Morgunblaðið - 24.03.1934, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
8
Samsöngur
í Gamla Bíó.
Karlakór K. P. U. M. safnaði
.áheyrendum sínum saman í fyrsta
sinn á þessum vetri í Gamla Bíó
í fyrrakvöld, og fyltu þeir nær
salinn. Kórinn hafði sjer til að-
stoðar að þessu sinni auk ungfni
Önnu Pjeturs, sem ljek píanó-
xtndirleik við eitt lagið, Pjetur
dónsson .póerusöngvara og einnig
yngri deild kórsins, sem nefnir sig
„Kátir fjelagar“. Söngurinn fór
í lieild sinni mjög vel fram, var
hreinn og fág'aður og var honum
•stjórnað af smekkvísi og ná-
kvæmni af söngstjóranum, Jóni
Halldórssyni. Um misfellur var
«ngar að ræða svo teljaridi sje,
•en þó har á því á stöku stað, að
fyrsti tenór væri þvingaður, og'
var eins og þreyta gerði nokkuð
vart við sig hjá þeirri rödd, í
vögguvísu Palmgrens var og
fyrsti ísbassi full sterkur á þeim
kafla er hann bar uppi aðal-
TÖddina. En annars hefir kórinn
Sbætt við sig nýjum blæbrigðum
(registrum), er mýkja söng'inn
fil muna. Að öllu samanlögðu:
vandaður og fágaður söngur. En
■ef skrifa ætti eitthvað sjerstakt um
hvert einstakt verkefni, þá er það
jafn vandasamt og að skrifa um
heiðbláan himininn, svo að mað-
ur taki sjer orð Robert Schumanns
í munn.
Efnisskráin. Að undanteknum
Hermaunakórnum úr „Faust“,
■eftir franska tónskáldið Gounod,
voj*u öll viðfangsefnin eftir norð-
Tirlandaliöfunda, þ. e. a. s. eftir
Norðmenn, Svía og Finna. Sum
þeirra voru áður góðkuun, svo
sem t. d. hið ágæta ramm-norræna
lag Monrad Johansens „Gamle
Noreg“, „Styrbjörn Starke“ eft-
ír Körling og’ þá ekki síst „Du
garnla du fria“. í tveim þessara
síðasttöldu lag'a söng Pjetur Jcns-
■son einsöng. Söngur lians naut
sín fagurlega í „Styrbjöru Starke“
Þótt sólóin væri stutt, brá þó fyr-
5r þeim dramatiska krafti, sem
Pjetur býr yfir. Tvö ágæt lög
voru á söngskránni eftir Palm-
gren: „Átti jeg þjer söng að
syngja“ og „Yögguvísa" sú er
fyr var getið. Af nýrri lögum
var athyglisverðast lag Josef
Hedars, „Líðandi stund“.
Nýiiðarnir, K. F„ runnu vel
saman við aðalkórinn og varð
það þegar ljóst, að þeir hafa
verið teknir duglega í karphúsið.
Bætist kórnum þarna mikillstyrk-
ur, þar sem K. F. er, og munu
þeir auka mátt haiis og getu að
miklum mun í framtíðinni.
Jafnágætur kór og K. F. U.
M., ætti að færa sig upp á skaft-
ið hvað val á viðfangsefnum snert-
ir. Hin smærri viðfangsefni g'eta
vitaskuld verið ágæt ef vel ei’
valið, en korinn er þess vel
megnugur að flytja meiri háttar
verk, sem fela í sjer meira lista-
•gildi. Og hvað er um liinn „póly-
fóna“ söng? Ékkert getur þroskað
rsöngvarana eins og einmitt hann,
eklcert uppeldismeðal getur, sem
betra sje fyi-ir kór; þar við bæt-
ist að öll hin g'öfugasta kónnúsik
er samin í þeim stil. Fyrir jafn-
þjálfaðan kór og eins vel mönn-
iim skipaðan og K. F. U. M. er,
virðist ])essi leið vera sú eina til
áframhaldandi þroska.
Páll ísólfsson.
William Morris.
1834—1934.
Hátt í lofi lifi
listfagur ástvin Braga
— maður kenni þat manni —
Morris á foldu Snorra!
Matth. Jochumsson.
Ilætt er við, að það verði um
aldur og ævi sjaldgæfur viðburð-
ur að íslendingar, umkomulitlir
og „langt frá öðrum þjóðum“
eins og skáldið kvað, verði iilekk-
ur í keðjunni þegar meningar-
þjóðir heimsins taka höndum sam-
an. En í dag gerist þessi við-
burður. í dag er spent keðja um
aílan hnöttinn, því í dag minnist
gervallur hinn mentaði heimur
eins af stórkonungum nítjándu
aldar, í ríki andans og listarinnar.
Það er skáldið, listamaðurinn og
spámaðurinn "William Morris,
sem þjóðirnar, dreifðar og ólíkar,
eru. þrátt fyrir alt reiptog og alla
úlfúð, samtaka og sammála um að
hylla á þessum merkisdegi er
þær minnast aldarafmælis hans. I
þessari hyllingu tekur hin fá-
menna íslenska þjóð sinu þátt af
meira stolti en nokkru sinni áð-
Ur er lieimurinn laut miklum
manni; því hún minnist þess,
að þessi fárbæri maður unni
henni mest allra þjóða, þegar frá
er talin hans eigin, og hjelt
hennar hróðri svo hátt á lofti, að
óhætt mun að segja, að í því efni
liafi engrim enn tekist, að kom-
ast til ja.fns við hann, hvorki fyr
nje síðar.
Hingað hafa borist fregnir, sem
sýna það, að heimsblöðin bresku
hafi þegar getið um þann þátt,
sem ísland muni taka í minning-
arathöfn dagsins. Ríkisútvarpið
íslenska minnist Morrisar á þeim
tveim tungumálum, sem lionum
voru kærust — móðurmáli hans
sjálfs og móðurmáli fslendinga. í
kvöld verður víðsvegar um Bret-
land — ef til vill tuu fleiri lönd
— hlustað á Reykjavík. Það mun
Arera í fyrsta sinni að slíkt á sjer
stað og ]iað fer einkennilega vel
á því, að þetta minningarkvöld
skoli g'efa fyrst.a tilefnið, því við
erum nú að minnast þess manns,
sem vildi láta alia bresku þjóðina
hlusta á það, sem ísland hafði að
segja. William Morris vildi gera
það að skyldu, að í hverjum ein-
asta skóla á Bretlandi yrðu börn-
in látin kynnast sögunum okkar
og Eddunum — meira að segja
læra nokkuð úr þeim.
En á þessum hátíðisdegi minn-
ist. ísland ekki einungis síns
horfna og ódauðlega vinar. Það
minnist einnig dóttur hans, sem
í sjón og raun er nm svo margt
lilc sínum ágæta föður, og hefir
telcið í arf ást lians til þessarar
litlu og aí'skektu þjóðar og' num-
ið tungu hennar eins og hann.
Miss May Morris hyllir íslenska
þjóðin í dag. Ef það er sat.t, að
hugsanir okkar berist á einhverj-
um ósýnilegum öldum gegnum
veg'lausan geiminn, þá er ]iað
heill flóð af ástfólgnu þakldæti,
sem í dag steypist yfir hina á-
gætu ensku konu frá fjölmörgum
íslenskum hjörtum víðsvegar um
þetta land, sem er henni svo
kært. Það er mælt, að forsætis-
ráðherra fslands og' kona hans
sem undanfarna daga hafa dvalið
Kaupurðu góðan hlut
þá, mundu hvar þú fjekst hann.
Að kaupa sjer föt fyrir Páskana, úr ísl. efni er það besta sem
hægt er að gera. Nýtt kamgarn er komið frá Álafossi og er það hið
fínasta og besta fataefni sem framleitt hefir verið lijer á landi.
Nýr klæðskerameistari er kominn til Hraðsaumastofunnar frá
einu fínasta verkstæðinu í New York, með nýtt snið o. fl.
Hraðsaumastofa vor getur því nú fullnægt öllum þeim kröfum
nútímans í klæðagerð, sem þykja bestar. —
»
Það er því óþarfi fyrir yður, að kaupa erlend tilbúin föt, þegar
þjer getið fengið þau hjer í Álafoss, sem fara betur — klæða yður
betur — eru ódýrari.
Eflið atvinnulífið hjer í landi. — Verslið beint við framleiðendur.
Verslið við
„ÁLAFOSS“
Þingholtsstræti 2.
Hannikiðl
mjöff vænt.
Grænar baunir-
margar teg.
á Englandi, muni hafa ætlað
að fara á fund dóttur
skáldsins til þess fyrir íslands
hönd að hylla hana og minningu
föður hennar. Þetta er okkur
gleðiefni og í fjarlægðinni tölr-
um við undir þá játningU þakk-
lætis og ástar, sem þau hjónin
hafa. borið fram fyrir okkar liönd.
í íslenskum sögum er vart ann-
ar dómur um ágætan rnann fræg:-
ari en sá, er Haraldur konungur
Sigurðsson kvað upp um Gizur
Isleifsson, að gera mætti úr hon-
um þrjá menn: víkingahöfðing'ja,
konung og biskup, og- væri hann i
til alls vel fallinn. Eitthvað líkt |
mundi honum liafa virst um j
William Morris, því ef vafi hefði j
leikið á um liæfileikami til bisk- ’
upsembættis, mundi annað hafa j
komið í staðinn. Dæmi um hæfi- j
leika svo stórfelda og margbreytta
sem hans eru fágæt. í sögunni, i
enda mun afreka hans lengi verða !
minst, en fyrir hugskotssjónum l°kaðir í kvöld og annaÖ kvöld
íslendinga hefir hann einkum eftir kl. 8,
staðið sem rithöfundur og skáld.
Þegar fslendingurinn lýtur Morr- veSna samkvæmis.
is, minnist hann drápu Matthíasar
og mun fúslega taka sjer í munn
orð Gnðmundar Friðjónssonar , m m , ,
þar sem hann ávarpar Bessastaða-,
skáldið ágæta : Hárgreiðilu
, . . ,. I og Snyrtistofan
Hofmannaskald! jeg hneigi þjer
j Bergstaðastræti 36. Sími 2458.
Hvar mvndi vera sæmra á knje Hinn eðlilegi ljósi „Henna“
að falla? litur kominn aftur.
j Einnig hinn eftirsótti augna-
Lifi minning Vilhjálms Morris-'brúnalitur. Járn-, vatns-, og
ar a íslandi! i ameríkanskar krullur.
Sn. J. j
-----o—»------ | Sigríður Gísladóttir.
Veítingasalir
OddfellQwtiússins
Kjötseyðisteningar, kraft-
miklir, bragðgóðir.
Olítinámur í Bretlandi.
Möndlur hakkaðar
do. spændar
Flórsykur,
Cocosmjöl,
og alt annað til bökunar
ætíð best í
Aðalfundur
Bííndravinaffelags
íslands
London, 23. mars. FÚ.
Mikla athygli hefir tilkynning
Runciman’s, verslunarmálaráð-
herra Breta, vakið, er hann lýsti
því yfir á þingi í gær, að lagt
mundi verða fyrir þingið frum-
varp til olíulaga, sem miðaði að
því, að greiða fyrir olíuleit og
olíuvinslu á Bretlandseyjum. Nú
kemur sú frjett, að verið sje að
bora eftir olíu í Sussex, og að
fundist hafi olía, er komið var
3000 fet í jörð niður.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
i.Úieit frá Þóru Þ. 2 kr. Kærar
þakkir. ÓI. B. Björnsson.
Hótel Borg
allir salirnir
opnir i kvöld.
verður haldinn á sunnudag'inn 24.
þ. m. kl. %y2 í Varðarhúsinu.
DAGSKRÁ
sam k-v æmt f j elagslö gu m.
Stjórnin.
Fondarboð.
Aðalfundur Nautgriparæktar og
mjólkursöluf jelags Revkvíkinga,
verður haldinn, snnnudaginn 25.
mars, kl. 1 e. h. í Yarðarhúsinu.
Fjelagar vinsamlega beðnir
að mæta.
Stjórnin.