Morgunblaðið - 04.02.1937, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ
6
Fimtudagur 4. febrúar 1937
Innflutningsnefndin og
blekkingarvottorðin.
FEAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
fyrri vörukaup sín. En fjeð
«itur fast í bönkunum hjer.
Svona er nú ástandið hjá
kaupsýslumönnunum. — Þess
vegna er það frekleg ósvífni
•fan á alt annað, að vera
að krefja þessa menn um vott-
orð um það, að þeim hafi ekki
▼erið synjað um innflutnings-
Ieyfí- yng
Skiljanlegt er, að fjármála-
ráðherrann lætur í vottorðs-
leitinni sendla sína í Gjald-
oyris- og innflutnmgsnefnd
alveg ganga fram hjá þeim
kaupsýslumönnum, sem flytja
ínn matvöru, byggíngarvöru
•g þess háttar, enda myndu
slík vottorð ófáanlega.
STEFNA
FJÁRMÁLA-
RÁÐHERRANS
Fjármálaráðherrann hefir
ekki farið dult með það, hvað
fyrir honum vakii í gjaldeyris*
og innflutningsmá’unum.
Stefnan, er að þurka amám
saman út alla kaupmenn, og
skapa Sambandinu og kaup-
f jelögunum einskonar einokun-
araðstöðu á verslunarsviðinu.
Sambandskaupfjelögin hafa
frjáls umráð yfir sínum gjald-
eyri og geta notað hann til
▼örukaupa jafnharðan.
Framkvæmd innflutnings-
haftanna er þannig, að kaup-
fjelögin fá innflutningsleyfi
eftir höfðatglu. Þau leggja því
alt kapp á að fjölga sínum
meðlimum á pappírnum, því
að við það eykst innflutning-
urinn. Alt gengur þetta út yf-
ir kaupmennina.
Og nú eru stærstu kaupfje-
lögin farin að seilast eftir
gjaldeyri hvar sem þau geta
í hann náð á landinu. Þannig
hefir K. E. Á. nýlega gert
út sendimann til Vestmanna-
eyja til þess að reyna að fá
þar keyptan fisk, og boðið
langt yfir markaðsverð. Auð-
vitað er tilganguriún fyrst og
fremst sá, að fá uhiráð yfir
sem mestum gjaldeyri, því að
það gefur von um meiri gróða
á innflutningsvörunni.
Fjármálaráðherrann og
gjaldeyrisnefnd loka augunum
fyrir þessu, enda þótt með
þessu háttalagi sje gengið
freklega á rjett aðþrengdra
útgerðarmanna, sem sviftir eru
með lögum öllum umráðarjetti
yfir sínum gjaldeyri.
* *
Þjóðin á vafalaust eftir að
finna til þess óþyrmilega, þeg-
ar á þessu ári, hvaða afleið-
ingar brask fjármálaráðherr-
ans í gjaldeyris- innflutnings-
málunum hefir fyrir hana.
öllum almenningi finst dýr-
tíðin í landinu óbærileg eins
og nú er. En vegna aðgerða
stjórnarvaldanna á liðnu ári,
á dýrtíðin eftir að vaxa enn
stórkostlega á þessu ári.
Það er því líkast sem vald-
hafarnir geri sjer beinlínis
leik að því, að auka sem mest
erfiðleika fólksins á öllum
sviðum.
Frjálsari viðskifti milli
smáþjóðanna.
Ummæli Sandlers.
Stokkhólmi í gær. FÚ.
Sidler, utanríkisráðherra
?vía, sem nú er staddur í
Brússel, ásamt Gustaf Svía-
konungi ljet-í ljós við belgíska
blaðamenn í dag, að þær ráð-
stafanir sem Norðurlöndin og
Holland og Belgía væru nú að
gera til eflingar innbyrðis við-
skiftum, mættu verða áhrifa-
vald sem einnig verkaði á fram
komu annara þjóða og samn-
ingagerðir.
Sandler lýsti yfir því, að Sví-
ar vildu gera sitt ýtrasta til
þess að efla slíka vinsamlega
samvinnu ekki einungis við
Belgíu heldur og allar aðrar
þjóðir.
Skemdarverk í breska
flotanum.
London í gær. FÚ.
Idag kom upp eldur í einni af
sjóhernaðarflugvjelum breska
flotans, þar sem hún lá í höfn.
Verkamenn syntu út til flugvjel-
arinnar og gátu slökkt eldinn
með kemiskum slökkvitækjum, en
þó ekki fyr en að yfirbygging
vjelarinnar hafði skemst all-
verulega.
Við skipasmíðastöð breska flot-
ans í Davenport kom í dag í ljós,
að sprengdir höfðu verið upp lás-
ar á verkfærastokkum þriggja
verkamanna. Lögreglan hefir ekki
komist að því, hverjir hafi fram-
ið þenna verknað, en aukið eftir-
lit verður haft með öllu, sem ger-
ist við flotastöðina.
Einum verkamanni hefir verið
sagt upp nokkrum klukkustund-
um eftir að hann hafði verið ráð-
Fyrir ungar stúlkur
og húsmæður.
HELGA THORLACIUS er ó-
þreytandi í því að kenna
ungum stúlkum og húsmæðrum
að matreiða íslenskar jurtir. Hef-
ir hún haldið fjölda mörg nám-
skeið víða um land, tín flest þó
hjer í Reykjavík, og alls staðar
hlotið einróma þakklæti þeirra
húsmæðra og húsmæðraefna, sem
notið hafa kenslu hennar.
Nú ætlar hún að byrja slík
námskeið að nýju í Kirkjustræti
12 og hefjast þau á fimtudaginn
kemur. Þangað til er hana að
hitta daglega kl. 2—-3 í Kirkju-
stræti 12.
Kent verður að matreiða söl,
geitnaskóf og fjallagrös, auk ann
ars grænmetis, sem fáanlegt er.
Stendur hvert námskeið viku eða
lengur og fer kenslan fram á þeim
tíma, sem konunum hentar best,
þrjár stundir á hverjum degi.
SPRENGJUM KASTAÐ
Á BRESKT HERSKIP.
ann.
London í gær. FÚ.
í gær fjellu þrjár smá-
sprengjur í grend við breska
herskipið Royal Oak, skamt
undan Gibraltar. Sprengjunum
var kastað úr þremur flug-
vjelum, sem hjeldu sig í mik-
illi hæð, og varð ekki greint,
hvort um stjórnar- eða upp-
reisnarmanna flugvjelar var að
ræða.
En það er gert ráð fyrir, að
það hafi verið stjórnarflugvjel-
ar og að þær hafi álitið Royal
Oak vera beitiskipið Canarias,
en það er á valdi uppreisnar-
manna.
Fulltrúi bresku sendisveitar-
linnar í Valencia, Ogilvie For-
bes hefir farið fram á það við
spönsku stjómina, að ef hjer
hafi verið um stjórnarflug-
vjelar að ræða, þá verði sjeð
um að atburðurinn endurtaki
sig ekki.
STARFSEMI U. M. F.
KEFLAVÍKUR.
Keflavík í janúar.
Aðalfundur Ungmennaf jelags
Keflavíkur var haldinn þriðju-
daginn 26. janúar.
Formaður fjelagsins var kosinn
Sverrir Júlíusson (endurkosinn),
fyrir í stjórninni eru þeir Ólafur
A. Þorsteinsson gjaldkeri og Helgi
S. Jónsson ritari.
Fjelagið hefir haft íþróttanám-
skeið síðan um miðjan návember
og var því lokið núna um mán-
aðamótin, og mun þá fara fram
íþróttasýning. Nemendur hafa
verið 190. Kennari Rögnvaldur
Sveinbjörnsson frá Reykjavík.
Fjelagið hefir gengist fyrir því
að alþýðufyrirlestrar bafa verið
fluttir, af þeim p'rófessor Guð-
brandi Jónssyni, Árna Friðriks-
syni fiskifræðing og síra Knúti
Arngrímssyni.
Fjelagið hefir haft saumanám-
skeið fyrir konur og stúlkur í sex
vikur. Þátttakendur voru 35.
Kennari frú Jódís Rúnólfsdóttir.
Leikflokkur starfar á vegum
fjelagsins, og hefir hann sýnt sjón-
leikinn „Æfintýri á gönguför“
auk ýmsra smá sjónleikja, en s.l.
sunnudag hafði flokkurinn frum-
sýningu á gamanleiknum „Hnefa-
leikameistarinn“, við ágætis við-
tökum áhorfenda.
Leikendur eru þau Arinbjörn
Þorvarðarson, Erlendur Sigurðs-
son, Elintínus Júlíusson, Helgi S.
Jónsson, Jón Þórarinsson, frú
Guðný Arnadóttir, frú Bergþóra
Þorbjarnardóttir, ungfrúrnar Ingi
björg Ólafsdóttir, Dagmar Páls-
d,óttir, Margrjet Arinbjarnardótt-
ir og Eyjólfur Guðjónsson.
Fjelagið telur nú 214 meðlimi.
Svj.
Bæjarstjórnarfundur er í dag
kl. 5 í Kaupþingssalnum. 30 mál
eru á dagskrá, þar af er meiri
hluti kosningar í nefndir og em-
bætti innan bæjarstjórnarinnar
Þá verða tekin fyrir launamál
lögregluþjóna og tillaga lögreglu-
stjóra um 18 nýja lögregluþjóna
Landsmálafjclagið „Yiirður“.
Skemtifunöur
4
verður haldinn föstudaginn 5. febrúar kl. 8V2 e. h. að Hótel Borg.
SKEMTIATRIÐI:
Ræðuhöld: Ólafur Thors, Ragnh. Pjetursdóttir
frú, o. fl.
Gamansöngvar: Frk. Gunnþórunn Halldórs-
dóttir.
Guitar og mandólín: (Frú Anna Pálsdóttir og
Guðjón Jónsson).
DAN8.
Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofu Varðarfjelagsins
í Mjólkurfjelagshúsinu (herbergi 1—4), sími 2339, í dag
og á morgun og kosta kr. 2.00.
ATH. Aðgöngumiðar verða ekki seldir við innganginn.
Allir Sjálfstæðismenn velkomnir meðan húsrúm leyfir.
NEFNDIN.
Minningarorð um
Hauk Sigbvatsson.
Hinn 2. des. síðastliðinn andað-
ist hjer í bænum Haukur Sig-
hvatsson, 17 ára gamall, fæddur
7. júlí 1919, sonur Sighvats Brynj-
ólfssonar tollþjóns og konu han«
Þoru Sveinbjarnardóttur.
Haukur var röskur drengur og
duglegur, glaðvær og vinsæll af
ungum fjelögum sínum. Foreldc-
um og feystkinum var hann góðxur
sonur og bróðir. Heimili hans var
það því mikill söknuður, að hana
var kallaður hjeðan svo ungur.
Ekki síst var hann móður sinni
hugljúfur sonur. Tæpum tveim ár
um áður hafði andast systir hane
Unnur, mesta efnisstúlka, á tvi-
tugs aldri. En það er harma bóti»
í söknuðinum eftir góð börn, að
„látinn lifir“.
Kveðið undir nafni móðurinnar.
Jeg vil ekki hefja nein harmannú
kvein
þó hjartanu blæði sár,
því drottinn öll þekkir vor mann-
anna mein,
í miskpnn vor þerrar tár.
í himininn beint vil jeg horfa í
trú —
þar hrygðin ei tökum nær —
og drenginn minn ljúfasta líta þar
nú
sem ljóma í dýrðinni fær.
1 nærveru þinni var sól mjer í sál,
og sólbjart var heimilið þá; —
en full er ei ávalt vor farsældar
skál
og fljótlega tæmast hún má;
því skal ekki hverfleikann hylla
svo hátt —
þar heimkynni vort er ei hjer
og förum vjer hjeðan í friði og
sátt
vort föðurland himininn er.
Þinn tími var kominn. En stutt
var sú stund
er stóðstu hjer móður við hnje
ein seytján ár. — Glaðvær og
ljetta með lund
þú ljest þína blessun í tje. —
Nú þakka jeg Guði, þjer gleðisól
skín, —
því gleðin á sigrandi mátt. —
í ljósinu — Haukur minn — leita
jeg þín,
í ljósinu finn jeg þig brátt.
The Argentine Magazine í Bue-
nos Aaires flytur í jólahefti sínu
ritgerð eft.ir Halldór Kiljan Lax-
ness, er hann nefnir Literature in
Iceland — stutt yfirlit yfir ís-
lenskar bókmentir. í sambandi við
grein Halldórs flytur ritið mynd-
ir frá Islandi og all-ítarlegar upp-
lýsingar um landið sem ferða-
mannaland. (FB)