Morgunblaðið - 23.04.1933, Page 4

Morgunblaðið - 23.04.1933, Page 4
4 * o R r, « NBLAÐIÐ fluglvsingadagöók Athugið: Hattar, harðir og linir, húfur og fleira nýkomið í Karl- mannahattabúðina, Hafnarstræti 18. Einnig handunnin hattahreins- un. Sú einasta besta. Sama stað. Sendisveinn, duglegur, ca. 16 ára óskast strax í Flóru, Vestur- götu 17. Upplýsingar í Búnaðar- fjelagshúsinu uppi, milli 7 og 9 í dag. Sími 2151. Höfum fengið úrval af útsæðis- kartöflum og fleiri tegundir af rabarbarahnausum, Flóra, Vestur- götu 17, sími 2039. 2 herbergi og eldhús í Hafnar- firði óskast 14. maí. Sími 9155. Vil kaupa nýlega 5 manna bif- reið (Drossíu). Nánara í síma 1909 á mánudag.■ Á Vesturgötu 22 er ódýr íbúð, 2—3 herbergi og eldhús, til leigu. Upplýsingar hjá Jaeobsen, Vest- urgötu 22. Sími 3565. ^___ Heimabakarí Ástu Zebitz, Öldu- götu 40, þriðju hæð. Sími 2475. Litla blómabúðin, Laugaveg 8, sími 4957. Mikið úrval af mjög fallegum rósastilkum. talensk máJverk, fjðlb-eytt úr- val, bæði í olíu og vatnslitum, iporöskjurammar af mðrgura itærðum, veggmyndir í stfiru úr- vali. Mjmda- og rammaverslunin, Freyjugötu 11. Sig. I»orsteinsson. Gylt armbandsúr hefir tapast. Skilist gegn fundarlaunum á Sól- vallaagötu 31, uppi. Kðputaulo eru komin, manchester Laugaveg: 40. Sími 3894. Ný blfið. Erlend blöð og- tímarit koma í dag. Einnig dönsku dagblöðin: Dagens Nyheder, Berlingske Tidende. Politiken, Ekstrabladet, Social-Demokraten, Munið að nýjustu blöðin fáið bið ávalt í BdkktúÍOh' Lækjargötu 2. Sími 3736. Meðal farþega á Dettifossi í gær til útlanda voru: Agnar Júlíusson. Ásgeir Bjarnason. Þórarinn Jóns- son. Runólfur Sigurðsson. Sigríð- ur Guðmundsdóttir. Magnús Blön- dal. Ólafur Jónsson. Elenora Þor- kelsdóttir. Frú Jolivet, sem hjer hefir dval- ið um skeið á vegum Alliance Frangaise og kent frönsku, tók sjer fari utan með Dettifossi í gær. Skipafrjettir. Gullfoss fór frá Leith í gær, áleiðis til Vestm,- eyja og Reykjavíkur. Goðafoss kom til Vestmannaeyja kl. 4 í fyrranótt, væntanl. hingað í kvöld. Brúarfoss fór frá Akureyri í gær- kvöldi, áleiðis til ísafjarðar. Lag- arfoss var á Vopnafirði í fyrra- dag. Dettifoss fór áleiðis til Hull og Hamborgar í gærkvöldi. Sel- fcss er á leið til Vestmannaeyja frá Englandi. Hjónaefni. Á sumardaginn fyrsta opinberuðu trúlofun sína ungfrú Sigrún B. Melsteð og Matthías Sveinbjörnsson lögregluþjónn, Bergþórugötu 31. Skugga-Sveinn verður leikinn í dag í 24 sinn kl. 3 í K. R. húsinu. Verður þetta ef til vill næst síð- asta sýningin hjer í hæ. Heyrst hefir að K. R. ætli síðan í Hafn- arfjörð bráðlega að leika Skugga- Svein. Vinsældir þessa leikrits eru miklar, sem best má sjá á því, að altaf þegar það er leikið og vel tekst með leikinn, er ekkert leik- rit sem gengið hefir jafnlengi í einu hjer. Fiðluhljómleika halda þau Lilli Poulsen og Einar Sigfússon næst- komandi fimtudagskvöld í Gamla Bíó. Drengjahlaup Ármanns fer fram í dag kl. iy2 siðd. Eru þátttak- endur 30 frá þremur íþróttafje- lögum: Glímufjelaginu Ármann, íþróttafjelagi Kjósarsýslu og Knattspyrnufjelagi Reykjavíkur. Þetta er í fyrsta skifti sem utan- bæjarfjelag tekur þátt í hlaupi þessu. Vegalengdin er um 2y2 röst og hefst hlaupið í Austur- stræti, þaðan hlaupiið Aðalstræti, Suðurgata, kringum gamla íþrótta völlinn, niður Skothúsveg og end- að nyrst i Lækjargötu. Keppendur og starfsmenn mæti í Gamla Barnaskólanum kl. 1. Áhorfendur eru vinsamlega beðnir að hafa hlaupabrautina vel opna, sjerstak- iega við endamark. Trúlofun. Á páskadaginn opin- beruðu trúlofun sína ungfrú Sig- ríður Þorvarðardóttir og Þórður Jónsson, Grettisgötu 55. Gjafir til Slysavarnafjelags ís- lands, til kaupa á björgunarskútu. Frá Guðbjörgu Vigfúsdóttur, Ön- undarholti 10 kr. Fjársöfnun við kirkju á Patreksfirði, sjómanna- daginn frá síra Einari Sturlaugs- syni kr. 146.64. Nemendum Hvann eyrarskólans 32 kr. Skipverjum á Dettifossi 156 krónur. Ólína Þórð- ardóttir og Ólafur Sigurðsson, Akranesi 30 kr. Björgvin Jóhanns son, Reykjavík kr. 1.50. Frá ó- nefndum 2 kr. Frá ættingjum tveggja bræðra 400 krónur. Frá skipverjum á Es. Esja 49 kr. Frá skipverjum á Es. Sigríður 146 kr. Frá skipverjum á vjelbátnum Vík- ingur 200 kr. Frá fjelagi ungra Sjálfstæðismanna á Akranesi kr. 249.86. Frá skipverjum á bv. Hannes ráðherra 130 kr. Kærar þakkir, Jón E. Bergsveinsson. Heimatrúboð leikmanna, Vatns- stíg 3. Samkomur í dag: fyrir trúaða kl. 10 ára. Barnasamkoma kl. 2 síðd. Almenn samkoma kl. 8 síðd. Allir velkomnir Aðalfundur knattspyrnufjelags ius Fram verður haldinn í Kaup- þingssalnum kl. 2 í dag. Farsóttir og manndauði í Rvík vikuna 9.—15. apríl (í svigum tölur næstu viku á undan): Háls- bólga 25 (48). Kvefsótt 41 (82). Kveflungnabólga 1 (3). Iðrakvef 15 (20). Inflúensa 61 ‘(94). Tak- sótt 0 (1). Hlaupabóla 3 (6). Munnangur 0 (2). Stingsótt 0 (2). Þrimlasótt 0 (1). Kikhósti 1? (0) Svefnsýki 2 (0). Mannslát 17 (6) Þar af druknaði af Skúla fógeta 13. Landlæknisskrifstofan. (FB) Nemenda danssýning frú Rig- mor Hanson á annan í páskum fór hið besta fram; efnisskráin var mjög fjölbreytt og sýndu nem- endur frúarinnar, þar list sína, eldri og yngri og tókst vel. — Danssýning þessi verður endur- tekin í Iðnó í dag kl. 3 — og aðeins í þetta eina skifti. H. Frá Dýraverndunarfjelaginu. — Einn af stjórnendum Dýravernd- unarfjelagsins skýrði Morgunbl. þannig frá: í gær fann Sigvaldi bóndi á Nesjavöllum lambfulla á utan til við veginn, rjett fyrir ofan Baldurshaga, sem lítið var annað en bjórinn og beinin og gekk varla undan manni. Reynd- ist það vera ær frá Grafarholti. Tók Sigvaldi kindina og bað fyrir hana á Baldurshaga, en þar var lienni gefin mjólk að drekka og að henni hlynt. Tilkynti Sigvaldi þetta formanni Dýraverndunar- fjelagsins, sem brá sjer uppeftir, ásamt dýralækni, Sig. Gíslasyni lögregluþjóni og Sigvalda. Gaf dýralæknir það vottorð, að meg- urð kindarinnar stafaði af ónógu eða slæmu fóðri og taldi rjett, að kindin yrði höfð undir eftirliti og hjiikrun, með því að hún mundi engin skakkaföll þola. Var þetta síðan kært fyrir sýslumanni Gull- bringu og Kjósarsýslu og þess krafist, að fjeð í Grafarholti yrði skoðað af dýralækni og öðrum þar til kjörnum mönnum. Skólamál í Tímanum. f lofgrein nm hina nýju hjeraðsskóla í Tím- anum síðast er frá því skýrt hve geysimiklum framförum nemend- ur Reykholtsskólans hafa tekið. Þar segir svo: „f Reykholti var almenn framför nemendanna mjög áberandi, t. d. þyngdist sumt af fólkinu þar alt að y2 kg. á viku yfir allan veturinn.“ Um aðrar framfarir nemenda talar blaðið ekki. Togararnir. Ver kom af veiðum í gær, með 74 tn. lifrar. Slökkviliðið var í gær kvatt suður að Landssítala. Hafði ben- síni verið helt í fötu — tekið i ógáti í stað dúkaáburðar — og fatan síðan sett inn á vatnssalerni á handlæknisdeildinni. Hafði svo einhver komið þar inn með eld, sem komst í bensínið og hlossaði það upp. Eldurinn sar strax slökt- ur og skemdir urðu sem engar og engin meiðsl hlutust af. Kökugerðarslkóli. Bakarameist- arafjelag Reykjavíkur hefir haldið uppi kökugerðarskóla frá því í miðjum október og til páska. — Hafa nemendur verið þessir: Þórður Hannesson, Guðmundur Tngimundarson, Ásgeir Sandholt, Guðmundur Hersir og Árni Jó- hannsson. Kennarar hafa þeir verið Magnús Kristjánsson, Hans Eyjólfsson og Björn Björnsson. Er þetta fyrsta námskeið þessa skóla. Er í ráði að hafa kensluna ítarlegri næsta ár, bóklega og Verklega. og veita þeim nemendum verðlaun, sem bestir reynast. í dag er gluggasýning í sýningar- skálanum í Austurstræti 20, frá kökugerðarskólanum. Úr Vestur-Skaftafellssýslu. Ekki vita menn enn með vissu hve margt fje hefir farist í byljunum og snjókynginu eystra, en á flest- 9, Quimucdur Biarnasin Bakka í Siglufirði. Hinn aldraði og alkunni sóma- maður, Guðmundur Bjarnason á Bakka, Siglufirði, var einn meðal farþega á ,Dettifossi‘ að norðan um daginn, og dvelur í bænum þessa dagana. Guðmundur er nú nærri sjötugur að aldri, og er þetta í fyrsta sinn sem hann heim sækir höfuðstaðinn, og mun hing- aðkoma hans aðallega standa í sambandi við fjölda áskorana frá vinum og kunningjum, sem hann á marga af hjer í höfuðstaðnum, sem og enda víðar um land alt, því maðurinn er vinsæll mjög. — Þrátt fyrir hans háa aldur, og ýmislegt andstreymi lífsins, er Guðmundur ern vel og sífjörugur, og stráir um sig yl og glaðværð hvar sem hann kemur. Guðmund- ur var á sínum tíma einn af allra ötulustu og framsæknustu sjó- görpum við hákarlaveiðarnar fyrir Norðurlandi í gamla daga, á þeim mjög svo ófullkomnu skipum, sem þá tíðkuðust, og kann frá mörg- um svaðilförum að segja frá þeim dögum. Þykist sá, sem þetta ritar vera þess viss, að Guðm. muni hafa mikla ánægju af þessari stuttu dvöl sinni hjer í bænum, enda keppast vinir hans um að gera honum dvölina sem ánægju- legasta. Heill og hamingja fylgi þessum a.ldraða heiðursmanni á ófarinni æfibraut. Gamall vinur. um hæjum í Skaftártungu vantar eitthvað og margt frá þrem hæj- um, vestan Tungufljóts. Má bú- ast við, að það fje sje dautt, sem ekki hefir náðst upp úr fönninni og er því tjón bænda mjög til- finnanlegt. 1 Austur-Mýrdal vant- ar einnig f je, flest á Höfðabrekku, um 40 ær. Veður hefir verið gott eystra síðustu daga og snjór mink að mikið. Mr. James Davis sendiherra New Foundlands í London var meðal farþega á Dettifossi í gær. Nýjair Kvöldvökur, janúar-mars hefti er nýkomið út. Þar er smá- saga eftir Jónas Rafnar, er heitir ,.Hunde bades“, framhald Fnjósk- dælasögu eftir Sig. Bjarnason og er þar m.a. þáttur af Birni í Lundi. Þar er og þýðing á .Draumi dýravinarins* eftir Axel Munthe — höf. San Michele og framhalds- sao-an. Og hann sveif yfir sæ, eftir Lars Hansen; og ýmislegt fleira. Útvarpskvöld Mentaskólans verð- ur í kvöld kl. 8y2 og er dagskráin einkar fjölbreytt. Tíminn í gær, sendir hinu nýja blaði Tryggva Þórhallssonar, tón- inn. Hljómleikar Irvin Schenkmanns í Gramla Bíó eru í dag kl. 3. Saumaklúbbur Barnavinafjelags ins ,Sumargjöfin‘ mætir eins og vanalega í Austurbæjarbarnaskól- anum á morgun (mánudag) Id. 4 síðd. Einnig verður þar veitt við Garðastræti og Bárugötu á liinni svonefndu Frímúraralóð, er til sölu (samkvæmt uppdrætti). Lóð þessi verður seld með mjög sanngjörnu verði og góðum borgunarskilmálum. Allar nánari upplýsingar viðvíkj- andi sölu gefur Bjarnt Jínsson, Galtafelli. Sími 4344. Lllln- límonaði- púlver gefur þesta og ódýrasta drykkinn. Hentugt í ferðalög. 1.1. ifnagerð Reykjavfkur Morgunblaðið fæst keypt i Cafá Srauar, við Barðnsstlg. móttaka gjöfum þeim, er fjelags- kónur fúslega vilja fórna og nú þegar hafa tilbúnar á Bazarinn. Æskilegt að hinar, sem ekki geta strax afhent sínar fyrirhuguðu gjafir, gætu komið þeim axman mánudag á sama stað og tíma. Kvenf jelag þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði efnir til samkomu í kirkjunni í dag kl. 5l/2 síðd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.