Morgunblaðið - 17.01.1936, Page 3

Morgunblaðið - 17.01.1936, Page 3
Föstudaginn 17. jan. 1936. MOKGUNBLAÐIÐ Sveinn Ingvarsson kærður lyrir nafnafals. Frekari sönnur á landhelgisþjófnaði breskra togara. rjJETTARHÖLD út af dul- málsskeytum til breskra togara heldur áfram. í gær mætti fyrir rjettinum Páll Sigfússon, en hann hefir verið fiskiskipstjóri á breska togaranuxn Lincolnshire, Berkshire og „Vin- ur“, sem öll eru eign Markham Cook & Co. í Grimsby. Páll játaði að hann vissi til að Berkshire og Lincolnshire hefðu veitt 1 landhelgi á meðan hann var á þeim, sem fiskieftirlitsmað- ur — Fishing inspector — en neitaði hinsvegar að hafa átt nokkurn þátt í því sjálfur. Þegar hann var spurður hvaða skýringu hann gæfi á því að dul- málsskeytin úr landi væru stíl- uð á nafn hans gat hann ekki gef- ið neinar upþlýsingar um það. Hinsvegar kvaðst hann hafa fengið og sent konu sinni skeyti á dulmáli, sem þau hefðu haft sín á milli, en að þau skeyti hefðu ekkert fjallað um ferðir varð- skipanna. Dulmálslykil þeirra hjóna kvaðst hann hafa 'eyðilegt eftir að mál þetta kom upp og hafi það verið ge'rt í fljótfæmi. Páll rjeðist á togarann „Vinur“ á þriðja jóladag s. 1. og kom í land af honum fyrir nokkr- um dögum. Þvertók hann fyrir að það skip hefði fengið bendingar úr landi um ferðir varðskipanna og eins að það skip hefði veitt í landhelgi á meðan hann var þar um borð. Páll kvaðst hafa ve*rið með nokkrum enskum skipstjóram á togurum þeim sem fyr greinir, en mundi ekki nöfn þeirra allra. Einn þeirra var íslendingur, Jóa- kim Jóakimsson að nafni, sem öðl- ast hafði breskan borgararjett. Jóakim ljest í þeirri för skipa- ins, sem Páll var með. Kona deyr í sjúkraflutningi. Akranesi í gær. P. U. Oddný Sigurðardóttir, hús- íreyja að Stóra-Botni við Hval- fjörð, Ijest snögglega 14. þ. m. j Prjettaritari F. Ú. á Akrane'si skýrir frá eftir heimildum hjer- aðslæknis, að átt hafi að flytja hana til uppskurðar vegna inn- vortis meinsemdar, en vegna snjóa þurfti að bera hana tvær bæjar- leiðir í sjúkrakörfu. Á þeirri leið var komið að , Þyrli og leið henni þá vel eftir at- vikum, en er komið var að Sandi — næsta bæ — var hún örend í sjúkrakörfunni. Telur hjeraðs- j læknir banamein hennar hafa ver- ið hjartabilun. K. R. Glímuæfing verður hjá . og II. fl. í kvöld kl. 9^2- Á æf- igunni fer fram bændaglíma. Sveinn kallaður fyrir lögreglurjett, Alþýðxiblaðið birti 11. þ. m. grein um verðlag og vörugæði hjá Bifreiðaeinkasölu ríkisins og bygðist greinin á samtali við for- stjóra fyrirtækisins, Svein Ingv- arsson. | Segir Alþýðublaðið að það hafi snúið sjer til hans „til að fá sem gleggstar hugmyndir um skvald- urs árásir Gísla Sveinssonar á Bifreiðaeinkasöluna við síðustu eldhúsumræður í útvarpið, og jórtri íhaldsblaðanna á skvaldri hans“. j Porstjórinn lýsir í greininni ýmsu því sem hann te'lur Bifreiða- einkasölunni til gildis, er hann óspar á að nota -tölur og saman- burð við aðrar verslanir hvað verðlag snertir.. Til þess að sanna mál sitt enn betur, lætur forstjór- inn fylgja tvö vottorð, um ágæti einkasöluvaranna, frá þremur bíl- stjórum. 1 Pyrra vottorðið er undirritað af Friðleifi P. Priðrikssyni, setn flestir bílstjórar munu kannast við frá því í Verkfallinu Um jólin. Hitt er undirritað af tveim mönn- um, þeim Bjarna Einarssyni, bif-1 reiðarstjóra og Gunnari Ólafssyni bifreiðarstjóra, sem nú vinnur hjá Bifreiðaeinkasölunni. „Yottorð" þeirra hljóðar svo: „Að gefnu tilefni vottum við undiri'itaðir, sem höfum átt bif- reiðina RE. 736, og ekið hefir verið með Pirelli hjólbörðum síðan 18. júlí s.l., að vegalengd 9273 km., að hjólbarðarnir virð- ast alveg óslitnir e*nn sem komið er, og má því vænta mjög góðr- ar endingar á þeim; jafnframt viljum við taka fram, að bif- reiðinni Jiefir verið ekið mjög mikið á vondum vegum á þeim tíma, t. d. 5 sinnum austur að Geysi, svo og margar ferðir í Ármíssýslu og víðar. Reykjavík, 10. jan. 1936. (Sign.) Bjami Einarsson. (Sign.) Gunnar Ólafsson. Þetta „vottorð“ kom af- arflatt upp á Bjarna Ein- arsson, því hann hafði aldrei heyrt þess getið, eða sjeð fyr en það birtist í Alþýðu- blaðinu. Bjarni náði tali af Sveini Ingv- arssyni forstjóra og spurði hann að því, hvað slíkt ætti að þýða, að taka þannig nafn sitt í heimildar- leysi og fór fram á við Svein að hann birti þegar í næsta tölu- blaði Alþýðublaðsins yfirlýsingu um að nafn hans hefði ekki átt að standa undir fyrnefndu vottorði í Alþýðublaðinu. Sveinn Ingvarsson lofaði Bjarna Einarssyni að hann skyldi gefa þetta og átti sú yfirlýsing að koma í Alþýðublaðinu á þriðju- dag, en hún er ókomin enn. Bjarni varð nú vondaufur um að hann myndi ná rjetti sínum ,á þenna hátt og þegar hvert tölu- biaðið á fætur öðru kom íit af Al- þýðublaðinu, án þess að yfirlýs- ingin kæmi frá Sveini sá hann sig tilneyddan til að kæra þetta fyr- ir lögreglustjóra. Segir Bjárni í kærunni, að nafn sitt hafi verið falsað á fyrnefnt vottorð Sveins Ingvarssonar og fer fram á að lög- reglurannsókn fari fram í mál- inu. Blaðið hefir spurt lögreglustjóra hvort rannsókn væri hafin í máli þe'ssu, en hann sagði að Sveinn Ingvarsson væri lasinn þessa dag- ana, en að hann yrði kallaður fyr- ir rjett svo fljótt sem hann kæmi á skrifstofu sína aftur. Pæst þá úr því skorið, hvernig í þessu máli liggur. Varðarfundur var haldinn í gærkvöldi. Sigurður Kristjánsson rakti þar í stórum dráttum vinnu- brögð þingsins og tálaði þvínæst um meðferð ríkisvaldsins á síldar- útvegsmönnum, Mun S. Kr. skrifa ítarlega um þessi mál innan skamms lijer í blaðinu. Þá gaf Ólafur Thors einkar fróðlega skýrslu um utanríkismál og drap á ýmislegt í því sambandi, sem vakti alveg sjerstaka athygli fundarmanna. Pundurinn var all- ve'I sóttúr og fór hið besta fram. JóhannesJóhannesson fyrv. bæfarfógefi sjölugur. •anniinniiiiiHiiiniiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiuiMiiiicNniiiiimii Jóhannes Jóhannesson. I I llllllll IIIIIHIIIIIIIIIIIII Ul III1111111111111111111111II111111111111111111111 í dag á Jóhannes Jóhannes- son fyrverandi bæjarfógeti sjö- tugsafmæli. Margir verða þeir, fjær og nær, sem senda hinu sjötuga prúðmenni hugheilar hamingju- : óskir, því Jóhannes bæjarfógeti hefir í öllu sínu langa embætt- isstarfi verið maður vinsæll með afbrigðum. Hin síðari ár hefir hann kos- ið að láta af flestum þeim opin- beru störfum er á honum höfðu hvílt um langt skeið. Aldrei hefir honum verið um það gefið, að berast mikið á. Þá áratugi sem hann átti sæti á Alþingi var hann jafnan meðal þeirra manna, sem unnu mest að þingstörfum utan þingsal- anna, fáorður, en gagnorður, þegar hann tók til máls. Sama yfirlætisleysið einkendi embættisstörf hans alla tíð. Með drengskap og prúðmannlegri festu vann hann embættisstörf sín. Þannig er sú mynd sem sam- tíðarmenn hans geyma af hon- um. Þar sem blöðin eru ekki frjáls. Oslo, 16. janúar. Dómur er fallinn í rjettin- um í Wismar í Mecklenburg- Schwerin yfir dönskum stýri- manni, Peter Friberg að nafni, en hann hafði verið á- kærður fyrir að gefa þýskum manni frjettablað, sem er fjandsamlegt nazismanum. Stýrimaðurinn var dæmdur í 5 ára fangelsi. (NRP. — FB.). „Wait and 66 Afstaða Breta til olíukamasins. KAUPMANNAHÖFN í GÆR. EINKASKEYTI TTL MORGUNBLAÐSINS. Hik Lavals virðist enn hafa orðið ofjarl bresku stjómarinn- ar og leitt til þess, að olíurefsi- aðgerðunum verður frestað enn um óákveðinn tíma. Laval skírskotar stöðugt til hættunnar, sem hann telur vofa yfir frá Þýskalandi og vinnur þannig gegn olíurefsiaðgerðun- um. Opinberlega er tilkynt í London að stefna stjómarinnar, um útflutningsbann á olíu til Ítaiíu sje óbreytt. Stjórnin bendir á, að ekki geti verið um forustu Breta í þessu máli að ræða, þar eð í Þjóðabandalaginu sjeu fulltrú- ar margra þjóða, og þess vegna muni allar ákvarðanir verða teknar sameiginlega. PáU. Olíumálið sett í nefnd. London, 16. janúar. Á fundi bresku ríkisstjórnar- innar í gær varð það ofan á, að Eden var falið að leggja það til í átján manna nefndinni, að skipuð væri undirnefnd sjer- fróðra manna, til þess að íhuga sjerstaklega bann við útflutn- ingi olíu og bensíns til Ítalíu. (United Press. — FB.). Hvað býr undir? London, 16. ajn. FÚ. TDALDWIN forsætisráðherra Breta hefir fjóra daga samfleytt setið á fundum með hinni svonefndu landvarna- nefnd ríkisins. En í henni eiga sæti utanríkismálaráðherrann, hermálaráðherrann, flugmála- ráðherrann, og flotamálaráð- herrann, og ýmsir fastir em- bættismenn í þjónustu land- hers, lofthers og flota. Fjórða Rauða Kross loftárás Itala! 14 manns bíða bana. KAUPMANNAHÖFN 1 GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. "þRJÁR ítalskar flug- vjelar sveimuðu heila klukkustund yfir þorpinu Waldia ,110 km. norður af Dessie í gaer, og vörpuðu sprengj um yfir abyssinska Rauða-Kross-stöð í þorp- inu. 14 manns, konur og gamalmenni, voru drep- in: 35 manns særðust: og tjöld, lyfjabirgðir og hjúkrunargögn eyðilögð ust. Þetta er fjórða árásin sem ítalskar flugvjelar gera á Rauða-Kross á örskömmum tíma og fara þau nú að gerast tíð ,,misgrip“ ítölsku flugmann- anna, sem Mussolini kallar svo. í Waldia var geymslu- stöð fyrir hjúkrunarvörur og stjórnaði Burgoyne major, breskur maður, þessari stöð. Burgoyne slapp ómeiddur undan sprengjum ítala en hjúkrunargögnin gjöreyðilögð- ust. Eldsprengjur Italanna kveiktu í hreysum þorpsbúa og brann meira en helmingur þorpsins til ösku. Páll. Jóhann Þ. Jósefsson alþm. var meðal farþega á Lyra í gær. Fer hann á vegum ríkisstjórnarinnar til Þýskalands, til þess að aimast samningagerðir við þýsku stjóm- ina um viðskiftamál ríkjanna. Með Jóhanni við samningagerðina verður að þessn sinni Óli Vil- hjálmsson, framkvæmdastjóri í Hamhorg. Vaxandi vígbúnaður á sjó. Naiminna Breta og Bandaríkfamanna. KAUPMANNAHÖFN í GÆR. EINKASKEYTI TIL M ORGUNBL AÐSINS. Afleiðfng þess, að Japanir gengu af flotamálaráðstefnunni er talin muni verða sú, að náin samvinna takist með Bretum og Bandaríkjamönnum. Búist er við því, að Banda- ríkjamenn framkvæmi her- skipabyggingaráform sín og verði brátt öflugasta flota- veldi í heimi. Þá er talið að Bretar og Bandaríkjamenn efli flota- stöðvar sínar í Kyrrahafi. Pán.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.