Morgunblaðið - 21.03.1933, Blaðsíða 3
3
MORGUNBLAVH
't
$Ror$ttöHaM$
6í*«f.: H.f. Árvakur, RiykJavlk.
Rltatjörar: Jön KJartanaaon.
Valtyr Stefánaaon.
JtitatJörn og afgrrelOala:
Auaturatrœtl 8. — Sfal 1800.
▲ufflýalnKaatJörl: B. Hafbirc.
Aucl^alnkaakrlfatofa:
Auaturatrætl 17. — Slaal (700
Halmaalnar:
Jön KJartanaaon nr. (74(.
Valtýr Stefánaaon nr. 42(0.
E. Hafbers nr. (770.
ÁakrlftaK.lald:
v Innanlanda kr. 1.00 á aaánuSL
Utanlanda kr. 1.B0 & aaánuOL
1 lauaaaölu 10 aura aintaklV.
(0 aura maB Laabök.
i sueitum.
* Svo verðlitlar hafa afurðir
;ýmsra sveitaheimila verið undan-
farin tvo ár, að innlegg bænda yfir
árið, er þeir hafa haft í verslanir
sínar, hefir numið þetta 60—80
krónum á heimilismann.
Pjölskyldufeður í sveitum, sem
þurfa fyrir 5—6 manns að sjá,
hafa máske getað kevpt 300—500
króna virði til heimilisins, án þess
að auka skuldir sínar.
Það verðúr ekki ofsögum sagt
af þeirri aðgæslu, þeim sparnaði,
*er við þarf í slíku kreppuástandi,
þegar menn hafa hinar takmörk-
uðu búsafurðir til fæðis, ullina
af fjenu til klæða, og nokkra tugi
króna á mann fyrir aðkeypt efni
yfir árið, þegar frá eru dregin
opinber gjöld.
Það er engin furða, þó menn,
sem við slík kjör eiga að búa líti
með gremju til þeirra manna,
sem sóað hefir t.ugum miljóna úr
ríkissjóði með sífeldu lofdýrðar-
•snakki á vörunum um ást sína og
uinhyggju fyrir bændum landsins.
Því hvað varð af miljónunum?
Hafa þær á nokkurn hátt ljett
bændum lífið nú í kreppunni?
Pinna þeir til þess?
Það er engin furða, þó atvinnu-
rekendur, sem sjá líísvegi síná
verða svo erfiða, geri djarfmæltar
kröfur til þings og stjórnar um
niðurfærslu á gjöldum ríkissjóðs;
þó þeir menn, sem lifa við jafn
þröngan kost og margir bændur
landsins, heimti, að gætt verði hins
ítrasta sparnaðar í stjórn og starf-
rækslu ríkisins, svo lækka megi
hin opinberu gjöld, og ljetta undir
með þeim, sem verst eru staddir.
Frá Rkureyri
Akureyri 20. mars. PB
Hjer hefir alt verið með kyrrum
kjörum frá því Nóva fór. Leystu
kommúnistar upp lið sitt dagínn
eftir. Litlar líkur eru til að sam-
komulag náist áðnr en skipið kem-
ur hingað aftur í vikulokin.
Leikfjelagið sýndi í gærkvöldi
„Pröken Júlíu“ eftir Strindberg.
Leikur þeirra frá Regínu Þórðar-
dóttur og Ágústs Kvaran Arar hinn
prýðilegasti- Einnig var sýndur
franski gamanleikurinn Henrik og
"Pernilla, eftir Dúbóis.
Tnflúensan er heldur í rjenun.
Silfurbrúðkaup eiga í dag frú
Nikolina Sigurðardóttir og Guð
mundur Guðna.son gullsniiður, Öð
insgötu 8.
Frá Dýskalandi.
Ríkfsdingið nija
SBtt (dag.
Berlín 20. mars. FÚ
Allir þingflokkar þýska ríkis-
þingsins munu halda undirbún-
ingsfund í dag, en ekki segir
þýska útvarpið frá því, hvort
kommúnistar sjeu í þeirra tölu.
Af þingmönnum jafnaðarmanna
sitja nú 11 í fangelsum víðsvegar
um ríkið og hefir flokksstjórnin
farið fram á það við ríkisstjóm-
ina, að þeim verði slept áður en
þingfundir byrja- Bændaflokkur-
inn í Wúrtemberg, sem hefir einn
fulltrúa á þingi, hefir lýst yfir
því, að hann muni starfa með þjóð
ernissinnum.
Hitler hefir gefið út yfirlýsingu
um það að dr. Luther hafi farið
frá af eigin vilja og sýnt þar með
löghlýðni sína og trygð við föður-
landið, enda hafi ríkisstjórnin
ekkert vald haft t.il þess að setja
hann af.'
Jafnaðarmaðurinn Jasper, sem
fvrrum var landsforseti í Brauns-
chweig hefir verið hneptur í varð-
hald.
Myndir prússnesku konunganna
sem áður hengu í ráðhúsinu í Ber-
lín, en voru teknar niður eftir
stjórnarbyltinguna, munu nú verða
settar upp aftur.
Á laugardaginn var fundust all-
miklar vopnabirgðir í ráðhúsinu
í hinum fornfræga bæ Nurnberg
á Bæjaralandi. Yoru það 100
rifflar, 20 skammbyssur og um
10 þús. sko.t.
Ríkisþingið sett með mikilli
viðhöfn.
Á morgun, 21. mars, verður rík-
isþingið þýska sett í setuliðskirkj-
unni i Potsdam, og er svo til ætl-
ast að dagurinn verði nokkurs-
konar þjóðhátíðardagur um alt
Þýskaland, svo sem í þakkarskyni
fyrir það, að Nationalsósíalistar
náðu þingmeirihl. við hinar ný-
afstöðnu ríkisþingkosningar. Eft-
ir hátíðaskránni að dæma, er há-
tíðinni sjerstaklega ætlað að vekja
aðdáun lýðsins fyrir hinum fyrri
prússnesku konungum og fyrir
herfrægð Þjóðverja, því að herinn
verður í hátíðahöldunum á hverju
leiti. Hátíðahöldin hefjast kl. 6
að morgni og standa fram til mið-
nættis. TJm kvöldið verða hafðar
blysfarir um bæi og þorp alls
landsins, og kveikt verða bál á
liólum og fjallstindum.
Aðalhátíðin fer fram í Potsdam.
Að aflokinni guðsþjónustu í Niku
lásarkirkju ganga þingmenn í
skrúðgöngu til setuliðskirkjunnar
og þar hefst þingsetningin kl.
11,30 eftir þýskum timá (kl. 9.30
eftir ísl. tíma.) Setur ríkisforset-
ir.n v. Hindenburg þingið með
ræðu, en síðan lýsir ríkiskanslar-
inn stefnu sinni, og að því lolrnu
gengur hann í grafhýsi hinna
prússnesku konunga og leggur lár
viðarsveiga á kistur Priðriks mikla
og Priðriks Vilhjálms TTT., en stór
skotaliðið skýtur viðhafnarskotum
á meðan.
Að þingsetningu lokinni verður
liðskönnun fvrir utan kirkjuna
og ganga flestar herdeildir, lið
Nationalsósíalista og fjelag npp-
gjafahermanna „Kyffhauserbund“
fyrir ríkisforsetann. Er þessu lok-
ið kl. 13 eftir þýskum tíma (kl.
.11 eftir ísl. tíma) og verður öllu,
sem fram fer frá kl. 11,30 til kl. 13
eftir þýskum tíma, útvarpað' Síð-
ar um daginn heldur þingið fund
í skemtistað Krolls í Berlín.
Alþýðufræðslu og útbreiðsluráð
herrann hefir birt mjög hátíðlegt
ávarp til allra Þjóðverja, þar sem
hann skorar á alla að taka þátt
í hátíðahöldunum. Lýsir hann
með miklu málskrúði afrekum
hinna fyrri konunga og helgi þing
setningarstaðarins í námunda við
legstað þeirra. Hann lýsir og af-
reki Nationalsósíalista að hafa náð
meirihl. í þinginu, og hverja þýð-
ingu það hafi til viðreisnar þýsku
þjóðinni, að þingið sje þar með
orðið starfhæft, Hafi Hitler brúað
öll gil milli stjetta, þjóða og trú-
arflokka innan ríkisins, og sje
þingsetningardagurinn því hinn
mesti merkisdagur í sögu Þýska-
lands. PÚ .
Banatilræði við Hitler
1 morgun komst upp um til-
ræði við Hjtler í Múnchen. Hann
ætlaði með lestinni frá Miinchen
til Berlín, en á leiðinni til járn-
brautarstöðvarinnar var mikill
mannfjöldi saman kominn og tóku
nokkrir úr hópnum eftir þremur
mönnum, sem þóttu grunsamlegir
og var þeim veitt eftirför. Komst
þá upp, að þeir sóttu þrjár hand-
sprengjur og eitthvað af skotvopn
um á afvikinn stað, þar sem þeir
höfðu falið vopnin. Yar nú kallað
á lögregluna, en þá voru tilræðis-
mennirnir allir á burt. Það er
haldið, að þetta hafi verið þrír
meðlimir rússnesku Tjekunnar,
sem eru búsettir í Sviss. PU
Dr. Luther
gerður að sendiherra
í Washington.
Berlín 20. mars. PTT
Dr. Luther fyrverandi forseti rík-
isbankans hefir verið útnefndur
þýskur sendiherra í Washington
og mun taka við þeim starfa á
næstunni. FTJ
ÍþrAttflmfit (Færeylum.
íslenskum íþrótta-
mönnum boðið.
Prá því hefir verið sagt hjer í
blaðinu fyrir skemstu að Pærey-
ingar ætla að efna til íþróttamóts
í sumar í sambandi við þjóðhátíð
sína, Ölafsöku, sem hefst 23. júlí,
og ætluðu að bjóða þangað íþrótta
mönnum frá Hjaltlandi og Islandi.
Nú hefir Knattspyrnuráði Rvík-
ur borist. brjef frá „Pöröyska Bolt-
spæl Sambandið“ þar sem það
býður li5 knattspyrnumönnum á
íþróttamótið, til þess að keppa þar
við knattspyrnuflokka úr Fær-
eyjum og Hjaltlandi. En Hjalt-
lendingum hefir fjelagið líka boð-
ið. Ætla Pæreyingar að kosta
ferðir beggja flokkanna, greiða
fararkostnað þeirra fram og aft-
ur og eins dvalarkostnað í Pær-
eyjum- Er gert ráð fyrir að flokk-
arnir standi þar við um vikutíma.
Knattspyrnuráðið hefir þegar
si’arað og sagt. að íslenskir knatt-
spyrnumenn taki þessu rausnar-
lega heimboði með þökkum.
f
Frú Asa Clausen
kona Gísla Árnasonar, gullsmiðs,
andaðist í Landakotsspítala að
kvöldi þess 18. þ. m.
Rannsúknaskípið
Meteor.
SamsMti fyrir skipverja.
Dansleik lijelt fjelagið German-
ia á laugardagskvöld í Oddf jelaga
höllinni fyrir yfirmenn, vísinda-
menn og sjóliða af þýska eftirlits-
og rannsóknaskipinu ,Meteor‘. —
Voru í því boði skipherra og 10
yfirforingjar, 6 vísindamenn og
50 undirforingjar og sjóliðsmenn.
— Formaður ,Germania‘, Julius
Schopka konsúll, bauð gesti vel-
komna með ræðu. Mintist hann á
það, að Þjóðverjar og íslendingar
væri af hirium sama kynstofni,
þeim kytístofni, sem „á sjer ból-
stað alt frá Dóná til Grímseyjar,
frá Alpfjöllum að nyrstu strönd
Noregs“. Hann minti líka á það
að hættir Þjóðverja og íslendinga
væri svo líkir, að þegar íslend-
ingar kæmi til Þyskalands, fynd-
ist þeim þeir vera heima hjá sjer
og hins sama vænti hann að Þjóð-
verjar kendi, er þeir koma til ís-
lands. Með vaxandi menningu
færðist þjóðirnar hvor nær annari,
sími og útvarp hefði þegar brúað
hafið sem löndin skilur. Auknar
samgöngur milli fslands og Þýska-
lands væri að auka kynni og við-
skifti þjóðanna stórum, gagnkvæm
an skilning og gott vinarþel með
frændsemi. — Menningarsambönd
færi vaxandi ár frá ári; þýskir
mentamenn kæmi til íslands til
þess að auka þekkingu sína, og
íslenskir stúdentar færi til Þýska-
lands og Austurríkis og settist við
mentabrunnana þar. Alt þetta
miðaði að því að gera þýska gesti
kærkomna á íslandi, og jafna
veginn til bróðernis germanskra
þjóða.
Kurze skipherra þakkaði með
hlýjum orðum viðtökur fjelagsins
og fslendinga yfirleitt.
Á eftir ræðunum var hrópað
margfalt húrra fyrir íslandi og
Þýskalandi.
Karlakór undir stjóm Jóns Hall-
dórssonar söng nokkur lög, fyrst
býska þjóðsönginn og síðar rs-
lenska þjóðsönginn.Svo hófst dans-
leikur, sem var mjög skemtilegur
og fór prýðilega vel fram.
f þessu hófi voru alls um 250
manns.
Stjómarskrárbreytinff
í Portúffal.
Lissabon 20. mars.
TJnited Press. FB.
Alþjóðaratkvæði fór fram í gær
um nýja stjórnarskrá fyrir Portú
gal og bar ekkert á æsingum á
meðan kosningarnar fóru fram.
Enda þótt engu verði í rauninni
spáð um xírslitín er alment búist
við, að meiri hluti þjóðarinnar
hallist að nýju stjórnarskránni.
.1
„Lagarfoss"
fer annað kvöld klukkan 12 á
miðnætti, um Vestmannaeyjar, til
Reyðaj-fjarðar, Norðfjarðar, Seyð-
isfjarðar og Kaupmannahafnar.
Farseðlar óskast sóttir fyrir há-
áegi á miðvikudag.
Vor- og sumar
llskublOð:
Bijou de la Mode.
Votre Gout.
Chic Parfait.
Lyon Moden Album.
L’Album d’Enfants.
l’Enfant Star.
Stella.
la Parisienne.
Élégance Feminine.
Chíldren Dress.
Romas Pictorial Fashion
Home Fashion.
Butterick.
Le Jardin des Modes.
Mabs.
la Mode de Demain.
Pariser Chic.
Pariser Record.
Weldon Ladies.
Weldon Children.
Madame fait s. Robes
(Merv. de Modes).
Les Jolis Chapeaux.
(Hattablað).
Praktische Damen- und
Kinder-Mode.
Nordish Mönster-Tidende
Modenzeitung fiirs
deutsche Haus.
iokUaSuitv
Lækjargötu 2. Sími 3736.
FifiiVBdabandalag.
Álit Mussolini
á afvopnunartillögum Breta.
Rómaborg 19. mars.
United Press. PB.
Talið er víst, að Mussolini hafi
fallist á afvopnunartillögur hresku
ríkisstjórnarinnar í grundvallar-
atriðum. Telur hann þær fyrstu
tilraunina, sem hægt sje að byggjá
á, til þess að trvggja friðinn í
heiminum.
Rómaborg 20. mars,
United Press. PB.
Er þeir áttu viðræður saman í
gær, Mussolini og MacDonald,
stakk hinn fyrnefndi upp á því,
að reynt yrði að ná samkomulagi
um nýjá fjórveldasamþykt, sem
Bretland, Italía, Frakkland og
Þýskaland væri aðilar að. Hlut-
verk fjórveldanna yrði að. varð-
veita friðinn í álfunni. TTppástunga
Mussolini kemur ekki í bága við
afvopnunarmála tillögur MacDrin-
alds. Fullyrt er að Hitler og Dela-
dier verði innan skams hoðið til
Rómahorgar til þess að ræða við
Mussolini nm þessi mál.