Morgunblaðið - 09.06.1937, Síða 5

Morgunblaðið - 09.06.1937, Síða 5
Miðvíkudagrur 9. júní 1937. MORGUNBLAÐIÐ 5 ttfef.i H.f. Arvakur, Reykjarlk. JltatJOrui Jðn KJsrtanaaon og Valtfr Staí&naaon (ábjlfSamaHar). Aaglfaliicari Árnl Óla. Ritatjðrn, ansltalnarar oa afsralValai Auaturatrattl I. — Slaal 1100. ÁakrtftararjaldI kr. «.00 A atánuOl. f >anaaaaini 16 aura alntaklV — II anra aaaO Laabðk. VERKAMANNA- BÚSTAÐIRNIR HITAVEITAN ©gsvirkjunin og' hitaVeitan til lieykjavíkur eru senni- lega J>au tvö ítiál, sem allra erf- iðust verða sósíalistunum hjer í Reykjavík. Baeði þessi mál eru borin fram til sigurs af Sjálfstæðismönnum í bæjarstjórn og á Alþingi. En bæði hafa þau sætt öfl- ugri og ótrúlega þrálátri and- ■stöðu beggja stjórnarflokkanna, Pramsóknar og sósíalista.Á Fram sókn eru menn ekki svo mjög hissa, vegna þess að sá flokk- ur hefir alla tíð sýnt Reykja- vík fjandskap í stóru og smáu. Framsókn hefir ekkert að missa hjer í Reykjavík. Eitt helsta lífsviðurværi hennar úti um land er skammir og svívirð- ingar um Reykjavík, sem þeir kalla „blóðsugu á þjóðarlíkam- anum" og öðrum álíka vingjarn- lcgum nöfnum. Fylgi hafa þeir ekkert og von ast ekki til að hafa hjer annað en frá bitlingahjörðinni, sem þeir hafa safnað hingað. Og sú hjörð hvorki minkar nje stækk- ar við neina afstöðu flokksins til málefna bæjarins. Það er þetta setulið, sem Reykvíkingar verða að þola að horfa á spóka eig hjer á, igötunum og í fínum húsum, en eiga hjer það erindi helst að hjalpa til að rægja bæ- .inn og sýna málefnum hans 1jandskap. * Nokkuð öðru máli er að gegna um sósíalistana. Þeir eru hæjar- flokkur og byggja alt á fylgi sínu hjer. En þeir eru haldnir þessum ólæknandi kvilla, að hugsa altaf fyrst um ffokkinn og síðan um bæinn. Og til flokkshagsmuna telja þeir það, að vera á móti hverju því máli, sem Sjálfstæð- ismenn fjdgja og berjast fyrir. Það er nú þéirra skoðun á stjórn málum. Þéim finst alveg óbugs- andi að fýlgja góðum málum, sem -andstæðingar þeirra bera fram, og- sýna svo auk þess hug- kvæmni sína. og kunnáttu í því, að bera fram önnur góð mál og 'hafa þau fram með stuðningi Sjálfstæðismanna. Nei, þetta er ekki þein*a aðferð, heldur hitt að vera á móti, og þess vegna verður stjÓrnmálastefna þeirra svo einkenniiega neikvæð sem aliir þekkja. Þetta kemur þeim nú heldur ónotalega í koll, þegar um slík mál er að ræða sem Sogsvirkj- unina og hitaveituna, af því áð bæði þessi mál eru borin fram af Sjálfstæðismönnum og bæði eiga sjer óskift fylgi bæjar- manna og miklu fleíri. Um Sogsvirkjunina er nú ekki lengur að ræða. Hún er nú loks komin gegnum ailan fjandskap- ínn, tilraunirnar til þess að breyta henni í glæfrafyrirtæki, banatilræðið með neitun ríkis- ábyrgðar og allar flækjurnar, sem notaðar voru til þess að draga málið á langinn. Hún mun nú, livað sem hver segir veita liingað nægu raf- magni í haust, hreiða út ljós og ;yl og gefa iðnaðinum nýja mögu leika með ódýru og nægu afli til vinnuvjela. Að vísu er fjandskap stjórn- arliðsins ekki lokið eða því tjóni, sem það getur gert bæjarmönn- um, eins og ljóslega sjest á því, að beiðni bæjarius um það, að rafmagnsveita Reykjavíkur mætti flytja inn tæki þau, sem notuð verða er Sogsvirkjunin er komin á, og selja þau með kostn- aðarverði, fjekk eugar undir- tektir bjá stjórnarflokkunum á Alþingi. Þeir gera það ekki endaslept, þessir herrar! * En hitaveitumálið er enn mitt í orustunni. Stjórnarblöðin, bæði N. Dagbl. og Alþbl. linna ekki fjandskapnum við það mál. Að vísu þora þeir ekki að leggjast beinlínis á móti því. En þeir hafa nóg ráð önnur. Þeir lýsa málinu sem „hneyksl- ismáli“ og heimsku. Þeir brydda upp á allskonar fjarstæðum til- lögum til þess að tefja fyrir og gera málið að deilumáli. I gær og dag hefir verkfræð- ingur liitaveitunnar, Helgi Sig- urðsson, enn neyðst til þess að reka fjarstæðurnar niður í hirð verkfræðing þessara fjand- manna hitaveitunnar, Gísla Hall dórsson, og hrekja Hengilmænu vitleysu hans. En N. Dagbl. taldi á hinn bóg inn nauðsynlegt að rannsaka Krýsuvíkurhverina ef hita mætti bæinn upp með Kleifarvatni. Báðir eru sammála um að fá ítalska verkfræðinga til þess að ránnsaka málið. Boranirnar töfðu þeir eins lengi og unt var með því að beita synjunarvaldi sínu á inn- flutningi borsins, sem nota þurfti og heimta að lokum, að hann væri keyptur þaðan, sem hann bæði kom seinna og var lakari. Hvað halda menn nú að yrði úr þessu máli í höndum svona manna 1 Hvenær lialda menn að heita vatnið kæmi í bæinn, ef þeir fengju að ráða? Sennilega þyrfti fyrst nokk- urra ára rannsókn á íirkomu í Henglinum til þess að ganga milli bols og liöfuðs á Hengil- mænunni. Síðan væri mörg ár verið að rannsaka Krýsivík. Og að því loknu yrði svo sennilega farið að rannsaka Deildartung-uhver og Geysi. Bara til þess að losna við heita vatnið frá Reykjum, af því að þar hófu Sjálfstæðismenn sitt starf og af því að þaðan, verður vatnið leitt, þegar það kemst til Reykjavíkur. Ef rauðliðar liefðu ekki tafið málíð, væri heita vatnið frá Reykjum vafalaust farið að renna hjer um húsin. Þeim hefir tekist að tefja það, en það skal ekki verða lengi. Um slíkt áhugamál munu Reykvíkingar ósldftir slá skjald borg í kosningunum í vor og við bæjarstjórnarkosningarnar næsta vetur. I">egar lögin um verka- ** mannabústaði voru fyrst sett, á þinpinu 1929, var bað Jón heitinn Þor- láksson, sem glegst sá og tók fram meíúnatriði máls- ins. Hann taldi gagnsemi frv. að mestu leyti velta á því, hvort upp væri tekin sú aðferð að reisa sambygging- ar eða hin, að reisa sjer- byggingfar. Sjerbyggjngarn- ar taldi hann miklum mun heppilegri. Agengni og hlut- drægni Hjeðins Valdimarssonar iýst aí ið 1934 og urðu allsráðandi á þing inu, þá um haustið. Þá þótti það eitt af mest aðkallandi nauðsynja- málum verkalýðsins að svifta þá verkamenn, sem búnir voru að öðlast rjett til aðstoðar úr bygg- ingarsjóði með því að gerast fje- lagar í Byggingarfjelagi sjálf- stæðra verkamanna, þeim rjetti. Ríkisstjórnin var látin leggja fyrir þingið frv. til nýrra laga um Bjarna Benediktssyni prófessor Til stuðnings því benti hann á, að þótt kostnaður við sambygging- ar kynni að vera eitthvað minni, þá væri mumirinn lítill. Enda væri það aukaatriði, hvort kostnaður- inn væri lítið eitt meiri eða minni í upphafi, þegar um væri að ræða þvílík mannvirki, sem endast ættu í 2—3 kynslóðir. Hitt væri aðal- atriðið, að framkvæmdirnar yrðu taldar fnllnægjandi í nokkuð lang- an tírna, þó að kröfur manna og aðstæður breyttust. Sjerbygging- ar, í mótsetningu við sambygg- ingar, þyrftu ekki að valda vand- ræðum í framtíðinni, þó að kröf- ur manna til þæginda ykust, því að þær væri liægt að endurnýja og breyta þeim á ýmsan hátt. Jón Þorláksson Var heldur ekki í upphafi einn um þessa skoðun. Þegar áður en hann bafði látið uppi álit sitt, hafði Jón Baldvins- son látið svo ummælt: „Er jeg ekki í neinum vafa, að sjerbygg- ingar eru miklu hentugri, og væri æskilegt, að hver fjölskylda hefði hús út af fyrir sig. Jeg held ekki, að þau þurfi að verða svo miklu dýrari en sambyggingar. Bæði getur allur útbúnaður hússins ver- ið grennri og efnisminni, þegar ekki á að byggja ofan á það margar hæðir. Það hefir að mínu áliti mikla menningarlega þýð- ingu, að hver fjölskylda gæti fengið íbúð út af fyrir sig og haft dálítið landrými, svo að nnga kyn- slóðin geti hreyft sig ofnrlítið kringum húsið, en þurfi ekki að vera í samsulli við margar fjöl- skyldur, eins og er í mörgum stórbyggingum". (Alþt. 1929 B. bls. 3474—3475). Yið rökstuðning þessara tveggja flokksforingja er engu að bæta. Ummæli þeirra standa óhöggnð enn þann dag- í dag. Enda er það með öllu óverjandi í bæ eins og Reykjavílt, með nógu landrými, að byggja með opinberum styrk til frambúðar yfir menn eingöngu í gamla leigukassa-stílnum, þó að með sæmilegum nýtísku umbúnaði sje. í framkvæmdinni hafa samt ein- göngu verið reistar sambyggingar. Frumástæðan til þess er sú, að Jón Þorláksson fekk því ekki ráð- ið að setja í sjálf lögin ákvæði um það, með hverjum hætti bygt skyldi. Þrátt fyrir góðan rökstuðn- ing sinn fyrir rjettu máli, fekst JónBaldvinsson ekki til að trygg'ja framgang þess, þegar á átti að herða. Taldi hann þá, að hjer væri um framkvæmdaratriði að ræða, sem óþarft væri að setja lagaá- kvæði um, „en því má breyta síð- ar, ef það þykir nauðsynlegt“, segir hann. (Alþt. 1929 B. 3483). * /o sem vænta mátti. þá reynd ist Jón Þorláksson nafna sínum framsýnni. Þegar til fram- kvæmdanna kom fekk Hjeðinn Valdimarsson, aðalráðamaðurinn í Byggingarfjelagi verkamanna, því ráðið, að sambyggingar vorn upp- teknar, þvert ofan í skoðun Jóns Baldvinssonar um, að menningar- gallarnir við þetta fyrirkomulag væru svo miklir, að þeir meira en vægju upp þann litla sparnað, sem af því kynni að stafa. Jón, Þorláksson var þar á móti skoðun sinni trúr. Þegar það var sýnt á árinu 1934, að Hjeðinn Valdimarsson fekst eigi til að láta af sambyggingunum, beitti Jón Þorláksson sjer fvrir stofnun Byggingarfjel. sjálfstæðra verka- mamia. Fjelag þetta, sem stofnað var við eindæma áhuga fjölda al- þýðumanna, setti sjer það mark að koma upp sjerstæðum húsum í skjóli laganna um verkamanna- bústaði. Samkvæmt þágildandi lögum áttu fjelagsmenn ótvíræðan rjett til lána úr Byggingarsjóði Reykja víkur, a. m. k. í rjettu tölublnt- falli við fjelagsmenn gamla fje- lagsins. Ef að rjettum lögum hefði verið farið og sanngirni beitt, gat þannig ekki leikið vafi á, að bæði þessi fjelög gátu starfað, hvort að sínu markmiði. Nýja fjelagið að byggingu sjerstæðra húsa, en gamla fjelagið að sambyggingum. Ætla hefði mátt, að þeir, sem í orðum láta bæst um verkalýðs- vináttu sína, tækjn þessu nýja fjelagi með vinsemd, og viður- kendu rjett þeirra, sem hafa hærra sjónarmið um framtíðarað- búnað sinn en að láta stafla sjer saman eiiis og appelsínum í fal- lega merktan kassa. Því fór samt fjarri.að sú yrði raunin á. Sósíal- istar hófu strax hina mögnnðustu rógsherferð gegn fjelagi sjálf- stæðra verkamanna og reyndu á allan liugsanlegan hátt að gera fjelagið og forgöngumenn þess tortryggilega. * Ut yfir tók samt.þegar sósíalist- arnir sigruðu við kosningar sumar< verkamannabústaði og var það samþykt af þinginu og staðfest 1935. í orði kveðnu var látið lieita svo sem aðalefni laganna væri að leggja niður hina cinstökn bygg- ingarsjóði kaupstaðanna, og skyldi í þeirra stað koma einn byggingarsjóður fyrir alt landið. Þessi breyting var stndd við það, að sjóðunnm utan Reykjavíkur hefði gengið mjög erfiðlega um lántöknr, enda talið óheppilegt að láta margar sjóðsstjórnir vera að vasast í mörgnm smálántökum. Er það rjett í þessari röksemdafærsln, að mjög mikið veltur á því um alla starfsemi sjóðanna að heppileg lán fáist. Það, bversu mikið befir verið bygt hjer í Rcykjavík samkvæmt þessnm lögum, má þannig af ein- stökum mönnum fyrst og fremst þakka Magnúsi Sigurðssyni banka stjóra, sem hefir verið formaður sjóðsstjórnar hjer frá upphafi, og því átt mestan þátt í lánútveg- unum. Engn að síður var þessi breyting, um að gera alt að ein- um sjóði, ærið varhugaverð. Sjálfstæðismenn fengn að vísxt með baráttu sinni útilokað þá hættu, sem elvki var nógu vendi- lega hindrnð í upphaflega frv., að fjárframlög hinna betnr stæðu kaupstaða yrðu á einu eða annan veg látin renna til þeirra er lakar værn stæðir. Við hinn varð ekki sjeð, að ein sjóðsstjórn hjer í Reykjavík hefir býsna lítil ráð til að sjá nm, að kaupstaðirnir úti á landi standi skil á því fje, sem þeir eiga að leggja af mörkum. Reynslan liefir og orðið sú, að reikningsskil fást frá Reykjavík- urbæ einum, og sjóðsstjórnin hefir gefist upp við að fylgjast með hinum sjóðunum. Hefir hún því í einn hljóði samþykt áskorun til Alþingis um að breyta þessn fyrir- komulagi enn á ný og losa sig undan ábyrgðinni á sjóðum utan Reykjavíkur. — Þessar „umbæt- ur“ laganna frá 1935 hafa þannig alveg farið út um þúfur. * egja má, að í sjálfn sjer skifti það ekki svo ákaflega -mikln máli, þó að svona hafi farið. En liitt sýnir þessi reynsía, að lögin um verkamannabústaði eru ekki nema einskisvei't pappírsgagn, ef hlutaðeigandi bæjarstjórnir vilja FRAMH. Á SJÖTTU SJKHJ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.