Morgunblaðið - 08.11.1933, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.11.1933, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ 3 Lögreglustjórinn og logregluþjónarnir Eftir Jón Þórláksson. inwm.ai JHorgtutUaM* Útget: H.l. Árvakur. ReykjdTlk, XitetJOrar: Jðn KJ&rtaneeon. Valtýr Stef&neaon. Kttatjórn og afgrreittsla: Auaturatrœtl 8. — Slml 1600. AuKlýalnKaatJóri: H. H&fbers. Auelýalnsraakrlfatofa: Austuratrœtl 17. — Slml 1700. Helmaalmar: Jón KJartanaaon nr, 6742. Valtýr Stefánsaon nr. 4220. Árni Óla nr. 8045. E. Hafberg nr. 8770. j Áakrlftagjald: Innanlanda kr. 2.00 á mánnSl. Utanlanda kr. 2.50 á mánuBL i iauaaaðlu 10 aura elntaklV. 10 aura me8 LeaMk. Stutt þing. Alt bendir til þe'ss, að Alþingi geti orðið stutt að þessu smni. Kosningalögin er aðalmálið, sem fyrir þinginu liggur. Bn þetta mál hcfir fengið rækilegan undirbún- ing frá nefnd þeirri, sem samdi frumvarpið. í þessari nefnd áttu sæti sinn fulltrúinn frá hverjum þingflokki, og var gott samkomu- lag innan nefndarinnar. Þetta ætti að flýta mjög. fyrir afgreiðslu |)essa máls. Nú eru kosningalögin lcomin til 4stjórnarskrárnefndar í Neðri deild. Nefndin er skipuð sjö miinmnn og hafa meiri hlutann þar Framsóknarmenn og sósíal- ístar. Er það því aðallega á þeirra valdi, að greiðlega gangi með af- greiðsln málsins. Bf vel er unnið í stjórnarskrár- mefndinni og samkomulag verður þar eins gott og var í nefnd þeirri sem samdi frumvarpið, ætti hún að geta skilað áliti innan fárra <daga. Vitanlega er ekki enn hægt að <spá neinu um það, hve lengi þingið situr að þessu sinni, en þjóðin ætlast einhuga til þess, að iþað'hafi stutta setu. Vitað er, að Jónasarliðig { Pram sókn og sósíalistar rahba mikið «m stjórnarskifti nú á þinginu. Kept er að því, að fá nýja sam- bræðslustjórn skipaða tveim mönnum úr liði Tímasósíalista og •einum sósíalista. I dag ella á morgun. Þetta hefjr viðkvæðið verið í Al þýðublaðinu undanfarna daga. í dag <eða á morgun, segir ríkisstjornin af «ér. — I dag eða á morgun verður af- ■sta.ða Framsóknarflokksins til stjórn arinnar kunn, sagði Alþýðubl. í gær. I gær varð ekkert kunnugt um af- ^töðuna annað en það, sem áður var kunnugt'. Að Framsóknarflokkurinn, að einuin þingmanni undantekntim liefir valið formann sósíalista til for- seta sameinaðs -þings. Er sýnilegt, að Alþýðublaðið tel- ur það spor svo mikilsvert, að eigi vanti nú nema herslumun, að Fram- •sóknarflokkurinn á Alþirigi gangi sem ein og óskift heild á mála hjá rsósíalistum. ------—-— Lindbergh. Amsterdam, 7. nóv. United Press. FB. Lindbergh og kona hans lögðu fii stað hjeðan í flugvjel sinni kl. 11.45 áleiðis til Genf. Síðarí fregn: Lindbergh sneri aftur vegna óveðurs og lenti heilu og höldnu í Rotterdam. Það var ekki lítill vandi fyrir veitingarvaldið að velja úr þeim nál. hálft þriðja hundrað mönn- um, sem höfðu gefið kost á sjer fyrir lögregluþjóna hjer í bænum. Langtum fleiri voru vel hæfir til starfans, en unt var a'ð taka, og er það þó óvenjulegt í okkar fá- menna samfjelagi, að 21 staða samkynja sje á boðstólum sam- tímis. í tillögum lögreglustjóra til bæj arstjómarinnar virtist vera lögð nokkuð einhliða áhersla á ‘háan vöxt og góðan líkamsskapnað. um- sækjendanna, svo og á það; að sem flestir þeirra væru mjög ungir, 21—23 ára. í sjálfu sjer er ekk- ert út á þetta að setja frá því sjónarmiði, að koma upp sem mynd, arlegastri götulögregln. En hins- vegar er alveg eðlilegt, að bæjar- stjórnin vildi láta nokkur önnur sjónarriiið koipa til greina jafn- framt þessu, og skal jeg nefna nokkur þeirra. Eins og nú er ástatt í bænum með húsnæðisekln og atvinnuskort, var það alveg eðlilegt, að bæjar- stjórnin kynokaði sjer við að fara að sækjast eftir utanbæjarmönn- um til nokkurra muna í þessar stöður, þar sein .yfirfljótanlegt var af _hæfnm irinanbæjarumsækjend- um úr að velja. Astæðurnar fyrir þessu þurfa ekki útlistunar. Allir sjá að bærinn vex svo ört af að- flutningi fólks, a'ð ekki er á auk- andi með opinberum ráðstöfun- um. Boðlegir mannabústaðir ekki til í bænum handa nærri öllu því fólki, sem nú dvelur þar, hvað þá fleiri. En hins vegar svo hundr- uðum skiftir af atvinnulausum heimilisfeðrum. Nokkrir af þeim, sem lögreglustjóri hafði stungið upp á, gengu því þegar úr hjá bæjarstjórn af því að þeir voru ut- anbæjarmenn. Næst kom það til greina hjá bæjarstjórn að í þetta sinn átti ekki eingöngu að velja menn til venjulegra lögregluþjónastarfa, sem aðallega eru í því fólgin, að lialda uppi reglu á almannafæri. Ur hópi liinna 21 nýju manna og þeirra 27, sem fyrir eru, ber sam- kvæmt lögum frá síðasta Alþingi að velja. 8 menn í sjerstaka ríkis- lögregludeild, og eiga þeir menn m. a. áð hafa á hendi eftirgrensl- anir út af lögbrotum og önnur skyldustörf. Þau störf útliemta talsvert aðra kosti, en sjálf varð- þjónustan. Kornungur maðnr, háv vexti og hraustur að öllu leyti getur verið laklega. fallinn til eftirgrenslunar, þótt liann sje prýðilegur gatnamótavörður. Bæj- arstjórninni (eða meiri hlnta henn ar) þótti lögregluatjóri ekki hafa tekið nægilegt tillit til þeirra sjer stöku kosta, sem krefjast þarf af ríkislögreglumönnum, í sínum npp ástungum, og vildi hæta úr því með því að taka einstöku vel ment aða og vel metna, menn komna af æskualdri og með hæfilegri lífs- reynslu, þótt eitthvað örlítið mætti finna að vaxtarlagi þeirra eða því- uml. frá sjónarmiði þess, sem ein- göngu hefir götulögreglu fyrir augum. Loks vildi meiri hluti bæjar- stjórnar láta þá menn ganga fyr- ir a® öðru jöfnu, sem síðast liðið ár höfðu lagt fram aðstoð sína til þess að halda uppi lögum og reglu í bænum, eftir að núv. lögreglu- stjóri fyrir ári síðan sællar minn- ingar hafði sýnt svo átakanlega, að hann hrast þá foringjahæfi- leika, sem einir gátu bætt upp fá- menni lögregluliðsins sem áður var. Þessa aðstoð höfðu menn nú veitt á tvennan hátt, sumir með því að ganga í hið fasta lögreglu- lið bæjarins aðallega meðan van- liöld voru í því eftir meiðslin 9. nóv.-, og sumir með starfsemi í varalögreglunni. Höfðu hinir síð- arnefndu sjerstaklega orðið fyrir mjög alvarlegum óþægindum og of sóknum, en þjóðfjelagið ekki gætt til fulls þeirrar skyldu, að vernda þá fyrir slíku. Nú var í hópi um- sækjendanna svo mikill fjöldi hæfra manna úr aðstoðarliði og varaliði lögreglunnar, að auðsjá- anlega var hægt að velja þaðan talsvert fleiri menn, en þurfti í þessi 21 sæti. Það varð því ofan. á hjá meiri hluta bæjarstjórnar að halda sjer eingöngu innan þessa hóps umsækjenda, og velja úr hon- um menn, sem þar höfðu reyn3t vel, og ð öðru leyti þóttu líklegir til að vera vel hæfir lögreglumenn, annaðhvort í bæjarlögreglu eða ríkislögreglu. Yið þetta urðu ör- fáir vel hæfir innanbæjarmenn frá að ganga, sem lögreglustjóri hafði mælt með, en hvorki höfðu verið aðstoðarmenn lögreglunnar nje varalögreglumenn. Þegar meiri hluti bæjarstjórn- ar ákvað þetta gjörði hann sjer líka fvllilega ljóst, að það er mjög áríðandi, að vel hæfir menn verði fáanlegir í hina nýju varalög- reglu sem nú á að fara að stofna samkvæmt ákvæðum laganna frá s.íðasta þingi. Hann vildi slá því föstu í meðvitund almennings með þessari veitingu, að leiðin til þess að fá lögregluþjónastöður í Reykja vík á framvegis að vera sú, að ganga fyrst í varalögreglu bæjar- ins og reynast þar vel. Jeg held ekki, að orkað geti tvímælis í aug- um þess yfirgnæfandi fjölda borg- aranna af öllnm flokkum, sem vilja að haldið sje uppi lögum og friði í bænum, að með þessu lief- ir meiri; hluti hæjarstjórnarinnar farið inn á hyggilega braut, sem er vel til þess fallin að tryggja hinu fasta lögregluliði bæjarins aðstoð vel hæfrar varalögreglu hvenær sem þarf. (Frh.). Fundur presta og sóknárnefnda. Dagskráin í dag er sem hjer segir: Kl. 9y2 árd. Morgunbænir sr. Bj. Jónsson. Kl. 10-—12 Skipulag kirkj unnr, frummælandi sr. Sig. Z. Gíslason. KI. 3%—7 síðd. Kristin- dómsfræðslan, frummælandi Helgi Elíasson fræðslumálastjóri. Kl. Sy2 síðd. Frá Finnlandi, erindi í dómkirkjunni, Dr. Jón Helgason biskup. Þingtíðindi. 1 Kosningalögin. Neðri deild. Kosningalögin voru á dagskrá í Neðri deild í gær. Magnús Guðmundsson fylgdi frumvarpinu xir hlaði með stuttri i'æðu. Hann gat þess að frumvarp- ið væri samið af þriggja manna nefnd, en í henni liefði átt sæti fulltrúar allra þing- floltka. Samvinna hefði verið góð í nefndinni, en þó væri ágreín- ingur um einstök atriði og væri þess getið í greinargerð frum- varpsins. Hann óskaði þess að lok- um, að frumvarpinu yrði vísað til stjórnarskrárnefndar, og var það samþykt. Stjórnarskrárnefnd, Kosin var á fundinum sjö manna stjórhar- skrárnefnd og hlutu þessir kosn- ingu: Thor Thors. Gísli Sveinsson, Jakob Möller, Bergur Jónsson, Bernharð Stefánsson, Eysteinn Jónsson og Yilmundur Jónsson. Efri deild. Þar voru fimm mál á dagskrá og fóru þau öll til nefnda. Breyting á þingsköpum Alþing- is fór tíl allsherjarnefndar. Sömu- leiðis fór til allsherjarnefndar frumvarp um samkomudag reglu- legs Alþingis 1934. Hin frumvörpin þrjú voru bráðahirgðalög þau, sem gefin liafa verið út til skýringar á skattalögunum, sem samþykt voru á síðasta þingi. Þau fóru öll til f j á rh a gsnefndar. Bátstapinn á Siglufirði. A þriðjudagsnótt fóru skipin Snorri og Sjöstjarnan enn á ný í leit að vjelbátnmn Fram frá Siglufirði. Og í gærkvöldi fór Óðinn í leitina. En menn eru orðnir mjög vondaufir um, að báturihn sje ofansjávar. Siglufjarðarbátar, þeir stærri, fóru í róður á fimtudagskvöldið var. Þeir sækja nú út á svonefnt Skagagrunnsliorn, 30—40 sjómílur út af Siglufirði. Bátarnir komu að aðfaranótt laugardagsins, höfðu fengið slæmt sjóveður, og skildu sumir eftir línu. Á laugardaginn gerði afspyrnu- veður af norðvestri, eins og' menn muna. Fóru tveirbátar af Siglufirði að leita að Fram, Fekk annar áfall, brotnaði ofauþilja, og áttu báðlr fullerfift með að komast leiðar sinn- ar, til lands. Aðfaranótt sunnudags fór Snorri og Sjöstjarnan að leita og komu aft- ur á mánudagskvöld til að fá sjer olíu. Leituðu skipin alla leið austur að Sljettu. Sjöstjarnan fann eina línubauju fráFram, 8 sjómílurnorð vestur af Bauðunúpum. Bátshöfnin. Á bátnnm voru 4 menn. Ilrlgi Sigfússon, formaður, tengda sonur Jóns Jóhannessonar, fiskimats- manns á Siglufirði. Lætur liann eft- ir sig ekkju og tvö 'börn ung. Vjelamaður ábátnum, Arngrimur Jónsson frá Dalvík, ungur maður. Hinir tveir, Meyvant Meyvantsson frá Máná og Jón Valdimarsson, aldraður maður, frá Dalvík. heldur fund annað kvöld Rl. 8V2 í húsi Oddfellowa. Sigurður Kristjánsson rijt- stjóri hefur umræður um: Viðhorfið í verslunarm^i unum og samband þeirra Uo stjórnmálin. Stjórnin. „Brnarioss" fer á föstudagskvöld kl 10 um Vestmannaeyjar til Lofi- don og Kaupmannahafnar^ „Bnllfoss" fer á föstudagskvöld í hrað- ferð vestur og norður. Farseðlar með þessum skiþ- um óskast sóttir fyrír kl. 2 e. h. á föstudag. Jöknldals- kjöt Enn eru nokkrar hálftuníi- ur af úrvals, spaðsöltuðti, dilkakjöti eftir óseldar. Upplýsingar í síma 4938. LS. LTIH fer hjeðan fimtud. 9. þ. m., kl. 6 síðdegis, til Bergen uffl Vestmannaeyjar og Thor^- havn. Flutningur tilkynnist fyr- ir kl. 6 í dag. Farseðlar sækist fyrir há degi á morgun. Nic. Biarnason & Smith Báturinn, 16 tonn, eigandi Júlfiis Björnsson, iitvegsbóndi á DUvík, keypti bátinn frá Noregi síðastl. vor..

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.