Morgunblaðið - 23.08.1936, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 23. ágúst 1936~
Sokkaviðgerðin, Tjarnargötu
10, gerir við lykkjuföll, stopp-
ar sokka, dúka o. fl., fljótt, vel,
ódýrt. Sími 3699.
Veggmyndir og rammar í
fJölbrejdÆu úrvali á Freyju-
gðtu 11.
Tannlœkningaatofa Jóns Jóns-
eonar læknis, Ingólfstræti 9,
opin daglega. Sími 2442.
Geri við saumavjelar, skrár
og allskonar heimilisvjelar. H.
Sandholt, Klapparstíg 11.
Rugbrauð, franskbrauð og
normalbrauð á 40 auia hvert.
Súrbrauð 30 aura. Kjarnabrauð
30 aura. Brauðgerð Kaupfjel.
Reykjavíkur. Sími 4562.
Ef þú ert svangur, farðu á
Heitt & Kalt. Ef þú ert lystar-
HSU, farðu á Heitt & Kalt.
Mikill og góður matur á Heitt
Sb Kalt. Fyrir lágt verð.
Otgerðarmenn! Sel Ódýra Og
góða bfeitusíld, eins og að und-
anförnu. Steingrímur Árnason,
sími 105"9.
Vesturgötu 22. Sími 8665.
Slysavamafjelagið, skrifstofa
Hafnarhúsinu við Geirsgötu.
Seld minningarkort, tekið móti
gjöfum, áheitum, árstillögum
m. m.
Fasteignasalan, Austurstræti
17, annast kaup og sölu fast-
eigna. Viðtalstími 11—12 og 5'
—7 e. h. Sími 4825. Jósef M.
Thorlacius,
Fiðurhreinsun. Við hreinsum
fiðrið úr sængum yðar sam-
dægurs.
Fiðurhreinsun Islands.
Ullarprjónatuskur, alumin-
íum, kopar, blý og tin keypt á
Maður reglusamur og hrein-
legur, vanur pípulagningum,
óskar eftir miðstöðvum til
kyndinga. Upplýsingar í síma
2465.
Rödd Reykjavíkur kemur út
á morgun. Afgreiðsla í Versl.
Esja, Grettisgötu 2, sími 2937.
Falleg ódýr garðblóm fást á
Suðurgötu 10.
Pergamentskermar við allra
hæfi, eru ávalt fyrirliggjandi úr
nýtísku pergamentpappír. —
Komíð. Skoðið. Kaupið. Raf-
lampagerðin, Hverfisgötu 4 —
sími 1926.
Rammalistar nýkomnir. Frið-
rik Guðjónsson, Laugaveg 17.
Kaupi gull og silfur, hæsta
verði. Sigurþór Jónsson, Hafn-
arstræti 4.
Kaupi gamlan kopar. Vald.
Poulsen, Klapparstíg 29.
Vjelareimar fást bestar hjá
Poulsen, Klapparstíg 29.
Trúlofunarhringana kaupa
menn helst hjá Árna B. Björns-
syni, Lækjartorgi.
Trúlofunarhringar hjá Sigur-
þór, Hafnarstræti 4.
Kaupi gull hæsta verði. Ámi
Björnsson, Lækjartorgi.
Úraviðgerðir afgreiddar fljótt
og vel af úrvals fagmönnum
hjá Árna B. Björnssyni, Lækj-
artorgi.
Gluggahreinsun og loftþvott-
ur. Sími 1781.
——-— ... —
Dagbókarblöð Reykvíkings
) r
V_____________________________
Nú bafa Englendingar gengið
úr skugga um, að Játvarð-
ur konungur ætlar ekki að gifta
sig áður en hann verður krýnd-
ur, því hann hefir pantað borð-
húnað, sem nota á við krýningar-
hátíðina, með stafamerkjum hans
eins.
*
kveðið er, að næstn Olympíu-
leikar verði haldnir í Tokio.
Svo þá verður naumast tækifæri
fyrir íslenska íþróttamenn að
spreyta sig, eða læra af þeim leikj-
um. Tokio-búar fögnuðu því mjög,
er þeir frjettu, lað leikarnir yrðu
þar háðir.
Maður að nafni Andrew 'W’ilson
Montlair uppástendur að hann hafi
sett heimsmet í notkun á sama
flibbahnappi. Hann hefir notað
sama hnappinn í 51 ár.
*
Talið er að Bæheimsmenn sjeu
höfundar öldrykkju. Þar hafi öl-
brugg verið byrjað 4000 árum f.
Kr.
*
isaskipið „Queen Mary“ er
73.000 smálestir. En öll
herskipin í „Flotanum ósigrandi“
vorn samtals 57.868 smálestir. í
flotanum voru 130 skip.
*
1 Svíþjóð ætla menn að hætta
við að takmarka löglegan hraða
bfla. Bílstjórar eiga sjálfir að
ráða því, hve hart þeir treysta
sjer til að aka, án þess slys hljót-
ist af.
Það er álit þeirra húsmæðra, er
reynt hafa, að best sje að aug-
lýsa eftir vetrarstúlkum í Morg-
blaðinu.
*
Talið hefir verið saman, að á
Spáni hafi verið alt í alt um 100
uppreisnir síðustu 30 árin.
*
Blindur amerískur stúdent hef-
ir farið fótgangandi yfir þvera
Ameríku, og komst klakklaust
með því móti, að hann leiddi
hund í bandi.
*
Chaplin er ríkastur allra kvik-
myndaleikara. Hann á 2 miljón-
ir dollara.
Shirley Temple,
Dúkkulísur á 0.40
Póstkort, 8 gerðir 0.25
Sjálfblekungasett á 1.50
Yekjaraklukkur á 5.50
Ávaxtasett, 6 manna 4.50
Ávaxtasett, 12 manna 7.50
Skálasett, 6 stykki 5.50
Skál'asett, 5 stykki 4.00
Barnadiskar með myndum 1.00
Matskeiðar, ryðfríjar 0.75
Matgafflar, ryðfríir 0.75
Teskeiðar, ryðfríjar 0.40
Matarstell 23 st., 6 m. 22.50
Dátamót frá 3.00
Bílar frá 0.85
o. m. fl. ódýrt.
K. Einarsson & Björnsson.
Bankastr. 11.
Ódýrast verður að auglýsa í Morgunblaðinu,
þegar tekið er tillit til hinnar geysimiklu útbreiðslu þess.
SíCímnni'tvaac
í KVÖLD KL. 8V2-
Kveðjusamkoma fyr
ir kadet Berthe
Jonsson, sem er á
förum til herskólans í Noregi..
Miðvikud. Ofursti Kristoffersen
Nýkominn saumur, iy2 til 8
tomma. Innrömmun ódýrust. —
Verslunin Katla, Laugaveg 27.
Café — Conditori — Bakarí,
Laugaveg 5, er staður hinna
vandlátu. Sími 3873. Ó. Thor-
berg Jónsson.
Friggbónið fína, er bæjarins
besta bón.
Otto B. Arnar, löggiltur út-
varpsvirki, Hafnarstræti 19. —
Sími 2799. Uppsetning og við-
gerðir á útvarpstækjum og loft-
netum.
Góða íbúð vantar, 2 herbergi
og eldhús. Upplýsingar í síma
3016.
Skólapiltur óskar eftir hús-
næði og fæði hjá fjölskyldu,
yfir veturinn. Tilboð sendist
blaðinu, merkt „Skólapiltur".
Nýsláfrað
Dilkakjöf.
Nýjár rófur og kartöflur.
Kjðtbúðin Herðubreið.
Hafnarstræti 18. Sími 1575,.
«
ETHEL M. DELL:
ÁST OG EFASEMDIR 3Q.
Ofurstinn leit undrandi á hann.
„Símskeyti, Monck kapteinn?“
„Já, það er frá konu minni“, svaraði Monck og dró
þungt andann. „Jeg verð að fara þegar í stað“.
Nokkur augnablik var dauðaþögn í herberginu. Svo
sagði ofurstinn.
„Kannske þjer vilduð gjöra svo vel og sýna mjer
skeytið ?“
Monck deplaði augunum, eins og hann hefði fengið
löðrung. Síðan kastaði bann samanbögluðum brjef-
miða á borðið fyrir framan yfirmann sinn.
„Gjörið svo vel, herra ofursti“, sagði hann börku-
lega.
Aftur varð augnabliks þögn. Það var augljóst, að
Monck átti bágt með að halda sjer upprjettum, æðis-
legur örvæntingarsvipur skein úr augum bans, eins og
hjá manni, sem líður dýpstu sálarkvalir.
Ofurstinn leit npp. „Farið þá“, sagði bann aðeins.
„Farið af stað eins fljótt og þjer getið, og jeg vona
að þjer fáið gleðilegri fregnir, þegar þjer komið á
áfangastaðinn“.
Hann rjetti kapteininum skeytið aftur og það var
dálítið af hinum gamla, vingjarnlega hreim í rödd
bans.
Um leið og Monck rjetti út hendina til þess að taka
við skeytinu var sjálfstjórn hans lokið. Hann skjögr-
aði áfram og greip í borðið sjer til stuðnings.
„Hún deyr“, stamaði hann, „hún deyr frá mjer. Ef
til vill kem jeg of seint
Hann hætti skyndilega að tala og titringnr fór um
.hann.
Sir Reginald laut niður að honum.
„Þjer verðið að herða upp hugann, Monck. „Þjer
þurfið á öllu yðar þreki að halda, en þjer skuluð
sanna til, með guðs hjálp, líður henni betur, þegar
þjer komið“.
Monck rjetti bægt úr sjer.
„Hafið þjer nokkurntíma spilað við sjálfan djöful-
inn?“, sagði hann æðislega. „Hafið þjpr reynt, hvað
það er að hætta allri æru, öllu lífi sínu, til þess að
frelsa konu frá því sem verra er en víti — og tapa
síðan spilinu! Drottinn minn! Tapa og missa alt, jafn-
vel konuna, sem er manni dýrmætari en alt annað ..“
Alt í einu herti hann sig upp. „Kærið yðúr ekki um
hvað jeg segi“, sagði hann vonleysislega. „Mjer finst
sem jeg hafi verið í sjóðandi víti, og það hefir lagst á
heilann í mjer, kærið yður ekki um það ....“
„Nú skuluð þjer vera rólegur“, sagði Sir Reginald
í vingjarnlegum en myndugum tón. „Þjer vitið, að
þjer eruð meðal vina hjerna“.
Monck dró andann djúpt, og. smám saman tókst
honum að sigrast á geðshræringu sinni. Hann leit upp
og horfði á Sir Reginald náfölur á svip.
„Þakka yðnr fyrir, Sir“, sagði hann. „Þjer eruð alt
of vingjarnlegur. Nú er jeg húinn að jafna mig. Þetta
lagast“.
Hann bjóst til þess að standa á fætur, en Sir Regin-
ald aftraði honum þess. „Bíðið augnahlik, Burton
majór hlýtur að koma rjett strax“.
„Burton majór?“, endurtók Monck spyrjandi.
„Já, jeg hað hann um að sækja whisky, til þess að
hressa yður“.
„Þjer eruð alt of vingjarnlegur við mig“, sagði
Monck. Hann sat kyr með andlitið falið í höndum sjer.
Að vörmn spori kom Burton aftur inn, ásamt
Tommy. — Hinn ungi liðsforingi staðnæmdist
hikandi við dyrnar, en ofurstinn henti honum að
koma inn. „Það er best að þjer sjáið þetta skeyti
líka“, sagði hann. „Systir yðar hefir orðið skyndilega
veik, og Monck er að Ieggja af stað til hennar“.
Tommy las skeytið og leit síðan á Monck, sem helti
í sig úr whiskyglasinu, sem Burton hafði fært honum, .
og stóð síðan á fætur. „Mjer þykir leitt, hvernig jeg
liefi hegðað mjer, Sir“, sagði hann og leit með afsak-
andi brosi á Sir Reginald. „Jeg mun aldrei gleyma,
hve vel þjer hafið komið fram við mig, þó að jeg von-
ist til þess, að þjer gleymið því sem komið hefir fyrir“.'
Sir Reginald horfði grandgæfilega á hann í nokkrar
sekúndur. Síðan rjetti hann honum höndina. „Verið
þjer sælir, Monck kapteinn“.
Brosið stirðnaði á andliti Moncks, og það varð graf-
alvarlegt og óbifanlegt sem fyr. „Verið þjer sælir, Sir“,.
sagði hann stuttaralega og þrýsti hönd hans.
Tommy gekk þegjandi á brott við hlið Moneks.
20. KAPÍTULI.
„Þú sagðir, að Everard kæmi, hvers vegna kemur
liann eklci? Þetta myrkur er liræðilegt. Heldur þú, að
hann hafi vilst?“ ;
Röddin var veik, og orðin komu eitt og eitt á
stangli, með miklum erfiðismunum. Frú Ralston laut
yfir rúmið og hvíslaði í hughreystandi tón, að Everard
hlyti að koma á hverri stundu.
„En hvers vegna er hann svona lengi?“, hvíslaði
Stella. „Myrkrið verður æ svartara“.
„Þú verður að reyna að yera þolinmóð“, sagði frÚ!
Ralston blíðlega. „Nú fer að birta“.
Það var orðið framorðið, og hún sat sjálf og hlustaði
með eftirvæntingn eftir liverju hljóði að utan, í von
um að heyra hið rólega fótatak þess manps, sem einn
gat hjargað sjúklingi hennar í þessari miklu neyð.
,,Það væri hræðilegt að missa hann“, hvíslaði Stella,.
„mjer finst jeg liafa.beðið heila eilífð. Hvers vegna
kveikir þú ekki ljós?“
Tendraður lampi stóð á horðinu við rúmið. Frú
Ralston lyfti skerminum upp. En Stella hristi höfuðið
eins og hún væri að örmagnast. „Það stoðar ekki. Jeg