Morgunblaðið - 20.06.1933, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
I
Stjettaflokkarnir
og 5|álfstceðisflokt?urinn.
JpfforgmsMaMft
: H.Í. Árr»kur, KitUmIK!
Sltatjðrar: Jðn IJirtuuon.
Valtjr Stiftnnoa
Bltitjðrn og atfriltila:
▲uaturatrœtl 8. — BlaU 1(01.
▲ud^alnraatjðrl: ■. Hafbor*.
Analfalncaakrlfatofa:
Auaturatrætt 17. — BlaU 8700
IilnMlur:
■ Jðn KJartanaaon nr. 8741.
Valtýr Stef&naaon nr. 4110.
H. Hafbers nr. 1770.
AakrlttaorJald:
Innanlanda kr. 1.00 * nlnilL
Utanlanda kr. 1.(0 4 ■illlli
I lauaaaðlu 10 aura etntaklB.
10 aura mil LmMK.
----£-----------------------------
íþróttir.
* „Heilbrigð sál í hraustum
3íkama“. — Þetta forna spakmæli
tóku ungir menn og uppvaxandi
sjer í munn fyrir 25 árum, og
vöktu æskulýð landsins til íþrótta
starfsemi.
Síðan hafa íþróttirnar verið
merkur þáttur í uppeldismálum
'þjóðarinnar. Þangað iiafa allmarg-
ir af núverandi áhrifámönnum
'þjóðfjelagsins sótt heilbrigði sína,
kjark og þrótt.
Heilbrigt íþróttalíf verður vart
vegsamað meira en þa.ð á skilið.
Til þess að halda áhuga æsku-
nnanna við íþróttirnar, til þess að
fá áhugamennina til að leggja
fram krafta sína, hafa sig alla
við, gera sitt ítrasta, koma kapp-
leikarnir til sögunnar, kappmótin,
'þar sem einstaklingar, íþrótta-
flokkar og f.jelög keppa, og loks
alþjóðamót, þar sem þjóðir senda
fram methafa sína og fræknustu
kappa.
Þá er ekki Jengur fyrst og
fremst. hugsað um íþróttirnar, sem
heilbrigðismál og heilsugjafa,
heldur sem þraut.ir, er menn kepp-
.ast við að leysa, sjer og fjelagi
,sínu, flokki eða þjóð til frama.
Til þess eru jafnvel dæmi, að
menn tefla á fremsta blunn með
heilsuna, til» þess að ná settu
marki. Þá eru íþróttir iðkaðar
vegna meta og metnaðar.
Svona er þetta um allar jarðir.
Eftir knattspvrnu er spurt um
'hver vann, og bve mörg „rnörk
voru sett“. En muna menn eftir
’því, að spyrja um það. bver flokk-
urinn sýndi fegurri leik ?
Og gleyma menn því ekki ger-
samlega, að upprunalega var efnt,
Til knattleiksins, til þess að iðk-
endur hans fengju holla hreyf-
ingu, líkamsþjálfun og drenglynda
framkomu ?
Svo ber alt í einu slvs að hönd-
um. Markvörður slasast og læt-
-ur lífið. Slys geta orðið hvar sem
er, og hvenær sem er. Og engum
•einstökum skal um kent.
Er ekki fráfall Jóns Kristbjörns
sonar nístandi alvarleg áminning
idl íþróttamanna vorra.
Hrópar ekki sá atburður til allra
'þeirra, sem íþróttir iðka,, hverjar
sem eru, að missa aldrei sjónar á
■aðaltilgangi íþróttanna, fyrir fá-
nýtu kappi um sigur og met.
Skipafrjettir. Gullfoss er í
Reykjavík. Goðafoss er í Hull og
fer þaðan kl. 5 síðd. í dag. Brú-
arfoss fór frá Leith kl. I í gær.
Lagarfoss fór frá Akureyri í gær.
'Dettifoss var á fsafirði í gær. Sel-
foss fór frá Leitb á laugardags-
Tkvöld.
Lýðræðið er reist á þeirri hugs-
un, að þegnunum vegni þá best,
ef þeir fá að koma saman sjálfir,
ræða landsins gagn og nauðsynjar
og ráða málunum til lykta á þann
hátt, sem þeir telja öllum fyrir
bestu. Slíkum samkomum getur
auðvitað yfirsjest eins og dæmin
sanna. Þegnarnir fela oft öðrum
meðférð málanna en þeim, sem
best gæta hagsmuna þeirra. En
þegar til lengdar lætur eru hættur
])essa fyrirltomulags ekki mjög
miklar.
Lineoln sagði einii sinni þessi
orð:
Það má rugla nokkra menn alla
tíma,
og alla menn nokkurn tíma,
en það er ekki' hægt að rugla alla
menn alla tíma.
(You can fool part of tbe people
all tbe Time,
and all tbe people part of the Time,
but you ean never fool all. tbe
people all tbe Time).
A þeSsum sannleik stendur lýð-
ræðið — meðan menn hugsa um
bag heildarinnar.
Ein verulegasta hættan fyrir
lýðræðið er á liinn bóginn í því
fólgin, að menn hætta að hugsa
um hag almennings. og fara að
gæta eigin hagsmuna. Þessi hætta
vofir sífelt yfir, en er lialdið í
skefjum meðan almenningsálitið
fyrirdæmir slíkar aðfarir, meðah
menn sjá að þetta er Ijótt og
skaðlegt.
En svo koma vondir menn og
sá illgresi í akurinn. I stað þess
að koma fram sem afbrotamenn
gegn þjóðfjelaginu og skaðræðis-
gripir, koma þeir fram og fara
að prjedika það, að einmitt stjetta
baráttan sje eini rjetti grundvöll-
ur þjóðmálanna og stjettaflokk-
arnir eina eðlilega flokkaskifting-
in i hverju þjóðfjelagi. Með þessu
er skörin komin upp í bekkinn.
Banameinið á að vera besta lækn-
ingin. Það er álíka öfugmæli eins
og að segja. að þjófnaður sje
grundvöllur ráðvendninnar eða lýg
in besta vopn sannleikans. Stjetta-
bagsmunir og stjettatogstreitan
er andstæða og banamein lýðræð-
isins.
Þet.ta sjest þegar í stað ef á það
ev litið. f stað þess að koma sam-
an í því skyni, að sjá hag allra
borgið, koma menn þá saman til
þess að hrifsa handa sjer og sinni
stjett. Það er um að gera að koma
sem flestum á þing, sem bafa hag
einnar stjettar að leiðarstjörnu
til þess að vera sterkastur í banda
ganginum. Falin löngun manna
eftir því, að auðgast á annara
kostnað er gerð að sönnun fýr-
ir því að þetta sje eðlilegt og
sjálfsagt. En um útkomuna af slík
um hamförum er ekki hirt.
En auk þess, að slík aðferð er
ósæmileg og leiðir til glötunar á
hugsun lýðræðisins og jafnrjettis
þegnanna, er þessi aðferð líka skað
leg þeirri stjett, sem þannig kem-
ur ár sinni fyrir borð. Því að
reynslan færir mönnum skjótlega
heim sanninn um, að niðurdrep
annara stjetta, er dauði þeirrar
einu, sem þessu hefir valdið. Það
er eins og að taka neðan af tveim
fótum á þrífættu borði og auka
því við þriðja fótinn. Það verður
ekki til annars en þess, að borðið
steypist, og í því falli lendir langi
fóturinn eltki síður en hinir. Þjóð-
fjelaginu hefir oft með rjettu ver-
ið líkt við likama, þar sem líf og
vellíðan er undir því komin, að
öllum líkams pörtum líði vel. Einn
sjúkur limLir veldur öllum líkam-
anum þjáningum. Eitt líffæri sem
bilar dregur öll hin til dauða. Það
væri því æði skrítin speki ef heili
og magi og lungu hjeldu að þeirra
liag yrði best borgið með því að
gera samtök um að meiða. eða
skaða t. d. hjartað. En nákvæm-
lega þetta sama á heima um þjóð-
fjelagið.
Því miður er átumein stjetta-
og hagsmunáflokkanna komið inn
í íslenska pólitík ekki síður en
annara. Einnig lijer meðal okkar
er villukenning stjettabaráttu og
stjettahaturs prjedikuð hástöfum,
básúnuð út og barin inn. Jafnað-
armenn byrjuðu þessa skaðræðis-
stefnu hjer, og kommúnistar hafa
gengið feti framar eins og í öllu
því hjá jafnaðarmönnum, sem
verst er. En það er ekki nóg
með það, heldur ha.fa ósvífnir
skrumarar reynt að fylla sveitirn-
ar þessari sömu ólyfjan. Með sam-
blandi af skjalli og eymdarvæli
liafa þeir reynt að fylltja bændum
landsins í stjettarflokk, sem á að
vegna best með því, að þeir hrifsi
sem mest frá sjávarsíðunni. Á
síðari árum hefir aflast meira
verðmæti til útflutnings við sjáv-
arsíðuna, og auk þess er það ein-
kenni allra þæja, að þar ganga
peningar meira manna milli. Menn
fá meiri peninga handa milli, en
verða jafnframt að borga meira
fyrir allar nauðsynjar sínar. Lífs-
kjörin hafa einnig orðið, að minsta
kosti á útborðinu öllu betri, og
,,þægindi“ fleiri í kaupstöðum og
skemtanamöguleikar fleiri í marg-
menninu. Alt þetta hefir verið
notað til þess að ala á ógöfugasta
einkenni manna, öfundinni, til
þess að ná utan um sig hóp til
stjórnmálafylgis.
En þetta eru villukenningar og
þær leiða til glötunar, ef þær ná
tökum. Verkamaðurinn stendur
uppi atvinnulaus og slyppur. ef
bann lætui' teyma sig til þess að
ofbjóða atvinnufyrirtækjunum. Og
bóndinn er þrotinn ef hann lætur
hafa sig til þess, að ofbjóða þeim,
sem bæði bera mestar opinberar
byrðar, og veita bestan markaðinn
fvrir afurðir hans. Hjer á landi
stefnir meira og meira í þá átt, að
landbúnaðuriím standi og falli með
markaðnum í bæjunum. Yelgengni
bæjanna er meira og meira að
verða beinlínis undirstaða undir
velgengni sveitanna. Milli þessara
tveggja meginlíffæra þjóðarinnar
verður að vera ævarandi og órjúf-
anleg samvinna. Bæirnir komast
ekld af nema lrafa gott uppland
með greiðum samgöngum, og sveit
irnar lifa ekki án afsetningar í
bæjunum. Bæirnir hljóta að óska
velgengni í sveitunum. Þeir óska
fjölbreyttrar og' haganlegrar fram
leiðslu og sveitirnar hljóta að óska
mikillar kaupgetu, fjörugra við-
skifta og góðrar verslunar í bæj-
unum.
Þetta ætti að vera fagnaðarboð-
skapur þjóðmálanna gegn haturs-
boðskap stjettarígsins. Þetta er
grundvöllur lýðræðis og lýðfrelsis.
Og eina tryggingin, sem kjósend-
ur geta haft fyrir því, að þjóð-
málaflokkur sje í þessu efni á
rjettri braut, er sú staðreynd, að
hann eigi fulltrúa og fylgi innan
allra stjetta þjóðfjelagsins og í
öllum landsins hjeruðum, rit við
líó og inni í dölum, við skrifborð-
ið og rekuna, við orfið og færið.
Þá verður hann að miðla milli
manna, hafa allra hag í huga.
Og hjer á landi er aðeins einn
slíkur flokkur nú:
Sjálfstæðisflokkurinn!
Magnús Jónsson.
Bruggunaruerk-
smiðja funðin.
Nýtísku fyrirkomulaff
og hu^vitsamleffur út-
búnaður.
t fyrrakvöld gerði lögreglan
húsrannsókn á Prakkastíg 10 hjá
Kristni Guðmundssyni, sem grun-
aður var um að brugga áfengi.
Þar fann lögreglan bruggunar-
verksmiðju, sem var hugvitsam-
lega fyrir komið.
f porti á bak við húsið er langt
og lágt hús. Er það hólfað i tvent
með múrvegg og steingólf í báð-
um belmingum. Oðrum megin er
smíðabús, hinum megin þvotta-
lnis. f þvottahiísinu var gríðar-
mikið þvottaker úr trje, og var
]>að fest við vegginn með skrúfuð-
um járnboltum. Lögreglan losaði
kerið og kom þá í ljós undir því
stór gryfja og niðri í henni voru
einhver þau fullkomnustu brugg-
unartæki, sem hjer hafa sjest.
A einum vegg gryfjunnar stóðu
nokkrir korktappar í múrnum.
Voru þeir dregnir út og kom þá í
ljós að rör var á bak við hvern
þeirra. Lágu rör þessi í tunnur,
sem eru innmúraðar undir gólfinu.
Eru þær 7 alls. 160—180 Ktra að
stærð, og allar fullar af áfengislög
í gerjun. f gryfjunni fanst, líka
banddæla með langri gúmmíslöngu.
Hafði bruggarinn stungið slöng-
unni í gegn um pípurnar og niður í
tunnurnar og síðan dælt leginum
úr þeim. Á annan hátt var ekki
hægt að komast að tunnunum.
Kristinn hafði keypt. húsið á
Frakkastíg 10 um miðjan maí og
tók þá t.il að útbúa þessa verk-
smiðju. Mun hún hafa verið til-
búin. um seinustu mánaðamót. —
Kveðst hann hafa fullbruggað úr
tveimur tunnum, en ekki fanst
neitt hjá honum af víni, svo að
hann mun hafa selt þetta.
Sennilega verður dómur kveðinn-
'uin vfir honum í dag.
—« «•••
Rænine\ia náð.
Á Korsíku er fjöldi ræningja,
en nafnkunnastur hefir einn verið
á undanförnum árum og heitir
bann Spada. Síðan 1931 hefir
hann farið huldu höfði í fjöll-
unum, en þúsundir lögreglumanna
bafa stöð*gt elt hann. Nú kemur
sú fregn frá París um mánaða-
mótin, að lögreglunni hafi loks-
ins tekist að bandsama Spada, eft-
i; tveggja ára eltingaleik.
niþjóðaskákþinglð
í Folkstone.
(Einkaskeyti til Morgunblaðsins).
Folkestone, 19. júní.
Biðskákimar við Dani fóru ayo
að Eggert gerði jafntefli við Bne-
voldsen og Einar jafntefli ’ við
Björn Nielsen. Milli Ásmundav og
Erik Andersen varð aftur biðskák.
I viðureigninni við ítali bar
Monticelle sigur af Eggei't, en
Þráinn gerði jafnteflli við Norei.
Hinar tvær biðskákir.
í viðureigninni við Lithauen
sigraði Eggert Vaitonis, hitt bið-
skákir. Eiga fslendingar því náf
sex biðskákir.
Á mánudag eiga þeir að tefla;
við Ungverja og Svía.
Bandaríkjamenn standa sig lang
best, hafa engri skák tapað. Anu-
ars verður ekkert um röðina sagt
vegna mikils fjölda biðskáka.
Frá Akureyri.
Akureyri, 18. júní. FB.
Mentaskólanum var sagt uþp í
gær. Fjórtán nemendur luku stú-
dentsprófi, 11 með I. eink., 3 með
II. eink., þar af tveir utanskóla.
Einn utanskólasveinn stóðst ekki
prófið, 48 luku prófi úr gagnfræða
deild.
Aðalfundur Sambands íslenskra
samvinnufjelaga stendur hjer yfir.
Sitja hann um 50 fulltrúar, auk
forstjóra, framkvæmdastjóra og
stjórnarmeðlima. Forstjórinn kom
þó fyrst í gær, ásamt Jónasi Jóns-
syni frá Hriflu.
íþróttamót norðlensku íþrótta-
fjelaganna í í. S. f. átti að hefjast
hjer í gær, en vegna kulda og
rigningar var því frestað þar til í
dag, ef veður skánaði. Þar átti að
minnast Jóns Sigurðssonar áður
íþróttir byrjuðu, en varð ebki af.
Það eina, sem var því til hátíða-
brigðis 17. júní var, að fánar
blöktu á nokkrum stöngum og að
Pjetur A. Jónsson hjelt hjer
söngskemtun.
Dollar fellur.
London, 19. jtitní.
United Press. FB.
Dollarinn fjell í verði í dag, er
það frjettist, að Bandarikjastjórn
hefði hafnað tilögum þeim, sem
fram komu af hálfu Evrópuríkja
um verðfestingu sterlingspunds
og dollars til bráðabirgða. Dollar-
ar á sterlingspund voru í morgun
4.0714, en 4.1414 síðari liluta dags
í dag.
Roosevelt hefir fyrirskipað full-
trúum Bandaríkjanna á viðskifta-
málaráðstefnunni að fresta öltum
ákvörðunum viðvíkjandi verðfest-
ingu, þangað til Moley prófessor
er kominn til Lundúna. Molev er
fjármálaráðunautur RooseveffS og
leggur hann af stað áleiðis til
Englands á morgun.
Tolllæbkun off tollahije.
London, 17. júní.
TTnited Press. FB.
Fulltrúar Bandaríkjanna á við-
skiftamálaráðstefnunni hafa lágt
til, að allir iunflutningstollar verði
lækkaðir um 10%, en einnig að
framlengt verði samkomulagið um
tollahljeið. >