Morgunblaðið - 23.02.1933, Blaðsíða 4
4
j
MORGUNBLAÐIÐ
Islensk frímerki kaupir Biarni
Þóroddsson, Urðarstíg 12.
Glæný ýsa og silungur. Hring-
ið í síma 4933. Fisksala Halldórs
Sigurðssonar.
Silkiklæði, besta teg. nýkomið
í versl. ,,Dyngja“. Sími 1846.
Fasteignagjöld
til bæjarins.
Kniplingar á upphlutsbak,
nýjar tegundir, ódýrari og betri
en áður hafa þekst, nýkomnir í
Versl. ,,Dyngja“, Bankastræti 3.
Slifsisborðamir nýju, eru nú
komnir aftur í stærra úrvali en
áður var. Slifsi og Svuntuefni í
góðu úrvali. Versl. „Dyngja“.
Út af umtali, sem orðið hefir í blöðum og annarstaðar, um
það, að fasteignagjöld af lóðum mundu ekki rjett talin á gjald-
seðlum þeim, sem sendir hafa verið út frá bæjargjaldkeranum,
hefir bæjarráðið og bæjarstjóm ályktað, eftir undangengna rann
sókn á löggjöfinni um þetta efni, að lóðargjöldin beri að leggja
á fasteignamatsverð lóðanna ásamt mannvirkjum á þeim. Er því
ekki að vænta breytinga á hinum útsendu gjaldseðlum, og eru
menn því beðnir að fresta ekki greiðslu á fasteignagjöldum sín-
um af þeirri ástæðu.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 22. febr. 1933.
Jód Þorlákssoa.
Fiskbúðin Frakkastíg 13. Dag-
lega nýr fiskur. Reyktur og, næt-
ursaltaður. Lægst verð. Áreiðan-
leg viðskifti. Skrifið í símaskrána
2651.
Morgunkjólaefni frá 3.75 í
kjólinn. Sömuleiðis stórröndótt
Tvisttau. Skotskt bómullartau í
ódýru úrvali. Versl. ,,Dyngja“
Ný ýsa og þorskur. — Einnig
reyktur, þurkaður og útvatnaður
fiskur. Fisksalan; Vesturgötu 12.
Sími 4939.
Mislitar Blúndur á Eldhús-
gardínur, Hörblúndur, breiðar
og mjóar. Handgjörðar blúndur.
Koddavershorn. Versl. ,Dyngja‘.
Slifsiskögur í mörgum litum.
Flöjelisteygja í 3 breiddum.
Flöjelisbönd, svört og mislit.
Hlírabönd, margir litir. Blúsu-
teygja, nýkomið. Versl. Dyngja.
Kjötfars, heimatilbúið 85 aura
% kíló og fiskfars 60 aura %
kíló. Fæst daglega á Fríkirkjuvegi
3. Sími 3227.
Svört og hvít og munstruð efni
í upphlutsskyrtur og svuntur.
Svört efni í kjóla. Fermingar-
kjólaefni, nýkomið. Versl
„Dyngja“.
Eldhúsgardínuefni, falleg og
ódýr. Glugga- og Dyratjalda-
efni. Storesefni frá 1.95 meter.
Nýkomið. Versl. „Dyngja“.
2—300 netjaslöngur óskast
keyptar. Tilboð sendist í póst-
hólf 163.
Húsmæður! 4456, 2098 og
4402 hafa verið, eru og verða
bestu fisksímar bæjarins. Stór
og smá ýsa fyrirliggjandi. Haf-
Iiði Baldvinsson.
2. Lönklasse. Plads söges strax,
fra 1. Marts, April eller Maj paa
islandsk Mejeri. Er 24 Aar, 4%
Aar ved Faget. Har Plads paa
herværenda Mejeri. lste Kl. Anbe-
falinger. NB. Förerbevis haves.
Kristian Bjerre Sand, Mejeriet
”Bestbro“, Stenlöse Sj. (Dan-
markj.
Maturinn í Café Svanur við
Barónsstíg og Grettisgötu er nú
alviðurkendur, sem besti fáanlegi
maturinn í bænum, fyrir svo lágt
verð. —
tslensk málverk, fjðlb>-eytt úr-
val, bæði í olíu og vatnslitum,
sporöskjurammar af mðrgum
■tærðum, veggmyndir í stóru úr-
vali. Mynda- og rammaverslunin,
Freyjugötu 11. Sig. Þorsteinsson.
Reykjahlíðarmálið útkljáð. Vig-
fús Einarsson skrifstofustjóri
hafði óskað eftir því, að hann yrði
leystur frá samningstilboði því,
um sölu á Reykjahlíð, er hann
hafði gert við Magnús Guðmunds-
son ráðherra, þar eð hann hefði
betra tilboð í eignina frá öðrum.
Mál þetta var lagt fyrir fjárveit-
inganefnd neðri deildar í gær og
lýsti hún yfir því, að hún mundi
ekki leggja til að neitt fje yrði
veitt til fávitahælis á þessu þingi
—- og er þar með mál þetta úr
sögunni.
Fimtugsafmæli á í dag Ingi-
björg Bergvinsdóttir á Efra-Hvoli
í Rangárvallasýslu.
Stuttir þingfundir gerast nú
daglega; ern flest stjórnarfrum-
vörp komin til nefnda. Ekkert
bólar enn á stjórnarskrárbreyting-
unni, sem lofað var í þessari viku.
Sennilega kemur frumvarpið á
fcstudag eða laugardag. Ekkert
hefir heyrst um það, hvernig
stjórnin hugsar sjer að leysa kjör-
dæmamálið.
Skuggasveinn var í gær leikinn
fyrir fullu húsi í 2. sinn, og verð-
ur leikinn aftur í kvöld. Næst
verður leikið á sunnudaginn.
Dagskrár Alþingis í dag. Efri
deild: Laun embættismanna. —
Neðri deild: Bann gegn drag-
nótaveiðum í landhelgi.
Vitar og sjómerki. Sunnarlega
yfir rifið milli Málmeyjar og
Þórðarhöfða, hefir verið mörkuð
leið fyrir smáskip og báta. Merkin
eru tvær hvítar vörður nokkru
fyrir sunnan Lónkot. Neðri varð-
an stendur á grundum upp frá
sjónum, en efri varðan uppi í hlíð-
inni. Vörðurnar bera saman í
68%° stefnu. Á siglingaleiðinni yf-
ir rifið hefir ekki fundist minna
dýpi en 3 metrar um fjöru. Vestur
af rifinu dýpkar ört, en jafndýpk-
ar ofan í Málmeyjarfjörð.
Útvarpað var í Þýskalandi í gær
allnákvæmri fregn af Papeyjar-
slysinu, sem varð hjer fyrir utan
höfnina á mánudagskvöld.
Kvennadeild Merkúrs biður fje-
laga sína að gefa poka á ösku-
dagsfagnaðinn og koma þeim til
stjórnarinnar eða hárgreiðslustof-
unnar Carmen, Laugaveg 64. E.
Kreppunefnd. 7 manna kreppu-
nefnd var kosin í Nd. í gær, og
verður til hennar, vísað málum,
sem snerta kreppuna og ráðstaf-
anir gegn henni. 1 nefndinu voru
kosnir: Pjetur Ottesen, Magnús
Jónsson, Tryggvi Þórhallsson, Ing
ólfur Bjarnarson, Bjarni Ásgeirs-
son, Steingrímur Steinþórsson og
Haraldur Guðmundsson.
Reykjahlíðar-málið. Vigfús Ein-
arsson skrifstofustjóri hefir sent
Mbl. til birtingar grein um Reykja
hlíðarmálið, en vegna rúmleysis
gat greinin ekki birst í blaðinu í
dag.
Hlutleysi útvarps. Innanríkisráð
herra Frakklands hefir gefið út
reglugerð um eftirlit með hlutleysi
útvarpsins í stjórnmálum. (FÚ.).
— Knattspyrnufjelagið „Fram“
heldur 25 ára afmælisfagnað 4.
mars n.k. í þetta sinn hyggst
stjórn fjelagsins sjerstaklega að
vanda til fagnaðarins, og biður
hún fjelagsmenn að tilkynna þátt-
töku sína sem fyrst.
Hjálpræðisherinn. 1 kvöld verð-
ur haldin hljómleikasamkoma kl.
8 síðd. Annað kvöld verður helg-
unarsamkoma kl. 8 síðd. Majór
Beckett stjórnar.
Heimatrúboð leikmanna, Vatns-
stíg 3. Almenn samkoma í kvöld
kl. 8. —
Ungbarnavernd Líknar, Báru-
! götu 2. Læknir viðstaddur á fimtu
[ dag og föstudag kl. 3—4.
í K, F. U. M. A,—D. fundur í
kvöld kl. 8y^. Jóh. Sigurðsson tal-
ar. Efni: 2. gr. fjelagslaganna.
Allir karlmenn velkomnir.
Frá Eimskip. Gullfoss fór frá
Leith 20. þ. m. áleiðis til Reykja-
víkur. — Goðafoss fór frá Reykja-
vík í gærkvöld vestur og norður.
— Brúarfoss fer frá Reykjavík á
morgun 'til utlanda. — Dettifoss
kom til Hull í gær. — Lagarfoss
fór frá Kaupmannahöfn í fyrra-
dag áleiðis til Leith. — Selfoss
fór frá Hull í fyrrinótt, áleiðis til
Reykjavíkur.
Cermak borgarstjóra í Chicago
hefir nú versnað og eru menn
liræddir um líf hans. — Hitinn er
mjög hár og Iiggur hann með
óráði. (FÚ.).
Grávörukauphöll. Sir Percy
Greenaway, yfirborgarstjóri Lond
on, opnaði í dag grávörukauphöll
þar í borginni, og er hún sú fyrsta
sinnar tegundar í heiminum. Að
stofnun þessari standa 40 grávöru-
kaupmenn. (London, 22. febr. FÚ).
Útvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00
Veðurfregnir. 19.05 Þingfrjettir.
19.30 Veðurfregnir. 19.40 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 20.00 Klukku-
sláttur. Frjettir. 20.30 Erindi:
Holdsveikin á fslandi, H. (Sæm.
Bjarnhjeðinsson prófessor). 21.00
Tónlekar. (Útvarpskvartettinn).
Grammófón: Einsöngur (Ritter
Ciampi): Mozart: Ei parte senti
ah no, úr „Cosi fan tutte“. Voi
che sapete, úr „Brúðkaup Figar-
os“. Meyerbeer: Lag hirðsveins-
ins, úr „Húgenottunum“. (Lúðra-
sveit Reykjavíkur).
Dánardægur. Jón Þorsteinsson
bóndi að Seljamýri í Loðmundar-
firði ljest að heimili sínu 17. þ. m.
85 ára að aldri. Jón var tvíkvænt-
ur. Fyrri kona lians hjet Vilborg
Árnadóttir og varð þeim 4 barna
auðið. Tvö af þeim eru enn á lífi,
frú Anna María, Baldurshaga,
Seyðisfirði og Þorsteinn smiður,
Álfhól, Seyðisfirði. Síðari kona
Jóns, sem lifir mann sinn, heitir
Ragnheiður Sigurbjörg ísaksdótt-
ir. Þau eignuðust átta börn og eru
af þeim á lífi Sigurður bóndi,
Seljamýri, Jón bóndi, Selstöðum,
Seyðisfirði, frú Guðrún, Smá.ra-
götu 14, Reykjavík, frú Arnbjörg
Laugahvoli, Reykjavík, Ragnheið-
ur verslunarmær, Ljósvallagötu
10, Reykjavík, ísak kennari, Berg-
staðastræti 83, Reykjavík.
Norræna fjelagið hjelt nýlega
aðalfund sinn. Tala fjelagsmanna
jókst um meira en helming á sl.
ári og eru þeir nú 140. Stjórnin
var endurkosin, en hana skipa:
Sigurður Nordal próf.; Pálmi
Hannesson rektor; Guðlaugur Rós-
inkranz kennari; dr. Gunnlaugur
Claessen og Vilhjálmur Þ. Gísla-
son skólastjóri.
Mentaskólanemendur ætla nú um
mánaðamótin að leika sinn árlega
skopleik. í þetta skifti er það
þýskur skopleikur, staðfærður í
Reykjavík af Emil Thoroddsen. —
Mentaskólaleikirnir hafa nú í ára
tugi þótt merkisviðburðir í sögu
bæjarins, og eins mun það verðá
nú, því að þessi skopleikur stend-
ur ekki fyrri skólaleikjum að baki.
Hinn vinsæli skopleikari Bjarni
Björnsson hefir leiðbeint nemend-
um, og hafa þeir þar verið hepn-
ir í vali á leiðbeinanda. Eftir við-
tökunum sem skólaleikurinn fekk
í fyrra, mUn þessum nýja leik
'áireiðanlega verða vel tekið, því
að hann stendur síst að baki þeim
síðasta. Leikurinn nefnist „Landa-
brugg og ást“ og er það sam-
nefni því leikurinn fjallar um
hvorttveggja. G.
Tónlistarskólinn hefir ákveðið
að hafa námskeið fyrir börn og
unglinga á aldrinum 9t—16 ára.
Námskeiðið byrjar 1. mars og
verður til maíloka. Kent verður
tvisvar í viku, á miðvikudögum og
laugardögum (síðdegis) og er
kenslugjaldið sjerstaklega lágt. —•
■ Kennarar verða Hans Stepanek
í fiðluspili og Dr. Fr. Mixa í
pianoleik og verða honum til
aðstoðar færustu nemendur Tón-
listaskólans. Niámskeið þetta verð-
ur sjerstaklega hentugt þeim nem-
endum, sem hafa í hyggju að
ganga í skólann í náinni framtíð,
þótt vitanlegt sje hver sjálfráður
um það, að námskeiðinu loknu.
En benda mætti á það mikilsverða
atriði, að nám í hljóðfæraslætti
sje frá fyrstu byrjun bygt á sama
grundvelli, svo enginn tími fari
forgörðum til óþarfa endurtekn-
inga og breytinga, sem lama áhiig
ann og tefja fyrir eðlilegum ár-
angri.
Verslunarskólanemendur stofn-
uðu í fyrra til fyrsta Nemenda-
móts Verslunarskóla íslands. Var
það skemtisamkoma er nemendur
sjálfir önnuðust að öllu leyti. —
Nemendamótið var háð í þeim
tilgangi að gefa gömlum nem-
endum kost á að kynnast fjelags-
málum skólans og fylgjast með í
þeim frá ári til árs, og til þess
að skapa og efla viðkynningu
milli nýrra og gamalla nemenda.
Sami mun tilgangur Nemenda-
Kaupið
Hvanneyrarskyrið.
Nýtt í dag.
Þeir,
sem kaupa trúlofunarhrinjfa
hjá Sigurþór verð altaf
ánægðir.
Hár
við íslenskan búning fáið þið best
og ódýrast unnið úr rothári í
Versl. Goðafoss,
Laugaveg 5. Sími 3436.
Knlasalan s.f.
Siml 4514.
Karlmannaföt
Regnfrakkar
Rykfrakkar
mest úrval í
Vöruhúsinu.
mótsins verða framvegis. Nemenda'
mót Verslunarskólans, hið annað:
i röðinni, verður háð í Iðnó laug-
ardaginn •25. þ. m. kl. 8 síðd.
Tilhögun mótsins verður svipuð;
og í fyrra. Ræður verða fluttar,
karlakór skólans syngur, fimleika
sýning, pilta og stúlkna, piano-
einleikur, leiksýning og að lokum
dans stiginn. — Einnig munu
nemendur í tilefni af Nemenda-
mótinu gefa út blað, sem selt
verður í borginni á laugardaginn.
Morgunblaðið er 6 síður í dag.
f aukablaðinu flettir Jón Þorláks-
son ofan af fjáraflaplönum Sig..
Jónassonar.