Morgunblaðið - 02.08.1934, Side 3
MÖRGUNBLAÐIÐ
3
Eldur í rafmagnsstöðinni
hjá Elliðaánum.
Nokkrar skemdir urSu á einni rafmagns-
vjelinni, en það er hægt að gera við þær
með litlum kostnaði.
íBruninn hefir engin áhrif á rafmagns-
framleiðsluna.
I gærdag átti að mála loftið í
• v.jelasal rafmagnsstöðvarinnar lijá
Elliðaánum. En til þess að máln-
ingaslettur drypi ekki á vjelarnar,
'voru breiddar seglábreiður yfir
;þær. Ein vjelin, sem framleiðir
.1000 hestöfl, var þá í gangi og
með loftþrýstingi sog'aði liún á-
' breiðuna inn í sig og kviknaði í
ábreiðunni. •
I stöðinni voru til tveir slökkvi-
í brúsar, en vegna þess að mikill
hiti var af ábreiðunni meðan hún
var að sviðna, og eins vegna þess
að vjelin var í hröðum gangi og
ekki hægt að stöðva hana fljót-
lega, enda þótt vatnsþrýstingur-
inn væri tekinn af henni, þótti
ekki örugt að hægt mundi að
slökkva með þessum tækjum. Var
því Slökkviliðið kvatt þangað inn
eftir. En þeg'ar það kom þangað
hafði eldurinn verið slöktur, og
ekki þurft að eyða til þess nema
úr öðrum slökkvibrúsanum-
Steingrímur Jónsson rafmagús-
stjóri var staddur þarna innfrá
þegar þetta vildi til og átti Morg-
unblaðið tal við hann seinna í gær.
Sagði hann að nokkrar skemdir
hefði orðið á rafmagnsvjelinni af
völdum brunans, en það mundi
hægt að g'era við þær hjer með
litlum tilkostnaði. Engin áhrif
kvað hann þetta óhapp mundu
hafa á rafmagnsframleiðsluna,
því að varavjel, jafn sterk þeirri,
sem skemdist, liefði þegar verið
tekin í notkun.
Útflutningur
„Matjessíldar“.
Bráðabirgðalög útgefin.
Frá því var skýrt lijer í blað-
inu nýlega, að útgerðarmenn og
síldarútflytjendur nyrðra, hafa
stofnað samlag um útflutning' á
ljettsaltaðri síld, „matjes“-síld.
Ætluðust stofnendur til þess, að
ríkisstjórnin gæfi samlaginu einka
í'jett um útflutning þenna.
1 gær gaf stjórnin út bráða-
birgðalög um sölu og útflutning
á Ijettsaltaðri síld, þar sem svo
er fyrir mælt (1. gr.) að ríkis-
stjórninni sje heimilt að skipa svo
fyrir að leyfi ráðherra þurfi til að
selja eða flytja út ljettverkaða
saltsíld og (2- gr.) ríkisstjórn sje
heimilt að skipa nefnd til að hafa
á hendi nánari framkvæmd laga
þessara, eftir því sem reglug'erð
ákveður.
Eiinfremur er svo fyrir mælt, að
brot gagnvart lögum þessum eða
reglugerð varði sektum alt að
25 kr. á tunnu, sem útflutt er eða
seld úr landi án heimildar.
Munu meðlimir hins nýstofnaða
samlags telja víst, að með lögum
þessum sje ríkisstjórnin að fram-
kvæma óskir samlagsins og fela
stjórn þess að annast útflutning
á vöru þessari.
Qagbók.
Veðrið (miðvikudag kl. 17);
Austan lands er svartajioka og
súld og á SA-landi liefir rignt 3—
8 mm. í dag. Vestan lands og
úorðan liafa víða orðið smáskúrir
eða leiðingar en úrkoma varla telj-
andi. Lægðarmiðjan er nú yfir
landinu og' er útlit fyrir breytilega
vindstöðu og dálitla rigningu um
alt land'á morgun.
Veðurútlit í Rvík' í dag: Ilæg'-
viðri. Smáskiírir.
Eimskip. Gullfoss fór frá Vest-
mannaeyjum í gærmorgun á leið
til Kaupmannahafnar. Goðafoss
kom til Hamborgar í fyrrakvöld-
B'rúarfoss fór frá Leith í gær-
morgun á leið til Vestmannaeyja-
Lagarfoss fór frá Vestmannaeyj-
um'í gærmorgun á leið til Leith.
Selfoss fór frá Akureyri í gær.
Ljósmyndastofum Kaldals. Poly-
foto á Laug'aveg 3 og á Laugaveg
11 verður lokað 4,—13. þ. mán.
Ferðafjelag íslands. Auk þeirra
skemtiferða, sem áður hafa verið
auglýstar um næstkomandi lielgi
ráðgerir Ferðafjelagið skemtiför
á Esju næstkomandi sunnudag.
Verður lagt upp kl. 8 árdegis frá
Steindóri, Hafnarstræti, og ekið
þaðan upp fyrir Bugðu. Gengið
])aðan fram hjá Flekkudal upp
Sandfjall og vestur Esju og á Há-
tind. Er þetta ljettasta leið, sem
hægt er að fara á Esju og ágætt út
sýni og fagurt að líta ofan í Eyja-
dal og Eilífsdal. Af Hátindi verð-
ur haldið vestur á móts við Mó-
gilsá og gengið þar niður og ekið
á bifreiðum til Reykjavíkur, kl.
6 síðdegis. — Viðvíkjandi Hvítár-
vatnsförinni er fólk beðið að at-
huga, að farmiðar verða. að sækj-
ast eigi seinna en kl. 5 í dag- og
einnig hitt, að veg'na fjölmargra
óska verður lagt upp á laugardag-
inn kl. 5 frá afgreiðslu Fálkans,
Bankastræti, en ekki kl. 4, eins og
áður hefir verið auglýst.
Heimatrúboð leikmanna. Vatns-
stíg 3. Samkoma í kvöld kl. 8. All-
ir velkomnir.
7000 erlendir ferðamenn
komu með skemtiferðaskipum
til Reykjavíkur í júlimánuði.
úFráSögn Björns Ólafssonar stórkaupmanns.
I gær hafði blaðið tal af Birni — Það er ómögulegt að segja.
Ólafssyni stórkaupmanni, en liann Fer það alt eftir því, hvernig
er, sem lvuúnugt er, einn þeirra ferðalífið yfirleitt verðúr. Mjer
manna er annast móttökur hinna heyrist á forgöngumönnum skemti
« erlendu skemtiferðaskipa, er liing ferða, að draga muni yfirleitt úr
. að koma. skemtiferðum á sjó.
Hann sagði m. a.: En ef ferðamannastraumurinn
— Með þeim 13 skemtiferða- eykst hnigað, kemur það m. a. til
slripum, er komið liafa til Iieykja- af þv;? ag ferðafólk er orðið leitt
víkur í júlímánuði hafa komið alls a hinum „gömlu“ ferðamanna-
nm 7000 farþegar. löndum, Noregi, Svíþjóð o. fl. og
í einum manuði mun því aldrei leitar því eftir nýjungum Iiingað.
fyr hafa komið hingað jafnmargir _ Er ekki erfitt að f4 leið.
erlendir gestir. sögumenn hjer fyrir liið erl- ferða-
— Hvað veldur?
—• Að svo mörg' skip Iiafa kom-
ið Iiingað í ár, kemur fyrst og
frerrfst til af því, að vitagjöldin
voru lækkuð- Þurftu skipin áður
að gj-eiða 50 aura á smálest í vita-
; gjald. En gjaldið hefir verið lækk
að í 25 aura. Jeg er viss um, að
■ ef þessí lækkun hefði ekki feng-
ist, hefði helmingi færri skip kom-
ig hingað. Því í raun og veru er
vit.ag'jald, er skip þessi verða að
greiða, aukakostnaður fyrir þau,
framyfir kostnað við slíkar við-
komur í nágrannalöndunum, þar
. sem skípín sleppa við slíkt g'jald.
— Hvert hafa ferðamennirnir
aðallega, farið, meðan þeir hafa
’ haft viðdvöl hjer .’
— Aðallega til Þingvalla og til
•Grýtu, og af tveim skipum var
farið til Guílfoss.
En viðstaða skipanna er yfir-
leitt, að verða styttri og styttri.
iStafar það1 af því, að skipafje-
lögin eru altaf að gera skemtiferð-
irnar styttri og ódýrari. T. d. var
hægt að fá far með „Monte Rosa(<
er hingað hom um daginn, fyrir
170 mörk í 14 daga ferð frá
Þýskalandi til Islands og Noregs-
— Búast menn við að komum
skemtiferðaskipa, hing'að fjÖlgi á
næstu áruntf
fólk.
— Mestir erfiðleikar eru á því
að fá nægileg'a marga, sem kunna
að tala frönsku, þegar fránskir
ferðamenn koma hingað. Ferða-
fólk vill hafa ungt leiðsögufólk.
Það skeytir minna um, þó leið-
sögumenn hafi ekki mikinn land-
fræðislegan eða sögulegan fróðleik
á reiðum höndum. Annars býst jeg
við að við hættum við að útvega
leiðsögumenn um bæinn. Hjer
er svo lítið að sjá, að leiðsögn er
í ráun og veru óþöi’f.
— En væri þá ekki rjett að
hafa snotran leiðarvísi handa
ferðamönnum á þeirra eig'in
tungu?
—- Slíkan leiðarvísi höfum við
fyrir Þingvelli.
— Engar nýjungar annars í
sambandi við gestakomuna í ár?
— Eitt er í frásogur færandi.
Við höfum t.ekið eftir því, að er-
lendir ferðamenn, sem hingað1
koma í sumar, hafa óvenjulega
margir íslenska seðla meðferðis-
Er sagt að þeir hafi fengist keypt-
ir erlendis fyrir nokkru lægra
verð, en liið opinbera gengi er. En
um þetta veit jeg ekki nákvæm-
lega.
Nýja Bíó sýnir í kvöld mynd
sem heitir „Heiður ættarinnar“.
Er hún tekin eftir frægri skáld-
sögu franska skáldsins Honoré de
Balzac- Leika í henni frægir am-
erískir leikendur sem lijer eru
löngu kunnir, og aðalhlutverkið
hefir Bebe Daniels á liendi. —
Önnur mynd er sýnd líka. Heitir
hún ,.Næturhjúkrunarkonan“, og
lýsir vel lífi hjúkrunarkvenna í
hinum stóru sjúkrahúsum Banda-
ríkjanna og' hvernig fólk kynnist
þar.
Gamla Bíó sýnir nú óvenju-
lega kvikmynd, sem kölluð er „í
undirdjúpunum“. Er það kafbáta-
mynd, sem gerist í Miðjarðarhaf-
inu á ófriðarárunum. Innan um
hið alvarlega efni myndarinnar
er víða fljettað gamansömum at-
vikum, til dæmis þegar Jimmy
Durante (maðurinn með langa
nefið) fer í hnefaleik við pokadýr,
enda nötrar þá húsið undir lilátri
áhorfenda. Sjerstaklega er eftir-
tektarvert hversu neðansjávar-
myndirnar eru vel Ijósmynda.ðar
og myndin öll vel leikin. X.
Togararnir. Belgaum kom frá
Englandi í gær. Geir kom af veið-
um með 1600 ltörfur og helt áfram
til Englands. Vinur kom frá Eng-
landi-
Dettifoss fór hjeðan vestur og
norður um land í gærlcvöldi.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
Afli. af sr. Einari Guðnasyni. Á-
heit frá Guðm. Sigurðssyni Kol-
stöðum í Hvítársíðu 5 kr. Afh. af
Sn. J. Áheit frá G. M. Bergmann
5 kr- Áheit frá konu úr Keflavík
5 kr. — Kærar þakkir. Ól. B.
Björnsson.
Gunnlaugur Einarsson læknir er
á förum til útlanda til að kynna
sjer nýjungar í sinní fræðigrein.
Útvarpið í dag: 10.00 Vtður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 15.00
Vci'uifregnir. 1.9-10 Veðurfregnir.
19.25 Lesin dagskrú 'næstu viku.
19.30 Tónleikar (Úfvarpsldjóm-
sveitin). 19.50 Tónleikar. 20.00
R lukkusláttur. Beethoven-tónlist,
ineð skýringum (Jón Leifs)- 21.00
Frjett.ir. 21.30 Grammófónn: a)
Norðurlanda lög. b) Danslög.
Bragi Steingrímsson, dýralækn-
ir, sonur Steingríms Matthíasson-
ar læknis á Akureyri, er nýkom-
inn hingað til bæjarins og ætlar að
stunda hjer dýralækningar. Hann
tók próf í Hannover í Þýskalandi.
íþróttaskólinn á Álafossi. Nám-
skeiði því, sem nú st.endur þar
ýfir. verður lokið á laugardag'-
inn kemur. Þá verða börnin lát-
in sýna hve mikið þau liafa lært
þar, og er foreldrum þeirra boðið
að horfa ]iar á. Tsæsta námskeið
skólans hefst á mánudaginn kem-
ur-
Dánarfregn, í fyrradag andað-
aðist að heimili sínu, Barónsstíg
33. frú Jónína Sigurrós Jónsdóttir,
kona Oclds Gíslasonar bókbind-
ara. Af börnum þeirra lijóna eru
kunnastir Jón skipstjóri og út-
gerðarmaður í Hull, og Gísli skip-
stjóri, sem fórst á „Leifi liepna“ 8.
febr. 1925.
Skaftfellingur hleður til Öræfa
á þriðjudaginn kemur. Verður
þetta seinasta ferð hans þangað á
þessu ári.
Halldór R. Gunnarsson kaup-
maður, sem verslað hefir í Aðal-
stræti 6, undanfarin ár, er nú
hættur versluninni og hefir firm-
að Silli & Valdi kevpt allar vöru*
birg'ðir hans.
Dánarfregn- I fyrrakvöld and-
aðist frú Sigurveig Guðmunds-
dóttir, Bergstaðastræti 24, kona
Jóns Einars Jónssonar prentara.
Hún var mörgnm Reykvíkingum
að góðu'kunn.
Hjónaband. í dag verða gefm
saman í hjónaband, í Wien, ung-
frú Katrín Ólafsdóttir, Björns-
sonar ritst'jóra, og dr. Franz Mixa.
Utanáskrift ungu hjónanna er,
Hadersdorf-Weidlingau, London-
strasse 10, Bei Wien.
Skemtigarður Hafnfirðinga. —
Skemtigarðurinn Hellisgerði í Hafn
arfirði er öllum opinn á sunnudög-
um kl. 10—12 f. hád- og kl. 1 %—
7 e. hád. Aðgangur kostar ekkert,
hvorki fyrir Hafnfirðinga nje að-
komumenn. Er hann bæði ein-
kennilegur og fagur og mun því
mörgum þykja vænt um að fá að
koma þjjngað.
Ríkiserfingi veikur. Friðrik rík-
iserfingi hefir lagst á sjúkradeild
dr. Strandgaards í borgarsjúkra-
húsinu í Árósum, til rannsóknar
á veikindum í maga. (Sendiherra-
frjett-)
Níræðisafmæli á Sigurður Hall-
dórsson, faðir Halldórs úrsmiðs í
dag. Gamli maðurinn er enn hinn
ernasti og ljettur á fæti.
Dönsku ráðgjafarnefndarmenn-
irnir fóru á mánudaginn austur
til að skoða brúna á Markarfljóti.
í dag fara tveir þeirra sennilega
áustur að Gullfossi.
Ráðgjafarnefndin heldur fundi
sína í Alþingishúsinu. Ýmis mál
eru á dagskrá, en engin stórvægi-
leg. Seinasta fund sinn heldur
nefndin á sunnudagsmorgun, og
þá um kvöldið halda dönsku full-
trúarnir heimleiðis.
Haraldur og varalögreglan. í
útvgrpsfrjett frá Seyðisfirði segir
svo í fyrradág: Haraldur Guð-
mundsson ráðherra fór hjeðan frá
Seyðisfirði ásamt fjölskyldu sinni
kl. 24 í nótt með „Óðni“ alfluttur
til Reykjavíkur. — ,,Óðinn“ kom
hingað snemma í gærmorgUn og
var þá enginn til þess að taka á
móti hinum árvakra ráðherra, því
að ekki var kominn vinnutími hjá
alþingismanninum og afgreiðslu-
manni ríkisskipanna, Sigurjóni A.
Ólafssyni. Var nú leit^ð fyrir sjer
víðsvegar um bæinn. hver feng'ist
til þess að koma ráðherranum og
farangri hans í land- Varð hann
seinast að leita til þess aðstoðar
varalögreglunnar, er kom lionum
tif liins nýja bústaðar að Hótel
Borg.
Verndið Sovjetstjórnina. Á
mánudaginn var, um það leyti sem
þeir Hermann og' Eysteinn fóru
upp í Stjórnarráð, sá vegfarandi
á símastaur sunnan við kirkju-
garðinn. eldrauðan miða og á
hann letrað: „Verndið Sovjet-
stjórnina.“
Leiðrjetting. í skilagrein um
sauiskot til jarðskjálftafólksins,
birtri í Morgunblaðinu 5. júlí var
misprentun 10 kr. í stað 100 kr.
frá konum í Miðdölum í Dalasýslu.
Peningar þessir Aroru afhentir af
síra Ólafi Ólafssyni á Kvenna-
brekku-
Til Strandarkirkiu: N. N. 6 kr.,
J. B. 4 kr„ G. Ö. 10 kr., Skagfirð-
ingur 2 kr„ S- M. kr. 1.25
Breikkun gatna. Bæjarverkfræð
ingur hefir lagt til, að Túngata
breikki til suðurs upp í 15 metra
frá Hofsvallagötu og' að beygj-
unni ofan við Hólavallagötu. Enn
fremur að 3 inetra breiður gang-
stígur komi frá Hávallagötu yfir
á Túngötu, og sje síðasti kafl-
inn jafnhliða austurhlið Landa-
kctsspítala ,og 14 métra frá henni.
Meulenberg biskup hefir fyör
hönd eigenda Landakots lýst yf-
ir. því, að hann sje samþykkur
þessu skipulagi, og geri ekki fjár-
kröfur á hendur bæjarsjóðs fyrir
breikkun IlofsA’alIag'ötu og Tún-
r.ötu. Hefir byggingarneUid sam-
þykt þessar tillögur.