Morgunblaðið - 10.01.1934, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.01.1934, Blaðsíða 5
ú Islandi Sr. GuSm. ljlinarsson. ísólfur Pálsson. fimfíii ára Kristján B. Jónsson. SigurSur Kvaran. SigurSur Jónaaon. Brynleifur Tobiasson. Einar Þorgilsson. 'SBuSm. Magnússon, sháld. Sr. Jes Gíslason. Sr. ÞórOur Ólafsson. Sr. Haraldur Nielsson. dryklc.jmmar er uppþornaö, fyr en ómögnlegt er að farast á því njiltla og volduga liafi. Fram til starfa! fram til þarfa! .Flýjum aldrei skyldubrant! Yinnum meira, verkum fleira! ’Vinnum eins þótt löng sje þraut! (Longfellow.)“ En enn þá Ijósari ltemur þó fram grundvöllur sá er þeir f^yggja á í ávarpi Ásgeirs, í fyrsta bjlaðínu þar sem hann, eftir að hafa talað alment um fjárhag al- mennings segiri „Hin skaðlegasta -óþarfaeyðsla er og hefir verið vínkaupin, ©g eru þau einnig í öðrum löndum álitin að vera það“ — Virðist það liafa verið, eins og víða ytra þungamiðja predikana templaranna, þó í blaðinu komi og fram eftirbreytni og siðferði. Ásgeir og f jelagar hans unnu af miklum ötulleik að stofnun stúkna 'bæði á Norðurlandi og Vesturl., og 3. júlí 1885 stofnaði Björn Fálsson ljósinyndari fyrstu stúk- una í Reýkjavík, stúkuna Verð- andi nr. 9, náði þá Reglan fastri • og öruggri bólfestu í Reykjavík. í sama mund fór Ásgeir alfar- inn til Englands.Reglan misti þar hinn unga og ágæta foringja sinn, og varð það vitanlega til þess að starfinn hnignaði um ált Norður- og' Vesturland og margar stúkur hættu störfum. Það er ætíð svo, ef liðsmennirnir eru ekki þeim mun æfðari, að herinn býður stór- an hnekki þegar góður herforingi leggur niður störf sín, og Reglan hefir bæði þá og síðar mist fje- laga fyrir það að henni hefir ekki verið þetta fyllilega ljóst. Þeir stofnendur stúkunnar Verð andi og þeir er gengu inn næstu á.rin tóku strax að starfa að því að breiða út Regluna. Mánuði síð- ar, eða 2. ágúst 1885, stofna Verð- andimenn stúkuna Morgunstjarn- an í Hafnarfirði, og rjett á eftir stofnuðu þeir stúkur í Keflavík, Eyrarbakka, Stokkseyri, Njarðvílc- um og Akranesi. Það voru einkum Ólafur Rósen- kranz leikfimiskennari, Indriði Einarsson skáld og Þórður J. Thoroddsen læknir, en allir urðu þeir síðar stórtemplarar og störf- uðu þá vel og dyggilega að út- breiðslu Reglunnar. En ýmsir aðr- ir af stofnendum hennar ljetu heldur ekki sitt eftir liggja. Þeir Sveinn Jónsson kaupm. og Gísli Lárusson gullsmiður fóru til Vestmannaeyja og stofnuðu þar stúku, Sigvaldi Bjarnason trjesm. til Breiðafjarðar og síðar til Arn- arfjarðar, og gerði slíkt hið sama, og Stefán Runólfsson rit- stjóri fór síðar til Isafjarðqr og var þar lengi aðalmaður templara. Haustið 1885 voru stúkurnar orðnar 3 hjer í Reykjavík og allar skipaðar ágætum fjelögum. Stúk- una Einingin sltipuðu þá t. d. : Jón Ólafsson alþm. og stórtempl- ar, Gestur Pálsson skáld, síra Bjarni Einarsson próf., Mýrum, sr. Helgi P. Hjálmarsson, Þor- steinn Gíslason ritstjóri, Þorvarð- ur Þorvarðsson prentsmiðjustjóri síðar stórtemplar, Borgþór Jósefs- son bæjargjaldkeri, Sigurður Jóns son fangavörður, sr. Magnús Björnsson Prestsbakka o. fl., en í lióp Verðandimanna voru Björn Jónsson ráðherra, Guðlaugur Guð- mundsson bæjarfógeti síðar stór- templar, Þórh. Bjarnarson bisk- up, Björn Jónsson ráðherra, sr. Einar á Hofteigi, sr. Friðrik Frið- riksson, Bj. Jensson adjunkt, Jónas Helgason organisti, Hjálmar Sig- urðsson ritstjóri o. fl., en Þórður Thoroddsen hafði þá stofnað stúk- ur í öllum sveitum Gullbringu- sýslu. I Hafnarfirði voru þeir Jón Matthíesen verslm., Magnús Tli. S. Blöndahl alþm., Sigurgeir Á. Gíslason, Einar Þorgilsson kpm., Sveinn Auðunsson o. fl. Flosi Sigurðsson. Valdimar Snœvar. Sr. Sigyrður Gunnarsson. Sr. Sigtryggur Guðlaugsson. Sigurgeir Gislason. tsleifur Jónsson. Jón ÞórSarson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.