Morgunblaðið - 20.02.1934, Side 3

Morgunblaðið - 20.02.1934, Side 3
M O R G V N B L A t> I f> Vjelstiðrafielsg islsnds tultugu oo fimm íra. Fyrir 25 árum, eða 20. febrú- ar 19,09, komu nokkrir menn saman á kaffihúsinu „Hekla“, 3em þá var innarlega á Grettis- götu. Þetta voru nokkrir af þeim svokölluðu vjelmeisturum, sem vildu stofna með sjer fjelags- skap, þá var komin hjer nokkur gufuskipaútgerð og virtist vera að þróast. Þessir ísl, „vjelmeist- arar“ sáu, að nauðsynlegt var, að þeir hjeldu hóp, og mun tilgang- urinn ekki hvað síst hafa verið sá, að verjast útlendingum, og svo hitt, að reyna að menta sjálfa sig, og hefir það alltaf verið meginþáttur í starfsemi vjelstjóranna. Þarna var þá fyrsta íslenska vjelstjórafjelagið stonfað, og hlaut það nafnið ,,Eimur“ (en breyttist síðar í „Vjelstjórafje- lag íslands“). Jeg ætla að rifja upp nöfn þeirra manna, sem þarna voru að verki, og munum við, þessir eldri Reykvíkingar, kannast við mennina. Þeir voru , Sigurjón Kristjánsson, nú vjel- stjóri á e/s. Kóp, Sigurbjarni Guðnason (dáinn), Ólafur Jóns- son (Ólafur á Laugalandi), nú bóndi á Keldum í Mosfellssveit, Jón Steinason, nú innheimtu- maður í Reykjavík, Magnús S. Daðason (Mangi Daða), nú vjel- Sigurjón Kristjánsson, fyrsti formaður fjelagsins. i-Stjóri á e/s. Fróða, Sigurður Árnáson/ nú vjelamaður við grjótnám bæjarins, Eyjólfur Björnsson, nú bóndi á Laxnesi í Mosfellssveit bg Jakob Bjarna- son, er fórst á ð/s. Skúla fógeta, 'Og var Sigurjón kosinn formaður hins nýstofnaða vjelstjóraf je- lagsi Strax bar á því, að fjelags- skppur þessi yildi hafa horn- stein sinn traustan, og má nokk- uð marka"það 'af'því, að þeir fengu Svein Björnsson, þáverr ;andi málaflutningsmann, til þess að ganga frá lögum fjelagsins, >en ekki mun efnahagurinn hafa verið góður, því að þeir urðu að taka 50 kr. víxillán til þess ;að borga Sveini rheð. Jeg minn- ist þessa fjelagsskapar mest vegna þess, að framkoma hans hefir i öll þessi ár, sem hann hefir starfað, verið nokkru öðru- vísi en tíðast er hjer í höfuð- staðnum. Finnst mjer, að nokk- uð megi af því læra. Það virðist >ekki vera aðalkappsmál fjelags • þessa, að standa í kaupdeilum; svo hljóðlega hafa kaupsamn- ingar þess verið framkvæmdir, að almenningur veit varla af því. Vjelstjórafjelagið hefir aldrei gert verkfall og aldrei heldur fengið á sig verkbann; þó virðast vjelstjórar hafa sæmi- leiga afkomu. Vjelstjórafjelagið vinnur eitt sjer og er algjörlega ópólitískur fjelagsskapur og er ekki sE^meiginlega háð neinum utanst j ettar fjelagsskap. Það sem mjer finst alltaf hafa borið einna mest á hjá fjelaginu. er Frú Jóhanna Fossberg, form. kvennadeildar fjelagsins frá byrjun. það, hversu !nka áherslu það hefir lagt á það, að menta stjett- ina sem mest; það hefir fyllilega fylgst með framþróuninni á þessu sviði og hreint og beint heimtað og barist fyrir því, að við ættum fyllilega mentaða v jelstjórastj ett. Vjelstjórafjelagið barðist fyr- ir því, að Vjelstjórapkóli var stofnaður hjer; þeir sáu fram á það, að hjer myndii skip ’stækka, og vjelar þeirra • verða marg- brottn,ari. Þessi skólahugmynd þeirra mætti nokkurri andúð, og blaðagrein kom um það, að þetta næði ekki nokkurrÞátt; ef vjel- stjórar fengju . svona mikla skólamentun, þá myndu þeir öðlast rjettindi til þess að stjórna jafnstórri vjel eins og væri í e/s Botníu, og mun grein- arhöfundi hafa fundist það ó- trúlegt, að hægt væri að trúa íslendingi fyrir slíku. Skólinn var stofnaður og íenginn útlend- ur kennari, M. E. Jessen að nafni. Það val mun hafa heppn- ast mjög vel, því að Jessen er mjög vel látinn af nemendum sínum. Fyrir nokkrum árum fór að brydda á því, að full-lítið var af vjelstjórum hjer; vildu þá sum- ir taka útlendinga, en aðrir verja.st þeim; útlendingarnir komu ekki, og íslendingar sátu að sínu. Á þessu tímabili varð að taka menn til starfans, sem voru orðnir ,,vanir“, þótt ekki væru skólagengnir. Fyrir 3 ár- um fóru að koma fram ýms frumvörp í þinginu, þess eðlis, að þéssum bráðahirgðamönn- um, sem kallaðir voru „undan- þágumenn“, yrðu veitt full rétt- indi í stað undanþágunnar. Vjel- stjórafjelag íslands beitti sjer eindregið á móti þessu og komu því til leiðar), 'að stofnuð var Hallgrímur Jónsson, núverandi formaður fjelagsins. sjerstök deild við Vjelstjóraskól- ann fyrir þessa menn. Fyrsti árgangur hefir útskrifast þaðan nýlega, og hafa þeir menn nú rjettindi til þess að vera vjel- stjórar á minni skipunum. Alt miðar þetta í sömu átt hjá Vjel- stjórafjelaginu; meiri þekking, en ekki verið að sneiða hjá erf- iðleikunum. Fjárhagslega starf- semi hefír fjelagið einnig með höndum innhyrðis og mun hafa veitt á síðustu 10 árum um 20 þúsund krónur, aðallega til barna og ekkna látinna fjelags- manna. Fyrir 6 árum stofnaði Vjelstjórafjelagið kvenfjelag, sem heitir ,,Keðjan“; það eru vjelstjórakonurnar, sem þar eru að verki; formaður þess fjelags er frú Jóhanna Fossberg og hefir verið það frá byrjun. Starfsemi kvenf jelagsins fer ein- göngu í þá átt, að styrkja og gleðja bæði fjárhagslega og fjelagslega þá, sem mest þurfa þess innan fjelagsskaparins. ,Það er eftirtektarvert, hversu starfslínur Vjelstjórafjelagsins eru hreinar og beinar, og merki- legt, að þessir nýju tímar skuli ekki megna, að setja hlykk á þær, og jeg efast um það, að nokkurt stjettarfjelag hjer hafi eins beint kjölfar. Þökk fyrir starfið, vjelstjór- ar! Þið hafið sýnt okkur Reyk- víkingum og sannað, að það er ennþá hægt að vinna skynsam- lega og láta bera á því, að ís- lendingar sjeu að verki. Reykvíkingur. Bruní. Heyhlaða og fjós brennur ,á Stað í Súgandafirði. í gær kom upp eldur í hevhlöðu á prestssetrinu Stað í Súganda- firði og brann luin til ltaldra kola, ásamt öllu heyi. sem í hlöðunni var. en það voru á annað lmndrað hestar. F'jós var áfast við lilöðuna og eyðilagðist það einnig, en grip- um var bjargað. Tjón prestsins, síra Halldórs' Kolbeins er mjög tilfinnanlegt, því að þarna brann alt- það hey sem liann átti. Samsætf var Gunnari Olafssyni kaupmanni í Vestmannaeyjum haldið í G. T. húsinu þar á sunnudagskvöldið í tilefni af sjötugsafmæli hans. Sat það samsæti á þriðja hundrað manns, eða eins margt og í húsið komst. Var þar f jör mikið og g'leð- skapur og stóð hófið fram til kl. 414 um morguninn. Margar ræður voru haldnar, en aðal-ræðurnar hjeldu þeir Ólafur Lárusson læknir og síra Jes Gísla- son. Gunnar Ólafsson svaraði flest um ræðunum og' ljet í ljós hvað sjer fyndist mikið til um þá sam- xið og þann vinarhug sem sjer hefði altaf verið sýnt í Eyjum. Þá var honum flutt kvæði eftir mann sem nefnir sig Hallfred, en er formaðuv á vjelbát í Eyjum. Kvæðið er þannig: Heyrið sögunnar mál, þar til sigurs er stál, talið sjálfsagt og örugt. í hvers konar stríð. Þó mun vilji og þor liafa víkingsins spor einna i'erklegast mótað frá ómuna tíð. Hjerna sjáum vjer hann þennan sjötuga mann er með síungum vilja að hetjunnar sið sýnir drengskap og' trygð, vekur dugnað í bygð, og með dáðríki liöfðingjans örvar sitt lið. Mætti landið vort senn eignast líka þjer menn mundi leiðir til sjálfstæðis » greiðast að mun. Mundi áhugans hjör bæta amlóðans kjör svo að óttast ei þyrftim vjer manndómsins hrun. Þú ert víkingur enn svo að vandræða menm fá ei veg þínum spilt, yfir mannlífsins dröfn. Þjer er ljett um að sjá hverri leiðinni á muni ljðugust sigling í örugga höfn. Vjer. sem þekkjum þig best, viljum þakka þjer mest fyrir þróttmikinn drengskap og' karlmenskulund. Megi auðnunnar völd gera ævinnar kvöld bæði ylríkt og bjart fram á síðustu stund. Frá samborgurunum í Vest- mannaeyjum var Gunnari færð af- mælisgjöf, forkunnarfagur les- lampi. Óteljandi heillaskeyti bár- ust honum úr Eyjum, Skaftafells- sýslu. Reykjavík og .víðar að. Að hófinu loknu fylgdi alt sam- sætisfólk honum og fjölskyldu hans heim, og kvöddu þau þar með innilegum árnaðaróskum. Aðalfundur Sendisveinadeildar Merkúrs verður haldinn í kvöld kl. 8I/2 í Ingólfshvoli. Ættu með- limir Sendisveinadeildarinnar ■ að fjölmenna á fundinn þar sem kos- in verður stjórn fyrir S.D.M. og ýmsar mikilsvarðandi ákvarðanir teknar. Nýir f jelagar géfi sig fram í dag við Einar Bjarnason á skrif- stofu S.D.M. Lækjartorgi 1, sími 4292. 3 Eldsvoði í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjum 18. febr. FÚ Eldur kom upp um kl. 15 í gær í Vöruhúsi hjer, sem er stór v erslunarby gging, eig'n Einats Sigurðssonar. Eldurinn ltom upp í þakhæð vesturálmu hússins, og læsti sig eftir þakinu endilöngu. Slökkviliðið kom á vettvang og tókst eftir nokkurn tíma að slökkva eldinn. Efri liæð þessarar álrnu hússins er stórskemt, en hús- munum var bjargað lítt skemdum. Eldurinn braust út frá rafkign rcilli þilja. -----<my>—-— Vígbúnaður? Hlutabrjef í hergagnaverk- smiðjum hækka í verði. LRP 19. febr. FÚ. A kauphöllinni í Lundúnum voru það innlendu verðbrjefin. sem einkum var eftirspurn eftir í dag, og vakti það athygli, að það voru einkum hlutir í vopna- og efnasmiðjunum „Imperial Chemicals“ og járnbrautum, sem mest eftirspurn var eftir. Annars var markaðurinn vfir höfuð ró- legur. Viðskiftasamningur Rússa og Breta. London 17. febrúar. United Press. P.B. Bretar og Rússar hafa náð sam- komulagi um viðskiftamál sín, og var þar að lútandi samningur full- gerður og undirskrifaður í gær. f samningi þessum er gert ráð fvrir, að livor þjóðin um sig verði aðnjótandi bestu kjara af hálfu hinnar. Gert er ráð fyrir, að bresk skip verði notuð eins mikið og unt er til vöruflutninga milli Rúss- lands og Bretlands. Um síldarsölu og skuldamál er ekki neitt sagt i samningunum, en telja má víst, að af samningúnum leiði að mark- aður fáist fyrir breska síld í Rúss- landi. — Gert er ráð fyrir að á næstu fimm árum færist smám saman í það horf, að hvor þjóðin um sig geri ámóta mikil viðskifti við hina . Dagbók. I. O. O. F. Ob. 1.P 1152208l/« = E. I. = N. K. == Hst. Veðrið í gær: Vindur er hvass NV um alt land með 1—6 st. frosti, Á N- og V-landi em snjó- jel en þurt eystra.. Ný lægð er að nálgast B-Grænland, og mun hún hafa í för með sjer S-læga. átt' og þíðviðri hjer á landi á. morgun. Veðurútlit. í dag: Vaxandi S- átt. Slydda og síðar rigning. Óveður var í Danmörku í fyrri- nótt og seinkaði mjög skipaferð- um fram eftir degínum. f höfn- inni í Kaupmannahöfn var vat.ns- borð 40 em. hærra en venjulegt er. (FÚ).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.