Morgunblaðið - 14.11.1933, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Maður vcrður úfi.
Þóroddur Jónsson heildsali og Sigurjón
Guðmundsson skrifstofumaður, viltust á
rjúpnaveiðum á sunnudaginn.
Þeir komust niður undir Vogsósa,
um kvöldið en þar var Sigurjón
uppgefinn af kulda og þreytu og
Ijest þar.
Á sunnudaginn fóru þeir Þór-
oddur Jónsson heildsali og Sig-
urjón Guðmundsson skrifstofu-
maður hjá honum á rjúpnaveið-
ar. Höfðu þeir gist á Kolviðar-
hóli um nóttina og voru tveir
menn aðrir með þeim. Á sunnu-
dagsmorgun óku þeir niður að
Sandskeiði, skildu bílinn þar
eftir og skiftu sjer, en um var
talað, að allir hittust hjá bíln-
um að ákveðinni stundu.
Þeir Þóroddur og Sigurjón
gengu suður að Bláfelli. En
skömmu síðar brast á hríð. Og
er þeir komu ekki aftur, urðu
menn hræddir um, að þeir hefði
vilst. Var nú farið að leita þeirra
og tóku margir þátt í leitinni, en
hún bar engan árangur.
I gærmorgun fóru svo aftur
margir menn að leita, meðal ann
árs nokkrir varalögreglumenn
hjeðan. En kl. rúmlega 10 kom
íregn um það frá Selvogi, að
Þóroddur væri kominn þangað,
en Sigurjón hefði uppgefist og
andast skamt frá Vogsósum.
Morgunblaðið átti tal við Sel-
vog í gærkvöldi til þess að fá
nánari frjettir.
Þeir fjelagar höfðu þegar vilst
•er hríðin skall á, og hafa svo
haldið suðvestur fjöllin. Hlupu
þeir eitthvað fyrst og þreyttu
sig á því. Um kl. 4 á sunnudag
lomu þeir fram á heiðarbrún.
Það mun hafa verið sem næst
því beint upp af Hlíð í Selvogi.
Sáu þeir þá út á Hlíðarvatn, en
svo voru þeir viltir, að þeir heldu
að það væri Hafnarfjörður. Var
þá farið að draga mjög af Sigur-
jóni vegna þreytu og hungurs,
því að þeir höfðu ekkert nesti
með sjer. Hvíldust þeir eitt-
hvað þar á heiðarbrúninni og
mun þá haía sett að þeim, því
að illa voru þeir útbúnir. Fóru
þeir nú að halda niður heiðina,
en það gekk seint, og hvergi
sáu þeir til bæja. Dró meira og
meira af Sigurjóni, og er þeir
voru komnir niður undir Vogs-
ósa, gafst hann alveg upp og
þar andaðist hann rjett á eftir.
Það var um kl. 10 um kvöldið.
Þóroddur sat yfir líkinu alla
nóttina, en þegar birti, drógst
hann heim til bæja í Selvogi.
Kom hann að bæ, sem heitir
Klöpp. Var honum þar vel tek-
ið, byrgður niður í rúm og gefið
heitt að drekka. Hrestist hann
furðanlega fljótt.
Lík Sigurjóns var flutt í
Strandarkirkju, og geymt þar,
og verður sent hingað í dag.
Þóroddur lagði á stað frá Sel-
vogi í gær um miðjan dag á-
leiðis hingað. Var hann reiddur
á hestum eitthvað áleiðis eða
þangað, sem bílar komast
lengst.
Sigurjón var mjög vel látinn
af þeim, sem kyntust honum.
Hann kvæntist fyrir tveimur ár
um eftirlifandi ekkju sinni, El-
ínu Þorláksdóttur frá Hrauni í
Ölfusi, og var heimili þeirra á
Spítalastíg 6.
Þýsku kosningarnar.
Berlín 13. nóv.
United Press. FB.
Þjóðverjar hafa með yfirgnæf-
andi meirihluta fallist á afstöðu
þýsku ríkisstjómarinnar til þjóða.
bandalagsihs og afvopnunarráð-
stefnunnar. Segir Hitler sjálfur og
helstu menn hans, að úrslit kosn-
ínganna sjeu hetri en hann hafi
gert sjer vonir um. Samkvæmt
opinberum skýrslum greiddu
42,975,009 atkvæði í ríkisþings-
kosningunum, þar af 39,626,647
með þjóðernisjafnaðarmönnum
92,9%, ógild atkvæði 3,348,-
ÍÍ62. I þjóðaratkvæðinu greiddu
43,439.046 atkvæði, þar af sögðu
40,588.804, eða 93,4% já, en 2,200,-
181 nei, en ógild atkvæði 750,-
061.
Þingmenn hins nýja ríkisþings
verða 660 tatsins. Kosningarnar
voru óeirðaminni en nokkrar kosn-
iugar aðrar um langt skeið.
Hitler hefir í ávarpi til ,,þýskra
borgara“ látið svo um mælt, að
þeir hafi látið vil.ja sinn ótvírætt
í ljós og muni ])að verða s.jer
mikill 'styrkui-. Þýska þjóðin verði
að kappkosta að sækja fram og
gegna skyldum sínum út á við og
inn á við með óbifandi hugrekki.
I ávarpi til flokksins ræðir Hitler
um kosningarnar sem „einstæðan
sigur“.
Berlín, 13. nóv, FÚ.
Þátttaka í þýsku ltosningunum
í gær var meiri en nokkru sinni fyr
og greiddu um 43 miljónir atkvæði
í Ríkisþingskosningunum, og 43y2
miljón þjóðaratkvæði um úrsögn
Þjóðverja úr Þjóðabandalaginu og
afvopnunarráðstefnunni,
Af atkvæðum þessum fjellu
91.1% á lista Natiónalsósíalista í
Ríkisþingskosningunum, en aðrir
seðlar voru auðir eða ógildir. Þjóð-
aratkvæðið fór þannig, að 93.5%
sögðu já við Utanríkisstefnu stjórn
aj-innar.
Úrslitin vek.ja mikinn fögntið í
Þýskalandi. Verður flaggað á öll-
um opinberum byggingum i dag,
en klukkum hringt frá. kl. 18.00
til 18.15 í þakkarskyni.
Hitler fór á fund Hindenburgs
í morgun, og tilkynti hönum loka-
úrslit kosninganna. Þakkaði Hind-
enburg kanslarannm fyrir hve vel
honum hefði tekist á stuttum tíma
að skapa pólitíska einingu í Þýska,
f
Páll J. Ólafson
tannlæknir,
ljest að heimili sínu h.jer í bæn-
um á sunnudagsmorgun, eftir
þunga legu.
landi, og kvaðst vona að starf hans
yrði ekki síðra framvegis.
Þegar úrslit kosninganna voru
tilkynt í nótt, hjelt Göbbels ræðu
í útvarpið, þar sem hann þakkaði
þýsku þjóðinni fyrir það, hve vel
hvin hefði brugðist við að sýna
viðurkenningu sína á Hitler-st.jórn
inni.
Erlendum blöðum er tíðrætt um
úrslit kosninganna, og telja flest
blöðin að úrslitih kunni að hafa
mikla þýðingu fyrir framtíðarpóli
tík í Evrópu. Enska jafnaðar-
mannablaðið, Daily Herald, segir
meðal annars, að nú geti Hitler
hætt að fiska eftir atkvæðum, og
komið fram sem heimsstjórnmála-
maður. Austurrísku blöðin eru þó
nokkuð vafagjörn út af kosning-
unum, og segja að þær hafi ekki
farið löglega fram, heldur hafi
verið beitt misr.jetti og nauðung.
Segja þau, að ef frjálsar kosning-
ar hefðu farið fram, hefði Hitler
ekki fengið 50% af atkvæðunum.
Kynningarkvöld
Heimdallar
á sunnudaginn var.
Mikil þátttaka, margar ræð-
Ur, ánægju'legt kvöld.
Á sunnudagskvöldið var efndi
fjelag ungra Sjálfstæðismanna,
hjer í bænum, Heimdallur, til
fundar í samkomusölum Odd-
fellowa. Þó hvert sæti væri þar
skipað, varð fjöldi manna frá
að hverfa sakir þess, að salar-
kynni urðu of lítil fyrir þá er
þarna vildu vera.
Setið var að kaffidrykkju
meðan ræðuhöld stóðu yfir.
Jóhann Möller, form. Heim-
dallar stjórnaði samsætinu og
ræðuhöldum. Hann bauð menn
velkomna, er gestir voru sestir.
Næstur tók til máls Ólafur
Thors alþm. Talaði hann fyrir
hönd form. Sjálfstæðisflokksins,
Jóns Þorlákssonar, er gat ekki
mætt þarna. Lýsti Ólafur stjórn
málaviðhorfinu, eins og það er
nú, og talaði nokkur hvatning-
arorð til ungra Sjálfstæðis-
manna.
Þá tók Gísli Sveinsson alþm.
til máls. Talaði hann m. a. um
hinn gagnrýnandi anda í Sjálf-
stæðisflokknum, er runninn væri
frá ungum Sjálfstæðismönnum.
Yrðu þeir eldri menn flokksins
að skilja æskuna rjett. Þá talaði
Jón Pálmason alþm. frá Akri
um stjórnmálaáhrif Heimdallar
úti um sveitir landsins.
Næstur talaði Kári Sigurjóns-
son alþm. Lýsti hann í ræðu
sinni þeim þröngsýnisanda, sem
hvíldi yfir sýslungum sínum
mörgum, og hvílík viðbrigði það
væri fyrir hann að koma þang-
að, sem meiri víðsýni og frjáls-
lyndi ríkti.
Pjetur Halldórsson alþm. tal-
aði fyrir minni Reykjavíkur, og
Símí: í—2—3—4.
Heildsðlublrgðir:
Maggi’s
Teningar,
Kfötveig,
Snpur.
Maggí’s vörur eru víður
kendar um allan heím.
Bjarni Biörnsson.
Ivðld-
siemtun
í Iðni í kvold kl. 9.
ifll styrktar Hvennadeild
Siysawarnafielaasins.
Panta skíði,
skíðastafi og ólar.
Mj«% ódýrt.
Bjarní Ágútsson,
skíðakennari. Sími 1380.
Atvlnua.
Ungur duglegur maður, sem
vanur er vjelritun, skriftum og
pfgreiðslu, óskar eftir slíkri
vinnu hálfan daginn eða nokkra
tíma á dag.
Þeir, sem vilja sinna þe.ssu geri
svo vel að senda tilboð til A. S. í.
fyrir 17. þ. m. merkt: „Hálfan
daginn.“
E g g
AðgönRumiðar seldir í Iðnó
í dag frá kl. 1 og kosta kr.
1.50 og kr. 2.00. Sími 3191.
til böknnar á 15 aura
til suðn á 18 aura.
Sykur — Hvéiti
og alt anuað til bökunar með
lægsta verði. Lúðuriklingur.
Hlðrtur Hjartarson,
Bræðraborgarstíg 1. Sími 4256.
lýsti þeim framförum, sem hjer
hafa orðið á síðustu árum.
Magnús Jónsson alþm. mælti
fyrir minni Thor Thors fyrsta
þingmannsins úr fjelagsskap
ungra Sjálfstæðismanna.
Thor Thors alþm. mælti fyrir
minni bænda, og þá einkum
þeirra, sem eru fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins á Alþingi.
Guðm. Benediktsson bæjar-
gjaldkeri mælti fyrir minni Sjálf
stæðisílokksins.
Þorvaldur Stephensen verslm.
talaði um stjórnmálaflokka með
ýmsum hnyttilegum samlíking-
um.
Bjarni Benediktsson tálaði um
stjórnmálaforingja alment og
hvert tillit þeir skyldu taka til
æskunnar í Iandinu.
Að lokum mælti Jóhann Möll-
er fyrir minni Jóns Þorláksson-
ar. — Þá var ræðuhöldum slit-
ið, enda liðið á kvöldið.
Síðan hófst dans, er hjelt
áfram fram til óttu.
Var kvöldið að allra dómi hið
ánægjulegasta öllum þátttak-
endum.
Kartöilnmjöl
25 atira. Hrísgrjón 20.
Haframjöl 20. Sveskjttr
65. Gttlróftir 10. Saft-
flaskan 1 kr.
Versl. Einars Eyjúlfssonar
Baldursgötu 10. Týsgötu 1.
BankJtbyggsinjöl,
Bankabygg
Bygggrjón
Bækigrjón
Vikt. Baunir
Hvítar Baunir
Linsur
LiistykM,
frá 3.50,
og g-óð og: ódýr
Handklæði,
Ifersl.Manchester.
Laugaveg 40. Sími 3894.
y