Morgunblaðið - 29.09.1935, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.09.1935, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ til getað huggað sig við það að rjettarfarið í landinu hefir ekki komist inn á ofbeldisbraut lög- g j£,f arsamkundunnar. Nú lítur út fyrir að stjórnin hugsi sjer að svifta borgarana einnig þessu öryggi. Þegar skýrt er frá hinni nýju skipun Hæsta- rjettar í Reykjavíkurmálgagni dómsmálaráðherrans, segir að hinir nýju dómendur eigi að tryggja þjóðinni rjettlæti, í sam ræmi við „lífskoðun hins nýja tímai.“ Þegar nú þess er gætt, að á máli Tímamanna hefir orðið „lífsskoðun" og „stjómmála- akoðun“ altaf táknað eitt og hið sama, þegar litið er til þess hvemig þessar lífskoðanir hafa birst á Alþingi, og loks, þegar þess er minst, hvemig Tíma- menn hafa bölsótast yfir ýms- um dómum Hæstarjettar, sem dæmdir hafa verið að landslög- um, þá er ekki um að villast eftir hvaða reglum málgagnið, fyrir sitt leyti, ætlast til þess, að hinir nýju dómarar kveði upp dóma sína. Þýsk fyrirmynd. Þýski einræðisherrann hefir veitt dómurum sínum vald til að dæma dóma, þótt ekki eigi stoð í lögum, ef þeir samræm- ast „lífskoðun hins nýja tíma“ eins og hún birtist þar í landi. Þessi rjettarfársbreyting hefir vakíð ugg og undrun um allan mentan heim. Má það vera Hitler nokkur ánægja, að hjer í hinu íslenska „aríaríki“, skuli valdhafamir hafa svona1* skyldar rjettarfars- hugmyiadir.-' Nú skal engu um það spáð, hvort hinir nýju dómendur telja sig bundna af „erindis- brjefi“ því, sem birtist í mál- gagni dómsmálaráðherrans. Og að óreyndu verður að treysta því, að „lífsskoðun hins nýja tíma“ hafi þá fyrst úrslitavald yfir dómum Hæstarjettar, er hún hefir birst í lögum þjóðar- innar. „Ein króna tuttugu og sjö“ Ekki er langt síðan milli- þinganefnd sú, sem Búnaðar- þingið síðasta kaus til þess að rannsaka framleiðsiukostrað bænda, skilaði áliti sínu. Nefnd þessi, sem skipuð er þrem þjóð- kunnum íslenskum bændum, komst að þeirri niðurstöðu eft- ir þeim gögnum, sem fyrir lágu, að framleiðslukostnaður á kindakjöti væri kr. 1,27 á kg. Mörgum hnikti við, er hann sá þessa tölu. Því ef þessi nið- urstaða er rjett, þá virðist ekk- ert nema opinn dauðinn bíða landbúnaðarins með kjötið sem aðalframleiðsluvöru. Erlendir markaðir greiða ekkert í átt- ina til að samsvara þessu fram- leiðsluverði. Og innlendi mark- aðurinn er þess alls ekki megn- ugur, að standa undir þeim halla, sem verður á þeim hluta kjötsins, sem út er flutt. Má ekki reka landbún- aðinn vísindalega? Út frá þessu hefir sú spurn- ing hlotið að vakna hjá öll- um hugsandi mönnum, hvort rekstri landbúnaðarins væri ekfei eitthvað alvarlega ábóta- vant. Og svar flestra við þeirri spurningu mun verða það, að enn skorti mjög á að landbún- aðurinn sje rekinn samkvæmt kröfum tímans. Á síðustu árum hefir risið hjer upp ofurlítill stofn til vís- indalegs búrekstrar. Framtíð landbúnaðarins á hvað mest undir því að slíkri viðleitni sje vel tekið. En það undarlega hefir skeð að núverandi stjórn arvöld hafa gert sig líkleg til að kæfa þessa viðleitni í fæð- ingunni. Reynslan hjer og annarstað- ar sýnir, að nýræktarhey er engan veginn einhlítt, til þess að kýr nái hæstu nyt.Þessvegna gefa Danir og aðrar þær þjóð- ir, sem fremstar standa í land- búnaði, kúm sínum geysimikinn fóðurbæti. Nú hefir stjórnin fyrir milli- göngu innflutningsnefndar synj að bændum hjer í nágrenninu um innflutning á kraftfóðri. Er ekki annað sýnna, en að ríkis- stjórninni sje mikið í mun að hegna þeim mönnum, sem með mikilli fyrirhöfn og kostnaði hafa fært búrekstur sinn til nútímahorfs. Fyrsti einræðisherrann fallinn. Linnet heitir bæjarfógetinn í Vestmannaeyjum. Honum hef- ir stigið það svo til höfuðs, að hann er hjerumbil eins lítill og Napóleon, að hann hefir ráðist í að umturna öllu í ríki SÍI¥U. „Je suis l’empereur“, sagði Linnet, stakk hendinni í frakka barminn og setti hattinn þvers- um á höfuðið. Alveg eins og Napóleon. Og svo dró Linnet sverðið úr slíðrum. Niðurjöfnunarnefnd og skattanefnd fjellu í einu höggi. Síðan settist hann niður og fór að diktera: Þetta skal Jóhann hafa, þetta skal Gunnar hafa og, þetta skal jeg hafa. Á einni dagsstund breytti Linnet fimm hundruð útsvörum í Eyjum. Svo stóð hann upp og strauk sig fyrir speglinum. En Eyjamenn neituðu að borga, og skutu máli sínu til ríkisskattanefndar. Og ríkis- skattanefndin úrskurðaði allar aðgerðir Linnets tóma mark- leysu. Þá sagði Linnet: Water- loo! Svo sagði hann ekki meira þann daginn. Sumir einræðisherrar eru taldir valtir í sessi um þessar mundir. En þeir geta huggað sig við það, að svona fór líka fyrir „stóra manninum“ í Eyj- um, sem var hjerumbil eins lítill og Napóleon. DagbóÞ. T.O.O.F. 3 sl 179308 = 8l/i. 0 □ Edda 59351017 — atkv. Fjárhagsst.: Listi í □ og hjá S- Mtil mánudagskvölds. Veðrið (laugard. kl. 17): Við S-Grænland er djúp lægð á hreyfingu norðaustur eftir. Mun hún valda vaxandi SA-átt og rigningu hjer á landi, einkum suðvestan lands. Vindur er nú víðasthvar hægur A. Talsverð rigning austan lands en úrkomu- laust vestan lands. Hiti 8—10 st. Veðurútlit í Rvík í dag: Vax- andi SA-átt. Rigning öðru hvoru. Mænusótt. Bæjarfógetinn á Ak- ureyri hefir samkv. tillögum hjeraðslæknis og ákvörðun heil- brigðisnefndar bannað ungling- um undir 15 ára að sækja opin- berar samkomur, svo sem dans- leiki, bíó og aðrar skemtanir. Jafnframt skorar hann á „ alfan almenning, að sækja ekki sam- komur á meðan þessi ægilega veiki stendur yfir. Valur — K. R. Kappleikurinn milli K. R. og Vals, sem fer fram í dag, verður kl. 2 en ekki klukk- an 4, eins og áður var skýrt frá. Gagnfræðaskóli Reykvíkinga. — Kennarar skólans eru beðnir að koma til fundar í kennarastof- unni kl. 10 á inánudagsmorgun til undirbúnings bekkjarprófun. Kolaskip kom í fyrradag til Hafnarfjarðar, með kol til Versl. Einars Þorgilssonar. Síldarsöltun við Faxaflóa. Á föstudagskvöld var alls búið að salta í um 16 þús. tunnur af síld í verstöðvunum við Faxaflóa. 4000 síldartunnur, tómar; voru settar á land í Hafnarfiíði úr Dr. Alexandrine í fyrradag. Áður voru komnar 1000 tunnur. Er ætlunin að reýna að veiða sild í þessar tunnur; eru 6—8 bátar komnir frá Norðurlandi til þess, að stunda síldveiði frá Hafnar- firði. Alls munu 10—12 bátar stunda síldveiði þaðan. Eimskip. GuUfoss er á leið til Leith frá Austfjörðum. Goðafoss: fór frá Akureyri síðdegis í gær til Húsavíkur. Brúarfoss fór aust- ur um land í hringferð í í gær kvöldi. Dettifoss fór frá Ham- borg í gær á leið til Hull. Lágar- foss kom til Djúpavogs í gærnjiorg- un kl. 10—11. Selfoss fór frá Leith í gær á leið til Vestmannaeyja. Jón Sigurðsson alþm. á Réyni- stað kom til bæjarins í fyrrakvöld óg fer nú að vinna í fjárveitinga- nefnd. Jónas Guðmundsson á Norðfirði er einnig nýkominn til bæjarins, til þess að vinna í nefnd inni. Vantar þá aðeins Bjarna Bjarnason á Laugarvatni, til þess að fjárveitinganefnd sje full skipuð. Gullfoss fór frá Eskifirði í gær síðdegis áleiðis til Leith, en til Eskifjarðar fór skipið til þess að taka þar dönsku landmælinga- mennina, sem vpru á Austfjörðum í sumar. Gamla Bíó, sýnir þessa dagana danska taL'Ogt hljómmynd, sém í dönskum blöðum hefir hlotið lof- samlega dóma. Mynd þessi hefir verið nefnd Mdjónaarfurinn, og leikurv.’ aðalhlutverkið hinn góð- kunni gamanlekari GhrA Arhoff, sem hvergi verður ráðafátt. í þessu tilfelli kemur hann í veg fyrir, að miljónirnar, sem voru 30 talsins fellu í skaut fjárglæfra- manna. En ekki mátti tæpara standa, því til þess varð hann að snúa skemtiferðaskipinu „Staf- angerfjord" hring eftir hring um há nótt, áður en það slapp yfir dagbauginn (Dato-Linien). En hvað Arhoff varð að þola til að komast að stjórnveli skipsins, munu bíógestir skemta sjer við að sjá og heyra. Þó skal það tek- ið fram, að sorglegt augnablik er hvergi í myndinni. — Myndina hefir tekið hinn heimsþekti kvik- myndasnillingur Paul Fejos. Þóroddur Guðmundsson frá Sandi, sonur Guðmundar skálds, hefir verið settur kennari við al- þýðuskólann á Eiðum um eitt ár, frá 1. okt. þ. á. að telja Styrkþegar í Hafnarfirði halda fund í Goodtemplarahúsi Hafnar- fjarðar í kvöld kl. 81/2, til þess að ræða um mötuneyti bæjarins. Sunnudaginn 29. sept. 1935. Ný bók. Jón ófeigsson: Þýsk-íslensk orðabók, 944 bl& í stóru broti. Verð í ljereftsbandi kr. 25.00, í skinnb. kr. 29.00 Fæst hjá bóksölum [Bóhaverslun Sigfúsar Eymundssonar og Bókabúð Austurbæjar, B. S. E., Laugaveg 34. 508 Afsláttur 508 Nú gefum við helmings afslátt af öllum fyrirliggj- andi glerjum og umgjörðum. Til dæmis Celluloid um- gjarðir með gyltum eyrnagormum, sem hafa kostað kr. 13,25, eru nú seldar fyrir kr. 6,65 o. s. frv. Skoðið vörur vorar og sparið helming krónunnar. Komið og notið tækifærið. Gleraugnasalan, Lækjargötu 6 B. gegnt Amtmannsstíg. ...........I.. „ , V' /■.'■’ tí; <.;//! '5 jf (1:1 Vf Vinber koma þann 30. þ. m. Alfeins lítið Oselt. Eggert Knstjon-,son & Cö Sími 1400. .. Okkar ágæfa Rúgmjöl frá Aalborg Ny-Dampsmölle, kemur nú með e.s. Brúarfossi Geta því allir viðskiftavinir okkar, sem hafa pantað það, fengið það eftir daginn á morgun. ,v i, - I Ný saumasfofa. Tek að mjer að sauma samkvæmiskjóla. Sel tilbúna kjóla og Kápur. Lá retta Hjtggan, Austurstræti 3. (Gengið inn um sömu dyr og í úrsmiðaverslun Haraldar Hagan).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.