Morgunblaðið - 10.11.1935, Page 3
Sunnudaginn 10. nóv. 1935.
MORGUNBLAÐIÐ
Lloyd George Fiamast
gegn ensku þjóð-
stjórninni.
Úr kosnin^a-
barállu Brela.
$jálf«iblekking að
frúa Á refsiað-
gerðirnar!
London, 9. nóvember.
öldungurinn David
Lloyd George rjeðist
með fádæma hvassyrð-
um á ensku þjóðstjórn-
ina í kosningaræðu, sem
hann hjelt í gær.
Var hann ómyrkur í máli um
þjóðstjómina, sagði að hún
hefði gengið veg blekkinganna
frekar en nokkur ríkisstjóm
önnur, sem hann hefði haft
kynni af.
Einnig var David Lloyd Ge-
orge mjög beiskyrtur um refsi-
aðgerðirnar, sem breska stjórn-
in hefði haft forgöngu í að
stofnað var til af Þjóðabanda-
laginu.
Sagði hann að refsiaðgerðirn-
ar væri gagnslausar.
Það væri að blekkja
sjálfan sig að halda, að
þær mundu koma að því
gagni, sem prjedikað
væri.
(United Press. — FB.).
Loftárás hafa Italir gert á
borgina Daggabur.
Sprengdu þeir mörg hús í
loft upp.
Fjöldi Abyssiníumanna særð-
ust eða biðu bana.
Meðal hinna föllnu er kunn-
ur hershöfðingi Abyssiníu-
manna.
Erlendum blaða-
mönnum bannað að
fara til vígstöðvanna.
Erlendum blaðamönn
um, sem ætluðu, með
leyfi keisarans, að fara
til norðurvígstöðvanna í
gær, var á síðustu
stundu bannað að fara.
Sendi keisarinn hraðboða á
síðustu stundu til blaðamann-
anna með brottfararbannið.
Skeyti frá Addis Abeba herm
ir, að keisarinn hafi verið
hræddur við, að hálfviltir kyn-
flokkar kynnu að ráðast á út-
lendingana á leiðinni og drepa
þá.
Páll.
London, 9. nóv. FÚ.
1 Italíu er nú lítið til
af fiski, og er fiskur þar
mjög dýr.
Skýrslur um hveiti-innflutn-
ing til Ítalíu í ágúst og sept-
ember sýna, að í þeim mánuði
var mikið dregið úr innflutn-
ingi þeirrar vöru frá öllum lönd
um nema Kanada.
Bændur í Gullbringu- og
Kjós*rsýslu heimsækja
lanabúnaðarráðherra.
Þeir heimta leiðrjetting mála sinna,
en fá daufar undirtektir.
í gær fór 14 manna nefnd bænda
úr Gullbringu- og Kjósarsýslu á
fund Hermanns Jónassonar ráð-
herra til þess að flytja lionum
áskorun þá, sem samþykt var á
fundinum á Brúarlandi um dag-
inn, og síðan hefir verið sam-
þykt á bændafundum víðar í sýsl-
unni.
Undir áskorun þessa hafa skrif-
að 130 bændur.
Þeir Ólafur Bjarnason í Braut-
arholti og Klemens Jónsson í
Árnakoti höfðn orð fyrir nefndar-
mönnum.
Þeir skýrðu ráðherranum frá
núverandi aðstöðu hændanna til
mjólkurmarkaðsins í Reykjavík.
Þeir bentu á, að þeim hefði ver-
ið lofað, að mjólkurlögin skyldu
koma því til leiðar, að þeir fengju
hærra verð fyrir mjólkina en áð-
ur. En þetta hefðu reynst svik.
Bændur bæru jafnvel minna úr
býtum nú en áðnr.
Þeir sætu uppi með dýrar
jarðir og mikinn tilkostnað, og
fengju ekki framleiðsluverð fyrir
mjólkina.
Mintust þeir og á, að nú væri;
komið fram tilboð um lækkun á
dreifingarkostnaði mjólkurinnar,
sem gæti gefið þeim svo að segja
þá verðhækkun, sem þeir hafa
farið fram á .
Undirtektir ráðherra voru dauf-
ar, að því er blaðið frjetti í gær-
kvöldi.
Áður en þessir fulltrúar bænda
skildu, kusu þeir þriggja manna
nefnd til að fara á fund landbún-
aðarnefndar Alþingis.
Þessir voru kosnir: Ólafur
Bjarnason í Brautarholti, Bjöm
Bimir, Grafarholti, og Jóhannes
Reykdal.
Kaupmenn I Súðavlk
eru fangar í sínu
eigin þorpi.
Allur matvælaflutn-
ingur til þorpsins
bannaður.
ÍSAFIRÐI f GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Sveltitilraunir Alþýðusam-
bandsins við Álftfirðinga
harðna enn.
Hefir Sambandið bannað að
flytja brauð til Súðavíkur, en þar
er ekkert brauðgerðarhús.
Vörur þær, sem kaupmenn í
Súðavík áttu í Dettifossi var
skipað upp í Reykjavík.
Kaupmönnum var meira »8
segja meinað að koma til fsa-
fjarðar og sitja þeir sem fangar
heima í þorpinu.
Amgr.
Lík piltanna, sem
urðu úti flutt (il
Siglufjarðar.
Þeir veríía allir
jarðaðlr ■ eflnni
gröf.
SIGLUPIRÐI í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Lík piltanna, sem urðu
úti á Almenningi hafa nú
verið flutt til Siglufjarðar
og: standa uppi í Tynesar-
húsi.
í morgun fór vjelbáturinn
Snorri með líkkistur piltanna, út
í Almenning. Vegna brims tókst
ekki að lenda bátnum og kom
hann því strax aftur.
Bjuggust þá þegar milli 40 og
50 manns til að sækja líkin land-
veg. Þeir komu aftur kl. 7.
Mikill mannfjöldi var saman-
kominn er líkfylgdin kom í bæ-
inn og fylgdi mannfjöldinn hin-
um látnu að Tynesarhúsi, en þar
standa líkin uppi þar til jarðar-
förin fer fram, n. k. miðvikudag.
Fer þá fram sameiginleg hús-
kveðja og verða hinir þrír fje-
lagar jarðsettir í sömu gröf.
J.
Matthlasarkvöld
Sig. Skagfield í dómkirkjunni.
í fyrrakvöld efndi Sigurður
Skagfield til Matthíasarkvölds í
dómkirkjunni, með aðstoð Páls
ísólfssonar, organleikara. Var það
vel til fallið nú, þegar haldin er
hátíðleg 100 ára minning skálds-
ins.
Söng hann fjórtán sálma eftir
síra Matthías og að lokum lof-
sönginn. Var mjög hátíðlegt, er
menn risu úr sætum sínum, með-
an þeir hlustuðu á þjóðsönginn.
„Ó, guð vors lands“.
Yfirleitt var fallegur blær yfir
tónleikunum. Naut hin ágæta
söngrödd Sigurðar sín mjög vel
með köflum, og gerði hinn fagri
undirleikur Páls ísólfssonar sitt
til þess.
Des.
Framfarir í skipasmíði. Vjel-
báturinn „Víðir“ á Akranesi
slitnaði upp á Lambhúsasundi í
ofsaveðrinu 22. janúar s. 1. og var
tvísýnt hvort hægt væri að gera
við hann en það tókst, og er nú
báturinn kominn hingað til
Reykjavíkur. Eyjólfur Gíslason
bátasmiður á Akranesi gerði við
bátinn.
5
„Samfylking" sósfalista og
kommiínista hleyptr upp fundi
Nazista i K.R.-húsinu.
Jón flxel Pjetursson framkvæmdastj. fllþýöu-
sambandsins I fylkingarbrjósti áflogamanna.
Um 60 kommúnistar og
sósíalistar í „samfylkingu“
mættu vopnaðir bareflum á
fundi, s'em þjóðernissinnar
heldu í K. R.-húsinu í gær-
kvöldi.
Xókst þeim að hleypa upp
fundi þjóðernissinna og varð
töluverður bardaei oe upp-
hlaup á fundinum. Nokkrir
menn meiddust, en enginn
hættulega.
Þjóðernissinnar höfðu boðað til
fundarins og hófst hann kl. 8%.
Húsið var þá orðið troðfult af
mönnum og kom í ljós, þegar til
bardagans kom, að yfirgnæfandi
meirihluti fundarmanna var úr
liði kommúnista og sósíalista. —
Bjarni Jónsson, cand. med. var
fundarstjóri. Helgi S. Jónsson tók
fyrstur til máls og talaði í 20
minútur.
Er hann hafði lokið máli sínu
fór Guðjón Baldvinssno, komm-
únisti til fundarstjóra, sem sat á
leilcsviðinu og heimtaði að fá að
tala. Svaraði fnndarstjóri að það
væri ekki hægt, sökum þess hve
fundartími væri takmarkaður, og
vegna þess að ræðumenn fundar-
ins væru fyrirfram ákveðnir.
Helt Guðjón fast við að fá orð-
ið, en þá var honum hrint nið-
ur af leiksviðinu.
Byrjuðu nú kommúnistar og
sósíalistar óhljóð mikil og var
þar fremstur í flokki Jón Axel
Pjetursson bæjarráðsmaður.
Skifti nú engum togum að sam-
fylking kommúnista og sósíalista
rjeðist upp á leiksviðið og sam-
tímis hófst handalögmál um allan
salinn.
Meiddnst nokkrir menn í skær-
unum. Kommúnistar og sósíalistar
voru, sem fyr er sagt, í yfirgnæf-
andi meirihluta og veittist þeim
ljett að hleypa upp fundinum og
bera þjóðernissinna ofurliði, enda
voru flestir rauðliðar vopnaðir
bareflum.
En nú kom lögreglan á vett-
vang.
Tókst henni að ryðja salinn á
mjög skömmnm tíma og hjálpuðu
þjóðemissinnar til þess. Þó varð
lögreglan að nota kylfur sínar
við að ryðja húsið.
Kommúnistar og sósíalistar
sungu „Internationale“ og vom
hinir vígabarðalegustu.
Þegar út kom, byrjuðu sam-
fylkingarmenn ræðuhöld fyrir ut-
an húsið og töluðu þeir Guðjón
Baldvinsson og Ásgeir Blöndal.
Engar skærar urðu eftir að
komið var út á götuna.
ísfisksala. Gulltoppur seldi ís-
fisk í Cuxliafen í gær, 117 tonn,
fyrir 38,396 ríkismörk.
100 ára minning
Matthíasar
Jochumssonar.
Á morgun er 100 ára af-
mæli Matthíasar Jpchumssonár.
Um land alt verður þjóðskálds-
ins minst í dag í guðsþjónust-
um kirknanna.
Á morgun fara fram ýmis-
konar hátíðahöld víðsvegar um
land.
Á AKUREYRI.
Mest kveður að Matthíasar-
hátíðahöldunum á Akureyri.
Þau byrjuðu í gærkvöldi með
samkomu í samkomuhúsi bæjar-
ins. Þar flutti Steingrímur Jóns
son fyrv. bæjarfógeti ræðu, svo
og þeir sr. Friðrik Rafnar, dr.
Jóhannes Pálsson, Árni Þor-
valdsson kennarþ Jónas Þór for
stjóri, Steindór Steindórsson
náttúrufræðingur og Brynleif-
ur Tobíasson kennari, en kant-
ötukór Akureyrar söng. Stjóm-
andi kórsins er Björgvin Guð-
mundsson.
1 dag verður sjerstök Matt-
híasar messa í Akureyrar-
kirkju. Prestar: Sr. Friðrik
Rafnar og sr. Benjamín Krist-
jánsson.
í kvöld verður Skugga-Sveinn
sýndur í samkomuhúsinu. Þar
syngur og karlakórinn Geysir,
en Davíð Stefánsson flytur á-
varp.
Annað kvöld verður enn sam-
koma í samkomuhúsi bæjarins,
er byrjar kl. 8%. Þeirri athöfn
verður útvarpað. Þar talar fyrst
Davíð Stefánsson, þá syngur
karlakórinn Geysir, þá flytur
Sigurður Nordal erindi, þá syng
ur karlakórinn, þá talar Stein-
grímur Matthíasson. Að lokum
syngur karlakórinn „Ó, guð
vors lands“.
í REYKJAVlK.
j Auk hátíðahaldanna, sem
hjer verða annaðkvöld, og getið
hefir verið um hjer í blaðinu,
ætlar Stúdentafjelagið að efna
til hátíðahalda á morgun.
j Lúðrasveit Reykjavíkur leik-
ur á Austurvelli kl. 3 og for-
sætisráðherra talar af svölum
Alþingishússins.
Hjúskapur. Nýlega vora gefin
'saman í hjónaband ungfrú Sig-
ríður Vilhjálmsdóttir frá Norð-
firði og Karl Þorfinnsson verslim-
armaður.