Morgunblaðið - 10.11.1935, Side 4

Morgunblaðið - 10.11.1935, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudaginn 10. nóv.1935. Reyívjavíkurbrjef, 9. nóvember. Matthíasar-hátíðin. Á morgun heldur íslenska þjóðin hátíðlegt 100 ára afmæli Matthíasar Jochumssonar, þjóð skáldsins ástsæla, sem um ára- tugi auðgaði andlegt líf íslend- inga, með ljóðum sínum og andagift. Sem söng ástríki, yl og lífsfögnuð í þjóð sína, í svo ríkum mæli, að hans verður minst, sem íturmenni í andlegu lífi voru, meðan íslensk tunga er töluð. 1 hvert sinn, sem þjóð vor getur einbeint huga sínum til þess, að votta slíkum mönnum þakkir, og halda minningu þeirra í heiðri, birtir yfir þjóð- lífi voru um stund. Á afmælisdegi skáldsins fyrir 17 árum lægði ófriðaróveðrinu í álfunni. Vopnahljesdaginn bar upp á afmæli hans. Hjer úti á Islandi þótti þetta merkileg hending. Á tyllidegi þessa ástríkasta, friðsælasta, góðviljaðasta og drenglyndasta Islendings, snjeru ófriðarþjóð- irnar frá villu síns vegar. trti um heim er þessi dagur helgaður minningu friðarins. Fisksalan. „Columbus" og „Katla“ eru bæði á förum með fullfermi, ca. 2600 tonn, en auk þess hef- ir S. í. F. í undirbúningi leigu á tveim öðrum skipum. Fer fisk- ur þessi nálega allur til Spánar. Söluhorfur í Portúgal eru enn í mikilli óvissu, sökum framferðis Norðmanna. Á ítal- íu er ekki ennþá leyst úr á- greiningnum um innflutnings- leyfin, en búist við því, að þaö verði nú á næstunni. Söluhoriur eru þar því mjög óvissar. í Grikklandi standa yfir samningar um það, hvort við fáum innflutningsleyfi eða ekki. Þrátt fyrir um 12 þús. tonn- um minni afla í ár en í fyrra, voru fiskbirgðirnar ca. 2000 tonnum meiri um síðastliðin mánaðamót en á sama tíma í fyrra. Má því búast við, að fisk birgðir verði meiri um næst- komandi áramót en síðastliðin. Þingið. Úrræðaleysi stjórnarflokk- anna á Alþingi verður augljós- ara með hverjum degi. Fjár- veitinganefnd hjakkar í sama fari viku eftir viku, með Jónas Jónsson sem formann enda ekki við öðru að býast, þar sem slíkur fjármálaglópur á í hlut. En þegar til annara mála kemur, er snerta atvinnuvegi þjóðarinnar, er ekki annað uppi á teningnum hjá stjórnar- liðinu en fálm og kák. Kartöflueinokun og garð- yrkjuskóli er það, sem bændum er boðið upp á. Garðyrkjuskóli útaf fyrir sig, kann að gera gagn. En almenningur í land- inu fær ekki af honum skjót not. Ef stjórnarflokkar hefðu ráðdeild og manndáð til þess að vinna að aukinni garðrækt, væri vissulega hægt að finna skjótvirkari ráð, og það ríkis- sjóði að kostnaðarlausu. Því svo mikið er lagt af mörkum úr ríkissjóði til þes3 að upp- fræða bændur og leiðbeina þeim í starfi þeirra. Pappírsmiljónin. Til handa útgerðinni hefir landsstjórnin fundið svonefnda „pappírsmiljón", lánsheimild frá síðasta þingi, í fiskiveiða sjóð, sem á að styðja markaðs- leit og fjölbreytni í fiskverkun og þess háttar. Þessa lánsheimilid hafa stjórnarflokkarnir nú tekið upp og prentað að nýju með feitu letri í Alþýðublaðinu. Nú á öllu að vera borgið. Stjórnin hamp- ar heimild þessari, og ætlar að telja einföldum fylgismönn- um trú um, að nú sje greitt úr erfiðleikum útgerðarinnar. Þetta gerir sama stjórn, sem undirgengist hefir það við er- lenda lánardrottna, að skuld- binda sig til þess að taka engin erlend lán! Finna menn ekki flærðina og alvöruleysið í svona skrípalátum? Ósamkomulagið. Eftir því, sem vandræðin vaxa í stjórnarherbúðunum, vex ósamkomulagið milli stjórn arflokkanna. Frá því núverandi stjórnar- samsteypa var gerð sumarið 1934, hafa sósíalistar verið nokkurn veginn einráðir hús- bændur á heimilinu, er hafa óspart gefið Framsóknarráð- herrum fyrirskipanir um hvað gera skuli. En þeim er þetta ekki nóg engur. Þeir kvarta sáran und- an því, að þurfa að basla með piltinn Eystein, sem fjármála- ráðherra, óreyndan, vankunn- andi ungling á þessum erfið- eika tímum. Um Hermann tala þeir minna, enda er Her- manns að litlu getið í seinni tíð. Hefir honum aukist sú lífs- reynsla síðasta ár, að hann sjer, að honum hentar best að láta sem minst á sjer bera. Nema hvað hann er að halda í þing- inu við og við, marklausar og vitlausar ræður, sem flokks- menn hans bera kinnroða fyrir, sem eðlilegt er. Svo ljeleg er sambúðin orðin milli stjórnarflokkanna í þing- inu, að þeir hafa oftar en einu sinni lent 1 einskonar salta- brauðsleik með frumvörp sín, og hrópað hver upp í annan „saltabrauð fyrir mig“, því báð- ir hafa viljað hafa heiðurinn fyrir sinn flokk af frambornum frumvörpum. Útkoman hefir orðið sú, að tvö frumvörp hafa komið samtímis sitt frá hvorum flokki, um sama efni. Þegar Framsókn flytur t. d. „heimild“ til að setja á stofn kartöflueinkasölu, þá flytja só- síalistar um að kartöflueinka- sala „skuli“ sett á stofn. Og frumvarp um garðyrkjuskóla kom frá báðum, þ. e. a. s., þar var Jón Baldvinsson á undan Hermanni, og kvartaði Her- mann yfir, að Jón skyldi þar hafa hlaupið fram fyrir sig. því ekki sjö dagana sæla í sam- búðinni við Alþýðuflokkinn. Eru Kratar farnir að gefa Blossi. En mestur blossinn hefir orð- ið milli stjórnarflokkanna út af því, að sósíalistar ráku skjól- stæðing Jónasar Jónssonar frá síldarverksmið j unni. Aumingja Framsókn gamla á henni líkan vitnisburð og Há- kon sá, sem umgetur í kvæð- inu um Jörund, gaf sinni kerl- ingu að hún væri bæði „gigt- veik og sein og gölluð að fleiru en því“. Hákon þessi hafði það ánn- ars upp úr krafsinu, að Jör- undur ljet hann hafa „uppbót- arkvenmann“ í bólið til sín. En vísast er að kratarnir verði að sætta sig við að rekkja á- fram með sinni kerlingu, þótt ekki sje unaðssemdunum fyrir að fara. Þeir eru þektir að því, kratar, að una illa einlífinu til lengdar. „Raunverulega hörmulegt“. Þessi bági heimilisbragur hefir haft ill áhrif á hjúin, svo sem oft vill verða. Einkum ber vesalings niðursetningurinn, er á að gæta þess, að Tímagimb- illinn fái daglega að koma út og jarma, sig hörmulega yfir ástandinu. Þessi garmur hafði víða flækst og þóttist hafa himin höndum tekið þegar hon- um var holað niður í volgt bælið eftir hrossakjötssvindlar- ann. Og svo fór alt í bál og brand. „Það er í senni ótrúlega og raunverulega hörmulegra en flest önnur pólitísk fyrirbrigði undanfarið“, snögtir garmur- inn, þegar hann endar frásögn sína af því að Jóni Gunnars- syni væri vikið úr forstjóra- stöðu við síldarverksmiðjur rík- isins. Jón hafði komist að starfi sínu vegna náinna vinsemda við Hriflu-Jónas, og brottvikningin sýnir, að Kratarnir eru farnir að hundsa, gamla manninn eins og hvert annað aflóga skar. Þormóði gefin ráðning. Kratarnir gefa Jóni þessurn þýsna slakan vitnisburð, telja hann meinvankaðan, og að öllu óhæfan til að gegna ábyrgðar- miklu starfi. Þeir eru meira að segja svo öskuvondir, að þeir ganga í skrokk á Þormóði Eyjólfssyni fyrir það eitt, að hann hefir verið að bera í bæti- fláka fyrir Jón þenna. Gefa þeir í skyn, að ekki sje vel hreint síldarmjölið í pokanum hjá Þormóði, og telja honum vísast að hafa sig hægán. Segja þeir það sitja illa á Þormóði að gerast siðameist- ari yfir öðrum. „Það situr síst á Þ. E. að vera að brigsla verkamönnum um drykkju- skap“, segir Alþýðublaðið. Og auk þess telja þeir, að Þormóð- ur hafi svo litla stjórn á skaps- munum sínum, að hann viti stundum ekkert hvað fram fer. Tíma-gimbillinn. Já, það er ekki að undra þótt gimbilfóstri Tímablaðsins beri sig illa, enda stendur þetta ræksni með útskælt og kámugt smettið. „Það er raunverulega hörmu- legt“. En það ,raunverulega hörmu- legasta“ af öllu saman er, að „svo raunverulega hörmulega" er orðið ástatt um gamla mann- inn frá Hriflu, að hann verð- ur að þola það bótalaust, að „raunverulega hörmulega“ ó- iiiiiiiiiiiiiiiuniHiiiiiiiiiiiiiiiHiiimuiiimniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiuiiiminiiiuiiiiiiiii ........................... PARIS FIIR SALES. 11 Rue de la Douane, PARIS Xe. ;(Vörugeym§la). Blárefaskinn. París er miðdepill skinnasölu heimsins. Seljið skinn yðar þar sem verðið er hæst. Umboðsmaður vor teku>* á móti skinnum 10.—18. nóv. n. k. í Hafnarstræti 15, Reykjavík. Útborgun 50% eftir áætluðu verði. Uppgjör 15 dögum eftir söludag. — í Borgarnesi tekur bókhaldari Halldór Sigurðsson á móti skinnum. Nóvember—desember er besta salan. Sendið því skinn yðar sem fyrst í póstböggli, beint til vor, eða umboðsmanns vors, lir. Einar Fareslveit, Hvammstanga. IIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII lllllllllll III lllll IIIII lllllll III llllll IIIIII1111111111111111111111111111111II IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII.IIIIHIIIIHim lllllHlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllinilllllHIHUIIII Kaupmenn og kaupfjelög. ið aftur. Rjúpur kaupum við hæsta verðl. Eggert Kristidnsson & Co Sími 1400. V öggubvæði úr sjónleiknum „Piltur og stúlka“, eftir Emil Thoroddsen, er komið út. — Verð kr. 2.00. Bókaverilun Sigfúsar Eyniundssonar og Bókabúð Austurbæjar, B. S. E., Laugaveg 84, hæfum stöðu. manni sje vikið úr. „Gimbill eftir götu rann hvergi sína móður fann, sárt jarmaði hann“. EKVÖLD Börn kl. 6. Fullorðnir kl. 8. HJÁLPRÆÐISHERINN ZIKKA WONG — Aðg. 0,25

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.