Morgunblaðið - 09.06.1937, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.06.1937, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 9. júnl 1937. MCLRGTjNBLABIB Hitaveita úr Henglinum er vitleysa hvernig sem á máliQ er litið Þó þar væri vatn yrði reksturskostnaður meiri en frá Reykjum. Ifyrri grein sinni sýndi Helgi Sigurðsson fram á, að Hitaveita úr Henglinum kæmi ekki til greina, vegna þess, að vatn vant- ar þar efra til þess að leiða til bæjarins. En til þess að rekja sem allra greinilegast sundur allar vit- leysur sósíalista í þessu máli, hefir Helgi skrifað eftirfarandi grein fyrir blaðið, þar sem hann bendir á, hve hitavatnsleiðsla úr Henglinum yrði mikið dýrari, en frá Reykjum, ef um veitu úr Henglinum væri að ræða. En það er sem sagt sama hvernig á afskifti rauðliða er litið í þessu máli. Þeir hrúga hverri vitleysunni á aðra ofan, enda ekkert sem fyrir þeim vakir, nema að tefja fyrir málinu og spilla því. Elsa Sigfúss. Elsa SiQfúss heldur hljðmleika annað kvöld Samfal vlð (0«|k«aua Söngkonan ágaeta, ungfrú Elsa Sigfúss, var meðal farþega á Lyru síðast. Hún er hingað kom- in til að eyða sumarleyfi sínu. Jeg átti tal við hana, er hún var ný- komin til landsins og spurði hana, hvort hún myndi ekki láta okkur. heyra til sín að þessu sinni og þá hvað hún myndi helst syngja: „Til dæmis lög eftir Hándel, Schuhert, Brahms, Frantz Rie og fleiri. Auk þeirra hefi jeg hugsað mjer að syngja nokkur hinna nýrri tískulaga“. „Hvað eigið þjer við með því?“ „Það skaí jeg segja yður í stuttu máli. Eins og yður er kunn ugt, litu menn áður þeim augum á „nýtísku músik“, að almenni- legt fólk gæti ekki verið þekt fyr ir að fást, við hana, en á því sviði hafa orðið miklar breytingar. — Mjer finst hlntverk skáldsins, tón- skáldsins og ekki hvað síst söngv- arans vera það, að veita þeim er á heyrir svo mikil listræn áhrif, sem hægt er — með öðrum orð- um að fága smekk almennings um leið og talað er til áheyrandans á því máli, sem hann skilur. Það er oft, að maður heyrir fólk segja: „Jeg hefi ekki vit á mús- ik“ — en samt hafa sömu menn einhverja frumstæða þrá til að gefa sig á vald áhrifum tónlist- arinnar — og nýtísku músik full- nægir þessari þrá“. „Hvenær hafið þjer hugsað yð- ur að halda hljómleika hjerf1 „Jeg hefi að þessu sinni stutta viðdvöl, svo ekki verður tími til meira en einna hljómleika, en þeir verða á fimtudaginn 10. þessa mánaðar í Gamla Bíó“. Símanúmer kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins eru 2907 og 2339. Gísli Halldórsson hefir í grein sinni í Tímariti Verkfræðingafjelagsins reiknað út árlegan reksturskostnað fyr- ir hitaveitu frá Henglinum ann- aravegar og Reykjum hinsveg- ar. Hann gekk út frá vatns- magninu 278 1. á sek. og að píp- an væri einföld í báðum tilfell- um. Frá Reykjum reiknaði hann með 540 mm. víðri pfpu 18. km. langri og fekk þá árlegan rekst- urskostnað, þ. e. rekstur, af- borganir og vexti, 464.000 kr. ef rafmagn á Reykjum kostaði 6 aura kíiówatttíminn, en með 3 au. rafmagnsverði fekk hann árleganreksturskostnað 386.500 kr. Frá Henglinum reiknaði hann með 375 mm. víðri pípu 36 km. langri og fekk þá árlegan rekst urstkostnað 387.000 kr. Gísli komst þannig að þeirri 'iðurstöðu að reksturskostnað- ur yrði svo að segja jafn frá ; Henglinum og Reykjum, ef raf- 1 magnið kostaði 3 aura, en 77.500 kr. meiri frá Reykjum ef rafmagnið kostaði 6 aura, og | er þessi mismunur eingöngu fólginn í hærra rafmagnsverði, því aðrir kostnaðarliðir eru hin- i’ sömu. * Eg hefi í svargrein minni sýnt fram á það, að í þess- um útreikningum. Gísla eru svo margar skekkjur, að augljóst er að hitaveita frá Reykjum hlýtur að verða miklu ódýrari en hitaveita frá Henglinum. Fyrst má geta þess, að 6 au. rafmagnsverð er mjög hátt, þegar um jafn mikla orku er að ræða og notkunin er jafn >ðug og verða myndi við dælu stöð á Reykjum'. Jeg býst við að 3 aura verð sje nær sanni. Þá hefir Gísli reiknað með jafn mikilli rafmagnsnotkun sumar og vetur, þ. e. þeirri raf- orku, sem þarf í mestu frost- um, en það sjer hver heilvita maður, að ekki nær nokkurri átt. Hversvegna ætti bærinn að vera að eyða rafmagi i í það að dæla 278 1. á sek. af heitu vatni til bæjarins um hásumarið þegar enginn kærir sig um hita í húsin. Mjer hefir reiknast til að rafmagnseyðslan yrði aðeins Ya—i/2 af því, sem Gísli reikn- ar með, og hefi reiknað með helmingi til þess að ekki yrði sagt að of lágt væri reiknað. Þetta virðist Gísli þó ekki hafa skilið. * ípuverð og gröft hefir Gísli reiknað of lágt, og þar sem Hengilspípan er helmingi lengri en Reykjapípan verður þetta Henglinum í óhag. Þá gerir Gísli sjer alls ekki grein fyrir því hvaða pípuvídd er hagkvæmust frá Reykjum, og hefi jeg sýnt fram á það í svargrein minni,- að t. 'd. með 3 aura rafmagnsverði er 425 mm. víð pípa hagkvæmust, og að árkegur reksturskostnaður með henni er aðeins 320.160 krónur. Frá Henglinum fekk Gísli reksturskostnaðinn 387.000 kr. en ef pípuverð og gröftur er leiðrjett, hækkar þetta um 50.000 kr. upp í 437.000 kr. og þó vantar algerlega kostnað vegna stíflu og vegalagninga í Henglinum. * oks kemur eitt stórkostlegt atriði til greina, en það er það, að öryggisins vegna er sjálfsagt að hafa pípurnar tvær hvort sem væri frá Reykjum eða Henglinum. Við það vex pípukostnaðurinn töluvert, en þessi útgjaldaaukning verður miklu meiri á Hengilveitunni en Reykjaveitunni, þar sem vega- lengdin upp í Hengil er 36 km., en aðeins 18 km. (eða tæplega það) upp að Reykjum. Það er margt fleira sem skakt er í áætlun Gísla, en þess gerist ekki þörf að rekja það hjer. Þetta nægir til þess að FRAMH. Á SJÖUNÐU SÍÐU. Framh. af 3. siHn 700 þús. krónur Flskimálancfndar En hallin á búskapnum hjá nefndinni hefir orðið kr. 139.- 152.00, eða um 140 þús. kr. á þessu fyrsta starfsári. MEIRA FJE — MEIRI EYÐSLA Þegar litið er á reikningana fyrir árið 1936, vekur það sjer- staka athygli hve gífurlega reksturskostnaður nefndarinnar sjálfrar hefir aukist. Hann var um 40 þuö. kr. fyrra árið, en er nú yfir 65 þús. krónur. Rekst- urskostnaðurinn hefir m. ö. o. aukist um 25 þús. krónur. Fleira vekur athygli í þess- um reikningi. Þar kemur m. a. í ljós, að alt sem Morgunblaðið hefir sagt um tapið á Steady- farminum til Ameríku í fyrra, er satt og rjett, og þar með eru gerð ómerk orð Tímagimbils um þetta hjer á dögunum. Reikningurinn sýnir að tapið á þessum smá-farmi hefir orð- ið kr. 42.010.2S. Á þessu ári fekk Fiskimála- nefnd þetta fje til umráða: 1. Úr ríkissjóði. kr. 365.800 2. Úr Fiskimálasj. — 70.000 Kr. 435.800 Fyrra árið hafði nefndin fengið kr. 275.500. Samtals hef- ir nefndin því fengið þessi tvö ár af arlmannafje til ráðstöfun- ar kr. 711.300.00. Reikningarnir 1936 sýna reksturshalla á því ári krónur 200.879.34. Verður því reksturs hallinn samtals bæði árin kr. 340.031.43. Geri aðrir betur! HJEÐINN DÝRARI EN KARFINN. Stjórnarblöðin hafa mikið gumað af því, hversu mjög Fiskimálanefnd hefði styrkt karfaveiðarnar. Reikningar nefndarinnar sýna að allur styrkur sem nefndin hefir greitt til karfaveiða nem- ur kr. 5.660.25. Það er m. ö. o. miklu lægri upphæð en Hjeðinn Valdimarsson hefir tekið í laun fyrir að vera formaður nefnd- arinnar! Þá verður skáldið Arnór að viðurkenna, að Kristján heit. Torfason hafi fyrir mörgum ár- um gert tilraunir með karfa í bræðslu. Aðrir reyndu þetta svo síðar, löngu áður en Fiskimála- nefnd fæddist. En það, að tekist hefir nú að fá verðmæti úr karfanum má eingöngu þakka rannsóknum dr. Þórðar Þorbjörnssonar fiski- fræðings, sem Fiskifjelagið var brautryðjandi að. KVIKMYNDIN í skýrslu Fiskimálanefndar segir að nefndin hafi varið um 11 þús. kr. til töku kvikmyndar (Islandsfilm). Er kvikmynd þessi á efnahagsreikningnum 1935 talin til eigna á krónum 10.495.46. En á enfahagsreikn- ingnum 1936 er kvikmyndin ,,dumpuð“ niður í 100 kr.! Af skýrslu nefndarinnar verður það helst ráðið, að kvik- myndataka þessi sje gersam- lega ónýtt verk, og að þessi „Is- landsfilm" sje einskis virði! FRITZ. I reikningum Fiskimálanefnd- ar sjest að varið hefir verið tug- um þúsunda í ýmiskonar styrki, en nefndin forðast eins og heit- an eldinn að gefa nákvæma, sundurliðaða skýralu um það, hvernig þessu fje hefir verið varið. Þó skýrir nefndin frá því, að hún hafi veitt Fritz H. Kjart- anssyni (Póllandsfara) ÍOO sterlingspunda styrk, gegn tvö- földu framlagi frá síldarútvegs- nefnd, „til þess að athuga sölu- möguleika og afla markaðs í Mið-Evrópu fyrir síld og fisk- afurðir". Þessi kommúnisti hefir þann- ig fengið um 7000 kr. styrk af fje almennings, og geta þeir sem þekkja þá persónu um það dæmt, hversu vel því fje hefir verið varið. Síðar hefir svo Síldarútvegs- nefnd tekið Fritz þenna upp á sína arma og gert hann ein- ráðan í Póllandi með Islands- síld. En það er of löng saga til þess að hún verði sögð hjer. FISKSALAN TIL AMERÍKU Það verður efni í sjerstaka. grein að skýra frá afrekum Fiskimálanefndar á Ameríku- markaðinum. Reikningar nefndarinnar árið 1936 sýna að tapið á Steady nam yfir 42 þús. króna. En þrátt fyrir þessa herfilegu útkomu taldi nefndin sig eina færa um að koma frystum fiski inn á Ameríku-markaðinn. Og nefndin sendi því nýjan smá- farm vestur í byrjun þessa árs. I „Eftirmála“, sem prentaður er aftan við skýrslu nefndar- innar segir um þenna fiskfarm, að hann hafi komið vestur í febrúar, sem sje „besti sölu- tíminn“, segir þar. En svo segir í ,,Eftirmálanum“. „Það tókst þó ekki að selja fiskinn fyrirfram, nje heldur við móttöku og þurfti að setja hann í frystihús til geymslu. — Sala hefir gengið mjög treg- lega, og þegar þetta er skrif- að (í byrjun maí), er fiskur- inn að mestu enn óseldur“. Má því geta nærri hvert út- koman verður á þessum farmi. Þar verður tapið vafalaust ekki undir 40—50 þús. krónur. Afrek Fiskimálanefndar á Ameríkumarkaðinum eru nú kunn. Það er 42 þús. kr. tap á Steady-farminum, og vafalaust 40—50 þús. kr. tap á fiskinum sem liggur óseldur í frystihús- um vestra. En hvað er svo þetta alt hjá því óbeina tjóni sem hiotist hef- ir af braski Fiskimálanefndar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.