en 2—3
daga án þess að sýkjast, því að
einn af skipverjum Sviða veiktist
á 6. degi frá því skipið fór frá
Englandi- I þessu sambandi er líká
rjett að geta þess hvernig fór um
Yer, Hann var álíka tíma frá Eng-
landi og Sviði, en tók ekki
höfn, heldur fór á veiðar; kom
svo inn eftir tvo daga vegna þess
hve margir skipverjar höfðu
þá veikst af inflúerisu. Þessi tvö
dæmi, um >Sviða og Ver sýna það,
að menn ganga lengur með smit-
unina heldur en landlæknir hefir
gert ráð fyrir.
Þess vegna megum vjer biiast
við því, að veikin sje hingað kom-
in og gjósi upp bráðlega. O'g
eftir því, sem hún hefir hagað
-sjer erlendis, má búast við því, að
menn veikist hrönnum saman, að
állir á mörgum heimilum leggist
samtímis, og heimilin verði ósjálf-
b.jarga um sinn.
Ver skal ekki spáð.
En vjer munum enn „spönsku
veikina“ og ýmsan inflúensufar-
aldur síðan, og þess vegna er nauð
synlegt að gei'a nú þegar ráðstaf-
anir til þess að mæta þessari in-
flxiensu. Til vonar og vara verður
þegar að skipa hjálparlið, sem er
til taks hvenær sem svo óð veik-
indi ber að höndum að heimili.eru
ósjálfbjarga. Það þarf að sjá um
að sjúkrarúm sje til handa þeim
sem hættulega veikjast. Það þarf
að athuga hvort nóg er til af lyf j-
um handa sjúklingum, og skyldi
þau vera af skornum skamti, mið-
að við notkun í „spönsku veik-
ínni“, þá þarf að sjá um, að þeir,
sem nauðsynlega, hafa þeirra not,
sitji fyrir. Hver veit hvað þessi
faraldur verður langvinnur, þegar
hann hefir náð að, festa hjer
rætur ?
Kína og ’Dapan.
Japönsk hersveit á kínverska múrnum hjá Shan-hai-kwan.
Á meðan Þjóðabandalagið reyn-
ir að jafna deiluna um Mansjú-
rra hafa Japanar að nýju fært
sig upp á skaftið og hertekið bæ-
inn Slianhaikwan í Norður-Kína.
Shanhaikwan er kínverskur landa
mærabær sunnan við Mansjúríu,
þar sem kínverski múrinn endar
við Gula liafið. Japanar segja að
Kinverjar hafi slcotið nokkra jap-
pnska borgara í Shanhaikwan. —
Þess vegna hafi verið nauðsynlegt
að senda japanskan her til bæj-
arins til þess að vernda Japana
þar í bænurii. Kínverjar segjast
ekki hafá áreitt Japana á
neinn hátt, Aftur á móti hafi jap-
völdunum í Mansjúríu.
Því má ekki gleyma, að Kín-
verjar eru ekki einu fjandmenn
Japana í Asíu. í áratugi hafa
Rússar verið aðalkeppinautar og
aðalfjandmenn Japana í Asíu, og
þeir eru það ekki síður síðan
kommúnistar tóku við völdum í
Moskva. Aðgerðum Japana í Kína
er því ekki eingöngu beint á móti
Kínverjum, heldur ]íka á mótí
Rússum. Yfirráð Japana yfir nám-
unum og ekrunum þar í landi,
hafa ekki eingöngu mikla þýðingu
i fyrir atvinnuvegi Japana. Land-
vinningar þeirra í Mansjxiriu hafá
ekki síður mikla liernaðarlega þýð
anskir hermenn safnast saman
utan við borgarmúra og kastað
sprengikúlum á járnbrautarstöð-
ina. Kínversk yfirvöld tóku Jap-
anana fasta- Daginn eftir heimt-
uðu .Tapanar að borgarhliðin yrðu
opnuð. Kínverjar neituðu að verða
við kröfunni. Japanar hófu þá
skothríð á Shanhaikwan. 500 kín-
verskir hermenn voru sendir á
móti japanska hernum, en þeir
fjellu allir. Japanar hjeldu skot-
hríðinni áfram þangað til bær-
inn var lagður algerlega í rústir.
Margir af íbúum bæjariris, sumir
segja að minsta kosti 3000, biðn
bana. Þetta gerðist í byrjun þessa
mánaðar. Shanhaikwan er nú í
höndum Japana, Þeir hafa þar að
auki tekið ýmsa minni landamæra-
bæi í Jeliolhjeraðinu herskildi.
Framferði Japaria í Shanhai-
kwan er vafalaust einn þáttur í
landvinningaáformum Japana í
Austur-Asíu. Eins og kunnugt er
hefir þeim tekist að svifta Kína
yfirráðum yfir Mansjúríu og gera.
Mansjúríu að japönsku lýðríki. ■—
Japanar hafa að undanförnu
breitt út fregnir um það, að hjer-
uðin í Norður-Kína vilji losna
undan yfirráðum kínversku stjórn
arinnar og sameinast Mansjúríu.
Japanar virðast fyrst um sinn
ætla að leggja Jeholhjeraðið (milli
Peking og Mansjúríu) undir jap-
anska lýðríkið í Mansjúríu. —
Frjettaritari „Times“ í Tokió býst
jafnvel við að japanskur her verði
sendur til Peking, ef ekki verður
bundinn endir á deilurnar í Aust-
ur-Asíu innan skamms. Einu sinni
í haust lýsti hermálaráðherrann í
Japan yfir því, að Japánar neyðist
ti! að taka bæði Peking og Tient-
sin herskyldi, ef Kínverjar haldi
áfram hernaðinum á móti yfir-
ingu, efla aðstöðu .Tapana gagri-
vart Rússum. En yfirráðin yfir
Mansjúríu eru Japönum ekki nóg.
Þeir reýna að færa sig suður á
bóginn til hjeraðanna í Norður-
Kína. Og þeir leitast við að ná
yfírráðum yfir Mongolíu í þeim
tilgangi að efla aðstöðu sína og
hnekkja valdi Rússa í Austur-
Asíu. Frá Tokio berst einmitt um
þessar mundir sú fregn að margir
af íbúunum í Mongolíu vinni að
því að gera Mopgolíu að sjálf-
stæðu ríki ,,á sama hátt og Man-
s júríu' ‘.
Yfirleitt hefir sambúð Riíssa og
Japana farið versnandi upp á síð-
kastið. Á. síðastliðnu sumri var
búist við að Rússar mundu viður-
lcenna hið nýja ríki í Mansjúríu,
ríkið Manchukuo, og að .Tapanar
mundu í staðinn gera öryggissamn
ing við Rússa. En nú hefir nýr
samdráttur með Rtissum og Kín-
verjuxn kollvarpað þessum áform-
um. — Eins og menn ef til vill
muna, hóf kínverska stjórnin
harða baráttu á móti kommúnist-
um vorið 1927. Kínverska stjórnin
Ijet þá fara fram rannsókn á bú-
stað rússneska sendilierrans í Pek-
ing. Húsrannsókn þessi leiddi til
þess, að stjórnmálasambandi milli
Rússa og Kínverja var slitið. En
í lok ársins sem leið komu Rúss-
ar og Kínverjar sjer saman um, að
koma aftur á stjórnmálasambandi
sín á milli. Og um leið hafa Rúss-
ar opinberlega tekið málstað Kín-
verja í deilunum um Mansjúríu.
Og eftir þetta er vonlaust um að
Rússar viðurkenni „sjálfstæði“
Mansjúríu. —
t Genf situr þessa dagana á rök-
stólum nefnd sú, sem Þjóðabanda-
lagið skipaði til þess að reyna að
jafna deiluna um Mansjúríu. Smá-
þjóðirnar krefjast þess, að beitt
verði hörðu við Japana, ef þeir
lialdi áfram að virða fyrirmæli
Þjóðabandalagsins að engu. En
stórveldin vilja fara hægt í sak-
irnar. Á meðan fara Japanar sínu
fram og fá stöðugt meiri fótfestu
a meginlandi Asíu. Með framferði
sínu skapa Japanar ný deiluefni,
sem geta með tímanujm stofnað
heimsfriðnum í hættu. Og jafn-
hliða þessu rýra þeir stöðugt
meira virðinguna fyrir Þjóða-
bandalaginu, sem á að vernda frið-
inn í heiminum.
Khöfn í janúar 1933.
V.
■»———^—■
Kosningarnar
f frlanöi.
Ætlar Valera að
vinna sigur ?
Dublin 26. jan.
United Press. FB.
Atkvæðatalning hefir þegar leitt
í ljós, að Fianna Fail flokkurinn
hefír mjög aukið atkvæðamagn
sitt í ýmsum kjördæmum og eru
taldar nokkrar líkur fyrir því, að
De Valera fái hreinan meíri hluta
á þingi.
Kl. 3 árd. í dag Fianna Fail
flokkurinn komið að 19 frambjóð-
endum, Cosgrave 7, óháðir 4,
verkamenn 1.
Athygli vekur, að Cosgrave, er
náði kosnjngú í Cork, hlaut 4000
atkvæðum minna en í síðustu kosn
ingum, en De Valera, sem var
endurkosinn í Clare, hlaut 6000
atkv. meira en seinast.
United Press. FB.
Talning atkvæða er nú hafin í
sumum kjördæmum. Fyrstu kosn-
ingafrjettir um úrslit í einstöku
kjördæmum voru þær, að Conor
McGuire (Fianna Fail flokkurinn)
og McGilligan, fyrv. ráðherra í
Cosgravestjórninrii, hefði náð
lcosningu. Þriðja fregnin var sú,
að Mrs. Helena. Concannon (Fi-
anna Fail) hefði náð kosningu. —
Úrslit í alimörgum kjördæmum
verða kunn í dag og í kvöld verð-
ur ef til vill hægt, að segja fyrir
um fullnaðarúrslit, en þó getur
það dregist til morguns, ef fylgi
flokkanna reynist jafnt.
London 26. jan.
Talning atkvæða úr kosningun-
um í friríkinu írska stendur enn
þá yfir. Enn verður ekki sjeð með
vissu hver úrslitin muni verða, en
það þykir auðsætt nú þegar, að
de Valera muni að minsta kosti
hafa mikið fylgi, hvort sem hann
fær meiri hluta eða ekki. Hann
sjálfur og margir ráðherrar hans
hafa verið endurkosnir. Cosgrave
liefír einnig verið endurkosinn, en
flokkur hans hefir mist eitt sæti
til flokksleysingja, og tvö til
flokks de Valera, í þeim kjör-
dæmum þar sem talningu er lokið.
KI. 5 í dag hafði verið lokið kosn-
ingu 60 þingmanna, af 153. Þeir
þingmenn skiftast þannig milli
fiokkanna, að 33 eru fylgismenn
de Valera, 2 iir verkamannaflokki,
16 úr flokki Cosgraves, 3 úr mið-
flokki og 6 flokksleysingjar. Af
þessum 60 mönnum sem þegar
hafa náð kosningu, eru því 35
fylgismenn de Valera, en 25 stjórn
arandstæðingar. FÚ
Togararnir á Sljettm
nást skki át.
Raufarhöfn, FB. 26. jan.
Varðskipin hafa ekki enn riá&
út ensku botnvörpungunum, eroila
við mikla erfiðleika að eiga. 35Þ
raunir verða gerðar á næsta Wbt-
flæði til þess að koma skipiffftn»
á flot. —-
Knldar í Evrðpn,
Berlín, 26. jan.
Kuldabylgjan í Mið-EVTópu
breiðist út. í Efri-SIesíu vaf 32
stiga kuldi í m-orgun, en 25 sfig á
jafnsljettu. f Frakklandi hafa
margir menn orðið úti og jafnvel
nokkrir í Palmero í Suður-ftalhá
f Rúmeníu hefir járnbrautariUB|i-
ferð orðið að hætta að miklu leyti
sökum snjóa og við Svartaháfið
standa þrjár járnbrautarlesf|r
fastar í snjósköflum. í kringujn
Búkarest og við Dóná, eru snjó-
skaflarnir sums staðar 7 metrai
djúpir. FÚ *'
Lest ók yfir tvo verkamenn^ er
voru að virina á j árnbrautarteirie
um nálægt Gera í Thiiringen. —
Voru þeir að bræða klakann áf
teinunum og mun hávaðinn af
lömpum þeim, er þeir notuðu, hajfa
orðið þess valdandi. að þeir heyrðu
ekki til lestarinnar. FÚ
London 26. jan.
Miklir kuldar halda enn áfram
í Mið-Evrópu. Mikill ís.er í ánni
Rín, að hafa víða tepst þar skipa
göngur, en ísbrjótar reyna þó að
halda auðum álum fyrir siglingar.
Inflúensan magnast
í Þýskalandi.
London 26. jan.
Tnflúensan breiðist út í Ríriar-
löndunum, og er nú búið að loka
öllum skólum í Köln, og viðskifta
líf hefir víða lamast þar sökui*
veikinda. FÚ
Óspektir í Dresden.
Berlín, 26. jan.
í gær lrom til blóðugra óeirða
í Dresden á pólitískum fundi, .er
kommiinistar hjeldu. Lenti lögregl
unui saman við kommúnista. Var
lögreglan neydd til þess að nata
skotvopn og lenti í hörðum bar-
daga, þar sem 9 manns fjellu, en
margir særðust. Út af þessu hefír
lögreglan í Dresden bannað álla
fundi undir beru lofti. Mafið
kemur til umræðu í saxneska þfrig
inu í dag og er biíist við, að þing-
ið geri einhverjar ráðstafanir ,til
þess að koma í veg fvrir að sllkt
komi fvrir aftur. Sagt er að sujb
blöð í Dresden hafi æst menn upp
til óeirða núna undanfarið. FÚ
London 26. jan.
í Dresden hafa verið bönnuð öM
opinber fundahöld. vegna óeirð-
anna sem þar urðu í gær. í þei»
óeirðum fjeltu 9 kommúnistar í
viðureign við lögregluna. FÚ
Flug Lady Baily.
London 26. jan.
Lady Bailey er nú lögð af sjjpð
heimleiðis, hún flaug í dag Éní.
Tamessinet í Sahara eyðimörkrriní
áleiðis til Oran. FÚ