Morgunblaðið - 13.05.1937, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 13. maí 1937.
KRYNINGIN I LONDON
Breska
heimsveldið.
Flatarmál hins breska
heimsveldis nemur samtals
13.355.426 fermílum.
íbúafjöldi er 495.764.000
og skiftist þannig milli kyn-
flokka:
Indverjar
Hvítir menn
Blökkumenn
Arabar
Malayar
Kínverjar
Polynesar
Aðrir
365.000.000
70.000.000
42.000.000
7.000.000
7.000.000
1.000.000
1.000.000
2.000.000
Með krýningarkvik-
mynd til Suður-Afríku
London í gær. FÚ.
Llewellyn flugmaður mun
leggja af stað frá Englandi
kl. 2 í nótt með kvikmynd af
krýningarhátíðinni, til Höfða-
borgar.
Miljónir hlýða
á glæsilegustu
athöfn síðasta
mannsaldurs.
Hundruð miljónir manna í öllum heims-
álfum hlýddu í gærmorgun á
athöfnina er Georg VI., konungur
Bretaveldis og Elísabet drotning hans voru krýnd
í Westminster Abbey í London.
Þetta var í fyrsta sinn, sem hægt var að gefa
þegnum Bretakonungs um allan heim tækifæri til
að hlýða á hina helgu athöfn, er krýning Breta-
konungs fór fram, í útvarp.
Þrjár miljónir manna, sem biðu á götum Lundúnaborgar
til þess að sjá konungshjónin og fylgd þeirra bregða fyr-
ir, á leið frá kirkju, litu á það sem jarteikn, er uppstytta
varð, um sama leyti og kórónan var sett á höfuð konungi.
Rigning hafði verið undanfarinn sólarhring.
Síðdegis vottuðu fulltrúar allra þjóða í breska ríkjasam-
bandinu Georg konungi og Elísabetu drotningu hans hollustu.
Þessum merka degi í sögu breska heimsveldisins lauk með ræðu,
sem Georg konungur flutti í útvarp til þegna sinna (og prentuð
er á öðrum stað í blaðinu).
Krýningardjásn Stóra-Bretlands.
Georg konungur og Elísabet drotning með dætrum sínuin, Elísa-
betu og Margarethe Rose.
Ræða konungs.
„Það er af hrærðu hjarta að j valt breska heimsveldið væri í
jeg mæli til yðar í kvöld. Aldrei sannleika saman komið innan
fyr hefir nýkrýndum konungi veggja Westminster Abbeys.
gefist þess kostur að tala til
allra þegna sinna, þar sem þeir
sitja heima hjá sjer í öllum álf-
um heims, á krýningardegi sín-
um. Aldrei hefir krýningarat-
höfnin sjálf haft eins víðtæka
þýðingu, þar sem samveldis-
löndin eru nú frjáls og rjetthá
ríki, í fjelagi við hið aldna kon-
ungsríki, Bretland.
Mjer fanst í morgun, að ger-
Það gleður mig, að geta nú
talað til yðar, hvar sem þið
eruð — heilsað gömlum vinum
í þeim löndum, sem leið mín
hefir þegar legið um, og öðrum,
sem mjer hefir ekki enn veitst
tækifæri til að kynnast. Við
drotningin árnum ykkur öllum
heilsu og hamingju. Við gleym-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Ibýtið í gærmorgim fóru krýn-
ingargestir meðal hinna
7700, sem útvaldir voru til þess
að vera viðstaddir krýninguna
í Westminster Abbey, að
streyma til kirkjunnar. Fyrstur
kom borgarstj órinn 1 London
með fylgdarliði síntk.
í nótt biðu miljónir láanna á
götum úti til þess aðveríi pruggir
um að geta komist þar að þar
sem hægt var að sjá konungs-
fylgdina fara fram hjá. Hinar
þögulu fylkingar á hinni 10 km.
löngu leið, ljetu það ekki á sig
fá, þótt rigning væri.
Áætlað er að 3 miljónir
manna hafi beðið á götum
Lundúnaborgar í morgun þegar
konungshjónin lögðu af stað frá
Buckinghamhöllinni til WesÞ
minster Abbey.
HINIR TIGNU
GESTIR
Þessi ógurlegi mannfjöldi
hafði áður sjeð tiginmenni Ev-
rópu, konunga, fursta og for-
sætisráðherra og austurlenska1
höfðingja aka til kirkju.
Meðal þeirra voru ríkisarfar
Dana, Norðmanna og Svía, Jú-
líana prinsessa og Bernadotte
prins, Páll ríkisstjóri í Júgó-
slafíu, utanríkismálaráðherrar
Frakka, Finna, Rússa og Pól-
verja, hermálaráðherra Þjóð-
verja, sendiherra Itala og Pers-
hing hershöfðingi (kunnur úr
heimsstyrjöldinni) fulltrúi
Roosevelts.
Því næst kom hin glæsilega
fylking forsætisráðherra hinna
bresku samveldislanda, og full-
trúar frá breska alríkinu,
fremstur í fylkingu Stanley
Baldwin, sem í dag var sjer-
staklega hyltur, þar sem hann
1) Kóróna St. Edwards, kóróna Englakonuiiga, sem allir kon-
ungar Englands hafa verið kfýndir með síðan á dögum Karls II. —
2) Kóróna Mary drotningar, með hinum fagra Koh-i-nor-demaiiti. —
3) Gullsporar St. Georgs og krýningarhringur konungs. — 4) Hinn
konunglegi veldissproti, með hinum fræga Cullinand-demanti. —
5) Ríkiseplin. Stærra eplið er eign konungs, og er það lagt
í hönd lians, um leið og kórónan er sett á höfuð honum. — 6) Keisara
kórónan, sem Georg konungur ber seija drotnari indveBska keisara-
dæmisins. — 7) Kóróna prinsins af Wales. — 8) Kóróna keisara-
dæmisins, sem konungurinn ber, m.' a. við þingsetningu.
er nú á förum úr breskum
stjórnmálum.
MARY EKKJU-
DROTNING
Á eftir vagni hvers fulltrúa
hins breska alríkis fylgdi ein-
kenöisklædd herfylking, frá ríki
hvers fyrir sig. Því næst kom
vágn Mary ekkjudrotningar og
var í fylgd með henni Maud
Noregsdrotning. Loks kom hinn
gullni vagn konungshjóna. —
Konungur var í hárauðri flau-
elsskikkju, gullsaumaðri, en
drotningin í purpuraruuðum
möttli, og voru skjaldarmerki
hinna ýmsu samveldisi'íkja og
nýlendna saumuð með gulli í
jaðar möttulsins.
DÝRINDIS SKRAUT
Klukkan var ellefu þegar
konungshjónin komu til kirkj-
unnar. Kirkjan var þá fullskip-
uð. Þama var saman kominn
háaðall Breta úr öllu hinu
breska heimsveldi.
Hver og einn einasti maður
hinna tæpl. 8 þús. manna sem í
kirkju voru, var skrautklædd-
ur. „Hinir indversku furstar
voru bókstaflega þaktir gim-
steinum", segir einn blaðamað-
ur, sem viðstaddur var í kirkj-
unni. Hermelinklæði og pur-
puraliturinn skar sig úr.
Önnur eins sýning á dýrindis
djásnum hefir aldrei farið fram
áður.
I stúku konungsfjölskyldunn-
ar sátu hinar ungu dætur kon-
ungshjónanna sín bvoru megin
við föðursystur sína, Maríu
prinsessu.
Þær voru í síðum kjólum úr
hvítum kniplingum yfir hvítu
silki, og með purpurarauða
möttla yfir axlir sjer. Þarna var
einnig hertogafrúin af Kent.
Útvarpsþulur í ahddyri kirkj-
unnar lýsti krýningardjásnun-
um, sem láu þar á gulldúkuðu
borði. Kórónunni á rauðum
flauelspúða, veldissprotanum og
öðrum táknum hins veraldlega
valds konungsins. Allir þessir
skartgripir eru þjettsettir gim-
steinum, en kórónan sjálf er úr
skýru gulli. Þulurinn komst svo
að orði um verðmæti þessara
skartgripa, að það væri nægL
Ifegt til að greiða lausnargjald
fyrir marga konunga.
KRÝNINGIN
Krýningarathöfnin hófst kl.
rúmlega ellefu eftir breskum
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.