Morgunblaðið - 30.11.1933, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.11.1933, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ •s Fyrirliggjandi: Norskar kart ö'f l]u r, góðar og ódýrar. Simi: einn — tveir — þrír — f jórir. Gasstöð H Reykjavíkur óskar eftir tilboði í ca. 1500 smálestir af Wearmouth gas- kolum c. i. f. Reykjavík. Andvirði kolanna og flutningsgjald greiðist með þriggja mánaða víxli, í sterling. Kolin eiga að afskipast á tímabilinu 25. desember til 10. janúar. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu borgarstjóra mánu- daginn 11. desembcr kl. 11 f. h. GasstOð Reykiavíkur. AGENTUR. Norsk fabrik (Etabl. 3871) i bygningsartikkel- brancben söker forbindelse med vel indfört agent- Bill. mrk. „8traks“, sendes A- S. I. Rannsóknir, sem Vitamin- rannsóknastofa ríkisins í Dan- mörku hefir gert á Svana- vitaminsmjörlíki og vanalegu smjörlíki blandað 5% af smjöri sannar þetta: ÞaS er vafasamt hvort vanalegt smjör Jíki blandað ca. 5% af ís- lensku smjöri, inniheldur nokkur A-vitamin (fjörefni). Rottuungarnir, sem fóðraðir voru á því, veiktust af vita- minskorti, vesluðust upp og drápust. Svana-vitaminsmjör- líki sýndi sig að innihalda jafnmikið A vitamin og danskt sumarsmjör og rottu- ungarnir sem fóðraðir voru á því VEIKTUST EKKI. en néðu eðlilegum þunga og þroska á tilsettum tíma. Dæmið siðlfir j Fyrirlestur um viðreisn jarð- ríkis er í Varðarhúsinu í dag jkl. 8.30 e.m. Aðgöngumiðar á 1 kr. fást þar. — Þátttakið. — P. JóliaiiKissoii. 'Veitingasalir ! Oddfellowhússlns f lokaðir í kvöld eftir klukkan 8'/2, vegna dansleiks. m smlör kemur í dag. Verslunin Kjöt & Fiskur. Símar 3828 og 476 4. GuIIbrtíðkaup. Einar Guðmundsson og Mar- grjet Bjarnadóttir, hjón á Vest- urgötu 53A í Rvík, eiga 50 ára hjúskaparafmæli í dag. Nokkrum vikum lengur eru þau búin að vera búsett hjer í Rvík. Æskustöðvar þeirra eru í Hvammhreppi á Mýr- um. Bæði eru þau af fátæku for- eldri komin, en snemma numdu þau þá list, sem reyndar var ekki mjög fágæt meðal fátækra ung- menna í þá daga, að ná efnalegu sjálfstæði með iðni, þrautseigju og sjálfsafneitun. Þegar þau bundust trygðum, fundu þau að aðstaðan til að ná þessu marki, var örðug í fátæku og strjálbygðu sveitarfjelagi, og fluttu því til Rvíkur um sömu mundir og þau giftust. Þrátt fyrir mikla ómegð, tókst þeim að ná hinu setta marki. 6 mannvænleg börn þeirra, öll gift, eru: Guðmundur seglsaum- ari, á 2 börn, Ólafur vjélfræðing- ur, á 5 börn, Árni klæðskeri, á 6 börn, Emilía, á 2 börn, Guðrún, á 2 börn og Ágústa, á 5 börn. Allir þessir niðjar gullbrúðkaupshjón- anna eru búsettir í Rvík, nema Ágústa, sem gift er dönskum manni, og hennar börn búsett í Kaupmannahöfn. Auk þess, sem þau Einar og Margrjet hafa þannig átt mikinn og farsælan þátt í borgaralegu samfjelagi Reykjavíkur um hálfa öld, hefir heimili þeirra verið gestrisnu- og griðastaður fyrir sveitafólk og sjerstaklega okkur Mýramenn. Margir sjúklingar hafa notið þar kærleiksríkrar um- önnunar húsfreyjunnar og oft hefir heimilið verið bráðabirgða- sjúkrahæli. Margir fjær og nær, yngri „og eldri minnast þessara heiðurs- hjóna á gullbrúðkaupsdegi þeirra í dag, með hjartans þökk, hlýjum hug og hamingju óskum. Gaynall Mýramaður. Kommandör H. Ravn Hinn 13. þ. m. átti 65 ára af- mæli einn af madustu embættis- mönnum Dana, kommandör Hen- nk Ravn, forstjóvi Sjókortasafns- ins danska, en samkvæmt dönsk- um lögum er þetta aldurshámark þess flokks embættismanna, og lætur hann því af störfum hinn 1. desembermán. næstkomandi. Kommandör Ravn er fæddur í Kaupmannahöfn 13. nóv. 1868, sonur N. F. Ravn Viceaðmíráls, ::íðar flotamálaráðherra. Gekk hann ungur á Sjóliðsforingjaskól- ann og lauk prófi þar árið 1890. Lagði hann síðan stund á stærð- Træði, mælingafræði, veðurfræði o. fl. og hefir gegnt ýmsum mik- ilsverðum störfum á þessum svið- um og öðrum er að sjómensku lúta, bæði heimafyrir og erlendis, og oft átt sæti í alþjóðanefndum, er um þessháttar mál hafa fjall- að. Fer mikið orð af kommandör Ravn sem stærðfræðingi, eins og af föður hans N. F. Ravn aðmírál, og hefir hann m. a. samið kenslu- bók í sjómælingum, allmikið rit í 2 bindum. Mesta starí'ið hefir þó komman- dörinn unnið í þarfir Sjókorta- safnsins, en fastur starfsmaður þeirrar stofnunar hefir hann verið síðan árið 1910 og forstjóri safnsins síðan árið 1919. Má ó- hikað telja hann í fremstu röð þeirra manna, er safninu hafa veitt forstöðu. enda nýtur hann mikils álits bæði út á við og hjá starfsmönnum safnsins vegna dugnaðar og mannkosta. Kommandör Rafn er mörgum að góðu kunnur hjer á landi, bæði persónulega og gegnum starf sitt við Sjókortasafnið, en eins og kunnugt er, býr safnið til flest öll sjókort, sem hjer eru notuð, og hefir haft á hendi umsjón með sjómælingum hjer við land fram á síðustu ár. Mun láta nærri, að vinna við íslensk sjókort eingöngu nemi um þriðjung allrar vinnu við safnið, sem alls hefir um 20 mönnum á að skipa. Á yngri árum sínum var komm- andörinn nokkur ár á skipum danska flotans hjer við land, bæði við landhelgisgæslu og sjómæl- ingar, og árið 1900 var honum fal- ið að ákveða að nýju þríhyrninga- mælistaði og strandlengjuna á Reykjanesskaganum, en eins og kunnugt er leiddi það aftur til þess, að ákveðið var að mæla alt landið að nýju og er því verki ekki Iokið enn. Á þessum árum kyntist hann og lofaðist á Dýrafirði Ben- the Marie, dóttur L. Berg skip- stjóra, er um langt skeið rak hvalveiðar hjer við land. Giftust R.úsínur 65 aura % kg. Svesk jur 65 aura '/< kg. Hrísgrjón 20 aura */> ky. Hrísmjöl 35 aura i/> kþ'. Saftflaskan 1 krónu. tfersl. Einars Eyiölfssonar Týsgötu 1 — Baldursgötu 10, Nú drýpur smjör af iiverju strái. . SiUisUSUU. BLÖB Hjemmét.. .. .. .. nr 48 Dansk Familieblad .— 35 TJde og Hjemme . ...— 47 Söndags B. T.........— 48 Aftenbladet Söndag./— 35 Köbenhavnerinden ..— 46 Tidens Kvinder ,. ..— 47 Vore Damer...........— 24 Tempo................— 48 TJgebládet...........— 47 Mit Magasin..........— 66 Novellc Magasinet . - 18 Jnlesne............. 1933 Spejder Jul......... 1933 Jnlélys............. 1933 og margt fleira nýtt'kom í gær með Brúarfossi. ídlchiúÍáH Lækjargötu 2. simi 3736 þau árið 1899 og reistu bú í Kaup- mannahöfn, þar sem þau hafa búið síðan. Mun ræktarsemi þeirra hjóna og velvild til íslands og íslend- inga, eiga alldjúpar rætur í sam- vistum þeirra hjer á æskuárun- um og fornri viðkynningu við land og þjóð. Gestrisni þeirra h.jóna er viðbrugðið, enda munu hinir mörgu Islendingar fjær og nær, sem notið hafa rausnar þeirra og alúðar á hinu ágæta heimili þeirra, senda þeim hlýjar afmæl- is- og þakklætiskveðjur og óska þeim langra lífdaga. Kommandör Ravn hefir auk margra erlendra heiðursmerkja verið sæmdur Stórriddarakrossi íslensku Fálkaorðunnar með stjörnu. Friðrik Ólafsson. Esja var á Fáskrúðsfirði í gær- morgun- Lýra fer frá Noregi áleiðis 1) iugað í kvöld kl. 10. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.