Morgunblaðið - 03.09.1936, Page 5

Morgunblaðið - 03.09.1936, Page 5
Timtudagur 3. sept. 1936, MORGUNBLAÐIÐ 5 * Háskólinn hefir aldrei iiiislieitt veiling'avaEdi §ínu. Ósvífnar aðdróttanir Alþýðublaðsins ALÞÝÐUBLAÐIÐ fór á stúfana fyrir síðustu helgi, til að reyna að verja síðasta stórhneyksli Haralds Guðmundssonar, er hann braut lög á Háskólanum og skipaði ísleif Árnason laga- prófessor, eftir að ísleifur hafði neitað að keppa um embættið við Gunnar Thor- oddsen. Eru skrif Alþbl. um þetta mál einhver sú óbverraleg- asta og illkvitnasta máls- vörn, ef vörn skyldi kalla, sem einn ráðherra hefir lát- ið bera fyrir sig. Samsetn- ingur bessi er frá upphafi til enda hinar ósvífnustu dylgjur og aðdróttanir í garð Háskólans og allra beirra bjóðkunnu vísinda- og mentamanna, sem bar starfa, og er bar enginn undan skilinn. Er það hið rammasta hneyksli, ;að kenslumálaráðherrann skuli telja sjer samboðið að láta mál- gagn sitt flytja slíkar upplognar ákúrur á alla prófessorana við æðstu og veglegustu mentastofnun landsins. Gengur greinin öll í þá átt, að telja mönnum trú um „sið- leysi og hlutdrægni prófessora- klíkunnar í embættaveitingum við Háskólann“, eins ©g blaðið kemst svo kurteislega að orði. Nefnir það til fjögur dæmi, sem hjer ákulu nú rakin. I. yrir allmörgum árum losnaði dósentsembætti við guð- 'fræðideildina, og var Tryggvi Þór- halsson settur til að gegna því í einn vetur. Þegar svo embættið var auglýst sóttu um það Tr. Þ., Magnús Jónsson og Ásmundur Guðmundsson. Ákvað Háskólinn að láta fram fara samkepnispróf milli þeirra, eins og fullkomlega var rjettmætt, því að alt voru þetta vel gefnir menn og vafa- laust hver um sig fær til starfs- ins. í samkepninni sigraði Magnús -Jónsson og var því veitt embætt- ið. Segir Alþbl. að þessi samkepni 'hafi verið ákveðin af pólitískum ástæðum, vegna þess að hún hefði verið eina vissa ráðið til að losna ’við Tr. Þ. Með þessu viðurkennir Alþbl. yfirburði Magnúsar Jóns- ■sonar, þar sem hann væri viss uin að sigra í samkepninni, enda hefir sv® farið, að Magnús Jónsson hef- ir reynst afburðakennari, viður- kendur af öllum sínum lærisvein- um án flokksgreinarálits, afkasta- mikill vísindamaður og stórvirkur rithöfundur í sinni fræðigrein, þrátt fyrir margvísleg opinber trúnaðarstörf, sem á hann hafa hlaðist.Dettur nú engum í hug,öðr um en sorpriturum Alþbl., að ef- ast um að þarna hafi valist hæf- asti maðurinn til starfsins. Og hvílík fjarstæða það er, að hjer hafi pólitík ráðið, má sjá af því, að hvorugur þeirra manna, sem Alþbl. nefnir lijer til, Tr. Þ. óg M. J., voru þá yfirleitt farnir að gefa sig við opinberum mál- um. * egar síra Haraldur Níelsson andaðist, losnaðj enn dós- entsembætti í guðfræbideild, og valdist þá Ásmundur Guðmunds- son til starfsins. Alþbl. fer hinmn hraklegustu orðum um Ásmund, og telur að Sveinbjörn Högnason hefði átt að fá embættið; Svein- björn hafi verið styrktur til fram- haldsnáms af Háskólanum, og hann hafi óskað eftir samkepnis- prófi. Það sanna er, að Svbj. Högnason fjekk, að eigin beiðni, meðmæli guðfræðideildar með því, að hann fengi styrk úr Dansk isl. Forbundsfond, 1925, og síðan næsta ár ofurlítinn við- bótarstyrk úr Sáttmálasjóði, en aldrei venjulegan framhalds- námsstyrk guðfræðideildar. Og hafi hann óskað eftir samkepni, þá kom sú ósk hans a. m. k. aldrei til Háskólans. Sveinbjörn hafði þá ekki sýnt neitt eftir sig af ritstörfum, og enn þann dag í dag hefir ekki sjest eftir hann , einn stafur um þau fræði, sem Alþbl. telur hnn svo lærðan í. Síra Ásmundur var hinsvegar víð- kunnur og velmetinn prestur ogt skólastjóri, sem hafði þá þegar fengist við ritstörf og gefið út guðfræðileg rit. Ennfremur lágu fyrir ummæli dómnefndar frá því er Á. G. tók þátt í keppninni við Magnús Jónsson og Tr. Þ., sem voru lofsamleg og taldi dómnefnd- in hann vel þess verðan að taka að sjer kenslu í guðfræðideild. Síðan hefir Á. G. haidið áfram ritstörfum, en Sveinbjörn ekkert eftir sig sýnt. Auk þess er Ás- mundur hinn mætasti maður og sómi sinnar stjettar. * rið 1930 fór fram samkepni um prófessorsembættið í sögu og sigraði Árni Pálsson í kepninni og hlaut embættið. Al- þbl. segir að Árni hafi skilað hálfnaðri ritgerð og því ekki át' að koma til greina. Þetta er ó- satt, en hitt er rjett að ritgerð Árna var ekki alveg fulllokið, og stafaði það af veikindum hans meðan á frestinum stóð. Þrátt fyr- ,ir þetta var það samdómur allra dómenda að ritgjörð hans og fyr- irlestur bæru af fyrir vandvirkni, mælsku og ritsnild og sýndu mikla rithöfundarhæfileika. Auð- vitað á lengd ritgerðar og blað- síðutala ekki að vera mælikvarð- inn, heldur efni hennar og inni- hald. Skjólstæðingur Alþbl. er í þessu tilfelli Þorkell Jóhannesson, en hans ritgerð var einnig að því leyti ábótavant, að hann sinti lítt sumum þáttum verkefnisins og ritgerð hanS var því einhæf- ari en ætlast var til (sbr. álit dómnefndarinnar, í Árbók Háskólans). Samt hlaut Þorkell loflegan dóm, þótt Árni væri úr- skurðaður honum fremri. Kallar Alþbl. samkepnina „hneyksli og svikamyllu", vegna þess að verk- efnið hafi verið valið úr sjergrein eins keppandans, og er þar átt við Þorkel. Þessa ásökun hefir dómnefndin sjálf hrakið í Árbók Háskólans 1930—1931. Og virðist það heldur til álitshnekkis fyrir Þorkel, sem Alþbl. vildi láta veita ' embættið, að breiða það út að verkefnið hafi verið úr sjergrein hans, þar sem hann sigraði ekki í samkepninni. * á kemur röðin hjá Alþbl. að Bjarna Benediktssyni. Segir það að ranglega liafi verið gengið fram hjá Þórði Eyjólfssyni, er Bjarni lilaut prófessorsembætti 1932, og hefði þó Þórður haft lengra framhaldsnám, og auk þess ritgerð í smíðum, en Bjarni ekki. Hvort tveggja er ósannindi, því að báðir höfðu þeir stundað fram- haldsnám jafnlengi, og Bjarni hafði einnig rit í smíðum. En. Al- þbl. steinþegir um það atriði sem mestu máli skiftir, að Bjarni hafði stundað sjerfræðinám í annari þeirri kensugrein, sem prófessor- inn átti að kenna, stjórnlagafræði, en Þórður í hvorugri, heldur lagt- fyrir sig alt annað svið lögfræð- innar. Auk þess hafði Bjarni hæsta lögfræðipróf, sem tekið hef- ir verið við Háskólann. Það er eftirtektarvert, að Alþbl. telur Þórð hafa borið af Bjarna fyrir tvent: lengra framhaldsnám, og að hann hafði ritgjörð í smíð- um, en þetta eru einmitt sömu at- riði og Háskólinn taldi Gunnar Thoroddsen hafa fram yfir fsleif. Að vísu eru þessir umtöluðu yfir- burðir Þórðar ósannir, en það er þó gott að fá viðurkenningu Al- þbl. fyrir því, að af þessum tveim ástæðum hefði á sínum tíma átt að taka Þórð fram yfir Bjarna, því að sama hefði þá nú átt að gilda um Gunnar og ísleif. Hefir nú verið sýnt fram á og sannað, að áburður og aðdróttan- ir Alþbl. á hendur Háskólanum út af þessum fjórum embættaveit- ingum eru fjarstæður einar og fá- ránlegasti hugarburður. Sýnir það best ömurleik málstaðarins, að gripið skuli til slíkra upplog- inna aðdróttana í garð háskóla- kennaranna. Öll stóryrðin og svig urmælin um „hlutdrægni" Há- skólans falla þannig um sjálft sig, og fyrir þeim er enginn fót- ur. Val kennaranna í þessum fjór um tilfellum hefir tekist mjög vel. Alþbl. ræðst sjerstaklega á samkepnisprófin, en í þau tvö skifti, sem þau hafa farið fram, hafa tvímælalaust valist glæsileg- ustu gáfumennirnir, sem þátt tóku í kepninni, þeir Magnús Jónsson og Árni Pálsson. II. Alþbl. var gerð tilraun til að sýna fram á, að Háskólinn hefði engan ákvörðunarrjett um veitingu kennaraembætta; hann hefði aðeins rjett til að gera sín- ar tillögur, sem ráðherrann væri alls ekki skyldur að taka minsta tillit til. Þessari fásinnu er í raun- inni óþarfi að svara, því að í skýrslu háskólakennaranna voru eftirfarandi atriði sönnuð með ó- hrekjandi rökum: 1. Það er viðurkendur rjettur allra háskóla í lýðræðislöndum að ráða sjálfir vali kennara, enda augljóst, að þetta verkefni er bet ur komið í höndum þeirra fræði- manna, er við háskólann starfa, en hjá ráðherra, sem ef til vill hefir enga þekkingu á þessum málum. 2. Þessi sami sjálfsákvörðunar- rjettur hefir verið viðurkendur hjer á landi fram til þessa. 3. Háskólinn hefir samkvæmt háskólareglugerðinni skýlausan rjett til að láta fram fara sam- kepnispróf milli umsækjenda, og að það er óhjákvæmilegur skiln- ingur, að sá umsækjandi, sem neitar þátttöku, er úr leik og sama sem hann taki umsókn sína aftur. Þannig er vitanlega litið á í öllum löndum, enda kæmi ann- að í bága við lieilbrigða skyn- semi. * em dæmi þess, hversu mikið tillit er tekið til háskólanna erlendis í þessum efnum, má nefna það, að í Danmörku, þar sem svipuð lagaákvæði gilda, hef- ir það aldrei komið fyriv á þess- ari öld, að nokkur ríkisstjórn halS dirfst að ganga á móti vilja háskólans í embættaveitingum. En hjer á landi skirrist Haraldur Guðmundsson ekki við að brjóta lög á Háskólanum, til þess að níðast á sínum yngsta áberandi andstæðingi og bola lionum frá tembættinu, eingöngu af pólitísk- um ástæðum. Er það furðulegt, að Haraldur Guðmundsson, sem ald- rei hefir sjálfur komið nálægt laganámi nje lögfræðikenslu, skuli gera sig svo digran, að taka fram fyrir hendur lagaprófessor- anna sjálfra. * lía síðastliðna viku, síðan skýrsla háskólakennaranna kom út, hefir þetta mál vakið feikna umtal og athygli. Yoru þeir ýmsir, sem bjuggust við, að ísleifur Árnason mundi draga sig til baka eftir að Háskólinn hafði lýst hann „stórum ámælisverðan“, ef liann tæki við veitingunni. Menn höfðu þekt Isleif sem drengskaparmann og bjuggust síst við því af lionum, að. hann myndi láta hafa sig til neins þess verks, sem ódrengskapar-bragð væri af. Vinum ísleifs tekur það því mjög sárt, að hann skuli nú hafa látið pólitíska óþokka fá sig til að vinna verk, sem allir góð- ir drengir hafa megnustu and- stygð k. ísleifur hlýtur líka að sjá það og finna, að hin- ir pólitísku loddarar, sem hann er að vinna fyrir, hika ekki við að gera hans hlut hinn versta í augum almennings, sbr. aðferðin sem er viðhöfð til þess að kom- ast hjá samkepnisprófinu. Þessi embættisveiting hefir vakið andúð og hneykslun alls al- mennings og fæstir, jafnvel úr liði stjórnarinnar, fást til að mæla henni bót. Og það má hafa til marks um, hve málið er ógeðs- legt, að jafnvel Tímagimbill hliðr ar sjer hjá að taka afstöðu, og kallar hann þó ekki alt ömmu sína. Hefir lionum meira að segja fundist ástæða til að taka það skýrt fram, að það sje ekki flokks maður hans, dómsmálaráðherrann, heldur kenslumálaráðherrann, Haraldur Guðmundsson, sem skipaði í embættið. EUilann og ðr orknbætnr. Umsóknum um ellilaun og örorkubætur á þessu ári sje skilað hingað á skrifstofuna fyrir lok þessa mánaðar. Eyðublöð fyrir umsóknir í ofangreinda átt fást hjer á skrifstofunni og hjá prestunum. m; ,'scv!f Borgarstjórinn í Reykjavík, 2. sept. 1936. Pfetur llalhlórsKon Ef þjer ferðist til Noregs, þá búið á HOTEL ROSENKRANTZ, Tyske Bryggen, Bergen. Stórt og gott hótel með lágu verði á her- bergjum og máltíðum. Heitt og kalt vatn, bað og sími.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.