Morgunblaðið - 07.09.1934, Qupperneq 2
2
M0RGUNBLA ÐlÐ
99
iOtsOlonur.
Hið háa kjölverð liefir
að heita má stöðvað alla
kjötsöln í k»tip(tkniim
og þorpum út unt land.
Frakkar og ífalir
mynda hernaðarbanda
lag gegn Þjóðverjum.
Rómaborg 6. sept. F.B.
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Rltstjörar: J6n Kjartansson,
Valtýr Steíánsson.
Rltstjórn og afgrelösla:
Austurstræti 8. — Slmi 1600.
AuglítelngastjCri: B. Hafberg.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Slmi 3700.
HeimasImaT:
Jön Kjartansson nr. 3742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
Árni Óla nr. 3045.
E. Hafberg nr. 3770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuBl.
Utanlands kr. 2.50 á mánuSi
í lausasölu 10 aura eintakiö.
20 aura meS Lesbök.
Þá er mjer að mæta!
Sósíalistar eru nú að komast að
raun um, að verkalýðurinn kann
rauðu stjórninni litlar þakkir
fyrir „skipulags“-kákið í afurða-
sölunni.
„Skipulagning“ kjötsölunnar
liefir til að byrja með verið fram-
kvæmd þannig, að verkamenn
verða að neita sjer um að bofða
kjöt, því verðið hefir verið sett
•s.vo hátt, að þeir hafa ekki ráð
,á áð kaupa kjötið.
Þetta hefir vakið mikla og al-
menna óánægju meðal verka-
manna í þes.sum bæ og þetta eru
nú sósíalistar farnir að finna.
Þess imgna er það, að Sigurður
Einarsson, sem. útvarpshlustendur
kannast við, fer á stúfana í Al-
þýðublaðinu í gær og hótar rík-
isstjórninni öllu illu, ef „skipulag'n
ing“ mjólkursölunnar verði ekki
til þess, að mjólkurverðið í bæn-
um lækki nú þegar niður í 38 au.
og frá næstu áramótum niður í
:35 aura pr. líter.
Sigurður þessi er, sem kunnugt
•er þingmaður og hann veit sjá-
anlega af því sjálfur. ílann segir
í Alþýðubl. í gær, að ef stjórnin
■ekki sjer um að mjólkin lækki
-.sem fyr segir, þá megi hún ekki
láta sjer bregða í brún, þótt hún
finni það er á þing' kemur, að
hún eigi formælendur fáa. Og
„jeg mun ekki Ijá stuðning neinu
frumvarpi um lausn mjólkurmáls-
ins, sem ekki felur í sjer þessa
verðlækkun“, segir Sigurður.
Nú er eftir að vita, hvað bak
við þessa hótun Sigurðar liggur.
Á kjötverðið minn-ist Sigurð-
ur ekki.
Viðskiftasamningar
milli Þýskalands og
Belgíu.
Berlín 6. sept. F.U.
Fundir hafa verið haldnir um
alllangt skeið í Berlín um við-
skiftasamning milli Þýskalands
ug Belgíu. 1 gær komst á sam-
komulag um samning þenna, og
var uppkast að honum, sem síð-
ar á að leggja fyrir stjórnjr rík.j-
anna, undirritað í utanríkisráðu-
neytinu í Berlín í gær.
í samningnum eru settar ákveðn
ar reglur um gjaldeyrisyfirfærslu,
ennfremur um vaxtagreiðslu af
lánum þeim, er Þjóðverjar hafa
tekið í Belgíu og takmörkun á
kolaútflutningi frá Þýskalandi til
Belgíu.
Samningurinn gildir frá 10. sept.
n. k. og nær einnig til Congo og
annara belgiskra nýlenda.
feland kom hingað í nótt.
Botnía fer hjeðan annað kvöld
kl. 8 áleiðis til Leith.
Undanfarin ár hefir venjan ver-
ið sú, að allmikið hefir selst á
sumrin af nýju dilkakjöti, í kaup-
staði og kauptún, víðsvegar um
land. Þessi kjötsala hefir farið
fram áður en aðalslátrun hófst,
enda fengist allmikið hærrá verð
fyrir kjötið en að haustinu.
Þessi sumar kjötmarkaður hefir
farið mjög í vöxt síðustu árin og .
Iiiiini hefir orðið mikil biibót
bændum þeim, sem haft hafa að-
stöðu til að nota marfeaðinn.
Þó markaður þessi hafi aðal-
lega verið í stærri kaupstöðunum,
er hitt víst, að kauptún og þorp
víðsvegar um land hafa einnig
keypt mikið af dilkakjöti seinni
hluta sumars fyrir talsvert hærra
verð, en haustmarkaðurnn gaf.
En nú hefir hið nýja „skipu-
lag“ á kjötsölunni hjer innanlands
orðið orsök þess, að þessi sumar-
kjötsala hefir að heita má stöðv-
ast í kauptúnum og þorpum út
um land, vegna þess hve kjötverð-
Fundur var haldinn í bæjar-
stjórn í gær og var þetta liið
markverðasta, sem þar gerðist.
Atvinnubótavinnan.
Áður hefir hjer í blaðinu ver-
ið skýrti frá tillögu bæjarráðs um
620 þús. kr. framlag til atvinnu-
bótavinnu á þessu ári og að tekn-
ir yrðu 200 manns í atvinnubóta-
vinnu .
Björn Bjprnsson fulltr. komm-
únista flutti þá brtt. við þessa
tillögu, að fjölgað yrði nú þeg-
ar í atvinnubótavinnu upp í 300
manns. Ut af þessari till. spunn-
ust nokkrar umræður.
Borgarstjóri sagði, að ef fjölga
ætti í atvinnubótavinnu yrði að
sjá fyrir meira fjárframlagi en
ráð væri fyrir gert í till. bæjar-
ráðs.
Stefán J. Stefánsson kvaðst eigi
telja rjett að samþ. till. B. B., því
hann væri viss um, að • hversu
margir sem atvinnúbótavinnu
fengju, myndi koma nýtt yfirboð
frá kommúnistum.
Ólafur Friðriksson sagði það
vera al-ódýrasta lýðskrumið, að
koma með svona yfirboð.
Till. B. B. var feld.
Kosning fátækrafulltrúa.
Þá fór fram kosning fátækra-
fulltrúa í stað Samúels Ólafsson-
ar, er sótt hafði um lausn frá því
starfi. 22 umsóknir lágu fyrir.
Áður en kosning fór fram bar
borgarstjóri fram ])á till., að
staðan yrði ekki veitt að þessu
sinni, heldur yrði maður settur
í liana tiI eins árs. Yar sii till.
samþykt.
Björn Björnsson ftr. kommún-
ista kvaðst ekki treysta neinnin
umsækjandanna og, bar fram till.
lagsnefnd hefir sett verðið hátt.
Morgunblaðið hefir haft fregnir
A-íðsvegar að af landinu og er
allsstaðar sama sagan, að almenn-
ingur kaupi ekki kjötið. Og í
t kaupstöðunum út um land hefir
I kjötsalan stórlega minkað síðan
I verðlagsnefnd ákvað hið háa kjöt-
veri5.
Þessi staðreynd sannar mjög
átakanleg'a það, sem haldið hefir
verið fram hjer í blaðinu, að ekki
er til neins að ætla sjer með' þving
unarráðstöfunum að sprengja upp
verð á einhverri vöru. Afléiðing-
in verður einungis sú, að almcnn-
ingur kaupir ekki vöruna — hann
hættir áð neyta hennar.
En ekki verður það búbót fyrir
bændur, ef þessi „skipulagning"
kjötsölunnar innaniands verður til
þess að draga stórlega úr kjöt-
neyslunni seinni part sumars, því
einmitt þessi sala gaf bændum
sæmilegt verð. fyrir kjötið og hún
fór mjög' í vöxt síðustu árin. ,
fram á það við Gunnar Bene-
diktsson frá Saurbæ, að hann
tæki að sjer starfið. Till. var
feld ineð 12:1 atkv.
Aðalbjörg Sigurðardóttir lireyfði
því, hvort ekki myndi rjett að
fjölga ( fátækraftr. upp í 4, en
ekki flutti hún till. um það.
Fór þá fram kosning' fátækra-
fulltrúa og var Ragnar Lárusson
verkamaður kosinn með 8 atkv.,
Jóhanna Egáþsdóttir hlaut 6 atkv.,
einn seðill var auður.
Kosning í skólanefnd.
Vilmundur Jónsson landlækn-
,ir hafði farið fram á það, að hann
yrði leystur frá starfi í skóla-
nefncl og að Alþýðufl. yrði gefinn
kostur á að velja mann í hans
stað.
Var hvorttveggja samþ. og var
Hallgrímur Jónsson yfirkennari
tilnefndur í skólanefnd af Al-
þýðuflokknum.
Mussolini harðorður
í garð Þjðverja.
Milano 6. sept. F.B.
í grein, sem birst hefir í Popolo
d’Italia og talið er, að skrifuð
sjé af Mussolini eða að hans
undirlagi, segir m. a., að ef nokk-
ur þjóð hafi sýnt það berleg'a, að
ihún vildi ekki halda gerða samn-
inga, þá sjeu það Þjóðverjar. —
Gremja Þjóðverja í garð Itala,
segir í greininni, byggist á því,
að leiðtogar Þjóðverja hafa mist
trúna á, að ítalir muni nokkuru
sinni verða bandalagsþjóð Þjóð-
ver.ja.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum hafa Frakkar og ítalir náð
samkomulagi sín á milli um það,
að hvor þjóðin um sig skuli hafa
jafnrjetti á við hina, að því er
tekur til vígbúnaðar á sjó.
Ennfremur hafi þeir komið sjer
saman um pólitíska samvinnu og
hernaðarlega, til þess að spyrna
London 6. sept. F. Ú.
Oeirðir hafa orðið á allmörgum
stöðvum í Bandaríkjunum í dag.
300 verksmiðjum í Suður- og Norð-
ur-Caroline hefir nú verið lokað.
Sumstaðar reyna verkamenn að
beita valdi, til þess að loka verk-
smiðjunum, en ýmsir verksmiðju-
eigendur hafa lokað verksmiðj-
um sínum sjálfir, þótt þeir hafi átt
kost á verkamönnum. Gera þeir
þetta til þéss, að forðast óeirðir
og blóðsúthelling'ar.
Roosevelt forseti reynir sífelt að
miðla málum. Hann hefir enn í
hyggju að setja sjerstaka nefnd,
til þess að rannsaka vefnaðariðn-
aðinn og jafnframt á hún að
starfa sem sáttanefnd í vinnudeil-
um. Leiðtogar verkfallsmanna
segjast ekki hafa í hyggju að
slaka neitt á verkfallinu, en telja
sig reiðubiina tiI að vinna með
nefncl forsetans að úrlausn máls-
ins. Talið er, að þeim fari nú sí-
felt fjölgandi, sem taka þátt í
verkfallinu.
50 hommúnistar
hanötehnir í Berlín
L. R. P. 6. sept. F.Ú.
Lögreglan í Berlín hefir tekið
fasta 50 menn, sem sakaðir eru um
að vera viðriðnir kommúnista-
undirróður gegn stjórninni. Stöðv-
ar þeirra eiga að vera í Schöne-
berg í Berlín. Orð leikur á því, að
lögreg'lan hafi fundið liöfuðstöðv-
ar þýsku kommúnista, þaðan sem
dreift sje út um lanclið leynilega
kommúnistabókmentum og' stjórn-
að undirróðri g'egn stjórninni.
Fleiri börn
segir mussolini.
London 6. sept. F.Ú.
Mussolini opnaði í clag' iðnsýn-
ingu í borg einni í Italíu. og að
því loknu gekk liann í eina
kirkju borgarinnar og gaf þar
vöggu- og barnafatnað 131 hjón-
um, sem nýlega hafa gift sig þar,
en þetta er siður Mussolinis og'
gert að því er hann segir, til þess
að örfa barneignir í landinu.
Togarinn Tryggvi gamli kom
frá Englandi í gærltvöldi.
Súðin kom hingað í gærkvöldi
úr strandferð.
á móti endurvígbúnaði Þjóðverja.
Talið er að Litla bandalags rík-
in muni taka þátt í þessu sam-
komulag'i. Herafli þessara þjóða,
Frakka og ítala og Litla banda-
lagsríkjanna er á friðartímum hálf
önnur miljón og þær hafa aðstöðu
til þess að lcoma í veg fyrir, að
nokkurri þjóð á meginlandi álf-
unnar takist að rjúfa friðinn.
United Press.
Sættir í aluminiumiðnaði.
Öðru verkfalli, sem staðið hef-
ir yfir í Bandaríkjunum er nú
lokið, en það var verkfall manna,
sem vinna í aluminiumiðnaði. Um
9000 manns tóku þátt í þessu verk
falli, og reis það út af kröfum
verkamanna um hækkað kaup og
styttan vinnutíma.
Sáttanefndin.
Washington 6. sept. F.B.
Roosevelt forseti hefir útnefnt
John Winant, ríkisstjóra í New
Hampshire, Marion Smith. At-
larnta Georgia, og' Raymond Inger-
soll, New York, til þess að miðla
málum í verkfallsdeilunni. — Frá
Trion í Georgia er símað, að tveir
menn hafi beðið bana í verkfalls-
óeirðum, lög'reglumaður og einn
af vörðum verkfallsmanna. Var
ákaft, barist um skeið og meidd-
ust margir níenn.
Slys í Viðey.
Sex ára barn druknar.
f gær vildi það sorglega slys til
á fiskverkunarstöðinni í Viðey,
að 6 ára telpa fell þar út af
bryggju og. druknaði. Hún var
dóttir Skúla Sveinssonar.
Eftir því sem Morgunblaðið
veit best tók eiiginn eftir því,
þegar barnið fell út af bryggj-
unni, en það fanst litlu síðar á
floti. Var þá Sveinn Gunnarsson
læknir fenginn til að koma inn-
eftir, en allar lífgunartilraunir
reyndust árangurslausar.
Uppreisn í 5usa.
London '6. sept. F.Ú.
Alvarlegar róstur hafa orðið í
Tunis og uppreisn í Susa. Þar
náðu uppreisnarmenn ráðhúsinu á
sitt vald og kviknaði í því, og
brann það. Fjórir menn fellu og
margir særðust. Óeirðir þessar
spruttu af óánægju gegn franska
fulltrúanum. Kyrð er nií alstaðar
komin á aftur, en hervörður er
þó enn um allar gotur í Susa.
Næturvörður verður í nótt í
Ing'ólfs Apóteki og Laugavega
Apóteki,
United Press.
Drotnjingin kemur til Kaup-
þess efnis, að borg'arstjórn færimannahafnar í dag.
Bæjarstjórnarfundurinn í gær.
Verkfallið breiðist út
í Bandaríkjunum.
Unitad Press.