Morgunblaðið - 26.01.1935, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.01.1935, Blaðsíða 8
MORGíTNBLAÐIÐ Laugardaginn 2fi. jan. 1935- Jsrrá-auglðsirQarJ Hanskasaumastofa mín er flutt í Austurstræti 5 (uppi). Guðrún Eiríksdóttir. Kaupum 'gamlan kopar. Yald. Poulsen, Klapparstíg 29. Sími 3024 »•••••••••••••••••••••••••• Hjá saumakonu: Jeg býst við, úr því að frúin er svona óánægð raeð kjólinn að jeg megi ekki gera rajer von um að fá að sauma á yður aftur. — Nei, en jeg skal mæla með yður við allar vinkonur mínar. Taða til sölu. Sími 3341. Nýir kaupendur að Morgun- blaðinu fá blaðið ókeypis til næst- komandi mánaðamóta. -- —--- ■ MorgunblaSið með morg- unkaffinu. ^niiiiiiiiiinnyiiwiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHinitiiiiiiiiiiiiHtiiiiiiiiiHiiiiiiniiiiiiiiiiiiiHiiiifitniiiiiiiinHiniiiinnmi § z=z I orgunsttind B |J geftir gtilí í mtind þeím, sem augíýsa í I Morgtinbíaðínu. a jj Súrf skyr. flreint, bragðgott, vel síað og ódýrt. HaupRelag Borgfitðinga, Sími 1511. 'ipínalín, HIÐ V£TAMÍNAUÐUGA. Pæst í Apótekum Blfieiðar til sölo, allav sfærðir. BHfeliasiflð Stelndirs. Aftlir nrant JL S. L Þeir mjólkurframleiðendur í bæjarlandinu og nánustu grend, sem ekki hafa gerst fjelagar í Mjólkurfjelagi Reykjavíkur, en senda nú mjólk sína til mjóíkurstöðvar þess, eru hjer með vinsamlega ámintir um að tilkynna Sam- sölunni nú hið allra fyrsta, hvort þeir óski að fá greiðslur sínar beint frá Samsölunni og vera þannig í beinum við- skiftum við hana, ella verður litið svo á að þeir sjeu með- limir Mjólkurfjelags Reykjavíkur og greiðsla fyrir mjólk þeirra fer þá að sjálfsögðu fram í gegnum það f jelag. Mjólkursa I salan. B ABTLON. 9. krái^eigandi á miðöldunum, og jafnvel þjóðhöfð- ingjar ætlast ekki til þess að sjá hann, nema eitt- hvað fari aflaga. Og sannast að segja — þó Ari- bert prins af Posen og stórhertoginn hafi gist hjer áður, þá hefi jeg þá aldrei augum litið. Þjer mun- uð sjá, að allur undirbúningur er þegar kominn í kring. Þeir skröfuðu dálitla stund enn og því næst bauð Racksole góða nótt. — Það er rjettast, að jeg fylgi yður til her- bergis yðar. Lyftumar eru lokaðar, og enginn maður á ferli. Sjálfur sef jeg hjema inni, sagði Babylon og benti á dyrnar á einum veggnum. — Nei, þakka yður fyrir, svaraði Racksole. — Það er rjettast, að jeg rannsaki mitt eigið gistihús fylgdarlaust. Jeg býst við, að mjer takist að finna herbergið mitt. ' En þegar Racksole var kominn góðan spöl inn í gangana, var hann hreint ekki svo viss um, að hann væri þess megnugur að finna herbergið sitt. Númerið var 107, en hann mundi ekki hvort það var á fyrstu eða annari hæð. Þegar farið er í lyftu, setja menn ekki slíkt á sig. Ham^ fór fram hjá mör^um lyftudyrum, en gekk ekki eins vel að fínna stigana, því gisthús með virðingu fyrir sjálf- um sjer hafa afnumið þá, og þeir stigar, sem til eru, eru þá einhversstaðar úti í horni þar sem eng- inn getur sjeð þá. Gistihúsið var geisistórt, eyðilégt og óvistlegt. fijer og þar sást rafljós, en langt í milli þeirra. fífetur Racksoles á þunnu skónum, gerðu engan hávaða á þykkum gólfábreiðunum, og hann ráfaði v.íðn um gangana og þótti hálfgaman að, enda þótt nóttin og dauðakyrðin væri ekki sem viðkunn- anlegust. Hann þóttist heyra óendanlega margar hrotur koma ofan af efri hæðunum. Loks fann hann stiga, sém var mjög dimmur og þröngur, og alt í einu var hann kominn upp á fyrstu hæð. Hann fann annan stiga og komst þannig upp á aðra hæð. Hann þekti á veggjaskreytingunni, að mö var hann kominn á sína hæð og um leið og hann gekk eftir ganginum, blístraði hann lágt og ánægjulega. Hann þóttist heyra fótatak í þver- ganginum og ósjálfrátt faldi hann sig í skoti einu, sem sýnilega var ætlað þjónustufólki. Það var ekki um að villast: hann heyrði fótatak. Hann gægðist varlega út og tók þá eftir nokkru, sem hann hafði ekki sjeð áður: að hvítt band var bund- ið utan um handfangið á hurðinni á einu svefn- herberginu. Síðan kom maður fyrir hornið á þver- ganginum og Racksole flýtti sjer að fela sig aftur. Þetta var Jules -— með hendurnar í jakkavösunum og hatt niðri í augum, en að öðru leyti klæddur eins og venjulega. Samstundis -mintist Racksole þess, sem Felix Babylon hafði sagt við hann, í íyrsta viðtali þeirra. Hann fór að óska þess, að hann hefði skammbyss- una sína hjá sjer. Hann vissi ekki hvers vegna hann fór að óska þess, að vera vopnaður, í góð- kunnu Lundúnagistihúsi, en nokkuð var það að hann óskaði þess. Hann ásetti sjer að verða fljótur til að grípa fyrir kverkarnar á Jules, ef hann færi fram hjá skúmaskoti hans, og leggja fyrir hann nokkrar ákveðnar spurningar. En Jules hafði stansað. Auðmaðurinn gægðist aftur varlega. Jules var að snúa handfanginu á hurðinni, sem hvíta bandið var bundið við. Hurðin ljet undan og Jules hvarf inn í herbergið. Eftir stutta stund kom hann aftur, lokaði dyrunum jafn gætilega og hann hafði opnað þær og hvarf inn í þverganginn. — Þetta er skrítið! sagði Racksole við sjálfan sig, — og það svo um munar. Honum datt í hug að líta nánar á hurðin aog læddist þangað. — Hver fjandinn sjálfur! varð honum að orði. Þetta vár sem sje númer 111 — herbergi dóttur hans. Hann reyndi að opna, en hurðin var læst. Hann þaut inn í sitt herbergi, nr. 107, og greip þar tvær skarnmbyssur — af þessari tegund, sem búin er til handa miljónaeigendum — og þaut í áttina til Jules, inn í þverganginn. Við enda gangs- ins vai* gluggi, sem stóð opinn og þar stóð Jules, eins og sakleysið sjálft uppmálað og var að horfa út um gluggann. Racksole steig tvö hljóðlaus skref og rjeðist á hann. — Hálft orð, vinur minn, sagði auðrnaðurinn og sveiflaði skammbyssunum. Jules hefir vafalaust brugðið, en tókst snildarlega að leyna því. — Já, herra minn, svaraði hann. — Jeg vildi bara fá að vita, hvern fjandann sjálfan þjer voruð að gera inni í nr. 111 rjett áðan.. — Jeg var beðinn að koma þangað, svaraði hinn. rólega. — Þjer eruð lygari og þár að auki klaufi. Þetta er herbergi dótíur minnar. Jæja, út með sann- leikann áður en jeg mola á yður hausinn, eða kasta yður út um gluggaiín. — Þjer verðið að fyrirgefa, herra minn, en í þessu herbergi býr karlmaður. — Jeg ætla að láta yður vita, að það er meinleg skynvilla að reyna að mæla móti því, sem jeg segn. maður minn. Heyrið þjer það ekki aftur. Við skul- um fara saman inn í þetta herbergi, og þjer skul- uð fá að sanna mjer, að þar búi karlmaður, en ékki dóttir mín. — Ómögulegt, herra minn, sagði Jules. — Ekki svo ómögulegt, sagði Racksole og greip' í ermina á Jules. Hann vissi fyrir víst, að Nella væri í nr. 111, því hann hafði skoðað herbergið með henni, og sjálfur sjeð, að farangur hennar var fluttur þangað. — Jæja, upp með hurðina! hvíslaði Racksole þegar þeir komu að nr. 111. — Jeg verð að berja að dyrum. — Nei, það megið þjer einmitt ekki gera. Opnið þjer bara. Þjer hafið vafalaust lykil, sem gengur að. Jules bar það mikla virðingu fyrir skammbyss- unni, að hann gerði sem honum var sagt, en gaf þó í skyn með látbragði sínu, að hann vildi enga ábyrgð á þessu bera. Racksole gekk inn. Herbergið var uppljómað. — Hjer er gestur, sem heimtar að tala við yður, sagði Jules. Hr. Reginald Dimmock, sem var enn í sam- kvæmisfötum og með vindling í munninum, stóð upp frá borðinu. — Sælir, hr. Racksole, þetta var óvænt...... ánægja að sjá yður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.