Morgunblaðið - 10.11.1933, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 10.11.1933, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ 7 Egg. Ný suðuegg á 18 aura. Bökunaregg á 14 aura. Ágœt epli á 75 aura V2 kg. Bnnfremur alt til bökunar sjer- lega ódýrt eins og vant er Versl Bicrninn. Bergstaðastíg 35. Sími 4091. Lifstvkki, frá 3.50, og góð og ódýr andklæði Versl. Manchester. Laugaveg 40. Sími 3894. Til minnis: Saftflaskan 1/1 95 aura. Bóndósin 95 aura. Kaffipokinn 95 aura. Export frá 55 aurum. Eldspítubúntið á 20 aura. fslenskt smjör, sykur, kornvör- nr og hreinlætisvörur mun ódýr- ara en alment gerist. Versiun Sveins löhannssonar. Bergstaðastræti 15, sími 2091, Bankabygg.vmiðl, Bankabygg Bygggrjón Bækigrjón Vikt. Baunir Hvítar Baunir Linsur Athugið. Það færist meir og meir í vöxt, «ð hinir svonefndu gleraugna „Ex- pertar" framkvæmi mælingar og rannsóknir á sjónstyrkleika og sjóngöllum, sem orsakast af skökku Ijósbroti í auganu. Svo er það í Danmörku, þar getur fólk fengið augun rannsök- uð ókeypis. Til þess að geta sparað við- skiftavinum vorum mikil útgjöld, framkvæmir gleraugna „Expert” vor þessa ókeypis rannsókn, og segir yður hvort þjer þurfið að nota gleraugu og af hvaða styrk- leika þau eiga að vera. Viðtalstími kl. 10—12 og 3—7. F. A. THIELE. Austurstræti 20. KlEINS Kjötfars reynist best. Baldurcgötu 14. Sími 3073 Sóknaneindarfandnrinii. Ríkið reisi kirkjurnar. Kirkjusöngur. Samvinna kenn ara og presta o. fl. Sóknarnefndarfundurinn, sá 8. í röðinni, hófst lijer í bæn- um á þriðjudaginn var með guðsþjónustu í dómkirkjunni, þar sem sr. Brynjólfur Magnús- son frá Grindavík prjedikaði. Fundarhöldin sjálf fóru fram í húsi K.F.U.M. og hófust kl. 4 síðd. á þriðjudag. Formaður undirbúningsnefnd arinnar, Sigurbj. Á. Gíslason, setti fundinn. Fundarstjóri var kosinn Ólafur Björnsson kaup- maður á Akranesi, og til vara S. Á. Gíslason; fundarskrifari var kenslukona Halldóra Bjarna dóttir í Háteig og til vara Tómas Snorrason frá Grinda- vík. Fyrsta fundai*málið var „Kirkjur og prestar". — Flutti Gísli Sveinsson sýslum. sköru- legt inngangserindi í því máli. Mintist hann á m. a., að stein- kirkjumar, sem nú væru alment reistar, væru oft engan veginn eins vönduð hús og skyldi. En hins vegar væri svo komið hög- um fólks í fámennum söfnuð- um, að því væri ofvaxið að reisa vandaðar kirkjur, ef ekki kæmu til stórar gjafir eða annar styrkur. Taldi ræðumaður eðli- legast, úr því að þjóðkirkja væri í landinu, að ríkið annað- ist jafnt kostnað við kirkju- byggingar og það annast laun presta, — en tæki aftur alveg við sjóðum kirkjunnar. Umræður urðu miklar um þetta erindi og var 5 manna nefnd sett til að koma með til- lögu í málinu daginn eftir. Um kvöldið kl. 9 flutti Jón Jónsson læknir fróðlegt innr gangserindi um kirkjusöng og rakti sögu hans sjerstaklega hjerlendis. Á miðvikudagsmorg- uninn flutti sr. Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur morgunbæn- ir. Þá flutti sr. Sig. Z. Gíslason langt og ítarlegt erindi um skipulag kirkjunnar. Kom hann víða við og vildi gera þar mikl- ar breytingar. Urðu töluverðar umræður um málið, en engin ákvörðun tekin. að íhuga og undirbúa þetta mál frekar til næsta sumars. Var tillaga þessi samþykkt í e. hlj., og í nefndina kosnir: Gísli Sveinsson sýslum., sr. Eir. Brynjólfsson á Útskálum, Ól. Björnsson, Akranesi, Ólafur H. Jónsson, Hafnarfirði, og Matth. Þórðarson þjóðmenja- vörður. Seinni hluta dags, kl. 3,30, hóf Helgi Elíasson fræðslumála- stjóri umræður um samvinnu milli kennara og presta í upp- eldismáhun. Urðu um það mál miklar umræður og snerust að- allega um kristindómsfræðslu. Jón Norðmann Jónasson kennari flutti eftirfarandi tillögu, sem samþykt var með öllum greidd- um atkvæðum: „Fundurinn beinir þeirri á- skorun til bamakennara, bæði í Reykjavík og úti um land, að þeir beiti sjer fyrir því, að börn sæki kristilega sunnudagaskóla, þar sem þeir starfa, og að þau gangi í Kristilegt fjelag ungra manna og Kristilegt fjelag ungra kvenna, á þeim stöðum sem slík fjelög éru til, þar eð bömin eiga þar kost á ágætri fræðslu um kristileg málefni". I Um kvöldið kl. 8,30 flutti biskup Jón Helgason útvarps- erindi í dómkirkjunni um kirkjulíf á Finnlandi. Opið land. Síðastliðinn sunnudag (29. okt.) birtist í Morgunblaðinu grein með þessari fyrirsögn eftir Guðmund Kamban rithöfund. Hann heldur því þar fram, að vjer eigum að opna landið fyrir innflutningi út- lendinga, óxl nokkmira athuga- semda, og jafnvel leggja fram nokkurt fje til þe^s að fá þá til að flytja inn í landið. Jeg verð nú fyrst að taka það fram, að jeg veit ekki betur, en að fsland sje opið fyrir öllum, sem hingað vilja flytja. Það eru að vísu til lög, sem hanna útlending- um_ að koma hingað í atvinnuleit Nefndin, sem sett var daginn áður, flutti þá þessa tillögu: „í tilefni af því, að Gísli Sveinsson sýslumaður hefir í er- indi því um ,Kirkjur og presta', er hann flutti á fundinum, hald- ið því fram, að hin rjetta leið í kirkjubyggingarmálum þjóð- kirkjunnar væri: 1) A^ð ríkið taki að sjer að reisa á almanna kostnað öll kirkjuhús í landinu, er til þess kemur, en söfnuðir annist síðan hið venjulega viðhald kirkn- anna með lögskipuðum tekjum þeirra; og 2) A(S jafnframt falli sjóðir kirknanna til ríkisins, enda taki ríkissjóður að sjer greiðslu þeirra skulda, er söfnuðunum hvíla vegna kirkjubygginga, — samþykkir fundurinn að kjósa 5 manna nefnd til þess nema þeirra sje sjerstaklega þörf, af því að tilsvarandi kunnáttu- menn vanti hjerlenda, og Dönum eru engin takmörk sett. En jeg veit ekki til að þessum lögum sje að neinu verulegu léyti framfylgt. Þa<5 eru einnig til lög, sem fyr- irskipa eftirlit með þeim útlend- ingum, sem hingað koma, en mjer er ókunnugt um, að það eftirlit sje framkvæmt. Og hvar eru þá hömlumar? Þa<5 eru að vísu til nokkrir borgarar, sem vilja vera löghlýðnir og sækja um leyfi, ef þeir þurfa á útlendum manni að halda, og er það leyfi þá venju- lega veitt. En það eru ekki nærri því allir sem hafa fyrir því, að sækja um þetta leyfi, heldur fá sinn útlenring óaðspurt, og við við því er venjulega ekkert gert; og ef einhver annmarki væri á því, að ná honum þannig, þá er hann látinn koma sjer til gamans eða fróðleiks og síðan tekinn í ■ vinnu, þegar hann hefir dvalið hjer eftirlitslaust stuttan tíma. Jeg get nú verið Guðmundi I Kamban sammála um það, að oss j sje hagur að því að fá hingað útlendinga, sem eitthvað gott geta kent oss, á hvaða sviði sem það er, og að vjer eigum að stuðla að því, að þessir menn setjist lijer að. Jeg get jafnvel verið með því, að vjer eigum að vera frjálslyndir um innflutning út- lendinga, sem vilja vinna og gera hjer gagn, jafnvel þótt það væri í samkepni við jafnhæfa innlenda starfsmenn, svo framarlega sem fullnýtum innlendum starfsmönn- um er ekki bolað frá vinnu þeirra vegna. En það er bara ekki þetta fólk sem kemur, þegar landið er opnað fyrir útlendingum, heldur ( úrhrakið, ónytjungarnir, sem ekki nenna að vinna og ekki fá að vinna, sakir ódugnaðar eða ann- ars verra, heima í sínu ættlandi. Oss vanhagar ekki um þess háttar fólk og þurfum ekki fleiri lcenn- ara í listum þess, en vjer höfum. Ef Guðm. Kamban getur útvegað oss duglega útlendinga, er vilja yrkja og pæla jörðina og gerast íslenskir borgarar, þá skal jeg sjá um að koma nokkrum þeirra fyrir. En jeg hefi ekki trú á að hann geti það. Það er misskilningur, að vort mesta mein sje fámennið. Þroski þjóðanna og gildi fer ekki altaf eftir fjölmenni, heldur menningu og manngildi einstaklinganna. — Rússa vantar ekki fjölmennið, en hvaða Evrópuþjóð stendur lægra á öllum sviðum? Standa fjöl- mennustu þjóðir heimsins, Kín- verjar og Tndverjar nokkuð fram- ar öðrum þjóðum i menningu eða framkvæmdum? Jeg hefi ekki sjeð því haldið fram, að minsta kosti ekki af Evrópumönmim. Sann- leikurinn er sá, að það er fjöl- mennið, sem þjáir þessar þjóðir. Jafnvel Evrópnþjóðimar, Italir, Þjóðverjar, Englendingar o. fl., eru orðnar svo fjölmennar, að þær eru í vandræðum með atvinnu handa verulegum hlnta þjóðarinn- ar, og hanga í hárinu hver á annari vit af hvaða möguleika, sem um getur verið að ræða fyrir heim- ili eða atvinnu handa þessu ofauka fólki. Að vísu leggja sumir stjórn málamenn áherslu á fólksfjölgun þjóðar sinnar, en það er oftast með tilliti til herafla, og þeir hinir sömu eru sjaldnast færir um að sjá þjóð sinni borgið fjár- hagslega eða atvinnulega. Þar sem offjölgun er og atvinnu leysi, sitja þeir bestu og dugleg- ustu venjulega fyrir vinnunni, hverjir á sínu sviði. Það sem hingað mundi sækja, er því það fólk fyrst og fremst, sem aðrar þjóðir vilja ekki hafa. En hverj- um augum, sem vjer fslendmgar (lítum á ástæður og aðferðir ann- ara þjóða, þá ættum vjer að geta verið sammála um það, að það fólk, sem þær vísa frá sjer eða vilja ekki hafa, geti ekki verið eftirsóknarvert fyrir oss, og að full ástæða sje til þess, að vera á verði gagnvart innflutningi þess hingað. Það sem oss vantar í atvinnu- málum íslendinga, er ötulan vinnu kraft í sveitirnar, örfáa sjerfræð- Hið viðurkenda Barnalý§i frá Laugavegs Hpsteki inniheldur í einu grammi: 2000 A bætiefnaeiningar 1000 D bætiefnaeiningar. Nú er tíminn til þess að gefa börnum þetta viðurkenda þorska- lýsi. Nýkomíð: inga í tækni og vísindum, og fjármagn til þess að geta komið á fót nýjum atvinnufyrirtækjum. Það er að vísu rjett, að líklegt er, að því fleiri sem vjer erum, því meiri mannvirkjum getum vjer komið á fót, og því fleiri kaupendum hefðum vjer að ritum skálda vorra og rithöfunda, en þó er það ekki alveg víst, og heldur ekki hitt, að menning og efna- hagur þjóðarinnar væri að nokkru betri þar fyrir. Það er ekki fjöld- inn, stærðin eða magnið, sem mest er um vert, heldur gæðin. Annars virðist mjer að ekki sje hægt að segja, að vjer höfum farið illa með þá vitlendinga, sem hafa sest hjer að. Vjer höfum tekið þeim sem íslands eigin böm- um og stundum betur, enda hafa margir þeirra reynst hjer ágæt- lega og orðið góðir íslendingar. Og hvað snertir stjettárhræður Kambans sjálfs, listamennma, þá hefir þeim jafnan verið tekið tveim höndum, ef þeir hafa ekki verið verstu fúskarar þótt ís- lensku listamennirnir sjálfir hafi annað hvort orðið að flýja land eða lifa við sultarkjör hjer heima. Reykjavík 4. nóv. H. H. Eiríksson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.