Morgunblaðið - 29.03.1933, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.03.1933, Blaðsíða 2
2 MOKGONWiLA» « fermm & OlsemT HOfum fyrirliggiinði: Þakjáru nr. 24 og 26. Sl|etl járn 24” 26 Þaipappi. Kengir. ' Járnstanrar. Nýkonið: CAGAO, sem við seljnm mjög ódýrt. Eggert Kristfánssost & Go. Sími 1400 (3 línur). Fyrlrllgg|andi: fyrsta flokks KARTÖFLUR, Valencia APPELSÍNUR 240 stk. E P L I, delicious 198 stykki. SUMA—HVEITI í 50 kgr. pokum — og 10 lbs. pokum. Lðgt verð. Hjaltð Björnsson & Co. Símar 2720 og 3720. Atvlnna. Nokkrar duglegar og hrein- legar stúlkur, yfir tvítugt, geta fengið atvinnu í vor í KRESSIN G ARSKÁLANUM Viðtalstími milli kl. 6—8 síð- degis í dag og á morgun. Björn Björnsson. j Bankabyygsmjöl, Bankabygg, Bygggrjön, Mannagrjón, Semnlegrjón, Bækigrjón, fæst í VorvBrnrnar cru komnar. Kvensnmarkðpnr mikið og fallegt úrval. Kðpntan, Dragtatan, Kjðlatan ullar, silki og crepe. Seorgette með flauelsrósum. Musselin. Siikiklæði í peysuföt. Falleg svnntneini og margt fleira. Hrakningar Riiser-Larsen og fjelaga hans í Suðuríshafi. í norska blaðinu „Aftenposten“ bírtist 13. mars frásögn Riiser- Larsens sjálfs um það hvernig Suðurpólsleiðangur hans fór út um þúfur. Br það loftskeyti sent sunn an úr Suðuríshafi hinn 11. mars c.g er á þessa leið: A sunnudaginn var fórum vjer upp á rekísinn í firði, sem skerst inn í „Prinsesse Ragnhild Land“. Var í ráði að vjer færum í land þar sem ekki væri fyrir hrönn af strönduðum hafísjökum, og rlíkir staðir voru til bæði á ,Dronn ing Maud land‘ og Bnderbylandi, cn vegna erfiðleika við að komast þ.angað með farangurinn, var tek- i’iu sá kostur að revna að komast i land þarna inni í firðinum, og þar var ekki nema um einn stað að velja. Svo yfirgáfu hvalabátarnir oss. Byggingarefni í kofa. matvæli og annan farangur bárum vjer lengra inn á ísinn. Þessu starfi heldum vjer áfram á mánudaginn, og notuðum þá þrjá hundasleða. — Gekk þá alt greiðlega og vorum vjer í góðu skapi En um kvöldið byrjuðu erfiðleikarnir. Þegar vjer ætluðum að leggja á stað með sein asta sleðann, hafði opnast stór sprunga í ísinn. Vjer urðum þá að grípa til alúminmmbáts, sem vjer höfðum meðferðis, 'og ferja hundana og farangurinn á hon- um yfir vökina. — Vjer völdum oss svo tjaldstað inni á íshellunni og gengum til hvíldar, en rjett á eftir hrukkum vjer upp við ógur- legt brak. Vjer þustum út, og komumst þá að raun um að tíu met-ra breið sprunga bafði opnast aðeins þrjá metra innan við tjald- ið. Það var kolniðamyrkur og vjer gátum ekkert aðhafst. Þess vegna fórum vjer inn í tjaldið aftur, en ckki A<arð oss svefnsamt. Bftir svo sem tvær stnndir birti af degi. og sáum vjer þá að ísinn var sprung- inn að endilöngu inn að landi, þar sem áðnr virtist dalur. Bnginn af okkur mun glevma þeirri óheillavænlegu sjón, en verra. átti þó fyrir okkur að liggja. Við flýttum okkur þang- að sem aðalfarangurinn átti að vera, en þar var þá komin fimtán feta breið sprunga og hafði gleypt um fimtán kolapoka, og þar höfðu þeir sokkið á 140 faðma dýpi. Hundarnir höfðu kosið að vera hjá hinum öðrum farangri. sem var tíu smálestir af hvalkjöti. Þeir höfðu komist lífs af, en voru nú á reki á lausum ísjaka. Vjer vorum í margar klukkustundir að bjarga þeim og það var enginn iiægðarleikur. Altaf komu nýjar sprungur í ísinn- Aldrei á ævi okkar höfum við komist í bann jafn krappan. Það var eigi aðeins að vjer yrðum að reyna að bjarga hundunum og farangriuum. heldur einnig okkur sjálfum af iaka a iaka sem voru á reki. Tshrönn hrundi og molaði ísinn alt um- hverfis. Við fluttum tjaldið á þann jaka sem næstur var jak- anum sem farángur okkar var á og hundarnir. Það var aflandsvindur o<!’ ísjakann, sem hundarnir voru a gat lirakið til hafs. Þorðum vjer því ekki annað en vera sem næst þeim. Var nú svo komið að farangur okkar var á sex jökum hingað og þangað. A miðvikudagsmorgun urðum við þess varir, að fjórir af þess- um jökum voru horfnir, þar á meðal jakinn með hundana- En jakinn, sem tjaldið stóð á, hafði rekist á borgarísjaka og stað- næmst við hann. Fyrir utan var opið haf og við vorum því stadd- ir í hinni mestu hættu þarna. Við sendum því út S- O. S. loftskeyti og fengum um hæl svör frá hval- veiðaskipum og voru bátar frá þeim þegar sendir á stað. A miðvikudaginn sendi jeg skeyti til hvalabátanna að leggja sig ekki í neina hættu'— það eru tólf menn á hverjum, en við vorum aðeins þrír. -Jakann, sem við vorum á, rak stöðugt frá landi. Lengra úti voru þrír jakar með clóti okkar, en svo sem mílu nær lancli var jakinn með aðalfarangrinum. Það var frost og við vonuðum að ísifin mundi festast aftur saman, en um kvöldið gerði suðvestan storm, sem þegar braut allan hinn þunna lagís, og nú hrakti okkur óðfluga út. Jakann með hundunum og ann- an jaka með farangri, en á honum voru líka þrír hundar, rak út ’á milli tveggja stórra borgarísjaka og hurfu til hafs. Hina jakana rak með nokkuð annari stefnu. Það var nú sýnt að leiðangurinn var farinn út um þúfur. Klukkan tvö á föstudagsnótt hrakti okkur að seinustu borgar- ísjökunum, sem líka voru á hraðri ferð. Við.sluppum með naumindum fram lijá einum jakanum, aðeins nokkra metra frá honum. Sá jaki rakst svo á annan borgarísjaka af ógnarafli og hefði ekki sagt af okkur, ef við hefðum orðið á milli þeirra. Svo skildu jakarnir aftur og jakinn setn við vorum á flaut inn á milli þeirra. Attum við það nú á hættu að hann mundi á hverri stunclu molast milJi liinna stóru borgarísjaka. Við fónim þá að búa okkur undir að nota bát- inn og komast á, öruggari stað. Það var ofsaveður og nóttin nið- dimm. Stormurinn ætlaða að slíta tjaldið út úr höndunum á okkur. Þetta er sú versta nótt, sem við höfum lifað og bjuggumst við við bví á hverri stundu að nú mundi yfir ljúka. Að lokum lósnuðum við þó út á miili jakanna, og komum út í auðan sjó. -Takinn, sem við vor- um á, var hundrað metra langur og fimtíu metra breiður, en þó fleygðu öldurnar honuíh fram og aftur, sitt á hvað. Fjelagar mínir reyndu að sofa, en það var ekki auðgert, því að tjaldið sviftist alla vega fvrir storminum og kuldinn var afskaplegur. Altaf var að molast utan úr jakanum og hann varð minni og minni. Að Tokum rann dagur og sáum við þá að okkur var að reka inn á milli tveggja stórra borgarís- jaka. Margir flatir jakar voru á milli þeirra. Til allrar hamingju lægði veðrið svo að áreksturinn varð ekki mikill. Klukkan ellefu um morguninn sendi jeg loftskeyti til hvalabát- anna þess efnis, að þótt aðstoð þeirra hefði áður verið æskileg, nærföíin þjóðfrægu eru nú loks komin aftur. 7/azafc/uz r/z/uiócri væri hún nú nauðsynleg. Rjett á eftir fekk jeg svar frá Martinsen skipstjóra á hvalveiðabátnum „Globe 5“, að hann nálgaðist. — Fimm mínútum seinna sá jeg reykmerki frá honum og skömmu seinna kom skipið öslandi í átt- ina til okkar. — Verður því ekki með orðum lýst hvað við urðum fegnir. Og svo komumst við um borð í skipið méð það dót, sem hjá okkur vár. Nú var farið að leita, og við fundum þrjá jaka með nokkru af farangrinum. En jeg get ekki lýst því hve sárt okkur tók það að sjá, að jakinn sem hundarnir höfðu verið á, hafði molnað sund- ur og þeir allir farist. ----—v •KX -- ... Stálhjálmafjelajíið uppleyst. Berlin, 28. mars. Innanríkisráðherrann í þýska sambandsríkinu Braunschweig, Plakke, hefir leyst upp Stahl- helm — stálhjálmafjelagsskap- inn þar í landi. Stálhjálmafjelagið er fjelag uppgjafahermanna, sem stofnað var nokkrum dögum síð- ar en ófriðnum mikla lauk, og hef- ir markmið þess verið að berjast á móti jafnaðarstefnunni og stjettabaráttu og beita sjer fyrir því, að ríkið hjeldist á þjóðlegum grundvelli. Hefir fjelag þetta stutt þjóðflokkinn þýska, sem núver- andi ríkisráðherra dr. Hugenberg er foringi fyrir. Fyrir ráðstöfun þessari gerir Plakke innanríkisráð- lierra þá grein. að síðan að fje- lagsskapur jafnaðarmanna, Reichs banner svonefnt, og fjelög kom- múnista hafi verið leyst upp og liönnuð, hafi jafnaðarmenn úr báðum þessum flokkum þyrpst inn Stahlhelm-fjelagið. með svo á- berandi hætti. að ekki leiki neinn vafi á, að það sjeu samantekin ráð jafnaðarmanna að leita í þennan fjelagsskap. Foringi Stahlhelm í Braunsehweig hefir nú verið tek- inn fastur og plögg fjelagsins rannsökuð, og berá þau það með sjer, að jafnaðarmenn hafa þyrpst í fjelagið með það fvrir augum að ná því á vald sitt. (FH.). Varalögregla sú, sem stálhjálma f.jelagið Iiafði uppi í þýska sam- bandsríkinu Braunschweig, hefir nú einnig verið leyst upp, og er talin sú orsök til þess, að jafnað- armenn og kommfinistar hafi flykkst í þetta lið eftir að fjelög jieirra höfðu verið levst upp. FF. E.s. Hskla fór á mánudaginn frá Neapel áleiðis til Torrevieyja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.