Morgunblaðið - 24.02.1934, Page 3
4
MORGUNBLAÐIÐ
Siglufjarðarfrjettir.
Siglnfirði 23. febr. FlT
Kíkisverksmiðjustjórnin hefir
Jialdið fundi um kaupgreiðslu
verksmiðjanna í sumar komandi,
og hefir ásamt stjórn og ltaup-
taxtanefnd verkamannaf jelagsins
gert uppkast að kaupsamningum,
sem leggist fyrir fund verka-
mannaf jelagsins.
í ráði er að ætla (íagnfræða-
skólanum hjer hiisnæði á kirkju-
loftinu. Skólanefnd, sóknarnefnd,
sóknarprestur og biskup eru því
samþykk. Akveðið er að útbúa
skólastofurnar í vetur ef lán fæst.
Búist er við að samþykki bæjar-
stjórnar verði auðsótt. Þetta mál
hefir nú verið fengið fræðslumála-
stjóm og húsameistara til um-
saghar.
Hafnarnefnd hefir nú lokið
samningsgerð til Tynes síldar-
kaupmann um lóðarrjettindi vest-
an söltunarstöðvar Alfons Jóns-
^pnar, fyrir höfn og fiskaðgerðar-
stöð smávjelbáta. Kaupverð á upp
fyltri lóðinni ásamt dýpkun báta-
hafnarinnar er 28 þús. kr. TJpp-
fyllingin er 130 sinnum 50 metr-
ar. Samningurinn vferður bráðlega
lagður fyrir bæjarstjórn. Telst svo
til, að þarna fáist svæði til að-
gerðar, beitingar og fiskkeymslu
handa 20 bátum. Aætlað verð
mannvirkisins er 70 þús. kr.
Skráning atvinnuleysingja hjer
á tímabilinu frá 1. okt. fyrra árs
'til 1. jan. þessa árs, er nýlega
lokið. Alls voru skráðir 100 karl-
ar og 12 konur. Af þessu fólki
eru 50 einhleypir og‘ 62 fjölskyldu
menn. Á framfæri atvinnuleys-
ingja eru 116 börn og 4 gamal-
menfii. Sjúkradagar voru alls 450.
Vinnudagar 68 manna voru alls á
tímabilinu 668. Tekjur af þeirri
vinnu voru 8306 kr. eða að með-
altali 123 kr. á mann.
Bátar hafa ekki róið vegna
gæftaleysis.
Vatnsskortur í London.
London 23. febr. FTT
Vatnsskortur allmikill er altaf
öðru hvoru í London. og átti
vatnsnefnd borgarinnar fund með
sjer í því tilefni í dag. Lítur
nefndin svo á, að óhæfilega miklu
vatni sje eytt til þvötta á glugg-
xim húsa, bifreiða o.þ.h. Nefndin
varar borgarbiía alvarlega við gá-
lausleg’ri vatnsnotkun! með því
annars verði ekki komist hjá mjög
alvarlegum vatnsskorti.
Kaupdeila í aðsigi
í Færeyjum.
Oslo 23. febr. FÍJ.
1 Færeyjum er nú sögð óvenju-
lega umfangsmikil vinuudeila í
aðsigi, milli litgerðarmanna og
sjómanna, er talið, að 60% sjó-
manna hafi þegar bundist sam-
tökui^ um verkfall, ef ekki geng-
ur saman.
Sakamál gegn rítstjóra.
Ritstjóri danska dagblaðsins
„Arbejderbladet" hefir verið úr-
skurðaður í 5 daga varðhald, og
höfðað á hann sakamál, fyrir æru-
meiðandi nmmæli um stjórnina.
(F. Ú.)
Skákþingið
á Akureyri.
Ásmundur Ásgeirsson
fær fyrstu verðlaun.
.Vkureyri 22. febr. FÚ.
Ellefta og síðasta umferð
meistara í 1. fl. var háð í gær og
fór svo, Ásmundur Ásgeirsson
vann Pál Einarsson, Guðbjartur
Vigfússon vann Svein Þorvalds-
son, Þráinn Sigurðsson vann Guð-
mund Guðlaugsson, Jóel Hjálm-
arsson vann Jónas Jónsson, Eiður
Jónsson vann Aðalstein Þorsteins-
son og Sigurðnr Lárusson vann
Stefán Sveinsson.
f gærkvöldi afhenti forseti
Skáksambands fslands, Ari Guð-
mundsson, verðlaunin, en þau
lilutu Ásm. Ásgeirsson 1. verðl.,
hafði hann lOJ/o vinning af ellefu,
sem mest var hægt að fá. Þráinn
Sigurðsson 2. verðl., hafði 9 vinn-
inga. Jóel Hjállmarsson 3. verðl.
hafði iy2 vinning, og 4. verðlaun
skifti þeir með sjer Sigurður Lár-
usson og' Guðmundur Guðlaugsson
— hvor með 6 vinninga.
Jafnframt þessu skákþiugi var
haldin nhjer aðalfundur Skáksam-
bands Islands, var stjórn þessi
endurkosin. og hana skipa. Ari
Guðmundsson forseti, Elís Guð-
mundsson og Garðar Þorsteinsson.
„Rannsókn
á æðarkollumálinu“.
Vegna greinar í Alþýðublaðinu
í g'ær, 19. febr., er ber þessa yfir-
skrift, vil jeg skýra lesendum
blaðsins frá:
1. Að jeg mun stefna ritstjóra
Alþbl. fyrir þau ósönnu urnmæli,
að jeg hafi komist undir manna
hendur fyrir eitthvert ódrengileg-
asta spellvirki, sem hjer hafi átt
sjer stað, og að jeg hafi orðið upp-
vís að þjófnaði.
2. Að )>að er með öllu ósatt hjá
blaðinu, að jeg hafi verið lát.inn
g'era tilraun til að þekkja menn
úti í Orfirisey. Jeg var kvaddur
af rannsóknardómaranum út. í
eyna og var spurður þar um eitt
og annað, en engir menn sýndir
mjer, er mjer væri ætlað að
þekkja, nje neinar spnrningar
bornar upp fyrir mjer þar að
lútandi.
3. Að það er ósatt, að jeg t'yr
eða, síðar hafi sótt um lögreglu-
þjónsstöðu.
4. Að það er rangt, að jeg þafi
höfðað meiðyrðamál á lögreglu-
stjórann út af .því, að hann hn.fi
krafist sakamálshöfðunar á mig
fyrir meinsæri, enda hefir engin
slík krafa komið fram að því er
dómsmálaráðuneytið skýrir mjer
frá. -Teg höfðaði málið vegna meið
andi ummæla, er lögreglustjórinn
hafði um mig undir rjettarrann-
sókn. Mál það var tekið fyrir í
sáttanefnd í dag, og' var það krafa
mín, að lögreglustjórinn tæki kin
meiðandi ummæli aftur, bæði fyr-
irgefningar á þeim og greiddi sem
sektir fyrir þau kr. 300.00 til
Dýravemdunarfjelags fslands. —
Sætt komst ekki á, því að um-
bjóðandi lögreglustjórans fyrir
sáttanefndinni mun ekki hafa tal-
ið sig hafa heimild til að ganga
að sektargreiðslu til þess fjelags.
Til þess að spara mjer að fara
fleiri orðum um þessa grein Alþbl.
vil jeg' biðja lesendurna að gera
svo vel að lesa að nýju greinina
frá í gær og sjá hvort þeir við
lesturinn og nána íhugun komist
ekki að þeirri niðurstöðu, að
greinin sje ósæmilega sundurlaus
sem útdráttur úr rjettarfari, þar
sem slitið er tu- rjettn samliengi í
því skyni að halla rjettu máli
sakborningi málsins, lögreglustjór-
anum, í vil.
Ra.nnsóknardómarinn, Arnljótur
Jónsson, hefir tjáð mjer, að Alþbl.
hafi engar upplýsingar fengið hjá
sjer málinu viðvíkjandi. Skyldi
mega geta sjer þess til, að sak*
borning'ur muni sjálfur hafa rit-
að greinina eða. látið skrifa hana.
Reykjavík, 20. febrúar 1934.
• Oddgeir Bárðarson.
Stjómarfar
á Balkanskaga.
Það hefir lengi verið látið illa
at stjórnarfarinu á Balkanskaga,
jafnvel svo að friði í Evrópu væri
búin hætta af því. Hinsvegar
munu fæstir fylgjast með í því
hvað helst sje þar að. svo vera
kann að einhverjir hafi gaman
af því að sjá, hversu kunnugur
fræðimaður lýsir því (R. H. Mark-
liam) í Encyclopædia of Social
Scicnces, sem er að korna út.
Stjórnmálaflokknnum ræður að
nafninu landsfundur, eða flokks-
þing, en það velur aftur 40:
manna flokksráð. Ráð þetta lcýs
svo 7 manna framkvæmdanefnd,
sem stjórnar öllum flokksmálum.
en í raun og veru er alt valdið
í höndum formannsins, sem öllu
ræður, og einnig kosningunnm til
ílokksþingsins, Enginn þingmaður
nær kosningu, og jaafnvel enginn
borgarstjóri, án samþykkis flokks-
foringjans. Þannig rjeði Stambul-
jsky í Bixlgaríu og Venizelos \
Grikklandi.
í flestum af löndum þessum
eigá embætti að heita tryggar
stöður, en eru í raun rjet.tri lier-
fang stjórnmálaflokkanna. Nýir
ráðherrar sópa öllum gömlu em-
bættis- og starfsmönnum burtu og
setja vildarmenn sína í staðinn,
jafnvel lítilfjörlegustu járnbraut-
arstarfsmönnum og dyravörðum
opinberra stofnana. Enginn þarf
að hugsa til að komast í neina
stöðu nema að hann fylgi stjórn-
arflokkunum.Umsækjendnr ganga
því milli flokkanna og reyna að
koma sjer í mjúkinn, til þess að
geta fengið eitthvað að Iifa af,
Pjöldi manna á því alt sitt nndir
því, hver betri hærri hluta í stjórn-
málaorustunni, enda er hún hin
illvígasta og hefir hverskonar
spillingu í för með sjer. Sumir
embættismennirnir reyna tál þess
að tryggja sig með því að ganga
í tvo eða fleiri flokka samtímis.
Pjáruppspretta flokkanna er að-
allega ríkissjóðurinn, beint eða ó-
beint. Þeir eiga því erfitt upp-
dráttar, sem lengi hafa setið í
minnihluta. Nú eru flokkarnir
margir í Búlgaríu og Grikklandi
og þess vegna eru sambræðslu-
stjórnir tíðar.
í Búlgaríu ræður bændaflokk-
urinn mestu og cr þó stjórn
hans ljeleg. Foringjarnir hugsa
næst um það að hafa völdin.
I Albaníu kveður lítið að flokk-
unum. Zog konungur ræður þar
mestu, og þar eru ekki aðrir í
boði við kosningar en stuðnings-
menn hans.
— Ekki er þess getið, að Balk-
anlöndin hafi reynt að koma sjer
upp pólitískum hæstarjetti. Svo
langt eru þau þó ekki leidd.
G. H.
Luxemburg-stöðin.
Nú á að gera alvöru úr því
að koma í veg fyrir að Luxem-
burg útvarpsstöðin sje vargur í
vjeum í loftinu. Ef hún vill ekki
.góðfúslega taka upp þá stutt-
hylgjulengd, sem henni hefir ver-
ið ætluð, þá á að láta einhverja
sterka útvarpsstöð í Evrópn höfuð
sitja hana og trufla alt útvarp
hennar.
Dagbók.
Veðrið í gær: Við Vesturströnd
Islands er lægðarmiðja, er veldur
hægri S-átt á S-landi en á hægri
NA-átt á Vestfjörðum og Breiða-
firði. Á NA-landi er vindur aU-
hvass A og snjókoma.
Hiti er 2—4 st. sunnan lands
— víðast 1—3 st. frost. nyrðra og
eystra. Snður af Vestmannaeyjum
er lægð á hreyfingu austur eftir.
Lítur því út fyrir að N-átt muni
ná. sjer um alt land á morgun.
Veðurútlit í dag: Allhvass NV
og N. Nokkur snjójel.
Messur á morgun: í dómkirkj-
cnni kl. 11 síra Friðrik Hallgríms-
son; ld. 5 síra Bjarni Jónsson
(altarisganga.)
í fríkirkjunni kl. 5, síra Árni
Sigurðsson.
í fríkirkjunni í Hafnarfirði kl.
2, síra Benjamín Kristjánssou
prjedikar.
f Aðventkirkjunni kl. 8. Allir
velkomnir.
Pyrsta barnaleiksýning. sem
Leikfjelagið heldur á þessum vetri
verður á morgun. Leikurinn, sem
sýndur er, heitir „Æfintýrið um
undraglerin", og er eftir hinn
unga höfund Óskar Kjarr.ansson,
sem samið hefir ýmsa æfintýra-
sjónleiki, sem hjer hafa verið
sýndir.
í sambandi við sýninguna verður
happdrætti með sjerstöknm hætti.
Hverjum aðgöngumiða fylgir leik
endaskrá leiksins og í henni happ
drættismiði, en í lcikslok, eft.ir
siðast.a þátt, verður drégið um
vinningana í happdrættinu, en
þeir eru: 1. vinningur skíða- eða
sportföt úr besta Álafossefni (verð
kr. 40.00—50.00), 2. og 3. vinn-
ingur Leikföng frá verslurtinni
Edinborg (verð kr. 8,00—10.00).
Eggert Guðmundsson listmálari
onnar í dag sýningu í Oddfjelága-
húsinu uppi. Sýnir hann þar aðal-
legá teikningar, vatnslitamyndir
og ,,grafik“. Sýningin verður opin
í nokkra daga.
Níræðisafmæli á í dag frú Hólm
fríðnr Sigurðardóttir, Vesturgötu
26 C. Er hún móðir Geirs Sigurðs-
souar skiþstjóra og þeirra syst-
kina. Oamla konan er enn hin
ernasta.
TTnefa)eikafielag Reykjavíkur.
Æfing verður á morgnn kl. 1%-
« ^
Jaffa appelKnur
stórar, sætar og safamiklar.
Ki D DA2 íJ Ð
Sími 4060.
tlVtt:
Hvítkál,
Rauðkál,
Ranðrófnr,
Gulrætur,
Blómkál,
Sítrónur.
Tómatar.
Skrá]
yfir gjaldendur til ellistyrktor-
sjóðs í Reykjavík árið 1934 iiggur
fijammi almenningi til sýnis á
skrifstofum bæjarins, Austurstræti
16, frá 1.—7. inars n.k.. að báðmo
dögum meðtöldum, kl. 10—12 árd
og kl. 1—5 síðd.
Kærur yfir skránni sendast borr
arstjóra eigi síðar en 15. apríl.
Borgarstjórinn í Reykjayík,
23. febrúar 1934.
Jón Þorláksson.
Tómatar
Rabarbari
Hvítkál
Rauðkál
’Púrrur
Selleri.
Vertlunin
KJÖt & Fisknr.
Símar 3828 og 4764.
Fuglaelgendur.
At.hugið, að nú fer að verða
hver síðastur að panta hhvar
heimsfrægu GLEVUM útangunaor-
vjelar og fósturinæður, fyrir var-
ið. Dragið ekki lengur að
yður. Talið við okkuur nm
kaupin einhvern næstu daga.
Hjólkurfjelag Reykjav£kur,
*