Morgunblaðið - 03.10.1933, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
:a
Otgef.: H.f. Arvakur, Reykjavlk.
Sltatjörar: Jön KJartanaaon.
Valtýr Stef&naaon.
3 tíltstjörn og afgrelCsla:
Austurstrætl 8. — Slml 1600.
; Auiflýslngastjörl: B. Hafberg.
’ AuKlýsinsraskrifstofa:
Austurstræti 17. — Slml 8700.
i Heimaslmar:
Jön KJartansson nr. 3742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
Árni Óla nr. 3046.
E. Hafberg nr. 3770.
i Aakriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á. m&nudl.
Utanlands kr. 2.50 á m&nuCL.
| I iausasölu 10 aura elntaklC.
20 aura meC Lesbök.
Skærur í Cork.
Cork, 2. október.
United Press. FB.
t „írski lýðvelclisherinn“ og þjóð-
varnarliðsmenn lijeldn hvorir um
•sig fjölmenna útifundi hjer í gær
«n á næstu grösum, enda fór svo,
að hópum af báðum fundunum
lenti saman. Lögreglan rjeðist á
áflogaseggina og kom í veg fyrir
frekari óeirðir. Menn meiddust í
tugatali.
Bifreiðastjóraverkfall.
Xew York, 2. okt.
United Press. FB.
10.000 bifreiðastjórar hafa gert
"verkfall og er hætt við matvæla-
'slvorti í borginni ef ekki næst
samkomulag bráðlega. — Tilraun
til sátta verður gerð í dag.
Siglunesvitinn.
Siglufirði, FB. 2. okt.
Kveikt var á Siglunesvitanum í
fyrsta sinni í gærkvöldi. Er vita-
foyggingin nú nærri fulgerð. Stærð
liússins er 10.6X10.5 metrar, ein-
lyft með 9 metra háum vitaturni,
;alt bygt úr steinsteypu. Hefir
mestalt efnið verið aðflutt úr
Eyjafirði og Skagafirði, sumt vest-
;an af Aðalvík. Léndingarlaust má
kallast á Siglunesinu Hefir það
tafið verkið. Auk þess er bakk-
inn hár og brattur. Var þar settur
krani og efni dregið upp með
handvindu. Að byggingunni hafa
unnið 20 menn. Vitavarðarhús er
verið að byggja 16.5X7-6 metra,
tvílyft, en verður eklii fullgert í
haust, en þó gert íbúðarfært á
neðri hæð. Þangað er verði að
leggja vatnsleiðslu 850 metra úr
■steinsteypuþró við Engidalsá. Ráð-
•gert er, að allmikið land verði
lagt til vitans til ræktunar og af-
uota vitaverðinum. — Verið er
.að bvggja dagmerki fyrir Hellu-
boðann, 12 metra hátt. Verður
byrjað næstu daga að setja niður
hljóðvjelarnar. Þær eiga ávalt að
vera í gangi þegar dimmviðri er.
Vitaverðir verða tveir, því að gera
má rað fyrir að hljóðvitinn þurfi
■oft að ganga sólarhringum saman.
Mun Siglufjörður einhver best
merkta höfn landsins, þegar vit-
inn er fullger.
Lindbergh í Oslo.
A sunnudaginn flugu Lind-
herghshjónin frá Ta.llinn, höfuð-
horg' Eistlands, til Oslo. Láta þau
ekkert uppi um það hvað þau
ætla fyrir sjer. Meðan þau verða í
Oslo, verða þau til heimilis hjá
ameríska sendiherranum þar.
Eyðing jökla.
15. f. m. fóru þeir bræðurnir
Þórður Kristjánsson húsm. hjer og
Olafur Kristjánsson húsm. á Pæti
við Seyðisfjörð frá Hraundal í
Nauteyrarhreppi til Ofeigsfjarðar
í Strandasýslu, yfir Ófeigsfjarðar-
heiði. Vegurinn liggur yfir suður-
sporð Drangajölmls, eins og liann
var áður. En nú er enginn snjór
á leið þessari, nenla í laut einni
vestan til á fjallgarðinum; var þar
skaflbrot lítið ummáls, um 1%
mtr. á hæð í þykkri röndina- Hjá
skaflinum lágu leyfar af hross-
skrokk og sást greinilegur hára-
litur á sumuin tætlunum. Þegar
þeir bræður komu til Ófeigsfjarð-
ar höfðu þeir Orð á fundi sínum
við Pjetur bónda þar. Sagði hann
að vera myndu um 30 ár síðan
liestur þessi hefði farist í jökul-
sprungu, eftir lýsingu þeirra
bræðra á lit hestsins að dæma.
Sannaðist að þetta var rjett, því
síðar komu þeir bræður í Reykjar-
fjörð í Strandasýslu og kannaðist
Ólafur Thorarensen bóndi þar
strax við, að hafa mist hestinn í
jökulsprungu fyrir rjettum 30 ár-
um.
Var Ólafur þá ásamt fleira
fólki á leið frá Ármúla á Langa-
dalsströnd til Reykjarfjarðar. —
Sprakk þá jökullinn svo, að fólkið
varð statt eins og á eyju og bjarg-
aðist með naumindum yfir sprung-
urnar, en 3 hestarnir fjellu í jök-
ulsprungur. Varð 2 bjargað, en
ómögulegt reyndist að bjarga þeim
3ja, þrátt fyrir ítarlegar tilraunir,
því sprungan var þröng og svo
djúp, að langt á 4. mannhæð var
niður að hestinum, sem karlmenn-
irnir, er í förinni voru, lífljetu
með svæfingu.
Þeir bræður sáu hvergi snjó á
vesturhluta fjallgarðsins annan en
skaflbrot þetta og var þó skygni
gott.
Jóni Eyþórssyni veðurfr. hefir
verið send skýrsla um hrossfund-
inn, sem er merkilegt sönnunar-
gagn um það, hve jökullinn hefir
bráðnað mikið á þessum slóðum
síðustu áratugina. Eru altaf að
koma ný fell og hæðir upp úr
aðaljöklinum og undirjökullinn í
Kaldalóni og Leirufirði hefir eyðst
stórlega.
(Frásögnin um atburð þennan
ei tekin eftir Þórði Kristjánssyni).
Úr „Vesturlandi' ‘.
Þjóðverjar og
afvopnunarráðstefnan.
Genf, 30. sept.
■ United Press. FB.
Þýsku ráðherrarnir Göbbels og
von Neurath eru lagðir af stað
heimleiðis. Þeir áttu hjer klukku
stundar viðtal við breska ráð-
herrann Simon. — von Neurath
ljet svo mælt um við brottför
sína, að hann byggist við að
hverfa aftur til Genf um miðbik
næstu viku, og yrði hann þá
búinn að gefa ríkisstjórninni
skýrslu um viðtalið. — Talið er,
að á svari þýsku ríkisstjórnar-
innar velti hvort árangur muni
nást á afvopnunarráðstefnunni.
Ráðleggingarstöð fyrir baimshaf-
andi konur Bárugötu 2, er opin
fyrsta þriðjudag í hverjum mán-
uði frá 3—4.
Frá I. R.
íþróttaæfingar í vetur.
í 1. flokki kvenna og karla
mæta fyrst og fremst þeir sömu
og í fyrra, ásamt nýjum fjelög-
um, sem að dómi kennarans hafa
þroska og getu til þess að fylgj-
ast með.
I 2. flokki kvenna og karla
mæta yfirleitt allir nýbyrjend-
ur, sem æfa ljettari fimleika á-
samt þeim eldri og yngri, sem
vilja kappkosta að undirbúa sig
til þess að geta flust í 1. flokka
fjelagsins.
Frúarflokkur og Old Boys
verða með líku sniði og í fyrra.
Megináhersla lögð á, að æfing-
arnar sjeu við allra hæfi, flokk-
unum skift eftir getu og þoli.
Jiu'-Jitsu. Síðastliðinn vetur var
lítilsháttar byrjað að æfa þessa
heimskunnu japönsku sjálfsvörn.
Fjekk þessi íþrótt svo góðar und-
irtektir, að stjórn fjelagsins álít-
ur sjálfsagt að gefa sem flestum
kost á að vera með, er hún því
tekin upp sem sjerstök kenslu-
grein.
Stjórn í. R.
Dagbok.
I. 0. O. P. Rb. st. 1, Bþ. 821038
— 01 TE.
□ Edda 59331037 — Fyrirl.
(rm.).
Veðrið í gær: Milli Islands og
Bretlandseyja er háþrýstisvæði;
en lægð milli Yestfjarða og Græn-
lands á hreyfingu A-eftir. Veldur
. hún S- lægri átt hjer á landi og
rigningu í flestum hjeruðum lands
ins. Á. S- og V-landi hefir rignt
mikið í dag, og mest suðvestan-
lands (38 mm- á Hæli í Hreppum
og annarsstaðar á SV-landi 20—
30 mm). Næsta sólarhring verður
vindur SV-lægur með skúraveðri
á S- og V-landi. Hiti er víðast
8—12 stig.
Veðurútlit í dag: SV- eða V-
kaldi. Skúrir. Kaldara.
Mentaskólinn var settur kl. 1
í gær. Rúmir 200 nemendur verða
í sltólanum í vetur, þar af um 130
í lærdómsdeild. Hefst kensla í dag.
Gagnfræðaskóli Reykvíkinga var
settur í gær kl- 2. Nemendur
verða um 150, og er skólinn full-
skipaður. Kensla hefst á fimtudag.
Kvennaskólinn var settur kl. 2
í gær; um 125 námsmeyjar stunda
nám í skólanum í vetur.
Vjelstjóraskólinn var settur í
gær. kl. 10. Nemendur 44.
Stýrimannaskólinn hefst í dag
kl. 8. Um 20 nemendur verða í
I skólanum í vetur.
Geir kom frá Englandi í gær-
morgun og fór á veiðar kl. 4
síðdegis í gær.
Sænskunámskeið heldur fjelagið
,Svíþjóð‘ eins og að undanförnu í
vetur.
Dr. Björg C. Þorlákson
dvelur nú í Danmörku sjer til
heilsubótar. Nýlega er komin út
bók eftir hana, er heitir .Daglegar
máltíðir‘. Er bókin að mestu
sniðin eftir erindum þeim, er hún
flutti í útvarpið hjer í fyrravetur.
Bók þessi á erindi til allrar al-
þýðu manna, og er þáð hverri ís-
lenskri húsmóður til mikils gagns
að eiga bókina og lesa hana.
,Skaftfellingur‘ kom að austan
í gær.
Suðurland kom frá Borgarnesi
í gær.
Ungbarnavernd Líknar, Báru-
götu 2 er opin hvern fimtudag
og .föstudag frá 3—4.
Trúlofun. S.l. laugardag opin-
beruðu trúlofun sína Guðfinna
Guðmundsdóttir verslunarmær og
Árni Stefánsson bílaviðgerðarmað-
ur.
Skipafrjettir: Gullfoss var í
Höfn í gær. Goðafoss fór frá Hull
kl. 5 í gær. Brúarfoss var á Sauð-
árkrók í gær. Dettifoss er í Rvík.
Lagarfoss var á Mjóafirði í gær-
morgun. Selfoss fór frá Rotterdam
í gærkvöldi.
Góð sauðfjárhirðing. Til marks
um það . hve sauðfjárhirðing er
góð hjá þeim Æðeyjarbræðrum,
segir Vesturland frá því, að sl.
vetur hafi þeir haft 160 ær á fóðr-
um og hafi fjárhöldin orðið í vor:
2 ær þrílembdar, 96 tvílembdar og
59 einlembdar, en 3 geldar. Aðeins
tvö lömb dóu um sauðburð. Hafa
því lömbin sem lifðu verið 97 fleiri
beldur en mæðurnar.
Sjófræðisnámskeið hófst í ísa-
firði 20. sept. Ljeði skólanefnd
eina af kenslustofum Gagnfræða-
skólans til kenslunnar, og sóttu
eins margir um kenslu og húsrúm
frekast leyfði. Kennari var Eirík-
ur Einarsson skipstjóri.
Heyskapur í sveitum Vestan-
lands varð í sumar mikill og nýt-
ing ágæt. Töðufengur varð víða
um 20 hestar af dagsláttu í einum
slætti, sums staðar meiri. Seinni
sláttur varð nærri jafngóður á
sumum bæjum. Víðast var slegið
lítið á engjum.
Ferðafjelagið h'jelt skemtifund
á föstudagskvöldið í Oddfjelaga-
höllinni. Voru þar um 200 menn,
en margir urðu frá að hverfa
vegna þrengsla. Steinþór Sigurðs-
son rakti fyrst starf landmæl-
ingamannanna hjer. Síðan sagði
hann frá öræfamælingunum í sum-
ar og sýndi margar myndir og
kort til skýringa. Fyrirlesturinn
var hinn fróðlegasti og vel flutt-
ur, enda var ræðumanni þakkað
með dynjandi lófataki. Þá sýndi
Gunnlaugur læknir Einarsson
stutta en prýðilega kvikmynd frá
Möðrudal og Jökuldal. Þá sýndi
Jón Eyþórsson myndir frá Jökul-
húsinu á Snæfellsjökli, lýsti 'því
og legu þess; einnig sýndi hann
nokkrar myndir af jöklinum. —
Forseti færði þakkir þeim, er gáfu
Ferðafjelaginu Jökulhúsið, en það
voru þeir Fontenay sendiherra,
Kr. Ó. Skagfjörð heildsali og Sig-
urliði Kristjánsson kaupmaðnr. —
Tóku fundarmenn undir með
löngu lófataki. Að seinustu voru
frjálsar skemtanir til klukkan 1
eftir miðnætti og fór skemtunin
öll hið besta fram.
Útvarpiði í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp.
1500 Veðurfregnir. 19.00 Gram-
mófóntónleikar. 19.10 Veðurfregn-
ir 19.20 Tilkynningar. Tónleikar.
19.35 Erindi: Leiðbeiningar um
rafmagnstæki (Eiríkur Ormsson).
20.00 Klukkusláttur. Tónleikar:
Cello sóló (Þórhallur Árnason). —
20.30 TTpplestur ..Hunde bades“,
eftir Jónas Rafnar. (Frú Soffía
Guðlaugsdóttir.) 21.00 Frjettir.
21.30 íslensk lög (nýju plöturnar)
Danslög'.
Guðspekifjelagið. I kvöld kl.
8% flytur frú Kristín Matthíasson
erindi um Starfsstöðina í Huizen.
Hallgrímur Benediktsson stór-
kaupm. og frú hans voru meðal
farþega á Drotningunni til út-
landa á laugardaginn var.
Árni Jónsson frá Múla er ný-
korninn lieim frá Austfjörðum. —
Var liann þar í erindum fyrir
FisksÖlunefndina.
Undirritaður er kaupandi
að notuðum
Þarf að vera með steypi-
útbúnaði.
P. Stefánsson.
Esfa
fer hjeðan vestur um land,
fimtudaginn 5. þ. m.
Vörum verður veitt mót-
taka í dag og á morgun.
Sanmastofn
Opnum við í dag í Hellusundí
3 (uppi). Góð meðmæli frá
Magasin du Nord.
Björg & Ólína.
Alt á sama stað.
Bflageymsla.
Munið eftir hinni ágætu,.
upphituðu bílageymslu.
Verið sannglarnt.
Egill Vilhiálmsson,
Laugaveg 118. — Sími 1717.
Sænskinámskeið
íslensksænska fjelagsins
„Svíþjóð“, fyrir byrjendur
og lengra komna byrjar 10.
október og stendur til jóla.
Tveir tímar á viku fyrir
hvorn flokk og kostar 20 kr.
— Kennarar verða frú E.
Brekkan og . Guðl. Rosin-
kranz.
Tekið á móti umsóknum í
síma 2503, kl. 6—7.
Gardinustangur.
ódýrastar í
Húsgagnaverslún
Hristjáns Sigyeirssonar,
Laugaveg 13.