Morgunblaðið - 03.08.1933, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.08.1933, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ Þingvellir. l»egar Balbo liershöfðingi var að |iví spurður, hvaða stað í ftalíu Siann gæti líkt við Þingvelli að náttúrufegurð, varð hann að hugsa sig um, uns hann fyncli samjöfn- uð. Síðan nefndi liann umhverfi Garda-vatns í suðurhlíðmn Alpa. Fjöldi útlendinga, sem komið hafa til Þingvalla á sólskinsdög- íum í suniar, hafa engan stað mun- að, er jafnast gæti á við Þing- velli að náttúrufegurð. iFyrir íslendinga eru Þingvellir ómelaiileg eign. Eklii vegna þess, að þar opnist augu aðkomumanna fyrir íslenskri náttúrufegurð. JíeJdur vegna þess, að fegurð stað arins hrífur hugi fslendinga iil samstillingar við minningar for- tíðarinnar — það best? og stór- fenglegasta, sem saga vor geymir. Þe.ss vegna verða Þingvellir á- vaft Jhelgur staður þjóðarinnar. Fyrír Þingvallagesti, sem þar koma í björtu veðri, virðist tign "Og yndi staðarins blasa við auga. En er menn dvelja þar lang'- j <lvölum, kemui' annað í ljós. Yfir- 'sýnin yfir Þíngvelli og Þingvalla- hraun, gefur í ranji og veru litla hugmynd um margbreytileik þessara elds- og liraunheima. Dag eftir dag, viku eftir yiku 'geta menn reikað um svæðið, milli Þingvallavatns og Ármannsfells, Almannagjár og Hrafnagjár, og fundið nýja og nýja staði. sem •eru að fegurð til hrein fróun fyrir auga. Svæðið er svo stórt, austur i Vellankötlu, upp í Bolabás. Þeir, isem koma á sjálfa Þingvelli eina, atliuga oft ekki, að þar eru þeir '< útjaðri þessa undralands. Og margir, sem Þingvöll liafa gist hvað eftir annað, hafa vikið svo lítið af álfaraléið, að þeir þurfa ■ekki að ganga nema nokkur skref, til þess að sjá ný og stórkostleg umhverfi. T. d. Hestagjána, sem að ýmsu leyti er stórfenglegasti hluti Almannagjár. Og gangi mað- ur um Hestagjá Jieiðan og kyrr- an sumarmorgun, er sem hóf- ■dynur og sköllin ómi í eyru uianns frá Jiðnum öldum, úr þver- hnýptum klettaveggjunum, er jóa þúsundir biðu þar hersveita •sinna. ( Hvergi á íslandi getur sumar- *dvöl jafnast á við dvöl á Þing- vöTlum, þar sem ;lesin verður' «aga bæði lands og þjóðar, í hinni upnu bók náttúrunnar. JpflargmtHaMft H.Í. Árrakar, KtjkJaTlki Sltatjörar: Jön EJaxtnnMoa. Valtjr Bt.í&nMoa, Kltatjörn oi afrr.lBila: JLuaturatmtl S. — Slnl 1111. &.ualJalncaatJörl: M. Hafb.rc. Aacljalncaakrlfrtofa: ▲uaturatmU 17. — Matf 1701 ■•lautilaiar: Jön KJartanaaon nr. S74S. Valtýr Stef&naaon nr. 4110. 11. Hafberc nr. S770. AakrlítacJalö: Innanlanda kr. 1.00 & Blnli, fjtanlanða kr. 1.10 & nlaill, I lauaaaðlu 10 aura elntaklS. 80 aura aa.S ImMK. Skólahald í Sogamýri. Bæjar- a-áð liefir samþykt að leigja liús- uaeði fyrir skólahald í Sogamýri á komanda vetri í húsinu Sjónar- tiel, með sömu kjörum og áður. llt er tueim herrum að þjóna. Þessi gamli málsháttur sannast átakanlega á foringjum Alþýðu- flokksins um þessar mundir. Þegar kunn voru iirslit kosning- anna fór Alþýðublaðið að bera það út meðal lesenda sinna, að Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði ekk- ert að gera til þess að flýta fyrir afgreiðslu stjórnarskrármálsins; hann mundi fresta málinu til næsta reglulegs þings, sagði Al- þýðublaðið. Lesendur Alþýðublaðsins áttu að sltilja þessi ummæli svo, að þingmenn Alþýðuflokksins væru nieira vakandi í rjettlætismálinu. En hvað hefir á daginn komið? Strax og kunn voru úrslit kosn- inganna, leitaði Miðstjórn Sjálf- stæðisflokksins álits þingmanna flokksins um aukaþing i sumar. Þingmennirnir eru 20 talsins og dreifðir út um land aJt. Það tók nokkurn tima fyrir Miðstjórn Sjálfstæðisflkoksins, að fá álit allra þingmannanna. En samt var það komið svo snemma, að mið- vikudaginn 26. júlí sendi flokkur- inn áskorun til forsætisráðherra um að kalla saman aukaþing eigi síðai' en 15. þ. m. Nú skyldi maðui' ætlft, éftir alt sem á undan hafði gengið, ftð Al- þýðuflokkurinn Jiefði verið búinn að fá umsögn sinna 5 þingmanna í þessu máli. En svo var ekki. Alþýðublaðið fór nú að fræða iesendur sína um það. að álits Al- þýðuflokksins væri fyrst að vænta sunnudaginn 30. júlí. Þá ástæðu færði blaðið fyrir þessum drætti, að éinhverjir af þigmönnum flokksins væru fjarverandi úr bæn um. En sunnudagurinn 30. júlí leið svo, að ekkert lieyrðist frá Al- þýðuflokknum Það var ekki fvr en þriðjudag- inn 1. ágúst að álit Alþýðuflokks- ins kom. En ekki var það burðugt. .Jú, AJþýðufloklvurinn vildi auka- þing — en ljet sig einu skifta hvenær það yrði liáð! Hann taldi öll tormerki á því, að hægt yrði að ljúka auliaþingi í sumar svo snemma, að kosningar gætu fram farið í haust. En þá vildi Alþýðu- flokkurinn fresta kosningum til næsta vors og Jiafa reglulegt, fjár- lagaþing að þeim ioknum. Það er bersýnilegt af Alþýðu- blaðinu 1. ágúst, sem flutti þessa skorinorðu(!) ályktun Alþýðu- flokksins, að foringjarnir hafa skammast sín fyrir hana. Þess vegna eyða þeir löngu máli til þess að afsaka þessa framkomu fyrir lesendum blaðsins. Og ai> sökunin er sú, að Alþýðuflokkur- inn hafi engu getað ráðið um aukaþing, því hinir flokkarnir hafi stjórnina í sínum höndum. En allir sjá, að þessi afsökun Alþýðublaðsins er einber blekk- ing. Alþýðuflokksmenn vissu vel, að Sjálfstæðisflokkuri^n og Fram- sókn voru ósammála um aukaþing- ið Sjálfstæðisflokkurinn vildi aukaþing, en Framsókn ekki. En þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði ekki nema 20 þingmenn, gat forsætisráðherra neitað að kalla saman þingið og borið því við, að meirihluti þingmanna stæði ekki að baki kröfunni. Alt valt því á því hvað hinir 5 þingmenn sósíal- ista gerðu j málinu. Og nú hafa þeir að vísu tekið undir kröfuna um aukaþing, en svo Jinlega er þar á haldið, að engu er líkara en að hugur fylgi ekki máli. •— Kjósendur Alþýðuflokksins sp3'i'ja, sem von er, hvernig standi á því, að Alþýðuflokkurinn tekur svona linlega í þetta mál. Skýringin á þessu er sú, að inn- an Alþýðuflokksins — utan þings og innan ■— eru liáttsettir menn, sem ekki geta neitt aðhafst sem fer í bág við vilja Jónasar frá Hriflu. Þessi sundurþykkja innan Al- þýðuflokksins hefir leitt Einar ,,á- byrgðarmann“ út í ógöngnr. — Hann vissi um vilja kjósenda flokksins, og þess vegna byrjaði bann á því að látast vera ein- dregið fylgjandi aukaþingi i sum- ar og kosningum í haust. Síðar kom í ijós, að Jónas frá JJi'iflu og' aðrir Framsóknarleið- togar vildu ekkert aukaþing hafa. Þetta setti Einar „ábyrgðarmann“ úf af laginu. Og þetta várð þess valdandi, að Alþýðuflolvkurinn sendi frá sjer hina loðmullulegu ályktun. Sjálfstæðisflokkurinn g'éi'ir þá kröfu, að aukaþing verði kvatt saman eigi síðar en 15. þ. m. Eins og sýnt hefir verið fram á lijer í blaðinu þarf aultaþingið ekki að sitja iengur en 10—-14 daga. Er þá fullkomlega nægur tími til stefnu til undirbúnings kosninga í liaust svo snemrna, að þær þurfi eigi síðar fram að fara en fyrsta vetrardag. Alþýðublaðið er að gefa i skyn, að samning kjörskráa fyrir hina nýju kjósendur muni taka svo langau tírna, að ókleyft verðr að hafa kosningar í haust. Þetta er hin mesta fjarstæða. Nýju kjós- endurna má taka upp á viðauka- kjörskrá og við samning þeirra má styðjast við kjörskrá bæjar- og sveitarstjórna. Aldurstakmark- ið er þar hið sama. Ekld er ósennilegt, að bændur sem á, þingi sitja, taki illa þeirri lausn á þessu máli, sem Alþýðu- flokkurinn bendir á, að lialda fjárlagaþing á næsta sumri. Þó að Tryggvi Þórhallsson telji þingset- una „atvinnubætur fyrir þing- menn“, er ekki sennilegt að þeir bændur verði margir, sem kjósa að verja nál. öllu sumrinu til þingsetu. Alþýðuflokkurinn lætur þflð vera óbundið, hvetiær aukaþing verði kvatt saman. En þar sem flokkurinn gerir ráð fyrir, að nýj- ar kosningar fari eigi fram fyr en að vori, mun ætian hans vera sú, að aukaþingið komi ekivi saman fyr en í byrjun næsta árs. Afleið- ing þessa dráttar y.rði vitaulega sú, Tað a"ukaþingið yrði miklu lengra en ef það yrði liaidið nú íþegar. Og þegar ofan á þetta bæltist svo þriggja mánaða þing á næsta sumri, þá munu flestir fallast á skoðun Sjálfstæðisflokks- ins, að besta og eina sjálfsagða lausnin sje sú, að hafa aukaþing nú þegar og kosningar í haust. og svo fjárlagaþingið í febrúarmán- uði næstkomandi. Flug Griersons. Tilraun með notkun miðunar- tækja. Fl’á því hefir verið skýrt lijer í blöðum, að von væri á enskum flugmanni liingað, G-rierson að nafni, á leið vestur um haf. En menn hafa lítil deili vitað á manninum, og fyrirhuguðu ferða- lagi lians. í „News Chronicle" frá 20. júlí er skýrt frá þessu flugi. John Grierson er í flugher Breta. Hann er vaskur fiugmaður. Hann hefir sett met í hraðflugi frá Ind- landi til Englands. f þessari ferð ætlar hann að nota sömu flugvjei og liann notaði í því hraðflugi. Hann ætlar að leggja upp frá Scapa Flow, og koma við í Þórs- höfn í Færeyjum, Reykjavík, Ang- magsalik, fara um þveran Græn- landsjökul til Godthaab og það- an til Resolutioneyju við Labra- dor. Hann hefir miðunartæki i flug" vjel sinni, og leggur leið sína á milli loftskeytastöðva. — Meðan hann flýgur, fær hann að stað- aldri miðunarmerki frá loftskeyta- stöðvum. Með leiðbeiningum mið- unarmerkjanna getur hann vitað nákvæmlega, hvort hann er á rjettri leið, og til hvorrar handar hanif hefir vikist úr leið, uns hann éf kominn í rjetta loftlínu aftur. Lítur út fyrir, að ferð þessa fari liann til þess að reyna þessi mið- artæki. Loftskeytastöðin lijer í Reykja- vík hefir fengið tiimæli um að senda Grierson miðunarmerki á hálftímafresti, 5 mínútur í einu. frá því hann leggur upp frá Þórs- höfn í Færeyjum og þangað til liann kemur hingað — eða þá í 12 klst., ef liann skyldi ekki koma fiam. Hann hefir ekki senditæki í flugvjel sinni, aðeins móttöku- tæki loftskeyta. Nazistar handteknir í Riga. Riga, 2. ágúst. United Press. PB. Lögreglan ijet fram fara hús- rannsókn í aðalbælristöð þjóðern- isjafnaðarmanna hjer í borg í dag. Þrjú hundruð menn úr flokki þjóð ernisjafnaðarmanna. voi-u hand- teJmir. Eru þeir sakaðir um að hafa undirbúið blóðuga byltingu. Flugför ítalanna. enn frestað. Slioal Harbour, 2. ágúst. United Press. PB. Balbo skipaði svo fyrir í gær- kvöldi, að hafa skyldi vjelbátana tii taks í dögun, til þess að draga út flugvjelarnar. Veðurhorfur voru betri í gærkvöldi en þær hafa verið um skeið. Síðari fregn: Balbo frestaði brottförinni. n Bandaríkin og Rússar. Washington, 2. ágúst. United Press. FB. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum er talið víst, að Hull ráð- herra, sem nú er á. lieimleið frá viðskiftamálaráðstefnunni í Lond- ón, muni fara til fundar við Roose velt forseta í Hyde Park, N. Y. þegar hann er kominn vestur, til þess að ræða við hann um viður- kenningu Bandaríkjanna á Sovjet- stjorninni. Atvinnubætur Roosevelts. Washington, 2. ágúst. United Press. FB. Yfirstjórn viðreisnarframkvæmd anna hefir látið í ijós ánægju yfir því hve vel atvinnurekendur hafá brugðist við að fallast á skilmálaJ Roosevelt. Hafa um 100.000 at- vinnurekendur skrifað undir þá. Með fullri vissu verður enn eigi sugt hve mikil atvinnuaukningin verður, en unnið er að skýrslu- söfnun um það, bæði hversu marg- ir hafa fegnið atvinnu á ný og hversu miklu vinnulaunaaukning- in nemur. □agbók. Veðrið (miðvikudagskv. kl. 5): Yfir Grænlandshafi er nærri kyr- stæð Jægð, en önnur miili íslands og Jan Ma.yen á hreyfingu NA- eftir. Vestan lands er SV-kaldi og skúraveður með 11—13 st. hita, en V-kaldi á A-landi, víðast bjart- viðri og hiti alt að 18—20 st. Veðurútlit í Rvík í dag: SV- kaldi. Skúrir en bjart á miili. Háiflóð í Rvík kl. 15.50. Rothermere lávarður, blaðakóng urinn víðfrægi, bróðir Northchiffs og sonur hans einn, var meðal farþega á skemtiferðaskipinu „At- lantis“. Atlantiskappleikurinn. Fjöldi Englendinga frá Atlantis, og álíka margt bæjarmanna var á íþrótta- vellinum í gærkvöidi tii að horfa á kappleikinn milli K. R. og kapp- Jiðsins frá Atlantis. Allhvast var 'á. vellinum. Höfðu K. R.-ingar vind- inn með sjer í fyrri hálfleik, og fengu tvö mörk, en Bretar ekkert. Á fyrstu mínútu 2. hálfieiks fengu Bretar mark, en K. R.-ingar gerðu eitt mark síðar, og urðu úrsiitin þau að K. R. vann með 3:1. Skipstjórinn á Atlantis, Purvis kapteinn. færði K. R. að gjöf mjög vandaða forsetaklukku, og flutti fjelaginu kveðju er hann afhenti gjöfina. Þrír prinsar voru meðai far- þega á skemtiskipinu .,Atlantis“, sem hingað kom í gær. Tveir voru svnir Alfonso, fyrrum Spánarkon- ungs. þeir prinsarnir Jaime dc Borbon y Battenberg og' Gonzalo de Borbon, en einn ítalskur prins Bonifacio Soragna. Þeir fóruaustur að Grýtu og var t fylgd með þeim de la Horga greifi, sem er af mjög þektum spönskum ættum. Ljetu prinsarnir hið besta af ferð sinui austur. Útvarpið í dag: 10.00 Veður- fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00 Veðurfregnir. 10.30 Veðurfregnir. 10.40 Tilkynningar. Tónleikar. 20.00 Klukkusláttur. Tónleikar. (I'tvarpstríóið). 20.30 IJpplestur á kvæðum. (Rósa Bj. Blöndal). 21.00 Frjettir. 21.30 Grammófón- söngur: íslensk. lög.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.