Morgunblaðið - 27.10.1935, Blaðsíða 6
6
MORGUN BLAÐIÐ
Olafnr Thors:
Bjar^rá()i5.
Frh. af 5. síðu.
merkilegar. Þar er öllu snúið
öfugt. Rógur, dylgjur, ósann-
indi, alt hvað innan um annað,
klætt tötrum öfundar og ó-
slökkvandi heiftar sjukrar sál-
ar, — í stuttu máli, ein óslitin
óþverra slepja þessarar allra
alda andstyggilegustu Leitis-
Gróu, — rjett lýst með orðum
eins þingmanns Framsóknar-
flokksins sem sagði að sig
flökraði vi5 lesturinn. Vopnin
sem beitt ér, — málstaðurinn
«em þeim er beitt gegn, alt er
þar á eina vísu. öll boðorð sið-
gæðis og dTengskapar eru brot-
in, og alt í því skyni að reyna
að ryðja fótunum undan þeirri
sjálfsbjargarviðleitni útvegs-
manna sem þeir og allur al-
menningur í landinu eiga alt
undir að sem best megi famast.
Svona rjett til dæmis má leiða
athygli að umtalinu um Spánar-
samningirin. Jónas Jónsson gef-
ur í skyn áð samband sje milli
6% gjaldsins til verðjöfnunar-
sjóðs og samninganna við Spán,
og segir beinlínis að það sje
Ásgeir Ásgeirsson og Ric-
hard Thors sem hafi komið á
því gjaldi.
Jónas Jónsson veit, að samn-
ingana við Spán hófu af hálfu
íslands þeir Sveinn Björnsson
sendiherra, Helgi Briem fiski-
fulltrúi og Richard Thors, en
nokkru síðar og áður en nokkr-
ar ákvarðanir voru teknar bætt
ust þeir í hópinn Magnús Sig-
urðsson bankastjóri og Helgi
Guðmundsson. Jónas Jónsson
▼eit að allir þessir menn voru á
einu máli og gerðu sameigin-
lega tillögu til ríkisstjórnar-
innar. Jónas Jónsson veit að
hann sjálfur og alt Alþingi hef-
ir samþykt þessa samninga og
ekki aðeins það, heldur óskað
eftir og fengið þá endurnýjaða
fyrir árið 1935. Og loks veit Jón
as Jónsson að Ásg. Ásgeirsson
er fjarverandi, en Rich. Thors
er bundinn þagnarheiti um
alla þá utanríkissamninga sem
hann hefir gert fyrir hönd fyr-
verandi og núverandi stjómar
vegna Islands, og að Richard
Thors getur þannig ekki birt
skjöl og skilríki, er að þessum
málum Iúta. Slík aðstaða til
að rógbera fyrv. forsætisráðh.
landsins sendi- og samninga-
menn þjóðarinnar er ákjósan-
leg, — úr því að til er svo sið-
laus óþokki að hann telji sjer
fært að hagnýta slíka aðstöðu
— og það úr hópi þeirra sem
eigi aðeins hafa samþykt samn-
ingana, heldur líka óskað eftir
framlenging þeirra.
Dæmið hann milt.
Það er ógæfan í lífi Jónasar
Jónssonar, sem stýrt hefir
penna hans nú eins og oft áður.
Það er þetta innræti Jónasar
Jónssonar, sem frami hans hefir
hnotið um í hvert sinn er á
hefir hert.
Eða af hverju halda menn
að það hafi verið, að þegar
flokkur Jónasar Jónssonar tók
við völdunum 1927, var aðeins
einn þingmanna á því að fela
honum forystuna, — hann sjálf
nr!!
Hvers vegna yarð óreyndur
ungur maður forsætisráðherra,
og barnungur piltur fjármála-
ráðherra í fyrra?
Hvers vegna var þingflokkur
Framsóknar í fyrra kominn á
fremsta hlunn með að víkja
Jónasi Jónssyni úr formanns-
sess?
Hvers vegna hefir hann inn-
an síns eigin flokks beðið hvern
ósigurinn af öðrum, fyrst fyrir
Ásgeiri Ásgeirssyni, svo fyrir
Jóni í Stóradal, Hannesi og
Þorsteini Briem og nú fyrir Her
manni og Eysteini?
Hvers vegna?
Það er vegna þess að sam-
herjana blátt áfram hryllir við
innræti Jónasar Jónssonar, ó-
sannsögli hans, róghneigð og
taumlausu hatri.
En fyrir það er nú á þetta
minst, að þess er vænst, að þeir
sem ekki þekkja innri mann
Jónasar Jónssonar, fylgi for-
dæmi þeirra er gerst til þekkja.
Fari svo mun enginn leggja
trúnað á rógburð hans um S. 1.
F., og skrif hans verða skað-
laus að því er inn á við veit.
Úr hinu sker reynslan hvort
skrif hans verða áhrifaríkari út
á við. En leiði þau bölvun yfir
þjóðina, er enginn öfundsverð-
ur af því að vera Luxusflakk-
arinn á Islandi.
Jónas Jónsson hefir nú ráðist
á þá starfsemi, sem fært hefir
þjóðinni fleiri miljónir en hann
sjálfur eyddi í heimildarlaust
sukk. Með því hefir hann reynt
að beita öfund og rógi gegn
lífsskilyrðum þjóðar sinnar.
Hann dæmi jeg ekki hart.
Aðrir sem slíka iðju stunda
nefnast þjóðnýðingar.
Ólafur Thors.
Abyssinía:
Framh. af 3. síðu.
neitað að hverfa af landi brott
fyr en allir erindrekar ítölsku
stjórnarínnar væru komnir burt
úr Abyssiníu.
Mun sendiherranum hafa
staðið beygur af örlögum No-
bile, sem ljet bjarga sjer í
Norðurhöfum, á undan fjelög-
um sínum. Páll.
Mussolini skjallar
bændurna.
London 26. okt. F. Ú.
Mussolini ávarpaði í dag þús-
undir bænda, af svölum Feneyja-
hallarinnar í Rómaborg. Haþm
sagði m. a.:
„Aldrei í sögu ítalíu hefir
þjóðin skilið betur köllun sína,
nje rjettmæti þeirrar kröfu, sem
til hennar er gerð“.
Þá brýndi Mussolini það fyrir
þeim, að bændurnir, og hið ó-
brotna fólk, væri mergur þjóð-
arinriar.
„Það hafa verið gerðar marg-
ar tilraunir til að sanna, að jeg
sje kominn af hinum fomu höfð-
ingjum Rómverja. En foreldrar
mínir, og foreldrar þeirra, og ætt-
feður mínir um margar kynslóð-
ir, voru bændafólk.
Jeg er einn af yður, og tel
mjer það til sóma“.
Uppreisnin á Krít
bæld niður.
Uppreisnin á Krít hefir verið
bæld niður. Er nú alt með kyrr-
um kjörum á eyjunni.
Yoru fregnirnar um uppreisn-
ina orðum auknar. Bændur
höfðu dregið lið saman og ráðist
á lögreglulið stjómarinnar. Lög-
regluliðinu tókst innan skamms
að afvopna hændurna.
(Uited Press. F. B.).
ísfisksalan til
Þýskalands.
Vegna velvilja þýsku stjórn-
arinnar, fáum við að flytja
til Þýskalands á þessu ári
fyrir 40 þús. Rm. meira en
samningar tilskyldu.
Eins og kunnugt er, var svo
ákveðið í viðskiftasamningum vor
um við Þýskaland, að við mættum
selja ísfisk ' í Þýskalandi fyrir
200 þús. ríkismörk á mánuði,
mánuðina ágúst, september, okt-
óber og nóvember.
ísfiskssalan í Þýskalandi hefir
gengið mjög að óskum undanfar-
ið, markaður hár og aldrei brugð-
ist sala þar. Hefir þessi Þýska-
landssala verið stórhjálp fyrir
togaraflotann og þjóðina í heild.
Nú var hinsvegar svo komið,,
að búið var meira en að fylla það
sölumagn, sem við máttum selja í
Þýskaland til loka októbermán-
aðar, meira að segja var búið að
selja fyrir 40 þús. Rm. fram yfir.
Samkvæmt samningnum áttu 40
þús. Rm. að dragast frá nóvem-
bersölunni, þannig að við fengjum
ekki að selja þann mánuð fyrir
meira en 160 þús. Rm.
Ríkisstjórnin fekk Jóhann Þ.
Jósefsson til þess að reyna að fá
þetta lagfært, þannig að við fengj
um að halda allri nóvembersöl-
unni.
Jóhanni hefir nú tekist að fá
það sem um var beðið. Mega út-
gerðarmenn selja fyrir 200
þíis. Rm. í nóvembermánuði og
enginn frádráttur verði þar gerð-
ur.
Eru útgerðarmenn þakklátir
Jóhanni fyrir þessa dyggilegu
aðstoð og geta nú tvö skip bæst
við í hópinn til Þýskalands í
næsta mánuði.
Þótt hjer sje ekki um stórmál
að ræða, sýnir það engu að síð-
ur velvilja þann, sem þýska
stjórnin ber til okkar íslendinga.
Skattur á ólæsa menn.
Eins og kunnugt er, eru marg-
ir menn í Kína, sem hvorki kunna
að lesa eða skrifa. Stjórnin liefir
gert hverja tilraunina á fætur
annari, tii að reyna að bæta úr
þessu menningarleysi, en árangur-
inn hefir verið sáralítill.,
Þó er nú svo ástatt að annar-
hvor Kínverji er læs og skrifandi.
Yfirvöldin í Kína ljetu nýlega
þau boð út ganga, að eftir 1. maí
yrðu ólæsir menn að greiða sjer-
stakan skatt.
Skatturinn er ekki hár, en þó
svo að fátækum mönnum mun
þykja nóg um.
sr
Sunnudaginn 27. okt. 1935.
Fermingarbörn í dag.
í Dómkirkjunni kl. 11.
Drengir:
Bergur T. Þorbergsson, Fisch. 1.
Brynjólfur Magnússon, Suð.p. 44.
Guðm. Gunnsteinss., Nesi Seltj.nesi
Guðm. Þ. Sigurjónss., Ártúnum.
Hannes. Þ. Thorsteinss., Skól.v. 45.
Ilelgi I. Elíasson, Óðinsgötu 9.
Högni Jónsson, Ránargötu 8.
Hörður Sigurjónsson, Bankastr. 2.
ívar Daníelsson, Ránargötu 19.
Jón Bjarnason, Túngötu 16.
Kári Gunnarss., Barónsstíg 33.
Magnús A. Magnúss., Vesturg. 66.
Matthías Guðmundsson, Lind.g. 7.
Osvald Wathne, Hallveigarstíg 8.
Ragnar Jónsson, Eiríksgötu 27.
Ragnar F. Kristjánss., Laugav. 76.
Sverrir J. Símonarson, Holtsg. 12.
Þórhallur I. Einarss., Bakkastíg 1.
Þorlákur V. Guðgeirss., Kárast. 3.
Þorlaugur R. Guðmundss., Hvg. 112.
Stúlkur:
Anna M. Cortes, Hringbraut 210.
Ásta S. Magnúsd., Framnesv. 32.
Axelma G. Jónsd., Framnesv. 32.
Clara Olsen, Bergstaðastræti 42.
Einara Þ. Einarsd., Nönnug. 4.
Hólmfríður Þorfinnsd., Bergþ. 41.
Jóhanna B. Jóhannsd., Þrast.g. 5.
Kristine Eide, Grettisgötu 55.
Lydía B. Þórhallsd., Bergst.str. 59.
Margrjet Ingimundard., Bárug. 32.
Margrjet Á. Snælaugsd., Y.g. 26 A
Ólöf S. Kristófersd., Laugav. 67.
Rósa Pálsdóttir, Framnesv. 25.
Sigríður E. J. Guðmundsd., Selb. 4
Sigríður Pjetursd., Framnesv. 38.
Svanfríður Guðjónsd., Berg.st. 48.
Þorbjörg Guðjónsd., Laugav. 165.
1 Dómkirkjunni kl. 2.
Piltar:
Ásgeir Þ. Magnússon, Njarðarg. 7.
Axel Thorarensen, Laufásveg 31.
Einar G. Eggertss., Bergþ.g. 55.
Garðar Karlsson, Fjólugötu 15.
Guðm. J. Jóhanness., Framn.v. 52.
Guðm. Sigurjónss., Hverfisg. 57 A.
Karl J. Júlíusson, Sjafnargötu 5.
Knud Har. Einarss., Laugav. 159.
Knútur Ármann, Klapparstíg 11.
Kristján Þ. Berndsen, Fjólug. 15.
Sigurður H. Lúðvíkss., Fjólug. 15.
Sig. R. Sigurjónss., Hverfisg. 57 A
Stúlkur:
Anna Guðmundsd., Bjarnastöðum.
Anna A. Gunnarss., Suðurg. 8.
Anna G. Jónsdóttir, Laugav. 73.
Áslaug Gunnarsd., Austurstr. 8.
Guðfinna E. Magnúsd., Rvíkurv. 7
Guðr. S. Þorvaldsd., Hverfisg. 30.
Gunnh. I. Bjarnas., Suðurg. 5.
Sigríður Guðvarðsd., Ásvallag. 27.
Sigrún Einarsd., Skólastræti 5.
Steinunn I. Guðm.d., Þjórsárg. 1.
Unnur Guðmundsd., Vesturg. 52 B
Þorkatla J. A. Carlss., Rán.g. 5A.
Þuríður Guðm.d., Thorvalds str. 4.
Fríkirkjan.
Drengir:
Guðjón B. Ólason, Bergst.str. 10
Haukur F. Guðjónss., Grettisg. 47.
Hörður Ólason, Bergst.str. 10.
Jóhann B. Ólafsson, Þórsg. 21.
Jón S. Alexandersson, Laugav. 58.
Jón H. Bárðarson, Bragag. 33 A.
Jón M. Þorlákss., Njálsg. 51B.
Karl H. Olsen, Bræðrab.st. 14.
Karl Ág. Torfason, Fálkag. 10 A.
Kristinn II. Guðbjömss., Ásv.g. 16
Ólafur G. Grímsson, Bergst.str. 10
Ólafur Ingi Jónsson, Fálkag. 25.
Ólafur Maríusson, Bráv.g. 6.
Pjetur R. R. Y. Káras., Grett 18 B
Ragnar Bjamason, Norðursi 7.
Sig. G. Ingólfss., Framnesv. 36.
Sigurður Jónsson, Þrastarg. 1.
Sigurjón Sveinss., Laugav. 128,
'Þcrrvarður Jónsson, Öldug. 26.
Stúlknr:
Aðalh. M. Magnúsd., Dal, Múlar.
Áldís Jóna Ásmundsd., Hverf. 58.
Anna Sigr. Teitsd., Garðastr. 21.
Ámey Bjömsd., Kárast. 8.
Ásta G. Guðmundsd., Lokast. 25.
Bjarney Ág. Jónsd., Bókhl. 7.
Elín Ingvarsd., Hellus. 7.
Erna Jónsd., Freyjug. 27 A.
Guðfinna Einarsd., Grettisg. 53 B.
Guðrún E. Arnbjamard., Vatnsst. 9
Fjóla Jónsdóttir, Laugaveg 81.
’Guðfínna P. Eyjólfs, Barónsst. 55.
Gúðrún M. J. Viðvík, Laugan.v.
Guðr. H. Vilhjálmsd., Lindarg. 1 B
Hanna S. Kristvinsd., Grjót. 4.
Banna Fr. Sigurjónsd., Þórsg., 6.
Helga S. Eysteinsd., Lauf. 10.
Ingunn Símonard., Hringbr. 70.
Jóhanna Brvnjólfsd., Skólav. 44.
Jóhanna H. Lárasd., Bræðrab.st 41
Katrín Sigurðard., Hverfisg. 16 A.
Kristín P. Bernburg, Njálsg. 72.
Kristín Guðmundsd., Bergþ.g. 20.
Ragnheiður Guðnad., Barónst. 14.
Sigríður Kjartansd., Þórsg. 15.
Sigrún Markúsd., Sólvallag. 6.
Guðrún S. Samúelsd., Laugav. 53.
Þóra Sigr. Jónsd., Laugav. 147 A.
Þórdís Gestsdóttir, Hverfisg. 121.
+ -Mr +
GuIIsmiðirnir í Abyssiníu
eru fyrirlitnir.
í Abyssiníu eiga gullsmiðirnir
ekki sjö dagana sæla.
Þó einkennilegt megi virðast
eru þeir fyrirlitnir. Jafnvel þó
þeir sjeu auðugir menn, gengur
fólk úr götu fyrir þeim, eins og
þeir væru haldnir pest.
Það er æfagömul hjátrú í Abyss
iníu að gullsmiðimir eigi sök á
pestum, og fyr á tímum vom þeir
oft teknir af lífi ef umferðarveiki
braust út í landinu. Jafnvel nú á
tímum kemur það fyrir að þeir
eru settir í fangelsi undir slíkum
kringumstæðum. Það er yfirleitt
litið á þá sem vonda og hættu-
lega menn.
Ef til vill halda Abyssiniumenn
að list þeirra standi í sambandi
við gjörningar; en hvemig sem á
því stendur, hefir 2000 ára kristni-
dómi ekki tekist að ráða niður-
lögum hjátrúarinnar.
Þjófar á nóttu.
Mr. Lester Smith í Jaeksonville,
Florida, vaknaði eina nótt um dag
inn við að konan hans sagði:
„Mjer heyrðist vera umgangur í
í húsinu, ætli það sjeu ekki þjóf-
ar“? Hann tók skambyssu sína
og fór að athuga íbúðina. Þegár
hann kom inn í eitt herbergið
heyrði hann að hurðin skall að
baki honum. Hann sneri sjer
þegar við og skaut af byssunni.
Skotið hitti konu hans, sem hafði
komið á eftir honum.
Kallað var á lækni og isjúkrabíl
ög ekið til riæsta sjúkraliúss.
Skotsárið reyndist ekki hættulegt.
En þegar heim kom höfðu inn-
brotsþjófarnir haft alt verðmæti
úr íbúðinni á brott með sjer.
í»