Morgunblaðið - 23.04.1933, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.04.1933, Qupperneq 2
2 MOKGUNPUii.fi Reykjavíkurbrjei. 22. april. Prá útgerðinni. Um miðjan apríl var aflinn á öllu landinu orðinn 34155 smá- lestir af fiski, miðað við verkaðan fisk. Er það um þriðjungi meiri afli en í fyrra og samsvarar nál. helmingi af hæsta ársafla sem hjer hefir verið. Aflaaukningin frá í fyrra staf- ar að mestu af því hve togara- aflinn er meiri í ár en í fyrra, og vegna þess, að fleiri eru hátar og línuveiðaskip sem stunda fiski- veiðar í ár. Hinn tiltölulega mikli togara- afli kemur til af því, hve óvenju- lega þeir öfluðu vel og lengi í Jökuldjúpinu, áður en afli byrj- aði á Selvogsbanka. En aflinn í verstöðvunum utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar er ekki meiri en í fyrra, jafnvel minni. Sambandsþing ungra S j álf stæðismanna. Á sumardaginn fyrsta var sett sambandsþing ungra Sjálfstæðis- manna hjer í bænum. Sambands- fjelögin eru nú 16, en fjelagatala þeirra samanlögð um 2000. Síðan Samhand ungra Sjálf- stæðiamanna var stofnað 1930 hef- ir það eflst jafnt og þjett, fjelög- um fjölgað, og meðlimum fjelag- anna. Torfi Hjartarson lögfræðingur hefir verið formaður sambandsins imdanfarið ár. En sakir fjarveru hans úr Reykjavík síðan í fyrra- sumar hefir varaformaður, Guðni Jónsson, gegnt störfum hans. Torfi hefir, sem kunnugt er verið settur bæjarfógeti á ísafirði. Á þessu ári hefir sambandið aukið blaðaútgáfu sína að mun, frá því sem áður var, síðan Heim- dallur var stækkaður og látinn koma út annan hvern dag. Langfjölmennasta fjelagið innan sambandsins er fjelagið Heimdall- ur hjer í Reykjavík. . Formaður Heimdallar er Jó- hann G. Möller stud- jur. Er það ómetanlegur styrkur Sjálfstæðisflokksins hve ungum áhugamönnum flokksmönnum hef- ir tekist að efla og styrkja sam- t.ök sín og stjórnmálastarfsemi í þágu flokksins. Frá Þýskalandi. Mikil tíðindi þóttu það nm dag- inn er þær fregnir komu frá Þýskalandi, að hinir nýju vald- hafar þar hefðu efnt til harð- vítugra og miskunarlausra Gyð- ingaofsókna, eins og dæmi voru til fyr á öldum og meðal miður siðaðra þjóða, en Þjóðverjar eru nú. En síðar hafa mönnum hjer í Reykjavík borist brjef um þetta og skilríki frá viðskiftasamböndum í Þýskalandi, þar sem fullyrt er að hinar fyrstu fregnir um Gyðinga- ofsóknírnar hafi verið á misskiln- ingi bygðar. Þ. e. a. s- rjett var, að verslun- um Gyðinga var sama sem lokað með valdi einn dag, og Gyðingum á ýmsan hátt sýnt, með harka- legum hætti, að þeir væru vald- höfum landslns miður hugþekkir. En nýrri fregnir herma, að þessar ráðstafanir hafi verið gerð- ar til þess að stemma stigu fyrir því, að Gyðingar í Þýskalandi sendu ýktar og afbakaðar fregnir um óeirðir og stjórnmálaóreiðu í landinu. Úr brjefi. Segir svo í einu Þýskalands- brjefi: „Þess ber að gæta, að hjer hefir verið gerð stjórnarbylting. En sú bylting hefir farið fram með ein- stakri reglu og skipulagi. Það er auðsætt, að slík skipulagsbreyting sem hjer hefir orðið getur ekki farið fram án þess að einstakir óróaseggir gerist um of djarftækir. En enginn slíkra manna kemst hjá hegningu. En svo mikil er breytingin í Þýskalandi á stuttum tíma, að engin furða er, þó þeir sem í fjar- lægð eru geti ekki áttað sig á þeim umbreytingum í skjótri svip- an. — Frjettaburður. kommúnista. 1 blaði nokkru er danskir kom- múnistar gefa út stóð fyrir nokkru heilmikil frásögn af uppivöðslu og óspektum kommúnista á Akureyri. með viðeigandi hóli um frammi- stöðu þeirra. Byrjar frásögnin með því, að víða hefðu verkamannafjölskyldur hjer á Iandi dáið úr hungri á þess- um vetri, ef ekki hefði verið sett upp atvinnubótavinna. Um vinnustöðvunina við Novu segir í þessari Akureyrarfrjett kommúnistanna: ,,Alla nóttina var öflugur verk- fallsvörður við höfnina.Alt í einu heyrðust mörg skot úti í myrkr- inu. — Nokkrir borgara-óþokkar (Banditter) höfðu náð í bát. Skutu þeir nú á verkfallsverðina á bryggjunni. Sem betur fór*hittu þeir engan. En það kom til af því að dimt var. Hópur manna frá landi vopnaðir löngum sveðj- um, rjeðst einnig á verkfallsverð- ina. En verkfallsverðir stóðust einnig þessa árás.“ Hjer er sýnilega puntað upp á frásögnina í því skyni að geta 'betur komið fram fjárbetli sínu ytra. Eins og kunnugt er, er flug’u- fóturinn fyrir skothríðinni sá, að maður, sem var í bát út á Polli hleypti úr skammbyssu niður í sjóinn. En kommúnistar, sem stóðu uppi á hafnarbryggju, urðu ekki allir svo hræddir, að þeir 'liyrfu af hryggjunni, er þeir heyrðu skotin. Spítalinn í Stykkishólmi. Frá Stykkishólmi er blaðinu skrifað um hinn nýja spítala sem þar á að reisa á þessu sumri fyrir forgöngu Meulenbergs biskups í Landakoti. TJpprunalega kom til orða, að þarna yrði reistur spítali eða sjúkraskýli fyrir fje það er þar var handbært um 20 þús. kr. Voru í sjúkrasjóði til 15 þús. kr., en sýsluframlag 6 þús. kr. Hafði Jón- as Jónsson komið auga á þetta fje til byggingar spítala er sýslan ræki. En fyrir milligöngu Óskars Clausen kaupmanns tókst að vekja áhuga Meulenbergs biskups fyrir þessu spítalamáli. Með hinum al- kunna dugnaði sínum fekk hann Fransiskana-regluna í Brús- sel til að leggja fram fjeð og er nú fengið um 230 þús. kr. til byggingarinnar. Sigurður Guðmundsson húsa- meistari hefir gert uppdrætti að spítalabyggingunni. En byrjað verður á verkinu þ. 1. ágúst í sumar. Fransiskanar reka spítalann, og er sýslan laus við þann til- kostnað og áhættu alla. En 80— 100 þús. kr. verða greidd í vinnu- laun í hjeraðið við bygginguna. Stykkishólmsbúar og hjeraðs- menn eru Óskari Clausen mjög þakklátir fyrir ötula forgöngu hans í þessu máli. Framsóknarþingið. Síðan flokksþingi Framsóknar lauk hefir sitt hvað verið um það skrafað hvað þar fór fram. Af Tímanum verður eigi annað sjeð, en þar hafi alt verið i sátt og samlyndi og flokkurinn í einu líki falinn forsjá Sambands ís- lenskra samvinnufjelaga — sem einu sinni, endur fyrir löngu átti að vera ópólitískur fjelagsskapur — útrýma skuldaverslun og gera bændur sjálfstæða, efnahagslega sjeð. Á því þingi tilnefndi Jónas Jónsson nefnd manna, er hafa skyldi það hlutverk að skamma og úthúða Tryggva Þórhallssyni. Framsögumaður var uppfræðar- inn á Laugarvatni Bjarni Bjarna- son, skólastjóri. Fyrir utan sitthvað annað er skólastjórinn jós yfir Tryggva Þórhallsson, lysti hann Tryggva andlega og líkamlega óheilbrigðan, með þeim hætti, að fundarmönn- um ofbauð talið. Eins og gefur að skilja var Tryggvi Þórhallsson fjarverandi er skólastjórinn hjelt þessa einstæðu framsöguræðu. Svo kvað ramt að, að jafn vel Bjarni Bjarnason, þessi gegn- slepjaða Hrifludula, vaknaði með óbragð í munninum daginn eftir, og skrifaði Tryggva Þórhallssyni afsökunarbrjef. Sumir halda því þó fram, að brjefið hafi verið sprottið af eftir- þönkum skólastjórans um við- skifti hans við Búnaðarbankann. Blaðaútgáfur. Um nokkurt skeið hefir blað eitt lítið verið selt hjer á götun- um, er komið hefir út um hádegis- bil. Hefir það ekki vakið eftir- tekt af öðru en því, að í blaðinu hafa að jafnaði birst greinar með einstakri hneigð til að útmála alls- konar óþverra og slefsögur. Gátu menn fljóilcga áttað sig á hvaða manntegund spýtti í blað þetta, að hjer hafði Hrifluliðið fengið einskonar frárensli, blaðið var nýr kvistur á stofni Tímans. í fyrradag var auglýst að nýtt blað, ,Framsókn‘ að nafni kæmi út í dag. Ritstjóri Arnór skóla- stjóri frá Laugum. En Tryggvi Þórhallsson o- fl. í útgáfunefnd. En í gær kom hin daglega út- rás Hriflunga með nýju nafni, og hjet „Framsókn". Er útlit fyrir að dragi til ósam- komulags um nafnið milli Hrifl- unga og Tryggva Þórhallssonar um nafnið, þó óneitanlega sje ólíku saman að nafna, alvarlega rituðu landsmálablaði annars veg- ar, en hinsvegar blaði, sem flyt- ur efni, er jafnvel Tímanum er csamboðið. Útvarpið „hlutlausa". Tilkynning kom í útvarpinu eða auglýsing á sumardaginn fvrsta frá útgáfustjórn vikúblaðsins Framsókn, um ritstjóra, útgáfu- Innilegt þakklæti til allra þeirra sem sýndu mjer samúð og hjálp við fráfall og jarðarför mannsins míns, Sigþórs Júl. Jóhannssonar. Jóna Finnbogadóttir. Móðir mín, Ingibjörg Jónsdóttir, Eyvakoti, Eyrarbakka, andaðist 21. apríl. Jarðarförin er ákveðin þ. 28. þ. m. Elín Eyvindsdóttir. Jarðarför ekkjunnar Guðrúnar Gísladóttur, sem andaðist 14. apríl, fer fram þriðjudaginn 25. þ. m. að Saurbæ á Kjalarnesi og hefst með húskveðju á heimili hinnar látnu, Neðra-Hálsi í Kjós, klukkan 10 árdegis. Aðstandendur. Kveðjuathöfn yfir Ingveldi Jónsdóttur, systur minni, fer fram frá líkhúsi Farsóttahússins, mánudaginn 24. þ. m. kl. 3 síðd. Sæmundur Jónsson, frá Sólheimahjáleigu í Mýrdal. Jarðarför mannsins míns Gísla Andrjessonar verslunarmanns fer fram þriðjudaginn 25. apríl frá heimili okkar, Þórsgötu 13. Athöfnin hefst með húskveðju kl. 1 síðd. Magnea Sigurðardóttir. Stúlka, sem er vön tvöfaldri bókfærslu og kann að hraðrita á ensku og íslensku, getur fengið ágæta atvinnu á skrif- stofu hjer í bænujm. Umsóknir ásamt kaupkröfu, sendist A. S. í. merkt: „Skrifstofustörf.“ Láfið ofelnr hreinsa sængurfötin yðar í okkar nýju vjelum, sem hreinsa, þvo og þurka fiðrið. Ábyrgð tekin á góðri vinnu. Látið gera sængurfötin yðar og púða sem nýtt hjá Fiðurhreinsun íslands. Aðalstræti 9 B. sími 4520. RðalfiaODr Knattspyrnufjelagsins Fram verður hald- inn í dag kl. 2 síðd. í Kaupþingssalnum (Eimskipaf jelagshúsinu). Dagskrá samkvæmt fjelagslögum. — Áríðandi að allir fjelagsmenn mæti. N.B. Þeir sem ekki hafa fengið fjelags- blaðið, geta náð í það þar. stjórn, og að blaðið kæmi út þ. 23. apríl. í auglýsingunni var nefnd stefna blaðsins- En þetta þótti útvarpsstjóra of nærgöngult við „hið hlutlausa“, sagði að slíkt yrði að strika út úr auglýsingunni, svo heiðri út- varpsins væri bjargað(H!) Það er ekki lítil viðkvæmni að tarna hjá hinum siðavanda(!) út- varpsstjóra. Einhvern veginn atvikaðist það þannig, að auglýsingin mun hafa verið endurtekin í útvarpinu næsta dag, og þá úrfellingalaus. Á meðan .... Útvarpsnotandi einn kom ný- lega að máli við „háttstandandi persónú ‘ innan útvarpsstarfsem- innar og kvaðst vart myndi greiða afnotagjald sitt meðan alt stæði við það sama með stjórn útvarps- ins. —• —- „Á meðan afnotagjöldin renna í vasa Jónasar Þorhergsson- ar eigið þjer við“ — svaraði per- sónan. Útvarpsnotandinn samsinti því. Hjálpræðisherinn. Samkomur í dag: kl. 11 árd. Helgun, kl. 2 síðd. barnasamkoma, kl. 4 síðd. lofgjörð, kl. 8 síðd- Hjálpræði. Lúðra- og strengjasveitin aðstoða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.