Morgunblaðið - 24.01.1934, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
| Smá-auglýsingarJ
Listbókband Rósu Þorleifsdótt-
ur, Lækjargötu 6 (gengið gegnum
(jleraugnabúðina.) Tek á móti
fleiri nemendum nú strax.
Sparið yður að kaupa smurt
branð. Kaupið heldur bókina
,,Kaldir r.iettir og smurt brauð",
eftir Helgu Sigurðardóttur, og
smyrjið brauðið sjálfar.
Nýkomnir hattar óg aðrar karl-
mannafatnaðarvörur. Hafnarstr.
18. Ka rl ma11 nahattabúðin. Einnig
handunnar hattaviðgerðir, þær
einustu bestu, sama stað.
Saitkjöt frá Hvammstanga í
y4, t4 og 1/1 tunnum, aðeins lítið
óselt. Halldór R. Gunnarsson, Að-
alstræti 6, sími 4318.
Litla BlómabúSin, Skólavörðu-
stíg 2. sími 4957, hefir daglega
nýja Túlipana með mismunandi
verði og litum.
,,Freia“ fiskmeti og kjötmeti
mælir með sjer sjálft. Hafið þjer
reynt það? Sími 4059-
„Freia'", Laugaveg 22B. Sími
4059. „Freiu“ heimabökuðu kök-
ur eru viðurkendar þær bestu og
epara húsmæðrum ómak.
Svana-
vitamín
smjörlíki
er bragð gott og
næríngar meira
en vítamínlaust
smjörlíKÍ.
I miðdaysmattDu:
ófrosið dilkakjöt, saltkjðt,
hangikjöt. Reykt bjúgu, miðdags-
pylsur, kjötfars, nýlagað daglega.
ÞaS besta, að allra dómi, sem
reynt hafa.
Verslun
Svelns lóhsnnssonar.
Bergstaðastræti 15. Sími S091.
Útvarpið í dag': 10,00 Veður-
fregnir. 12,15 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir. 18,15 Háskóla
fy rirlestur: Sálarlíf barna og ung-
linga, I. (Agúst H. Bjarnason).
19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregn-
ir. 19,20 Tilkynningar. Tónleikar.
19,30 Tónlistarfræðsla (Emil Thor
oddsen). 19,55 Auglýsingar. 20,00
Klukkusláttur. Frjettir. 20,30 Er-
indi: Landafræði dýraríkisins, HI
(Árni Friðriksson). 21,00 Tón-
leikar: Fiðlu-sóló (Þór. Guð-
mundsson). Grammófónn: Grieg:
Ballade í G-molL — Sönglög eftir
Grieg. Sálmur.
Germania héldur aðalfund sinn
í kvöld kl. 9 í Oddfjelagahúsinu,
uppi. Þar flytur Bruno Kress fyr-
irlestur um atvinnumálin í Þýska-
landi. Síðan verður kaffidrykkja
og dans. Hljómsveitin á Hótel
Borg mun leika nokkur lög.
Gullfoss fer heðan annað kvöld
kl. 8, áleiðis til Kaupmannahafn-
ar. Kemur við í Vestmannaeyj-
um.
Eimskip: Gullfoss kemur að vest-
an í dag. — Goðafoss fer frá Ham-
borg í dag á leið til Hull. — Brú-
arfoss var í gær á leið til Akur-
eyrar frá Þórshöfn. — Dettifoss
fór frá ísafirði í gær á leið til
Siglufjarðar. — Lagarfoss er í
Leith. — Selfofis fór frá Leith
19. janúar á leíð hingað.
Vjelbátur hætt kominn. — Á
laugardaginn fór opinn vjelbátur
frá Flatey á Sk.jálfanda og ætl-
aði tiL Húsavíkur að sækja lækni.
Þegar hann var á leiðinni gerði
aftaka sunnanveður og hraktist
báturinn til Flatevjar og lá þar
fram á nótt í skjóli við eyna, en
komst ekki að landi fvr en veður
fór að lægja og menn á eynni
vorn komnir til þess að veita að-
stoð við landtökuna. Var bátur-
inn í 4y2 klukkustund að hrekjast
nndir evnni og höfðn mennirnir
nóg að gera að reyna að verjast
áföllum.
Sálarrannsóknafjelagið lieldur
aðalfund sinn í Iðnó í kvöld kl.
SYo. Þar verða lagðir fram reikn-
ingar f.jelagsins og rætt um hag
þess og starfsemi. Þá verður kos-
in st.jórn og endurskoðendur.
Dánarfregmir. Látin er Ólöf
Sveinsdóttir kona Þórarins Árna-
sonar fvrv. bónda í Herdísarvík.
-Tarðarför hennar fer fram í dag.
— Þá er og nýlega látin Metta
Steinunn Hansdóttir, kona Sveins
Guðmundssonar á Akranesi. —
Þorleifur Árnason miirari, Hring-
braut 186 ljest á mánudaginn. —
Hildur Haraldsdóttir frá Austur-
Görðum í Kelduhverfi, ljest í
Landspítalanum á mánudaginn.
Áheit á Útskálakirkju. Frá ó-
nefndum 3 kr. Frá kennara 10
kr. Frá S. Ó. 10 kr. frá Á. S.
10 kr. Gamalt áheit frá S. M. 20
kr. Frá konn í Keflavík 15 kr.
Kærar þakkir. Sóknarnefndin.
Úr verstöðvunum. Bátar í Sand-
gerði og Keflavík hafa róið að
undanfömu þegar á sjó hefir gef-
ið og aflað sæmilega, einkum Saud
gerðisbátar. Aflann hafa bátarnir
selt jafnharðan og bafa togarar
tekið hann til útflutnings. Hefir
aflinn verið seldur sem hjer segir:
Þorskur 8 aura pr. kg. og ýsa
16 aura pr. kg. (óslægt). Þykir
þetta gott verð og eru útgerðar-
og sjómenn þar syðra ánægðir
með að geta selt fiskinn svona
jafnharðan. Hæsti bátur í Sand-
gerði fekk einn daginn 1850 kg.
í róðri.
Togarinn Belgaum fór á veiðar'i
í gær. I
Lyra var væntanleg hingað í
nótt frá Xoregi.
Höfnm. Fjögur fisktökuskip
komu hingað í gær og fyrrinótt
til þess að taka fisk, voru það
,.Bremer‘\ ,,Bro“, „Muninn'1 og
, ,Viator“. — Tveir togarar komú
hingað í gærmorgun, annar ensk-
ur og hinn þýskur.
ísland er í Kaupmannahöfn, fer
þaðan áleiðis hingað 30. þ. m.
Hnefaleikafjelag Reykjavíkur.
Æfing í kvöld kl. 9 í K. R. húsinu
og fundur á eft-ir. Áríðandi að all-
ir mæti.
Næturvörður verðttr í nótt í
Laugavegs Apóteki og Ingólfs
Apóteki.
Áröienningar. Glímuæfing hjá
fullorðnum er í kvöld kl. 8, í
fimleikasal Mentaskólans. Mætið
allir!
Kollumálið. Arnljótur Jónsson
lögfræðingnr hefir verið skipaður
rannsóknardómari í ,,kollnmáli“
Hérmanns Jónassonar lögregln-
stjóra.
„Knud Rasmussens sjóður“. —
Fyrir milligöngu liins konunglega
landfræðisf jelags í Kanpmanna-
höfn. hefir verið stofna.ður- sjer-
stakui^sjóður til minningar nm dr.
Knud Rasmussen. Vöxtum af
sjóðnum á að verja til landfræðis
og fornleifarannsókna, og þó sjer
staklega til rannsókna á tungnmál
um þjóðflokkanna, sem heima eiga
í póllöndunum. Tilkynningin um
sjóðstofnunina er undi/rituð af
ríkiserfingja, sem forseta land-
^ræðisfjelagsins. Stauning forsæt-
isráðherra, próf. Nörlund háskóla
rektor og dr. Mackeprang for-
stjóra þjóðsafnsins danska. —
(Sendiherra,fr jett).
Próf. Ágúst H. Bjarnason flytur
nú á næstunni á hverjum miðvikn
degi í 1. kenslustofu Háskólans,
nokkur erindi nm nýjustu athtig-
anir og rannsóknir á sálarlífi
barna og unglinga: Efni fyrirlestr-
anna verður sem hjer segir: —
1. Inngangur. Uppeklisfræði og
sálarfræði. 2. Bernskan og hátt-
erni ungbarna. 3. Leikir barna,
hvatir og hneigðir. 4. Leikni og
tækni. 5. Gáfnaprófin og túlknn
manna á þeim. 6. Gáfnr manna,
eðli þeirra og mæljngar. (Aðallega
skýrt frá skoðunum Spearmanns
og rannsóknum). 7. Bernska og
æska og áframhaldandi þroski.
8 Kynþroskaskeiðið og hinar
miklu sálarlegu breytingar. sem
því eru samfara. 9i. Myndun skap-
gerðar og mótun hennar. 10. Yfir-
lit og niðurlag. — Fyrirlestrarnir
verða fluttir frá kl. 6.15 t-il 7,00
síðd. á hverjum miðvikudegi;
hinn fyrsti í dag, og eru einkum
ætlaðir kennurum og kennaraefn-
um, en öllum er heimill aðgangur.
Borgarstjórakosning hjer í
Reykjavík á fram að fara á fundi
bæjarstjórnar hinn 1. febrúar
næstkomandi.
Fánalið Sjálístæðismanna. Liðs-
menn eru ámintir nm að fjöl-
menna á æfingu í í. R. húsinu
kl. 8 í kvöld.
Frá Skattstofunni. Þeir, sem
ætla sjer að njóta aðstoðar á skatt
stofunni við að útfylla framtals-
skýrslnr sínar t-il tekju- og eign-
arskatts. ættu að snúa sjer þang-
að sem fyrst. Aðstoðin er veitt
kl. 1—4 síðd. Áríðandi er. að
menn geti þá gefið nákvæmar upp
lýsingar tim tek.jur sínar og frá-
drátt. t. d. útgjöld við hús (skatta.
viðhald) o. s. frv. — Munið, að
framtöl eiga að vera komin fvrir
1. febrúar.
)) ftoiHm i Qlseh ((
Sardínnr
spánskar.
Happdrætti Háskóla íslands
Vinningar samtals í öllum flokkum 1 miljón 50 þúsund.
§ala IftlutainiHa er byrfuð.
1 vinningur á 50 þús., 2 á 25 þús., 3 á 20 þús.,
2 á 15 þús., 5 á 10 þús., 10 á 5 þús. á heila
miða. Verð: 1/1 miði 6 kr. í hverjum flokki,.,
/4 miði 1.50. Fyrst um sinn verða einungis^
selclir 14 miðar A og B. Vinningar eru greidd-
ir affallalaust og eru skattfrjálsir. Athyglí
skal vakin á því, að hlutamiða skal afhenda
á útsölustöðunum, og verða þeir ekki bornir*
út til kaupendanna.
LýsistuiMiiii*.
Eins og undanfarið útvegum við allar tegundir af
lýsistunnum, einnig hrogna-tunnur.
Eggert Kristfánsson & Do.
Of mikið „vítamín“.
Barn deyr af of miklu D-vítamini'
í fæðoimi.
Enska t-ímaritið Tlie Manufact-
uring Chemist segir svo frá:
t-m*
Hóf er best í hverjum hlut.
Það kemur ekki ósjaldan fyrir,
að sjúklingar taka inn meira en
binn ákveðna skamt af meðali í
þeirri von að þeim batni fyr. —
Sjerstaklega er ríkjandi tilhneig-
ing til þess að taka inn of mikið
af vítamínum. Nýlega kom fyrir
slíkt tilfelli í Edinborg. Þar var
18 ntánaða gamalt- barn lagt á
spítala, það vantaði miltið á að
])að hefði eðlilega þyngd og það
var svo afllanst að það gat ekki
gengið. Læknarnir komust að raun
mn, að það væri nýrnabólga, sem
„gengi að barninu. Barnið dó. —
Síðar kom það í ljós, að barnið
hafði daglega fengið skamt af D-
'ítamíni (geisluðn ergosterol), er
var tvöfalt. stærri, en mælt liafði
verið með. Haldið hafði verið á-
fram að gafa harninu þenna stóra
skamt alt sumarið, þrátt fyrir það
að barnið var að staðaldri úti í
heilnæmu lofti. Þegar nýrun voru
skoðuð, sýndi það sig, að mikið
kalk hafði safnast saman í nýr-
nnum. D-vítamínið er álitið hjálpa
líkamanum til þess að hagnýta
sjer kalkefnin í fæðunni. í þessu
[tilfelli hafði ekki aðeins safnast
Horðlenskt dilkakjöt
það besta fáanlega. Hangikjöt af-
bragðff gott og alt grænmeti..
Bmjör; egg og allskonar ofaná--
skurður.
Jóhannes Jóhannsson
Grundarstíg 2.
Sími 4131.
Pappír§vörur
og Ritföng.
IHOÓirSHVOtl^SIMI
Hnuie A.S L
kalk í beinunum, heldur einnig'
| í nýrunum. Dauðaorsökin var
i alin of mikið D-vítamín..
! Það er óheppilegt að skeyt-
-ingarleysi um það að halda sjer
við ákveðinn skamt skuli verða
' til þess að gera flest meðul, sem
, annars eru verðmæt, hættuleg. —
j Það er engum vafa undirorpið að
liætta stafar af of.stórum skömt-
'um af vítamínum og mikillar ná-
1 kvæmni þarf að gæta í meðferð
þeirra.