Morgunblaðið - 25.04.1933, Blaðsíða 3
3
jpflorgttttblaMft
Btft.: H.Í. Arvakur, lirUlTlk,
Hlt»tJÖrar: Jön KJartanaaon.
Valtyr BtafAnaaoa.
Hltatjörn og afKralöala:
Auaturatrœti 8. — Slaat 1800.
AurlýalnKaatJörl: B. Hrfbarff.
AnKiyalnKaakrlfatofa:
Auaturatrœtl J7. — Blaal 1700
Halaaaalmar:
Jön KJartanaaon nr. 8741.
Valtýr Stefánaaon nr. 48X0.
B. Hafberg nr. 8770.
ÁakrlftaKJald:
Innanlanda kr. 8.00 A mánull.
Utanlanda kr. 8.50 * aa&nuBi,
t lauaaaölu 10 aura alntaklB.
80 aura maB Laabok.
flnnað huort.
* Alt þangað til á sunnudaginn
var, liafa Reykvíkingar horft á
götuóspektir kommúnista og
glumrugang, með hendur í vösum.
Þá var bæjarbúum nóg boðið.
Þá var hið dæmafáa íslenska lang-
lundargeð gengið til þurðar.
Kommúnistar efndu til götu-
fundar niður við Varðarhús, með
sínu margendurtekna byltinga-
skrafi.
Þeir fengu ekki að tala. Þeim
var vísað á burt. Það kostaði
nokkur handtök. Fáeinir menn
meiddust. Meiðslin voru þó ekki
alvarleg, sem betur fer.
Síðan tóku þessir framtaks-
sömu andstæðingar kommúnista
sjer íslenskan fána í hönd.
Fylkingin undir þjóðfánanum
varð brátt fjölmenn. Fljótlega
mætti sú fylking „árásarliði"
kommúnista.
Lið þeirra hefir að vísu breytt
um nafn mi nýskeð. Það heitir
víst ekki lengur „árásarlið11 held-
úr „varnarlið".
Þegar fánaliðar mættust, þeir
sem undir þjóðfánanum voru, og
hinir, sem skipað hafa sjer undir
þann rússneska, gerðist sá at-
burður, sem geymast mun í eftir-
mælum liins íslenska kommún-
isma.
Rauðliðarnir hurfu fyrir horn,
skyndilega, hljóðalaust, mölgun-
arlaust, eins og lít.il dýr, sem
fengið hafa nokkra stýfing á sín-
um aftasta líkamsparti.
Seinna sýndu þeir sig snöggv-
ast undir beru lofti. Var þá flokk-
Tlr þeirra fámennari en hann
hefir nokkru sinni sjest. Enda
hurfu þeir skjótt inu undir eigið
þak.
Kommúnistar hafa undanfarin
missiri vaðið hjer uppi, sem kunn-
'ugt er, spilt götufriði, lileypt. upp
fundum, ráðist á lögreglu, haft í
Tiótunum við ríkisvaldið á allan
hátt.
Máttlítið hefir ríkisvaldið horft
á þær aðfarir — og aðgerðadauft.
Svo lengi hefir sá leikur stað
ið, að löghlýðnum mönnum of-
hýður. Æska höfuðstaðarins, sem
á lífið framundan, vill ekki eiga
það á hættu, að komnnmistar
npilli framtíð þjóðarinnar.
Löghlýðnir æskumenn heimta að
kommimistar fái makleg mála-
•gjöld orða og verka.
Takist ríkisvaldinu ekki að
gegna skyldu sinnar gagnvart
uppreisnarlýðnum, þá er að því
stefnt, að andstæðingar komnrún-
ista taki að sjer að gegna þeim
skyldum sem á ríkinu hvíla.
En er ekki hitt heppilegra, að
ríkisvaldið sjálft geri skyldu sína?
MORGUNBLAÐIÐ
Okyrð á Reykiavíkurgðtum.
Kommúnistar leggja á flótta og leita
lögregluverndar.
Æskulýður borgarinnar safnast undir
íslenska fánann.
Veður var hið besta á sunnu-
daginn, milt, lygnt og bjart, á-
kjósanlegt vorveður. Óvenjumargt
manna var því á ferðinni um göt-
ur bæjarins.
Það urðu því brátt margir til
þess að veit.a því athygli er for-
sprakkar kommúnista, Stefán
Pjetursson, Einar Olgeirsson, Þor-
steinn Pjetursson, Guðjón Bene-
diktsson o. fl. efndu til útifund-
ar niður á Kalkofnsvegi.
Þetta var kl. 4 síðd. Fundar-
stjóri var að sögn Guðjón Bene-
diktsson. Fundur var settur aust:
an við Varðarhúsið.
Auglýst liafði verið, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hjeldi fund í
Varðarhúsinu kl. 5. Var þess getið
til, að kommúnistar hefðu valið
sjer fundarstað og fundartíma
þarna með tilliti til þess að þeir
um leið kynnu að geta raskað
fundarfriði Sjálfstæðismanna.
Stefán Pjetursson hóf máls á at-
vinnubótum.
Nokkrir unglingspiltar stóðu
upp á kolabing þar skamt frá. Þeir
liófu söng og voru háværir svo
lítt heyrðist. mál Stefáns. Umhverf
is Stefán var hópur flokksmanna
hans með rauða dulu bundna um
handlegginn. Var það einkehnis-
merki.
Hinir rauðmerktu kváðu vera í
„árasarliði11 kommfinistaflokksins.
Stefán talaði og um rikislög-
reglu, og andmæiti henni mjög
að bolsasið.
En áður hann liafði lokið máli
sínu sá hann sitt óvænna, Þeir
voru svo háværir sem á kolabingn-
um stóðu-
Eggjaði hann nú „árásarliðið“
til uppgöngu á kolabinginn, svo
þeir kómmúnistar gætu þaggað
niður sönginn með handafli. Fekk
hann daufar undirtektir í fyrstu.
En er hann tók sjálfur foryst-
una, og rjeðst til uppgöngu fvlgdu
í auðliðar honum.
Urðu sviftingar nokkrar.
f mannþyrpingunni sunnan við
lcolabinginn, er safnast hafði þar
saman, var Gísli Sigurbjörnsson.
Plann hljóp upp brekkuna í tún-
fæti Arnarhólstúns austan við
Kalkofnsveginn. — Hafði hann
hvorki eit’t nje neitt aðhafst þarna
kommúnistum til skapraunar.
En einn úr liði þeirra, Jörgen
ívar Sigurbjörnsson, hljóp til á.
eftir Gísla og barði hann í andlit-
ið. Kom höggið á augað. Fjell
Gísli við, og misti meðvitund í
bili, og var borinn inn í Varðar-
húsið. Þar rankaði hann skjótt
við sjer.
Fleiri meiddust. ekki, svo orð
sje á gerandi, að því er blaðið
veit.
Ntí Ijet rauða liðið af frekari
tilraunuih til fundarhalda, en hjelt
með fána sinn frá Varðarhúsinu.
Hjelt hópurinn suður í Templ-
arasund og staðnæmdist við Þórs-
hamar.
,,Við berjum þá niður hvern ein-
asta einn“.
Á tröppum Þórshamars hjelt
Einar Olgeirsson ræðu. Sagði hann
m. a. að menn þeir hjer í bænum,
sem dirfðist að ganga með ein-
kennismerki er bæri vott um að
þeir væru í flokki þjóðernissinna,
þeir mættu eiga vís högg frá kom-
múnistum. „Við berjum þá niður
hvern og einn einasta“, sagði
Einar.
Er hann liafði lokið máli sínu
hjelt rauða liðið enn af stað.
íslenski fáninn reistur.
Nú víkur sögunni til þeirra, er
hröktu kommúnista frá Varðar-
húsinu. Þeir fengu sjer íslenskan
fána og gengu undir honum í
fvlking suður Kalkofnsveg. Er
þeir komu vestan úr Aðalstræti
eftir Kirkjustræti, vildi svo til að
fylking þeirra mætti rauða liðinu,
þar sem það kom frá Templara-
sundi.
Bjuggust menn nú við, að eitt-
livað eimdi eftir af stóryrðunum,
sem töluð höfðu verið í Templara-
sundi, og draga mvndi til áfloga
þarna á götunni.
En svo varð ekki.
Flokkur kommúnista greikkaði
sporið og smeygði sjer inn í Thor-
valdsensstræti. með hið rauða ein-
kennismerki sitt, en fánalið þjóð-
fánans gekk óhindrað leið sína,
En nokkru eftir að þjóðfána-
liðið hafði slitið göngumóti sínu,
komu rauðliðar aftur niður á
Kalkofnsveg, og efndu til fundar
rjett hjá Varðarhúsinu.
Liðsmönnum ,árásarliðsins‘ með
rauðu einkennin hafði fækkað.
Ræður kommúnista voru nú fá-
orðar.
Þorsteinn Pjetursson örfaði
verkamenn til að ganga í „varn-
arlið verkalýðsins", hið rauð-
merkta, að manni skildist, og átti
hlutverk þess að vera, að sporna
við óspektum í bænum(!)
Var sýnilegt að kommúnistar
áttu hverfandi fylgi meðal mann-
fjöldans er þar safnaðist saman.
Hjeldu þeir brátt heimleiðis til
Bröttugötu, þar sem er flokks-
heimili þeirra og fundarsalur í
Fjalakettinum.
Meðan kommúnistar voru á
fundi í Fjalakettinum safnaðist
talsvert af fólki í Bröttugötuna.
Einhverjum gárungum, sem
fanst að kommiínistar væru best
geymdir heima hjá sjer negldu
aftur útidyr samkomuhússins með-
an kommúnistar sátu á ráð-
stefnu sinni.
Er þeir loks komu út aftur, og
höfðu af því nokkuð erfiði, leist
þeim svo ófriðlega á fólk það sem
á götunni var, að nokkrir þeirra,
þ. á m. Þorsteinn Pjetursson, sneri
sjer til lögreglumanna er þar voru,
og óskuðu þess, að þeir fengju lög-
regluvernd til þess að komast leið-
ar sinnar. Var sú aðstoð fúslega
veitt,
Svo fór um sögu þá.
Landsfundurinn. Næsti fundur
hefst kl. 10 árdegis í dag og verða>
þar ræddar tillögur ríkislögreglu-
nefndar.
Hljómleikar
í Bamla bíó.
Irvin Schenkmann.
Píanóleikari þessi býr yfir hæfi-
leikum, sem eklti eru á hverju
strái. Leikni lians er mikil og
áslátturinn oft mjúkur með af-
brigðum. En honum er markaður
bás. Handel-variationirnar eftir
Joli. Bralims, voru teknar of laus-
um tökum yfirleitt, þótt víða
gætti skáldlegra tilþrifa. Það var
eins og þetta mikla verk losn-
aði úr reipunum og skorti þess-
vegna heildarsvip.
Betur átti Chopin við skapferði
listamannsins. Ballade í As-dús
var vel leikin. Etiide í As-dúr
reyndar nokkuð öfgafull, en
Scherzo í h-moll var prýðilega
leikið.
Siíðast á efnisskránni vorn
„Jeux d’eau“ eftir Ravel, „Reflets
dans l’eau“ eftir Debussy og
„La Campanella“ eftir Paganini-
Liszt. Hið síðastnefnda varð all-
mjög iitundan í meðferðinni, en
í hinni „impressinonistisku“ list
frönsku tónskáldanna náði piano-
leikur Schenkmanns hájnarki
sínu. Túlkan hans á þessum verk-
nm var mjög glæsileg.
Aðsókn var altof lítil og verð-
ur vonandi meiri ef hann leikur
aftur. Það ætti liann fyllilega
skilið.
Páll fsólfsson.
Sumarmöt Horræna
fielagsins,
Á komandi sumri efnir Norræna
fjelagið til margra móta og nám-
skeiða þrátt fyrir kreppu og fjár-
hagslega örðugleiga.
f Danmörku verður kennaramót|
á Hindsgavl, er stendur yfir frá
23. júlí til 1. ágúst- Mótið verður
sjerstaklega helgað minningu
Grundtvigs, því að í ár eru 150
ár liðin frá fæðingu hans, verða
þar því nokkrir fyrirlestrar flutt-
ir um starf hans, sem skólamanns,
5 ísl. kennurum er boðið á mótið.
Að mótinu loknu verður skemti-
ferð farin til Suður-Jótlands. Til
verkamannamóts efnir fjelagið
einnig á Hindsgavl 21.—27. maí.
Þar flytja nokkrir helstu verka-
mannaforingjar í Danmörku fyrir-
lestra og hefja umræður um mik-
ilsvarðandi málefni. 5 verkamanna
fulltrúum frá fslandi er boðin
þátttaka. Mót fyrir stiídenta sem
nema norræn fræði verður á Hinds
gavl 11.—20. jiíní og er 5 stúdent-
um ásamt einum prófessor boðið
hjeðan. Verða þar fluttir fyrir-
lestrar um málvísindi, nýrri bók-
mentir og bókagagnrýni. Fyrir-
lesarar verða ýmisr þektir vísinda
menn og rithöfundar. Má nefna
Joh. Bröndum-Nielsen, Joh. V.
Jensen, Anker Larsen, Gunnar
Gunnarsson og Sven Stolpe. Eins
og að undanförnu verður Hinds-
gavl ætlað til dvalar fyrir fje-
lagsmenn án þess að nokkuð mót
sje þar 1.—15. júlí.
f Finnlandi verður fulltrúamót
fjelagsins og verslunar- og banka-
ntannamót. Ennþá er ekki ákveðið
á hvaða tima, þessi mót verða,
f Noregi verður námskeið í Osló
fyrir matreiðslukenslukonur og
stendur það frá 23. júní til 1. júlí.
BÓKHLAÐAN.
Lœkjargötu 2.
Ný blöð:
Filmjoumalen,
Bonniers Novell. Mag.
Vor Tid,
For Alle,
Kino Magasinet,
Novelle Magasinet,
Radiomagaoinet,
Norsk Sjakkblad,
Vikingen,
Mit Magasin,
111. Familie Journal,
Dansk Familie Blad,
Aftenbladet Söndag,
Söndags B. T., 3
Hjemmet,
Vore Damer,
Tidens Kvinder,
Ugebladet,
Idrætsbladet,
Ude og Hjemme
Köbenhavnerinden,
Cocktail,
Hele Verden,
Du og jeg.
ÞÝ2K BLÖÐ:
Berliner III. Zeitims,
Hamburger Illustrierte,
Die Koralle,
Das Leben,
Die Griine Post,
Das Magazin,
Scherls Magazin,
Uhu.
Die Woche,
Filmwelt,
ENSK BLÖÐ:
Novel Magazine,
The Strand Magazin,
The Grand Magazine,
Pearsons Magazine.
News of the World,
The Motor Cykle,
DÖNSK DAGBLÖÐ:
Dagens Nyheder,
Berlingske Tidende.
Politiken,
Social-Demokraten,
Ekstrabladet,
Tískublöð:
Chic Parisien.
Children Dress.
Romas Pictorial Fashion
Home Fashion.
Butterick.
Le Jardin des Modes.
la Mode de Demain.
Pariser Chic.
Pariser Record.
Weldon Ladies.
Weldon Children.
Madame fait s. Robes
(Merv. de Modes).
Praktische Damen- utld
Kinder-Mode.
Modenzeitung furs
deutsche Haus.
Nordisk Mönster-Tidende
Elegante Welt.
BdkUiú&a*
Lækjargðtu 2. Sími 3736.
S. ENGILBERTS,
nuddlæknir, Njálsgötu 42.
Heima 1—3. Sími 2042.
Geng einnig heim til sjúklinga.