Morgunblaðið - 18.01.1936, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.01.1936, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ 4 'fmim Laugardaginn 18. jan. 1936. ólafur Thors flettir ofan af hræsnaranum. FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. ild. Allur þingheimur vissi að þetta var ekki rjett, heldur hitt, að þegar Jónas Jónsson gat elcki fengið fylgi samherja sinna tii svívirðinga og róg- burðar um andstæðingana, þá misti hann allan áhuga fyrir málinu, blátt áfram vegna þess, að þaS var níðið um andstæð- ingana en ekki vemd landhelg- innar sem kveikt hafði áhuga hans. Nú hefir það slys hent Jónas Jónsson, að okkur, sem þessu hjeldum fram, hefir bæst nýr Jiðsmaður, og sá liðsmaður er ekki aðeins samherji Jónasar Jónssonar, heldur og herra hans og yfirboðari, sjálfur for- , sætisráðherrann. Hermann Jónasson hefir gert Jónasi Jónssyni þann grikk, að fyrirskipa eftirlit með loftskeyt um, og það eftirlit hefir leitt í ljós misnotkun loftskeyta í þágu landhelgisveiða. Og þetta gerir Hermann Jónasson sam- kvæmt þeirri lagaheimild sem við Sjálfstæðismenn hvað eftir annað bentum Jónasi Jónssyni á, en hann ljet sem ógiJd væri. Mjer vitanlega hefir enginn borið brigður á, að forsætisráð- herra standi fyllilega á grund- velli laganna í þessu máli, og jafnvel ekki Jónas Jónsson hef- ir þorað svo mikið sem að ympra á því. En með þessu hef- ir þá Hermann Jónasson hjálp- að okkur Sjálfstæðismönnum til þess að sanna fyrir allri þjóð- inni það tvent, að „ömmu“-frum varpið flutti Jónas Jónsson að- eins til að fá tækifæri til að svívirða útvegsmenn og að Jón- ás Jónsson hefir í 5 ár vanrækt að hagnýta sjer gildandi laga- HraðrHun. Get tekið nokkra nemendur nú þegar. Sími 2296, aðeins kl. 3—4. HELGl TRYGGVASON. Appelsinur ódýrar, 504 stk. í kassa. Sig. Þ. Skjaldberg. (Heildsalan). ákvæði til verndar landhelg- inni og þarmeð sannað, að hann hafði sterka löngun til að ófrægja mennina, en enga löngun til að vernda landhelgina. Og eftir þessa harðleikni Hermanns Jónasson- ar, neyðist Jónas Jónsson til að játa, að í þessu hneykslismáli hefir hann alveg snúið við orð- um Páls postula. Hermann Jón- asson hefir sýnt þjóðinni innri mann Jónasar Jónssonar, og þá geta nú fiskimenn hjer auð- veldlega lesið þessi kjörorð af- brotamannsins: „Hið illa sem jeg vildi, gat jeg ekki. En hið góða sem jeg gat, vildi jeg ekkii“, og eftir þetta verður vað- all Jónasar Jónssonar um þetta mál, skoðaður sem fjörbrot fanga Hermanns Jónassonar, sem almenningur kennir í brjósti um, en tekur auðvitað ekkert mark á. Og það skilur auðvitað hver maður, að þegar Hermann Jónasson nú fer að gefa út bráðabirgðalög um þessi efni, eftir að hann sjálfur er búinn að sanna gildandi laga- ákvæði er fullnægja þörfinni, þá er það bara svona einsog smyrsl sem hver brjóstgóður fangavörður ber á viðjasár bandingja sinna. Það er einsog óheppnin sæki fastar og fastar á þennan ó- gæfusama einstakling í íslensku stjórnmálalífi. Enginn fæst til að leggja honum lið nema Sig- fús frá Höfnum, sem hælir hon- um fyrir peninga, og það er einsog hann megi ekki nokkurt spor stíga, án þess að eiga á hættu að hnjóta um Hermann Jónasson. Hann langaði ofboðs- lega til að verða forsætisráð- herra. Það strandaði á því, að enginn vildi hann, en Hermann vildu þeir allir. Hann langaði sjúklega til að ljúga æruna af andstæðingum sínum „bera þeim á brýn mútur, eiðrof, föð- urlandssvik, alveg út- í bláinn“, en Hermann Jónasson taldi að rjett væri að slíkir „siðlausir öfgamenn fái að sitja í fang- elsi nokkra mánuði fyrir að Ijúga vísvitandi upp á trúnað- armenn þjóðarinnar" og nú loks talar Hermann Jónasson í þriðja sinn, og segir þjóðinni frá því, að alt hjal Jónasar Jónssonar í landhelgismálunum sje hræsni og skynhelgi. Þar með færir Hermann Jónasson nýja sönnun fyrir sannleiks- gildi þessara orða Arnórs Sig- urjónssonar: „Jónasi Jónssyni hefir í mörg ár ekkert dottið í hug annað en þaS, hvernig hann eigi aS gera öSrum bölv- un“, orðanna sem munu lifa lengur en Jónas Jónsson, ekki af því að Arnór Sigurjónsson sagði þau, og ekki af því að Hermann Jónasson sannaði þau, heldur af því að þau eru eigi aðeins smellin og góð lýs- ing á Jónasi Jónssyni, heldur og alveg tæmandi frásögn um alla hans stjórnmálastarfsemi. Ólafur Thors; Uppreisn gegn Haiie Selassie! Nasibou bíður Italanna í Jijiga. Þegar Ras Hailu ætlaði að steypa keisar- anum af stóli. Með 75 þúsnnd manna lier. Nasibou hershöfðingi hefir aðalstöðvar sínar í Jijiga. ítalir birtu þá fregn fyrir all- löngu, að Nasibou væri fallinn. Fregnin er röng. Frjettaritari Reuters dvaldi vikutíma í Jijiga í lok desember. Skýrir hann svo frá, að Nasibou hafi 75 þús. manna her, sem eigi að verja Harrar. Reuterfrjettaritarinn var við- staddur máltíð hjá hermönnun- um. Segir hann að hermennirn- ir hafi nærst á maísgrjónum og vatni og hafi þrifist vel. Abyssiníumenn voru í upp- hafi hræddir við flugvjelar It- ala. Þeir höfðu flestir aldrei sjeð flugvjelar fyr. En nú hefir þeim tekist að skjóta niður nokkrar flugvjelar og auk þess hafa þeir lært að leita hælis fyrir loftárásum. Nú líta þeir nánast með fyrirlitn- ingu á flugvjelar. Um eitt skeið virtust flug- vjelarnar ætla að drepa kjark í hermönnunum. Svo fór þó ekki. Nasibou lýsti því yfir við frjettaritarann að hann væri vongóður um sigur. „Tíminn er okkar megin“, sagði hann, ,og sú staðreynd, að óvinum okkar hefir ekkert orðið ágengt fyrstu tvo mánuði ófriðarins talar sínu máli“. Oigan um Ras Hailu er svipuð ' ævintýrasögunum frá mið- öldunum, en gerist þó fyrir að- eins þrem árum. • Ras Hailu var einhver auðug- asti maðurinn í Abyssiníu. Hanh rje'ði yfir stóru landflæmi efnað- ist á þrælasölu og þrælkun þegna sinna. Brátt lenti í illdeilum með honum og Haile Selassie, og Ras Hailu ákvað að steypa keisaran- um af stóli og vinna um leið bug á öllum vestrænum menningar- áhrifum.; Áform hans var einfalt. Hann ætlaði að frelsa Lidj Yassu, son Meneliks keisara og rjettborinn til ríkja í Abyssiníu, úr fangelsinu í Fichte, þar sem hann var í haldi Ras Kassa. ; Ras Kassa helt með alt sitt lið til Addis Abeba, til þess að taka þátt í hátíðahöldunum, er ríkis- erfingi Abyssiníumanna kvæntist. Þetta gerðist fyrir þrem árum. Á meðan Ras Kassa var fjar- verandi helt Ras Hailu með her sinn til Fichte. Tókst honum að leysa Lidj Yassu úr dýflissunni, með því móti, að klæða hann í kvenmannsflíkur. Síðan heldu uppreisnarforingj- arnir til Addis Abeba. En hrað- boðar frá Fichte höfðu flutt tíð- indin til Ras Kassa á undan upp- re'isnarmönnunum og Ras Kassa, sem átti líf sitt að veði, ef Lidj Yassu kæmist undan, rjeðist undir Ódýr fiskur fæst í Fiskbúðinni, Flosaporti, Klapparstíg 8. Ný ýsa 15 aura !/2 kg., stútungur 10 aura !/2 kg. SÍMI 23 0 7. Nasibou hershöfðingi. eins með her sinn á móti upp- reisnarmönnum. Þrem dögum síðar var uppreisn in kæfð. Þegar uppreisnarmenn sáu hvehsu .vonlaus barátta þeirra var hlupu þeir undan merkjum og gengu í lið ,með Ras Kassa. Upp- reisnarforingjarnir stóðu uppi einir og eftir langan eltingaleik tókst að handsama þá. Sakamáladómstóll var skipaður og tuttugu uppreisnarnianna voru dæmdir til dauða. Ras Hailu var einnig dæmdur til dauða, en kdis- arinn sýndi honum náð og breytti dómnum í æfilangt fangelsi á fangelsiseyjunni, hinni hræðulegu, á Zwai-vatni. Synir Ras Hailu voru reknir í útlegð, og eigur konungs- ins gerðar upptækar, nema banka- innstæður hans, sem geýmdar eru í svissneskum banka og eru sagð- ar nema meiru en miljón sterlings pundum. * Synir Ras Hailu hafa nú reynt að stofna til nýrrar uppreisnar að því er hermir í einkaskeyti til Morgunblaðsins í gær. Samkvæmt ske'ytum hefir Ras IJailu verið tekinn til Addis Abe- ba og drepinn þar með eitri. Synirnir hafa dregið saman lið til hefnda og hafa borið hærra hlut fram til þessa. Best að auglýsa í íTlorgunblaðinu. Hautakjöt, Svínakjöt og Hangikjötið góða. Lítið eitt eftir. VersluDÍn Kjöt & Fiskur. Símar 3828 og 4764.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.