Morgunblaðið - 04.02.1937, Síða 2

Morgunblaðið - 04.02.1937, Síða 2
2 MORGunBLAÐlÐ Fimtudagur 4. febrúar 1937 Hitler bvrjar baráttuna fyrir nylendum. Skýrsla til stjórna Bretlands, Frakklands og Japan. FRÁ FRJETTARITARA VORUM: EHÖ7N 1 GÆE. Mælt er að von Ribbentrop, sendiherra . Þjóðverja í London, hafi meðferðis er hann kemur til London í kvöld eftir að hafa dvalið í Berlín síðan fyrir jól, skjal frá Hitler, til bresku stjórnarinnar, þar sem lýst er nákvæmlega nýlendukröfum Þjóð- verja. I Englandi eru skiftar skoðanir meðal stuðningsmanna Þjóðstjómarinnar um nýlendukröfur Hitlers. Það er þó alment fullyrt að breska stjórnin neiti að ræða um þessar kröfur, fyr en Þjóðverjar hafi fallist á tillögur, sem tryggi friðinn í Evrópu. Útgeí.: H.f. Árvakur, Reykjavtk. Ritstjörar: Jön Kjartaneson og Valtýr Stefánsson — ábyrgC armaö ur. Rltatjörn og afgreiOsla: Austurstræti 8. — Slsnl 1800. Helmaslmar: Jön Kjartansson, nr. 3742 Valtyr Stefánsson, nr. 4220. Árni Óla, nr. 3045. Áskrlftagjald: kr. 3.00 á mánuOl. f lausasölu: 15 aura eintaklO. 26 aura sseO Lesbök. Kaupfjelagsverslun. Vilhjálmur Þór kaupfjelags- stjóri Kaupfjelags Eyfirðinga hefir sent erindreka sinn til Vest- mannaeyja til þess að kaupa þar fisk. Var sendimanni þessum ekki tekið eins vel og hann hafði bú- ist við, að því er hann skýrði Al- þýðublaðinu frá. Vestmannaeying ar voru ekki ginkeyptir eftir því að selja fisk sinn óverkaðan á brott, og erindisrekstur mannsins gekk því ekki vel, enda þótt, að því er hann sagði sjálfur frá, hann hefði boðið hátt verð fyr- ir fiskinn. Alþýðublaðið kendi stjórn Útvegsbankans um, hve treglega gekk með fiskkaupin, og sparaði ekki stór orð, fremur venju, að þarna væri verið að hafa fje af sjómönnunum. Blað- skrípinu var bent á, að það væru hæg heimatökin að eiga um þaÍ5 við Útvegsbankastjórann Jóu Baldvinsson, ef hann hefði stuðl- að að því, að sjómenn yrðu af hagkvæmum kaup'u'm Eftir þá vísbendingR ^en þálttur Alþýðu- blaðsins úti í þessu máli. En fingralengd Viihjálms Þór á Akureyri eftir afla Vestmanna eyinga er eftit sem áður íhugunar efni. Hvar liggur hjer fiskur und- ir steini? Því er fljótsvarað. Kaup fjelögin skattfrjálsu hafa þau sjerrjettindi, að mega sjálf ráða yfir þeim gjaldeyri, er þau fá fyr ir útflutningsvöru sína. Vilhjálm- ur Þór þarf því ekki annað, til þess að afla sjer iunflutningfe, en að kaupa upp íslenskar afurðir, selja þær, og hagnýta sjer hirftt erl. gjaldeyri eftir því sem hon- um þóknast, á meðan önnur fyr- irtæki, sem haff hafá innflútning á hendi, fá gjaldeyri sem svarar nokkrum prósentum af því, sem þau áður hafa haft. Það er þetta, sepi rauða dótið við ríkissjóðsjötuna kallar að lög- in nái jafnt yfir alla. Enn er það íhugunarefni, að Vilhjálmur Þór treýstir sjer til þess að kaupa fiskinn hærra Vérði en aðrir. En af því hálin gétur notað hinn erlenda gjaldeyri seth. hann fær fyrir fisk eftír eígiti geðþótta hagnýtt sjer hverja krónu betur en hinir, sem þjakáði er með höftum og homlum. ' ' ; Þannig hefir hinn eyfirski kaupfjelagsstjóri fIeitt tvent í ljós .fyrir almenningi með braski sínu í Eyjafiskinurn. Ilann "sýnir hvernig hann ætlar að nota sjer- rjettindi sín til skefjalausrar, gróðaásælni í öðrum landshlutum. Og hann sannar, að með því að útflytjendur fái frjáls umráð yfir gjaldeyrinum, gætu þeir greitt framleiðendum hærra verð en þeir nú geta. Foriogi varnar- ráðs Madrid- borgar farinn til Frakklands. Stóríeld sókn til Malaga undirbúin. FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KHÖFN 1 GÆR. ijaja, hershöfðingi er farinn frá Mad- rid og er væntanlegur til Marseilles í kvöld. — Hann hefir skipulagt vörn Madrid, sem for- maður varnarráðs borg- arinnar, frá því að Ca- ballero og stjörn hans flúði til Valencia. Mijaja hefir flúið borg, sem á að verjast ægilegri hungursneyð. I skeyti til „Daily Ex- press“ frá Madrid, er því lýst hvernig soltin börn berjast um óhreinan úr- gang á götum borgarinn- ar. I borginni sjást engir kettir lengur — þeir hafa allir verið uppetnir. SÓKN TIL MALAGA London í gær. FÚ. Uppreisnarmenn safna nú mikíu liði (segir í frjett frá Gibraltar), í því skyni að gera aðra tilraun til að ná Malaga, og ætla þeir að sameina land, sjó og lofther sinn til þessa átaks. Uppreisnarmenn segjast hafa náð á vald sitt fjallskarði einu í grend við Ronda og um 50 mílur fyrir vestan Malaga, og telja það hafa mikla hernað- arlega þýðingu. I gærkvöldi gerðu upp- reisnarmenn loftárás á Malaga og ljetu nokkrir menn líf'ið. Sex herskip uppreisnar- manna hafa verið dregin sam- an við Algeciras. Enn fremur liggja nú tvö þýsk herskip við Algeeiras, ásamt herskipum uppreisnarmanna. ÞÁTTTAKA ÍTALA Þær frjettir hafa borist til London eftir óbeinum leiðum að Italir hafi enn sett lið á land í Cadiz, á föstudaginn var, en ekki er fengin vitneskja um hve mannmargt það var, nje hvort það var vopnað. LINDBERGH I RÓM. London 3. febr. FtJ. Samkvæmt síðustu frjettum er Lindbergh og kona hans enn þá í Rómaborg, og óvíst hve- nær þau halda áfram ferð sinni til Egyptalands. Röðin komin að honuivi? Litvinoff. Kona Litvinoffs tekin föst. FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KBH. I GÆR. í skeyti frá Varsjá til Politiken segir, að GPU hafa kallað á konu Lit- vinoffs utanríkismálaráð- herra Rússa, til yfir- heyrslu og síðan tekið hana fasta. * í skeyti frá Moskva til Daily Express í London segir til viðbótar að Marj- arin bankastjóri rússneska þjóðbankans hafi verið settur í varðhald. Enn fremur hefir 16 ára dóttir Radeks verið sett í varðhald, og er talið að GPU hafi tekið hana fasta til þess að vekja æsingar meðal stúdenta yfir dóm- inum í málaferlunum gegn Radek (GPU þykir dóm- urinn sennilega of vægur). Verðmæti úr fiskúrgangi. Mýjung Matthíasar Þórðarsonar. MáttMas Þórðarson ritstjóri og sjerfræðingur í útgerð- armálum, eV lengi hefir verið bii- settuv í Khöfn, hefir leitað að stoðar og verið í samvinnu hjer við efnarannsóknarstofu og verk- smiðju með tilraunir til þess að gera verðmæti úr úrgangsfiski og fiskúrgangi, sem hingað til hefir verið verðlaus eða um það bil. Tíðindamaður yðar hefir kom- ist að raun um, að tilraunir þess- ar virðast ætla að hera góðan ár- angur. Eftir því sem næst verður kom- ist á þessi nýjung á sviði fisk- framleiðslu að geta komið að miklu gagni fyrir íslenska útgerð. Ekki hefir ennþá verið gefið neitt til kynna um það, hvaða vörur eða verðmæti eru framleidd. (Skv. einkask. frá Kbh.). Framtak Roosevelts. Fimm miljarðir dollarar til viðreisnarð flóðasvæðunum. FRÁ FRJETTARITARA VORUM: KHÖFN I GÆR. oosevelt hefir beðið þingið í Bandaríkj unum um heimild til þess að verja 5 miljörð- um til viðreisnarstarfs- ins í ríkjunum, sem orð- ið hafa fyrir vatnavöxt- unum í Ohio og Miss- issippi. Útgjöldunum verður skift niður á sex ár. Kairo er enn umflædd og er talið að hún komist ekki úr hættu fyr en eftir fjóra daga. FLÓÐIN HÆKKA ENN. Loondon í gær. FÚ. I borginni sjálfri og ná- grenni hennar hefir nú komið í Ijós, að vatnið hefir sökum hins gífurlega þrýstings, stig- ið niður í jörðina og vellur hvarvetna upp sandur og vatn á þessu svæði, handan við flóðgarðana inni í borginni. Er yfirborð Ohio og Missi- sippifljóts tók aftur að hækka við Cairo snemma í morgun, var varnarliðið við flóðgarðana þegar tvöfaldað. 55 strand- vamaskip, sem flutt hafa ver- ið frá Atlantshafsströnd, halda þar einnig vörð. I Cincinnatti eru nú aftur að hefjast eðlilegar samgöng- ur. Það hefir aftur á móti vakið athygli, að kunnur enskur stjórnmálamaður, Sir Claud Russell, er gegnt hefir sendi- herrastörfum fyrir Breta víða um heim, nú síðast í Portúgal, hefir stungið upp á því í brjefi sem hann hefir sent ,,The Tim- es“, að Þjóðverjum verði af- hent eitthvað af nýlendum Breta, Frakka, Portúgala og Belga í Vestur-Afríku. Undanfarið — þar til Hitler hjelt ræðu sína fyr- • ir skömmu, hefir verið hljótt um nýlendukröfur Þjóðverja. Nú er mælt að þýska stjórn- in muni senda stjórnum Frakk- lands og Japan skýrslu sam- hljóða skýrslunni til bresku stjórnarinnar um nýlendurnar. TIL TANGANYIKA London í gær. FÚ. Anthony Eden skýrði frá því í dagM breska þinginu, í svari við spurningu, að ensku stjóm- inni hefði ekki borist nein til- kynning um för Fursters, fyr- verandi yfirflotaforingja Þýska lands, til fyrri nýlendna Þjóð- verja í Afríku. En sú frjett hefir borist út, að Fiirster hafi lagt af stað frá Þýskalandi á laugardaginn var, og að för hans sje heitið til Tanganyika. Á hinni árlegu vorsýningu í Leipzig, verður í vor nýlendu- deild. Verða þar sýndar land- búnaðarvjelar, sem notaðar eru við nýlendustörf, fyrirmyndir af húsum handa nýlendubúum, meðul og hjúkrunartæki, sjúkrahús, o. s. frv., alt miðað við nýlenduþarfir. Fiskmarkaðurinn í Grimsby í gær: Besti sólkoli 120 sh. pr. hox, rauðspetta 110 sh. pr. box, stór ýsa 35 sh. pr. box, miðlungs ýsa 30 sh. pr. box, frálagðip- þorskur 14 sh. pr. 20 stk., stór þorskur 8 sh. pr. box og smáþorskur 7 sh. pr. box. (Tilk. frá Fiskimála- nefnd. — FB.).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.