Morgunblaðið - 25.07.1934, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
Styrkir
úr Snorrasjéði.
Úthlutun á styrkjum úr Snorra-
sjóði 1930, hefir nú farið fram
í fjórða sinn. Alls voru til út-
hlutunar kr. 5.300.00. Þessir
stúdentar, sem allir hafa notið
námsstyrkja úr Snorrasjóði,
hlutu í ár 900 kr. hver til náms
við háskólann í Ósló: Ásgeir
Hjartarson frá Arnarholti og
Geir Jónasson frá Akureyri, til
sögunáms, Ármann Halldórsson
frá ísafirði til heimspeki- og sál-
arfræðináms og ungfrú Hólm-
fríðuur Jónsdóttir frá Hofteigi
í Hörgárdal, til bókmentanáms.
Aðrir styrkhafar eru: Haukur
Jörundsson frá Skálholti, frajn-
haldsstyrkur til búnaðarnáms í
Noregi, kr. 500.00. Ásgeir Ás-
geirsson frá Reykjavík, fram-
haldsstyrkur til búnaðarnáms
við landbúnaðarháskólann í Ási,
kr. 700,00, frk. Halldóra Bj'arna
dóttir kenslukona, utanfarar-
styrkur til þess að athuga fram-
farir í heimilisiðnaði og fyrir-
komulag vérklegra barna- og
unglingaskóla 3, Norð:urlönd-
um, kr. 200,00 — og loks ung-
frú Sólveig Benediktsdóttir frá
Húsavík, til þess að stunda nám
við Statens Lærerindeskole for
Husstell, í Stabæk, Noregi, kr.
300.00. (Tilk. frá ráðuneyti for-
: sætisráðherra. FB.)
5 ára áætlunin.
Vekur megna andúð
í Færeyjum. Krafist
þingrofs og nýrra
kosninga.
Fyrir skemstu afhenti Stauuing
- sendinefnd Færéyinga 5 ára áætl-
un fyrir Færeyjar, og heflr verið
: sagt frá henni hjer í blaðinu áður.
Áætlunin hefir vakið mjög
mikla óánægju i Færeyjnm, sjer-
■ staklega hjá atvinnurekendum til
sjávarins og kaupmönnum. Þeir
-segja, að atvinnan til sjávarins
fái ekkert nema fyrirheitið um
hafnirnar tvær, í Yestmannahöfn
' og Klaksvík. Þetta sje óþolandi,
þar sem öll atvinmu hvíli svo að
segja á útgerðinni.
Á fjölmennum fundi, sem hald-
inn var í Þórshöfn fyrir skömmu,
var samþykt að hafna áætluninni
- og kréfjast nýrra kosminga (að
lögþingið verði rofið). Br í ráði
. að mynda nýjan flokk, sem kall-
: ast „Erhvervspartiet", og gefa út
nýtt blað til að berjast fyrir á-
hugamálum. atvinnulífsins.
Útgerðin hefir gengið saman
hin síðari árin, og steðjar at-
vinnnleysi að hjá sjómönnum, ef
svo gengnr til lengdar. Á fimm
; árum hefir fiskiflotinn minkað um
.20%.
Síldveiði í Jökuldjúpi.
Akranes, 24. júlí. FÚ.
í dag kom vjelbáturinn Yer til
Akraness, með 124 tunnur síldar,
sém hann hafði veitt í reknet á
. Jökuldjúþi. Síldin er fryst. Aðrir
. Akranesbátar hafa ekki enn byrj-
;að síldveiðar.
Áttræðisafmæli.
Próf. dr. phil. Eugen Mogk.
Hinn 19. júlí varð prófessor í
germönskum fræðum og trúar-
bragðasögu, dr. phil. Eugen
Mogk í Leipzig, áttræður að aldri.
Hann er ættaður frá Döbeln í
Saxlandi og stundaði nám við
Fúrstensehule í Gvimma í Sax-
landi. Að loknu háskólaprófi í
Leipzig 1875 lagði hann stund á
germönsk fræði og sögu. 1879—
1880 vann hann á bókasöfnum
í Stokkbólmi, Kaupmannahöfn og
Uppsölum. Árið 1883 varð hann
yfirkennari við mentaskólann í
Leipzig og 1893 prófessör í nor-
rænum fræðum við háskólann þar,
og gengdi kenslu til 1925.
Hann hefir ritað margar kenslu-
bækur og vísindabækur, var með-
útgefandi að „Altnordischen
Sagabibliotek“ og* ritaði forn-
norræna og íslenska bókménta-
sögu.
Próf. Moglt hefir alla jafna ver-
ið ágætur íslandsvinur og í viður-
kenningarskyni fyrir í’itstörf hans
hefir Hið íslenska bókmentafjelag
gert hann að heiðursfjelaga sín-
um.
Kvenfjelagið
á Kálfshamarsvik.
Konur leggja akbraut.
Eins og' kunnugt er, gengur nes
mikið til norðurs milli Húnaflóa
og Skagaf jarðar. Það er nefnt
Skagi. Ér þetta fremur arskekt og
fátæk sveit, þó stórbýli finnist
þar líka svo sem Hafnir á Skaga,
en ekki er það ólíklegt, að nýtt
líf færist í þetta bygðarlag ef
útvegsbær myndast á Skagaströnd.
Þar er nú verið að byggja höfn.
Á Skaganum vestanvert og ut-
ai’leg'a er dálítið fiskiver, sem
Uefnist Kálfshamarsvík og þaðan
var mjer nýlega sögð þessi saga:
Þó Kálfhamarsvík sje lítið þorp
og afskekt, er þar kvenfjelag, sem
lætur höndur standa fram úr
ermum. Því þótti það mikið mein,
að Skagastrandai’brautin náði
hvergi nærri út að Kálfhamarsvík,
svo ferðir og flutningar þaðan inn
á Skagaströnd og inn í hjerað
voru erfiðir. Þegar hreppsbúar
sáu sjer ekki fært að legg'ja slík-
an veg, tók kvenfjelagið til sinna
ráða.. Einn góðan veðurdag komu
konurnar með sltóflur og önnur
nauðsynleg tæki og byrjuðu sjálf-
ar á vegagerðinni. Ekki var þess
getið að karlmenn hefðu kornið
þar nærri, hvort sem konurnar
hafa rekið þá burtu eða þeir ekki
boðist til að rjetta þeim hjálpar-
hönd. Sóttist konunum vegagerð-
in svo greiðleg'a, að þær höfðu
lokið við að g'era 4 kílóm.af „ágæt
um bílvegi“, eins og sögumaður
minn orðaði það.
Eklti vildi jeg vera karlmaður á
Kálfshamarsvík ef hjer er rjett
sagt frá, því þá verða þeir frægir
fyrir framtaksleysið en konurnar
fyrir dugnaðinn. Og víst eiga þær
skilið að komast í bíl á ball, þegar
akbrautin er komin til Skaga-
strandar og' þar er risinn upp
myndarlegur útvegsbær, morandi
af kátum og efnilegum sjómönn-
um með fulla vasana af peningum.
En hvernig sem ]retta er, þótti
mjer sagan svo fágæt, að jeg áleit,
að fleirum en mjer þætti gaman
af að heyra hana.
G. H.
Var þreytu
um að kenna?
Alþýðublaðið kemst svo að orði
í gær, í grein um nýju stjórnina:
„Valið á þeim (þ. e. ráðherrun-
um) sýnir vilja flokkanna, • til
að láta óþreytta menn taka að sjer
hin þyngstu og- ábyrgðarmestu
störf“.
Er sýnileg’t að þarna er blaðið
að gefa í skyn, að rauða sam-
fylkingin telji Jónas Jónsson, með-
al þeirra „þreyttu manna“, og sje
hann ekki lengur fær um að gegna
ábyrgðarmiklum störfum.
Rauðar hendur.
Á járnbrautarpóststofunni í
Schlesíu, hafði étt sjer stað
þjófnaður í mörg ár. Bæði brjef
og bögglar voru opnaðir og' inni-
haldinu stolið. Lengi reyndist
ómögulegt að segja hver væri
valdur að þessu, en að síðustu
hepnaðist lögreglunni að hand-
sama þjófinn, sem var ung stúlka.
Það atvikaðist á þessa leið:
Dag nokkurn sendi lögreglan
brjef á skrifstofuna og setti inn
í það 10 marka seðil. Þegar það
kom í hendur þess er raðaði brjef-
unum fann hún strax hvað inni-
haldið var og stóðst ekki freisting-
una og' opnaði brjefið og tók seð-
ilinn. En um leið og hiin tók
seðilinn, rann út úr umslaginu
rautt duft, sem makaðist á hend-
ur hennar. Hún reyndi að þvo það
af sjer en þegar vatnið kom við
duftíð hafði það þau áhrif að
það festist enn betur, svo að
hendur hennar urðu blóðrauðar,
og komu þær upp um hána.
Dagbók.
Veðrið í gær: Úægðarmiðjan er
yfir Suðurlandi og veldur rign-
ingu um allan suðurhluta lands-
ins. Mest hefir rignt á Vattarnesi
í dag (13 mm.), en víðast er úr-
koma 4—5 mm. Vestanlands er að
koma N-átt og mun hún breiðast
austur yfir landið í nótt og á
morgun.
Veðurútlit í Rvík í dag: N-kaldi.
Úrkomulaust.
Þurkleysi hefir verið á Apst-
fjörðum undanfarna daga, en dá-
góður fiskafli.
Gestir á Borg’. Max Zernieh
kaupm., Berlín, Niels Hellwig um-
boðsm. fyrir Bennett ferðaskrif-
stofu, J. Hawarth forstjóri, Hull,
J. Wright, forstjóri Hull, A.
Stewens og frú frá Kanada.
Salmonsen veitir þekkingu
— Þekking er máttur.
SaimoBsens Loksikoi
ætti nú ekki að vanta lengur á
nokkra skrifstofu, fyrirtæki eða
í vinnuherbergi mentamanna.
IVf. s er verðið
^ lágt.
26 stór og þykk bindi
innbundin í ekta skinn.
krónur
gegn staðgreiðslu
eða
Öll 26 bindin eru afhent í einu lagi 420 krónur gegn afbofg-
~ unum sem greiðast með
Salmonsens Leksikon gefur svar
við öllu.
Allar upplýsingar gefur
aðalumboðsmaðurinn á íslandi:
* Gnðjóti Jónsson
Vatnsstíg 4. Sími 4285. á mánuði.
krónum
Nákvæm lýsing með mjmdum af verkinu send þeim er óska.
Kommúnistar fagna nýju
stjórninni. Kommúnistar boða I
til fundar í Iðnó (húsi stjómar-
liðsins) í kvöld, og verður um-
ræðuefni: Nýja stjórnin og
stefnuskrá hennar. Er formönn-,
um rauðu stjórnarflokkanna j
boðið á fundinn. Kommúnistar
ætla að þakka nýju stjóminni j
fyrir niðurlagning varalögregl-
unnar og annað góðgæti í stefnu
skránni.
Haukanes seldi í gær í Grims-
by, 1355 vættir af bátafiski frá
Vestfjörðum fyrir 1425 sterlings-
pund.
Júpiter lagði af stað í gær frá
Hafnarfirði á ísfiskveiðar.
Trúlofun. Síðastl iðlnm laugar-
dag opinberuðu trúlofun sína frk.
Klara Karlsdóttir frá Eskifirði og
Isleifur Árnason jámsmSðanemi
Bragag'ötu 22.
Samsæti verður norsku skátun-
um haldið í kvöld í Oddfjelaga-
liúsinu. Skátar og skátastúlkur
rnint á að ná sjer í aðgöngumiða
í Bókhlöðunni.
Nýkomið:
ísl smjör. Harðfiskur. Riklingur.
Frosið dilkakjöt. Saltkjöt og alls
konar grænmeti.
Jóbannes Jóhannsson
Grundarstíg 2. Sími 4131,
NINON-
útsala.
Engin hefir ráð á að
fara fram hjá
titsðin NINONS.
Afar fallegir kjólar
með gjafverði.
Slys. Á sunnudaginn var Ásgeir
Halldórsson bilstjóri frá Hákoti
á Alftanesi að klifra í Nikulásar-
gjá á ÞingVöllum. Tók liann þá
hakfall og festi annan fótinn, niilli
steina og varð sveiflan svo snögg,
að fóturinn brotnaði fyrir ofan
ökla. Sjúkrabifreið var fengin frá
Reykjavík, til þess að sækja mann-
inn.
General von Streuben, þýskt
skemtiferðaskip kom hingað í gær-
morgun. Farþegarnir fóru í 117
bílum austur að Grýtu og Þing'-
völlum. Er það sú stærsta bíla-
lest, sem hjer hefir sjest.
Var það Guðmundur? Ekki hefir
hinn svokallaði umsjónarmaður
Þingvalla, liins friðhelga staðar,
enn þvegið burtu ósómann af Al-
mannagjárhamrinum. Eru nú sum-
ir farnir að geta þess til, að hann
muni sjálfur hafa málað þetta.
Vilja eklti yfirvöldin benda Guðm.
á þá skyldu hans að afmá ósóm-
ann, að viðlögðum dagsektum.
Mun þá sjást á þvi, hve lengi hann
dregur það, hvað honum þykir
mikið varið í áletrunina.
NINON
Austurstræti 12.
3 læknakandidatastöður eru laus-
ar fyrir Islendinga í Danmörku
frá 1. okt. Umsóknir eiga. að koma
til Kandidatanefndar Háskólans
fyrir 15. ágúst.
Skaftfellingur er á forum til
Víkur og Skaftáróss.
Tímarit Verkfræðingafjelagsins.
I seinasta hefti þéss birtist skýrsla
og álit þeirra norsku verkfræðing-
anna Berdal og Nissen um
virkjun Sogsins. SteingVím-
ur Jónsson ráfmagnsstjóri skýrir
fjárhagsafkomu Rafmagnsveitu
Reykjavíkur í sambandi við fyrir-
hugaða Sogsvirkjun. Seinast er
áætlun urn rekstrarreikning Raf-
m agUs ve i tunn a r og Sogsvirkjun-
arinnar, árið 1937.