Morgunblaðið - 05.06.1935, Side 5

Morgunblaðið - 05.06.1935, Side 5
Miðvikudaginn a. júní 1935-^ FlugferHir Pan American Airways yfir Kyrrahaf. New Yorlc í maí. FB. ‘Samkvæmt iipplýsingum frá Pan American Airways er stöðugt werið að undirbúa áform fjelags- ins um skipulagsbundnar flugferð- ir yfir Kyrrahaf. Er nú verið að undirbúa lendingarstöð fyrir flug- vjelar á Wilkes-eyju, sem er ein iaf hinum svo kallaða Wake- ■eyjaklassa (Wake Island Group), 9.270 enskar mílur frá Honolulu, •og eru þessar eyjar hinar afskekt- Tistu, sem Bandaríkjamenn eiga. Eyjar þessar eru lítt kunnar, en •sæfarendur á þessum hluta Kyrra- hafs forðast að koma nærri þeim, því að í nánd við þær eru liættu- 'legar siglingaleiðir. Á Wilkes-eyju setlar Pan-American-Airways að hafa loftskeyta- og vegvísunarstöð og bensínforða fyrir Clipper-flug- vjelar þær, sem fjelagið ætlar að liafa í póst- og farþegaflugferðum sínum milli Californíu og Kína. Er nú flokkur sjerfræðinga á Wilkes-eyju að koma upp ýms- um áhöldum o. s. frv. Wdkes-eyja hefir til þessa verið óbygð} en nú verða þarna nokkrir menn að staðaldri. Clipper-flugvjelarnar, sem nota á í flugferðunum, hafa fjóra mótora hver og geta flutt 32 farþega og talsvei’t af pósti og öðrum flutningi. Ráðgert er, að þær fyrst um sinn frá því flugferð irnar hefjast, komi við á Wilkes- eyju vikuléga. (UP.). MORQUNBLAÐIÐ Suðurkantar — — Eldeyjarbanki. í 121. tbl. Morgunblaðsins, þriðjudaginn 28. maí, er grein sem bygð er á fiskirannsóknum dr. Bjarna Sæmundssonar, þar sem talað er um hina nýju fiski- fiskilóð togaranna á grunninu norðvestur af Eldey — kemur mjer til að koma með nokrrar hugleiðingar í sambandi við grein- ina. Hvort nefna beri þessi fiski- mið Suðurkanta eða Eldeyjar- banlta læt jeg liggja milli mála, en sannleikurinn er sá, að með þessum kanti er fiskað alla leið vestur að Eldeyjarboða, og Eld- eyjarbanki er grunnið nú kallað þegar kemur í vestur áf Garð- sltaga, og það vestur að Eldeyjar- skerjum. Sennilega kemur fiskur þarna fyrri part vertíðar, eins og í fislcileitir Suðurnesja, og dreifir sjer yfir grunnið, en. þjettur virð- ist hann ekki verða fyr en seinni- part aprílmánaðar, þegar hann fer að hverfa af grunnmiðum. Að þessi kantur sje „þjóðbraut" fiskjarins minsta kosti tvö síðustu árin, virðist ekki vafi á. Það er sjerstaklega merkilegt atriði, að síðan farið var að merkja lóðir í veiðistöðvum sunnanlands, er miklu hægar að fylgjast með gangi fisksins, og þarna úti, þar sem ekki hefir verið lögð lína í sjó, fæst um þetta leyti mikið af fiski með önglum og- öngultaum- um merktum úr flestum veiði- stöðum við Faxaflóa, og einnig austan Reykjaness, einmitt um það leyti, sem fiskur er að hverfa af. grunnmiðum, síðan er hann eltur af togurunum suðvestur eft- ir djúpkantinum, uns hann hverf- ur þar eða togast upp. Alt þetta virðist benda til þess að fiskurinn safnist saman af grunnmiðum, bæði. norðan og sunnan Reykja- ness, og fari þarna um kantinn yfirleitt í þjettum torfum, þegar liann fer af landi burt, ef svo mætti að orði komast. Nú er spurn ingin, hvað verður af honum næst, heldur hann beint í haf út, eða breytir hann stefnu og fer til ein- liverra annara landshluta, því ekki hefir alt verið togað upp í vörpur togaranna ? Eins og sjá má af sjóuppdrætti Faxaflóa eru feikna mikil grunn eða sjór með togandi dýpi alla leið 90—100 sjómílur vestur af Garðskaga. Ekkert er líldegra en einhversstaðar á þessu svæði sje botnlagið þannig, að fiskur slái sjer niður, eða stöðvist um stund- ar sakir, á einhverju svæði þessa grunns, Hg’gi leiðin um það til Grænlands, en enginn má missa tíma til að leita. Og hverjum væri skyldast að leita ? Auðvitað ríkissjóði. Nú vill svo vel til, að ríkið hefir skipi á að skipa, útbúnu sem togara, þó það sje kannske vafamál, að það geti togað að gagni á 150—160 föðmum, en líklega tækist það í sljettum sjó. Væri nú þetta skip haft þarna úti, seinnipart apríl, og fram eftir maí, tvær tíl þrjár vikur alls, og leitaði eftir fiski um sama tíma sem togararnir væru að fiska á kantínum, feng- ist væntanlega úr því skorið, livort fiskurinn færi þama um, Dagheimflli fyrír börn i Hafn- arftrði. í bæum og þorpum hjer á landi þurfa liúsmæður oft að ganga til algengrar vinnu utan heimilisins, við fiskþvott, fiskþurk o. fl. En kúsmæðurnar eiga oft erfitt með að skilja börn sín eftir heima, sjerstaklega — eins og oftast á sjer stað — ef þær hafa litla aðstoð við gæslu þeirra. Ur þessu hafa menn reynt að bæta með dagkeimilum. — Börnin koma á dagheimili á morgnanna og clvelja þar til kvölds og fá þar þá aðklynningu, sem þau þarfnast. Móðirin, getur því verið óhult um barn sitt á meðan hún er við vinnu sína. Dagheimili fyrir börn eru algeng erlendis og eru nú að ryðja sjer tíl rúms hjer á landi. Fyrir tveim árum gekst Yerka- kvennafjelágið Framtíðin í Hafn- arfirði fyrir því, að komið var upp dagheimili á sumrin fvrir börn á aldrinum 3—7 ára. Heim- ilið fekk til húsa í bæjarþings- salnum, en Þuríður Guðjónsdóttir veitti heimilinu forstöðu. Áhugasamar konur í fjelaginu liafa nú komið því til leiðar, að bú ið er að byggja myndarlegt hús fyrir daglieimilið og var það vígt s. 1. sunnudag. Húsið stendur utarlega í bæn- um á afgirtum bletti. I húsinu er einn stór salur fyrir börnin og eru húsgögn í honum v;ð liæfi barnanna, lítil og snotur. Auk þess e,r eldhús og baðherbergi liaganlega fyrirkomið. Sunnanvert við húsið er sólbað- skýli, þar sem börnin eru látin livílast klukkutíma á degi hverj- um eftír hádegismáltíðina. Börnin, sem eru öll á aldrinum 3—7 ára, koma kl. 7 á morgnana og fá þau fæði og aðra. aðhlynn- ingu, sem þau þarfnast til kvelds. Á hinu afgirta svæðl dagheim- ilisins eru rólur og’ sandkassar til leika. Þuríður Guðjónsdóttir veitir heimilinu forstöðu nú, eins og áð- ur, og hefir sjer tíl aðstoðar þrjár stúlkur. Vígsla hússins var haldin hátíð- leg með því að Yerkakvennafje- lagið hafði kaffiboð í hinum bjarta og- rúmgóða sal dagheimilisins. Var þangað boðið bæjarstjóm Hafnarfjarðar og barnaverndunar ráði, Barnaverndunarnefncl Reykja vílcur, fulltrúum dagblaðanna o.fl Fór hófið liið þesta fram og voru margar ræður haldnar. Síðar um daginn var húsið til sýnis fyrir almenning. Um kvöldið var dansleikur í Góðtemplarahús- inu til ágóða fyrir dagheimilið. Einnig voru mérki seld á götunum allan daginn. Morgunblaðinu er gleðiefni að geta óskað Hafnfirðingum til ham ingju með hið myndarlega nýja dagheimili. eða kæmi að botninum á ferð sinni vestur. Þetta væri vel þess virði, að reyna það, gagnið getur hver mað- ur sjeS ef árangur yrði. 30. maí 1935. Jón Sigurðsson. Jón Árnason, prentari. er sextugur í dag. Þá menn, sem gerst hafa braut- ryðjendur, á hvaða sviði sem störf þeirra hafa legið — skihu- samtíð þeirra ekki nema að Htlu leyti og kann því venjulega ekki að meta störf þeirra eins og vera. ber. Jón Árnason er einn af þeim mönnum. Hann er brautryðjandi um margar þær lífsskoðanir} sem samtíð vor metur að litlu, en síð- ari tímar því betur. Á jeg þar sjer staklega við: Guðspeki, talnaspeki, stjörnuspeki og glöggan og djúp- an skilnig á táknfræði (symbolik). Oll þessi fræði, er jeg nefndi hjer að framan, eru umfangsmeíri námsatriði og merkari en margnr hyggur og ótæmandi fræðslu- lindir þeim, sem í þeim vilja kafa. En fáa menn, lijer á landi, hygg jeg jafn fróða og áhugasama og Jón Árnason} um þessi fræði, og jafnvel þótt víðar væri ieitað. Jóri er sjálfmentaður, g-áfaður, glögg- ur og ráðhollur skapfestumaður og tryggur vinur vina sinna; fynd inn og gamansamur í kunningja- lióp, en heldur fast á skoðunum sínum og lætur ekki hluta sinn fyrir neinum, þegar honum finst málstaðurinn góður. Jón er ekki eins og fjöldixm — og liefir enga löngun til þess að líkja eftir honum. Hann fer sínar eigin götur og helst þær sem ó- troðnar eru. Þess vegna er hann ekki að allra skapi. En. vjer sem höfum átt því láni að fagna, að þekkja hann um mörg ár, vitum hver hann er: Maður, sem ekki vill vamm sitt vita í neinu. Yík- ingur við ritstörf og heill í hugsua og athöfnum. íslenska þjóðin á alt of fáa slíka menn. Þökk sje þjer} Jón Árnason, fyrir öll þau störf er þú hefir unnið til heilla þjóð vorri og þökk fyrir ágæta vináttu. Sigurður Ólafsson. Yfirlýiflng. Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að grein í Alþýðublaðinu í dag um brottrekstur starfsstúlkna á Elliheimilinu er á engum sann- leika reist, heldur er þar farið rangt með mál og vísvitandi reynt að láta líta svo út að starfsstúlk- ur þær, sem hlupu fjTÚrvaralanst frá starfi sínu, hafi verið reknar. Sumar stúlkumar eru og komn ar aftur á Elliheimilið og tekn&r við störfum sínum þar. 4- júní. Gísli Sigurbjömsson. Skipskaðar við Islandsstrendur árið 1934. í Áxbók Slysavarnaf jelagsins, fsem er nýkomin út, er skýrsla aim þá skipskaða, sem nrðu hjer við land árið seai leið. Eru þar talin 22 íslensk skip, sem hlekst ihefir á, 6 ensk, 1 þýskt, 1 franskt, :2 færeysk og eitt norskt. Af íslensku skipunum fórust 'tvö gufuskip, flutningaskipið Edda, sem strandaði 25. janúar vestanvert við Hornafjörð, og togarinn Walpole frá Hafnarfirði, ■sem strandaði við Gerpi, 16. sept- ■ ember. Ekkert manntjón varð við ’þessi strönd. Ellefu vjelbátar af ýmsum •ktærðum fórust alveg, flestir við •strand, en sjö vjelbátar, sem ■strönduðu, náðust út aftur og var ;gert við þá. Tvö gufuskip strönduðu, eu náð ust út aftur, Bjarki sem rak á lancl í ofviðrinu mikla í Siglu- firði 27. okt., og Súðin, sem •strandaði bjá Slcagaströnd 16. \des. Vjelskipið Elín sökk í Siglu- firði í rokinu 27. okt. en náðist upp aftur. Af ensku skipunum fórust þrjú, „,Sabie“ eftír árekstur við annan togara fyrir vestan Dýrafjörð' hinn 26. janúar, „HoIborn“ straudáði 25. okt. á Ásafjöru í Meðallandi, og „Macleay“. strancl- aði 29- olctóber í Ytrivíkum í Mjóafirði. Skipverjum af því bjargaði togarinn „Garðar“ frá Hafnarfirði, en skipverjum af Holborn björguðn menn úr landi. Af Sabic fórust 12 menn. Hin ensku skipin þrjú ströncl- ’uðu, en náðnst á flot aftur. Þýska skipið var togarinn „V odin“. Sökk liann 26. febr. fyrir sunnan land, en skipverjar ’komust í annan togara. Franska skipið var togari, sem1 stranclaði 10. apríl á Bæjarskers- eyri. Komst á flot af eigin ram- leik og til Reykjavíkur og var þar gert við hann. 27. mars fekk færeyska fiski- skipið „William Stefansson1 áfall j rnikið er braut bæði siglutrje, tók; út skipsbátinn og braut skipið. | Skipverjum bjargaði frönsk fiski- slcúta. Síðan kviknaði í færeyska slcipinu og það sölck. Hitt færeyska skipið hjet „Standa,rd“ og strandaði 12. maí yið Mánáreyjar. 13 menn af skipshöfninni voru fluttir á land í Lágey. Slcipið losnaði af grunni og ætlaði skipstjóri að sigla því á land, en það sökk á sundinu- Skipverjar, sem í því voru náðu landi hjá Máná á skipsbátnum, en hinum sem í eynni voru hjörg- uðu Húsvíkingar með mikilli hættu. Norslca skipið, sem talið er, er „Kongshaug", sem rak á land í Siglufirði 27. okt. Skipverjar björguðust og skipið náðist út og var selt og siglir nú undir íslensk- mn fána. Bændaflokkurinn gerir kröfu til að Stefán Stefánsson í Fagraskógi taki sæti Magnúsar Torfasonar. Blað Bændaflokksins ,Fram- sókn‘, sem kom út 1. þ. m., skýrir frá því, að á miðstjórn- arfundi flokksins 28. maí hafi verið samþykt í einu hljóði eft- irfai’andi ályktun: „Magnús sýslumaður Torfa- son, sem hlaut 1. upphótar- þingsæti Bændaflokksms viS Alþingiskosningarnar 24. júní f. á., hefir meS hrjefi dags. S. þ. m., tilkynt miSstjórn Bænda flokksins, aS hann hafi slitiS samvinnu viS flokkinn. Út af þessu ályktar miS- stjórn Bændaflokksins aS lýsa yfir því, að hún telur, að Magnús Torfason sje ekki lengur uppbótarþingmaður flokksins samkvæmt ákvæSum stjórnarskrár og kosningalaga, sem þar að lúta. Telur miSstjómin þar af leiða, aS varaupphótarþing- manni flokksins, Stefáni Stef- ánssyni bónda í Fagraskógi, tilfalli, eftir sömu lögum, þing- sæti það, er Magnús Torfason hefir setið í sem uppbótarþing- maður fyrir Bændaflokkinn.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.