Morgunblaðið - 14.11.1935, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.11.1935, Blaðsíða 7
Fimtudaginn 14. nóv. 1935. MORG UNBLAÐIÐ 7 Markaður fyrlr fslenskar afurðir I Þýskalandi hefir ekki verið notaður sem skyldi. ----- ^ Frá umræðum á Alþingi. Tvo undanfarna daga hafa staðið yfir í neðri deild Al- þingis umræður um frum- varp ríkisstjórnarinnar um íhlutun um sölu og útflutn- ing á ýmsum íslenskum vör- um, og er þetta staðfesting á bráðabirgðalögum um sama efni, sem sett voru síðastliðið vor. Samkvæmt þessum bráðabirgða- lögum má enginn flytja út á er- lendan markað ákveðnar vöruteg- undir, nema að til komi leyfi atvinnumálaráðherra. Má segja, að tæplega verði komist af án ein- hverra lagaákvæða í þessu efni, vegna hverskonar hafta í markaðs löndum vorum. Umræðurnar á Alþingi snerust þessvegna ekki um stefnu frum- varpsins, heldur um framkvæmd málsins, og einkum að því er snertir viðskiftin við Þýskaland. f því sambandi var það upplýst, að hægt hefir verið að fá í Þýska- landi miklu hærra verð fyrir ýms- ar afurðir okkar en nokkursstað- ar annarsstaðar. Má þar til nefna ísfisk og síldarmjöl, ull og gærur o. fl. Af hendi sjávarútve'gsmanna töluðu þeir Jóhann Jósefsson og Ólafur Thors. Sýndi Jóhann fram á, að keypt hefði verið miklu minna af ýms- um nauðsynjavörum frá Þýska- landi, en hægt hefði verið, ef innflutningsnefnd hefði verið á verði í þeim efnum. En afleiðingar þess hefðu s’vo aftur orðið þær, að íslenskir fram helming framleiðslunnar á ull og gærum. Benti Jón á þá örðugleika sem bændur ættu nú við að stríða, og hver áhrif það mundi hafa, ef bændum væri meinað, ofan á alt annað, að nota besta erlenda mark- aðinn, sem fáanlegur væri. Spurði hann ríkisstjórnina, hvort hún væri við því búin, að sjá þeim bændum borgið, sem yrðu að gefast upp, sökum þess að af- urðaverðið svaraði ekki til fram- leiðslukostnaðarins. Ennfremur benti Jón á það, að á síðastliðnum vetri, hefði ríkis- stjórnin og Alþingi samþykt að leggja fram alt að 150 þús. kr. til þeSs að bæta upp kjötverðið. Það skyti því býsna skökku við að nokkrum mánuðum síðar, hefði ríkisstjórnin tekið þær ákvarð- anir, er hefðu að líkindum svift bændur helmingi hærri upphæð en styrknum nam, ef til fram- kvæmda hefði komið. Hannes Jónsson tók í streng með Jóni á Reynistað og urðu harðar deilur milli hans og fjár- málaráðherra. Þótti Hannesi ráðherrann vera me'stur í munninum, en lítill fyrir sjer, er að því kæmi að verða framleiðslunni í landinu að liði. Allir þessir menn gerðu þá skýlausu og eindregnu kröfu til stjórnarinnar, að þess yrði gætt, að hlutur framleiðenda yrði ekki fyrir borð borinn. ! * * * leiðendur hefðu farið á mis við besta markaðinn, sem fáanlegur var fyrir vörur þeirra., En Ólafur Thors sýndi fram á, hver áhrif það hefði á hag fram- leiðendq ef stöðvuð væri sala á framleiðsluvörum, af þe'irri ástæðu einni, að verðlag aðkeyptrar vöru í markaðslandinu væri hærra en hægt væri að fá annarsstaðar. Afleiðingin af þessu yrði sú fyrir framleiðandann — þar sem umráð gjaldeyrisins eru af hon- um tekin — að hann nýtur ekki þess hagstæða markaðs sem fyrir hendi er, og verkaði þetta því fyrir hann á sama hátt og gengis- hækkun. Af liálfu bænda töluðu þeir Jón á Reynistað og Hannes Jónsson. Jón á Reynistað benti fyrst og fremst á, að samkvæmt skýrslu atvinnumálaráðherra, hefði það verið ákveðið er lögin voru sett, að bændur yrðu að mestu leyti útilokaðir frá því að njóta þýska markaðsins, þótt vehðlag- þar á ýmsum landbúnaðarafurðum, svo sem ull og gærum, væri miklu hærra en annarsstaðar. En af sjerstökum ófyrirsjáanlegum á- stæðum, hefði þessi fyrirætlun breyst, svo að nú væri leyfður útflutnihguT til Þýskalands á nál. 52 jijóðir munu svara orðsend- inpu Itala. London, 13. nóv. FB. Að því er United Press hefir fregnað í dag ætlar breska ríkis- stjórnin sjer ekki að svara mót- mælaorðsendingu ítölsku ríkis- stjórnarinnar upp á eigin spýtur, heldur leggja það til, að öll þau 52 ríki, sem samþykt hafa að taka þátt í refsiaðgerðunum og tekið hafa á sig þá ábyrgð, sem af því leiðir, svari ítölsku stjórninni sam eiginlega. , .. Sfefria Breta óbreytt. Oslo, 13. nýv. FB. Símskeyti frá London herma, að engin breyting verði á utanríkis- málastefnu" bresku stjórnarinnar vegna móthiælaorðsendinga ítölsku ríkisstjórnarinnar út af re'fsiað- unum. Austurríkis- menn snúa baki við ItOlum! Þeir ætla að taka þátt í refsiaðgerðum. —*-- Austurríkismenn hafa nú tekið hreina afstöðu með Þjóðabandalaginu gegn ftölum. Hefir utanríkismálaháðherra Austurríkis (samkvæmt fregn frá London til FÚ) tilkynt að Austurríki muni banna út- flutning á hráefnum til iðnaðar til Italíu, en hinsvegar sje Aust- urríkismönnum ókleift að leggja bann við flutningi ,frá Ítalíu. Fregn þessi vekur mikla at- hygli. Við atkvæðagreiðsluna um refsiaðgerðirnar í Genf í október, greiddi fulltrúi Aust- urríkismanna ekki atkvæði og var það talið vottur þess hve náið vináttusamband væri milli Austurríkis og ítalíu. Nú virðist hins vegar, sem Austurríkismenn meti meir vináttu við einhverja aðra þjóð (Þjóðverja?) eða þjóðir - en vináttu ftala. Vonbrigði i Iialiu. • _______ Ákvörðun Austurríkis hefir komið ítölum mjög á óvart, og valdið þeim sárum vonbrigðum. Þeir höfðu vænst þess, að austurríska stjórnin yrSi enn vingjarnlegri í garS Italíu en nokkru sinni fyr, meS auknum völdum Stahrembergs fursta. Hollendingar halda Colijn vara við naziimanum. Ainsterdam, 13. nóv. FB. Forvextir hafa verið lækk- aðir um 1(4% í 3(4%. Ilaag, 13. nóv. FB.' Colijn forsætisráðherra hefir haldið ræðu;í neðri deild þingsins og endurtók þar, að stjórnin væri fast.ráðin í, að leggja aldrei út í það, að fella gyllini í verði af frjálsum vilja. Colijn aðvaraði þjóðina við hætt unni af nazismanum. Ef þingið og stjórnin hætti að vinna saman mundi þjóðin í hættu stödd vegna nazismans. K. F. U. M. Munið eftir bæna- samkomunni í kvöld, síra Bjarhi Jónsson leiðir. Frá Þingeyri. Úr rjefi 10. nóv. Saumanámskeið stendur yfir hjer, hófst 15. okt. og endar í lok þessa mánaðar. Forgöngu hafði Kvenfjel. Von og rjeðí forstöðukonu, ungfrú Gyðu Árnadóttur frá Brekku, sem dvalið hefir í Reykjavík und- anfarin ár, við nám 1 saumum o. fl. Nemendur á námskeiðinu eru 22 stúlkur, er þar „sitja og sauma“ frá morgni til kvölds í bamaskólahúsinu. Barnaskólinn á Þingeyri var settur 15. okt. I honum eru nú tsgplega 60 börn. Þá tók til starfa 19. okt. s.l. kvöldskóli, er starfar í barnaskólanum, 4 tíma á dag, nemendur eru 14 og forstöðumaður er síra Sig- urður Gíslason, er hefir einn á hendi alla kensluna. Kirkjuhátíð til minningar um Matthías Jochumsson, var hald- in í dag (10. nóv.) í Þingeyrar- kirkju. Sr. Sigurður Gíslason flutti erindi, er hann nefndi: Andinn frá Sigurhæðum, og las upp nokkur af ljóðum skálds- ins. Kirkjukórinn, undir stjórn Baldurs Sigurjónssonar, söng 7 lög við ljóð eftir þjóðskáldið þ. á. m. hið nýja, fagra lag, Jónasar Tómassonar á Isafirði við: Ó, faðir gjör mig lítið ljós, en þetta lag vekur hvarvetna hina mestu eftirtekt. Dagbók. I.O. O.F. 5= 11711141 P/2 = Veðrið í gær: Skamt fj rir sunn- an ísland er djúp lægð, í em ve’ld- ur A- og NA-átt nm alt land, og er vindur víða hvass. Á SA-landi er talsverð rigning en úrkomu- laust annarstaðar og hiti frá 3—8 st., mestur á Akureyri. Lægðin mun þokast NA-eftir og valda NA-átt um alt land næsta sólar- hring. Veðurútlit í Rvík í dag: All- hvass NA eða N. Úrkomulaust. Nýjir kaupendur að Morgunblað- inu fá blaðið ókeypis til næstu mánaðamóta. Krjstniboðsfjelag kvenna heldur fund í dag. Þórólíur kom af veiðum í gær með 1200 körfur fiskjar og fór samdægurs áleiðis til Enj lands. Esja kom úr. strandferð gær. E.s. Hekla kom kl. 7 í gær- kvéldi frá útlöndum. ísfisksölur. Hilmir seldi ísfisk * í Grimsby í gær, 1064 vættir, fyrir 744 st.pd. Max Pemberton seldi einnig á sama stað í gær, 799 vætt, ir fyrir 1059 st.pd. Sveinn Guðmundsson, járnsmið- ur í Hamri er fimtugur í dag. Gestir í bænum. Friðrik Arn- bjömsson bóndi á Ósi í Miðfirði, Eggert Levy, og Þorsteinn Ein- arsson, Reykjum í Hrútafirði og Jón Guðmundsson hreppstjóri, Garði í Þist.ilfirði. Heimdallur. Fjelag ungra Sjálf- stæðismanna, heldur fund annað kvöld í Varðarhúsinu. Jón Pálma- son alþmgisniaður hefur umræð- ur, síðan verða fjelagsmál rædd. Allir Sjálfstæðismenn eru vel- komnir á fundinn. Eimskip. Gullfoss er á leið til Vestmannaeyja frá Leith. Goða- foss er í Hull. Brúarfoss er á leið til Leitb frá Ve'stmannaeyjum. Dettifoss er á ísafirði. Lagarfoss Hreinar Ijereftstuskur kaupir ísafoldarprentsmiðja h. f. Bitijið um er í Leitli. Selfoss er á leið til Stockhólms frá Vestmannaeyjum. Danska þingið var sett í gær með venjulegum hætti, og ýmsum stjórnarfrumvörpum útbýtt meðal þingmanna. (FU.). Gunnar Gunnarsson skáld he'fir verið ráðinn til þess að flytja 30 fyrirlestra í Þýskalandi, Sviss og í Austurríki. Eiga fyrirlestrar hans að f jalla um ísland og íslensk málefni. Fyrsta erindið flytur hann í Lubeek í dag, þvínæst í Hamborg á föstudaginn, síðan í Berlín, Dresden Miinchen og fleiri þýskum borgum. Þá fer bann til Bern, og flytur þar erindi, og í fleiri svissneskum borgum; og loks til Vín, og flytur e'riudi þar; og í fleiri borgum í Austur- ríki. Það er Norræna fjelagið í Liibeck, sem hefir ráðið Gunnar Gunnarsson til þessarar farar, og sjeð um undirbúning fyrirlestr- anna. (FÚ.). Próf. van Hamel heldur háskóla fyrirlestur í kvöld, efni: „Magn í manninum“. Hin mesta kyngi líkamans er fólgin í auganu. í sögum og þjóðsögnum draga mCnn belg á höfuð galdramanna til þess að svifta þá vopnum. — Sögnin um auga Óðins, sem var veðsett í brunni Mímis, eT bygð á þeirri skoðun, að augað er sjer- staklega næmt fyrir ábrif að utan, og liafi það sjeð of mikið af því, sem okkur er hulið, verður að missa það. Hárið er í nánu sam- bandi við ótömdu náttúruna og er tröllslegt, nema það verði skorið. Hrákinn bindur, blóðir sameinar. Merkilegt eT það, sem menn húgsa sjer við matinn. Þeir, sem neyta sama matarins, stofna lífsfjelag. Hinsvegar eykur sá magn sitt, sem varnar við mat. Árangurinn er sá sami og þegar menn kveljast af eldi eða kulda. Um það bera Hávamál og Grímnismál ótvírætt vitni. Hjónaefni. Nýle'ga opinberuðu trúlofun sína ungfrú Svanlaug Guðmundsdóttir, Hörpugötu 24 og Ólafur Þorsteinsson, Njálsgötu 17. Útvarpið: Fimtudagnr 14. nóvember. 10,00 Veðurfregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Þingfrjettir. 20.15 Erindi: Járn og stál, II (Bjarni Jósefsson efnafræðing- ur). 20,40 Útvar.pshljómsveitin (Þór. Guðm.) : Kaflar úr óperettunni „Fögur er veröldin“ eftir Lehár. 21,05 Lesin dagskrá næstu viku. 21.15 Erindi: Veðráttan í október (Jón Eyþórsson). 21,30 Hljómplötur: Lög við ís- le'nska texta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.