Morgunblaðið - 23.10.1935, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.10.1935, Blaðsíða 6
e MORGUNBLAÐIÐ Litil sölubúð til leigu í verslunarhúsi Garðars Gíslasonar Hverfisgötu 4. Hin árlega bæna- og sjálfsafneitunarvika Hjálpræðishersins er í ár frá 27. október til 2. nóvember. Gjafir til starfsins verða meðteknar með þakklæti. Lifur og hjörtu, Nýr Mör, Nýtt Dilkakjöt, ór Borgarfirði. Kjötbúðin Herðubreið. Hafnarstræti 18. Sirni 1575. ■IVMIIIUIIIIIMMIinilllNllllllltlllllllHINIIItNMtllllltlHIIIIIMIIIIt IHIIIUUIIIIIIIUIIIIUHIMMIIIIIIIMIIIIIIIMIUIIIIMHIIUIHMIIIIIIMr jplorflmtklaíúð er lang ffölbreytt- asta og áreiðan- legasta frfetta- blaðið. Nýir kaupendur fá blaðið ókeypis til næstkomandi mánaðamóta. Hringið í síma 1600 og gerist kaupendur. IIIMIIMmiMtmMIIIIIMIimillMIIIIIMMIMimmiMIMIIIIIIMIIIIIIIi milimilirilMIIIIMIIIIimMIIMIMIIIMtMllllllMMMMIIMMIIMmiMII má slíkt eigi eingöngu þakka heimavist, en samt að nokkru. í óprentaðri sögu Möðruvalla- skóla og hins norðlenska menta- skólamáls hefi jeg gert grein fyr- ir reynslu minni og skoðun í þessu efni, eins óhlutdræglega og mjer var unt. En á því eru mörg vandkvæði, að sumir nemendur bói í bænum, en sumir í skólan- um. Með því er að nokkru Sund- urslitið lögunum, sem þeir lúta. Með slíku lagi verður skólinn tvö ríki. Heimasveinar verða skóla- stjóra kunnugri, skólanum tengd- ari, nákomnari. Af þessum rökum og af fleirum ástæðum er það hugsjón mín og framtíðardraumur, sem rætist þó naumast á húsbóndaárum mín- um hjer, að allir nemendur sofi í heimavist og snæði þar saman árbít sinn. Slíkt mundi stórum auka kynni nemenda, efstubekk- inga og neðstubekkinga. Mætti, af skólastjórnar hálfu, sitthvað gera til glæðingar slíkri viðkynningu. Má og eigi gleyma því, að illa 8ofinn unglingur hefir kenslunnar eigi fullkomin not. Heimavist bægir frá hæjarrápi á síðkvöld- um. Það er og ekki altaf holt hálf- stálpuðum nemendum, að láta myrkrið eitt og nóttina gæta sín. Fimm menn farast I ketil- sprengingu. Oslo, 22. okt. FB. Sprenging varð í gær í skipi j Bergenska „Ursa“, sem liggur til viðgerðar 1 stöð fjelagsins við Lakasevaag. Fimm verkamenn biðu bana, en margir meidd- ust, sumir alvarlega. „Donkey“-ketillinn brotnaði í ótal stykki við sprenginguria. Kynt var undir kötlum skipsins í gærmorgun, því að taka átti skipið í þurkví. Sjerfræðingar eru þeirrar skoðunar, að ekki komi til mála, að orsök sprengingarinnar hafi verið of mikill gufuþrýstingur. Er líklegast talið, að spreng- ingin hafi orðið í kolum. Rlfretðarslys á Akureyri. Drengur slasasf. AKUREYRI í GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. í dag varð bifreiðaslys hjer á Akureyri. Yörubíll ók yfir drenghnokka, og fór bifreiðin yfir báða fætur drengsins. Fæturnir eru óbrotnir en tölu- vert marðir. Talið er að drengurinn hafi átt sökina. Kn. Um fræðslu í kynferðilegum efnum bæti jeg því, að lyktum, við, að jeg þekki merka lækna — og það fleiri en einn —, sem jeg trúi fullkomlega til að tala af alvörugefnum huga alvörumikil orð um þessi örlögmiklu rök. En líklegt þykir mjer, að fyrir mörg- um færi erindi í þessum efnum í handaskolum, snerust í glanna- eða gáskavaðal eða þá í öfgamál, sem ógnaði með fári og voða auð- trúa sálum. í skógarlundum Lofnar liggja margar villigötur og örðugt að lýsa þeim myrkvið, svo að rjett og rólega sje frá sagt og frá skýrt. En þó að vandi sje hjer á fræðslu, má eigi sleppa henni. Ætla jeg heppilegast, að merkur læknir með næman skilning á mannlegum efnum væri fenginn til að semja einskonar kynferði- legan „katekismus“, er hverju ungmenni, sveini og meyju, væri gefinn, er þau væru komin á til- tekið aldurskeið. Síðan ættu valdir menn að fara rækilega yf- ir bæklinginn, leiðrjetta hann og rýna, áður en hann birtist á prenti. Landlæknir ætti að hlut- ast til um, að hann yrði saminn og gefnin út. Sigurður Guðmtmdsson. Carson látinn. London, 22. okt. F. Ú. Carson lávarður andaðist í dag, 81 árs að aldri. Edward C'arson lávarður. Hann var fæddur 1854. Var þingmaður fyrir Dublinháskóla frá því 1892—1918 og þingmaður Duncairn í Ulster 1918—’21. Dómsmálaráðgjafi fyrir írland 1892—’93 og fyrir England 1900 —’05. Flotamálaráðherra 1916— ’17, átti sæti í hernaðarráðu- neytinu 1917—’18. /Kunnastur er hann. fyrir and- stöðu sína gegn heimastjórnarlög- unum írsku. Varð hann þá for- ingi Ulster-manna, sem vildu halda sambandi við England, og hafði í hótunum, um vopnaða upp reisn gegn stjórninni, ef heima- stjórnarlögin ætti að gilda fyrir Ulster. Hafði hann sitt fram, að Ulster gekk úr írska samband- inu. Hann var aðlaður árið 1921. Óeirðir í nýlendu Breta í Vestur-lndium. London, 22. okt. FÚ. Alvarlegar óeirðir urðu í gær í bresku nýlendunni St. Vincent, í Vestur-Indium. Hófust þær í gærmorgun með því, að svartir verkamenn lögðu niður vinnu og fóru í kröfu- göngu. Heimtuðu þeir betri vinnu- kjör og hækkað kaup. Lögreglan reyndi að dreyfa mannfjöldanum, en þá lenti í róstum, og síðar um daginn varð annað upphlaup. Alls hafa 10 manns látið lífið í óeirðunum, en fjöldi manna særst. Á St. Vincent búa um 60 þús- und manns, og er aðal atvinnu- vegurinn sykurrækt. Fellibylur veldur *trtrffónl i Aþenu. Kalundborg, 22. okt. FÚ. Hvirfilbylur geisaði yfir Aþenu í dag, og var skæðastur í einu úthverfi borgarinnar. — Eyðilagðist þar þak á nálægt hverju húsi. Skaðinn er stór- kostlegur, og margir menn slös- uðust. ________________Miðvikudaginn 23. okt. 1935. Fyrirliggf andi: Vínber — Laukur. Karföflur, islenskar. » Eggert Kristjdnsaon & Co. Sími 1400. Vöggukvæöi úr sjónleiknum „Piltur og stúlka“, eftir EmiE Thoroddsen, er komið út. — Verð kr. 2.00. Bókaveralun Sigfúsar Eymundssonar og Bókabúð Austurbæjar, B. S. E., Laugaveg 34 (íuðm. Kamban. Skálholl III.-IV. bundið saman í skinnband, er nú komið í bókaverslanir. Einnig örfá eintök til af I.—II. bindi í skinnbandi. Þetta ágæta verk, sem hvarvetna hefir fengið góða dóma, er valin tækifærisgjöf. Flokksfundir Sjálfstæðismanna ð Stokkseyri og Eyrarbakka. Að tilhlutun Varðarfjelagsms fóru nokkrir menn úr fjelaginu og hjeldu fund með flokksmönnum á Stokkseyri og Eyrarbakka á snnnudaginn. Aðsókn var góð á báðum stöðum. Mættu um 80 manns á Stokkseyri og um 70 á Eyfarbakka. STOKKSEYRARFUNDUR- INN. Málshefjandi var Hallgrímur Jónsson frá Bakka. Flutti hann rökfasta og skorinorða ræðu um afstöðu Sj álf stæðisflokksins til annara flokka og starfsemi flokks- ins yfir höfuð. Auk frummælanda fluttu ræður, Jóhann Möller, bók- ari rafveitunnar og talaði um starfsemi ungra Sjálfstæðismanna og þýðingu þeirra fyrir flokkinn. Sólmundur Einarsson talaði um framkvæmd afurðasölunnar innan- lands. Jón Norðmann kennari, talaði um sósíalistastefnuna í öðr- um löndum, hæði kommúnismann og hina sósíaldemókratisku stefnu. Sigurður Björnsson frá Veðra- móti talaði um samvinnu sjávar og sveita. Af innanhjeraðsmönn- um talaði Þorgeir Bjarnason frá Hæringsstöðum og sýndi fram á tjón það, sem bændut hefðu af framkvæmd afurðasölulaganna. Þakkaði að lokum Reykvíking- um komuna. EYRARBAKKAFUNDUR- INN. Þar var Guðmundur Benedikts- son, form. Varðarfjelagsins, máls- hefjandi. Hann talaði í frum- ræðu sinni aðallega um viðhorfið í stjómmálunum og var ræða hans einkar glögg og skilmerkileg. Auk hans, Valdimar Hersir, að- allega nm bitlingahjörið rauðá liðsins, Vigfús Guðmundsson um fjármálin, Stefán A. Pálsson um innflutriings- og gjaldeyrismál, ennfr. talaði Ólafur Oddsson. Af innanhjeraðsmönnum töluðu Frið- rik Sigurðsson Gamla-Hrauni um útgerðarmál, Björn Bl. Guð- mundsson um flokksstarfsemina og Lúðvík Norðdal læknir, um skipulag flokksstarfseminnar o. fl. — Fundurinn fór vel fram og var Reykvíkingum þökkuð koman og þess vænst, að framhald yrði á slíku samstarfi. Danir auka við- skifli sin við ís- land, en verslun íslendinga við Dani minkar. Kaupm.höfn, 22. okt. FÚ. Skýrsla, sem sendiherra Dan- merkur í Reykjavík hefir gefið um utanríkisverslun Islands, birtist í dag í danska blaðinu „Bötsen“. Sýnir skýrslan að Danir auka kaup sín á íslandi, en jafnframt dregur úr kaup- um Islendinga í Danmörku. Blaðið „Börsen“ ritar um skýrsl una á þá leið, að hún sje sjer- staklega eftirtektarverð nú, þar sem samningar standi yfir milli þessara tveggja þjóða, um það að Danir auki kaup sín á íslandi. Eimskip. Gullfoss fór frá Akur- eyri í gærkvöldi. Goðafoss var væntanlegur frá Hull og Ham- borg kl. 3 í nótt. Brúarfoss fór frá London í gær á leið til Leith. Dettifoss fór frá Vestmannaeyj um í gærmorgun kl. 8, áleiðis til Hull. Lagarfoss var á Bakkafirði í gær. Selfoss er í Kaupmanna- höfn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.