Morgunblaðið - 09.06.1937, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudaffur 9. júní 1937
. ■■ .. i i ........• ,1
7 &
Skarð á SkarDs-
strðnd brennur
til grunna.
Ibúðarhúsið að Skarði á Skarð-
strönd brann í fyrradag- til
grunna. Var það gamalt en vand-
að, járnvarið timburhus, 10x12
metrar að stærð.
Bnginn karlmaður var heima er
■eldurinn kom upp. Finnur Jóns-
son bóndi á Geirmundarstöðum
▼arð fyrst eldsins var, neðan úr
f.jöru, góðan kipp frá bænum, og
gerði aðvart á heimilinu.
Meirihluta innanstokksmuna
▼arð bjargað.
í>jettbýlt er og drifu menn
Ujótt að og hjálpuðu við björg-
«B.
Eldurinn gerði fyrst vart við
stg" í þaki hússins. Er giskað á
að neisti úr sóti hafi hrokkið úr
reykháf að vindskeið hússins, og
kveikt þannig í því. Reykháfurinn
atóð eftir óskemdur og um eld
frá öðrum stöðum var ekki að
ræða.
Húsið var mjög lágt vátrygt og
imibú óvátrygt, verður því bónd-
inn, Kristinn Indriðason, fyrir til
finnanlegu tjóni. (FÚ).
♦ 4|——~
4 metra veggur hryn-
ur yfir mann
ann 4. þ. m. hrundi veggur
yfir Björn Vilhjálmsson að
Torfunesi í Kinn.
Var hann að grafa fyrir undir-
stöðu nýs íbúðarhúss, en rjett hjá
stóð. 4 metra hár torfveggur úr
gainla bænum og fjell hann snögg
lega yfir Björn. Bræður hans fjór-
ir voru nærstaddir, og tókst þeim
fljótt að grafa hann upp. Var
hann þá nær kafnaður, allmikið
márinn og fótur úr liði um mjöðm-
ina.
Læknir telur meiðsli þessi vera
illkynjuð, en von er þó um fullan
bata. Líðan Björns var sæmileg,
©ftir ástæðum, síðast er frjettist.
(FÚ.).
t
HITAYEITA ÚR HENGL-
INUM ....
FRAMH. AF FJÓRÐU SfÐU.
sýna, að Hengilveita verSur
miklu dýrari en Reykjaveita.
Af framangreindu er ljóst,
að hvort sem litið er á hita-
svæðið og vatnið eða kostn-
aðarhliðina, þá hafa Reykir
mikla yfirburði umfram Hengil-
inn.
í>að er aðeins eitt, sem Heng-
illiinn hefir umfram Reyki og
það er hærra hitastig, en það
vantar mikið á að það vegi upp
■á móti hinu.
Helgi Sigurðsson.
Thor Thors alþiu. tók sjer far
»eð Gullfóssi í gærkvöldi. Eru
framboðsfundir í kjördæmi hans,
Snæfelisnes- og Hnappadalssýslu
nú að hefjast.
Jónas Halldórsson
setur met í 25. sinn
Jónas Halldórsson sundkappi
setti nýtt sundmet í Sundhöll-
inni í gærmorgun. Synti hann
50 metra, frjáls aðferð, á 29.4
sek.
Er þetta í 25. sinni, sem Jón-
as setur sundmet. Hann hefir
ekki áður synt 50 metra undir
meti, en aftur á móti oft bætt
met sín á öðrum vegalengdum.
íslenska metið á 50 metra
sundi átti Gísli Jónsson, 30.1
sek., og var það sett á sundmót
inu 3. júní s.l.
Framsókn getur til-
nefnt frambjóðanda
í stað sr. Sigfúsar
Hvernig fer nú um framboð-
in í Skagafirði? Þannig
spurðu ýmsir, eftir að hingað
barst fregnin um lát síra Sig-
fúsar Jónssonar.
Um þetta segir svo í 32. gr.
kosningalaganna:
,,Nú deyr frambjóðandi áð-
ur en kosning fer fram, en eft-
ir að framboðsfrestur er liðinn
eða á næstu þremur sólarhring-
um áður en framboðsfrestur er
liðinn, og má þá, ef um er að
ræða frambjóðanda í kjördæmi,
I þar sem kosið er óhlutbundnum
kosningum, annar maður innan
viku bjóða sig fram í hans stað,
ef fullur helmingur af meðmæl-
endum hins látna er meðal með
mælenda hans, enda sje full-
nægt öðrum almennum skilyrð-
um um framboðið“.
Mun því Framsöknarflokk-
urinn velja frambjóðanda í stað
síra Sigfúsar.
Hvað verður um þau at-
k.æði í Skagafirði, sem greidd
hafa verið fyrir kjördag?
Það er all-langt síðan fyrir-
fram atkvæðagreiðsla hófst, og
hafa því sjálfsagt mörg atkvæði
verið greidd fyrir Skagafjörð.
Kosningalögin segja ekkert
til um það, hvernig fer um
þessi atkvæði, þegar frambjóð-
andi deyr. En það sýnist alveg
tvímælalaust, að þau atkvæði,
sem greidd eru síra Sigfúsi
Jónssyni geta ekki talist öðrum
frambjóðanda. Af því leiðir, að
þar sem síra Sigfús kynni að
vera kosinn einn á fyrirfram
greiddu atkvæðj, jrði það taíið
ógilt. Þar sem hinsvegar síra
Sigfús væri kosinn með öðrum
manni, yrði sennilega þannig
litið á að sá væri einn kosinn,
sem fengi atkvæði með síra
Sigfúsi, en hans flokkur fengi
i/> atkvæði.
En, sem sagt, um þetta þegja
kosningalögin, svo að hjer geta
komið upp mörg vafaatriði.
Hinsvegar geta að sjálf-
sögðu menn, sem kosið hafa
síra Sigfús fengið atkvæði sitt
ónýtt, ef í það næst og kosið
aftur. Einnig geta þeir mætt
á k.iörstað og greitt þar at-
kvæði, og kemur þá heima-
greidda atkvæðið ekki til
greina.
Erla fsleifsdóttir.
Stúlka úr Vestmanna-
eyjum setur nýtt
sundmet
Erla ísleifsdóttir, 15 ára
gömul, setti nýtt met í
Sundhöllinni í gærmorgun.
Synti hún 100 metra frjáls
aðferð fyrir stúlkur á 1 mín.
27,6 sek. Gamla metið átti
Imma Rist á 1 m’ín. 27,7 sek.
Erla Isleifsdóttir er frá Vest-
mannaevjum og kom með sund-
flokki, þaðan, sem kepti hjer á
sundmótinu 3. þ. m. Hún er frá
Sundfjelagi \'estmaimaeyja.
Akureyringamir
keppa við Víking
í kvöld.
Knattspyrnuflokkurinn frá
Akureyri, sem sagt var frá
í sunnudagsblaðinu, keppir í
kvöld á íþróttavellintim við II. fl.
úr Víking.
Knattspyrnumeimirnir frá Ak-
ureyri eru úrvalsflokkur K. A.,
sem vann mót II. fl. fyrir norð-
án. Verður því spennandi að sjá
ívernig leikar fara hjer.
: Kappleikurinn hefst kl. 8%.
I Akureyringarnir eru 13 saman
Óg fara hjer á eftir nöfn þeirra:
j Markvörður Þorgeir Pálsson,
bakverðir Björn Aspar og Krist-
ján Jónsson, framverðir Arni Ingi
mundarson, Guttormur Berg og
Snorri Sigfússon, framherjar
Kristján Eiríksson, Rikard Þór-
ólfsson, Páll E. Jónsson. Hörður
Ólafsson og Leó Júlíusson. Vara-
menn: Þórður Jónsson, Haraldur
Kjryger. Formaðnr K. A., Tómas
Steingrímsson, er væntanlegur til
bæjarins í dag.
Islenskt bögglasmjör.
Harðfiskur.
Riklingur.
Versl Víslr
K|ðtfars.
Hvífkál.
KLEIN,
Baldursgötu 14. Sími 3073.
□agbok.
Veðrið í gær (þriðjud. kl, 17) :
Grunn lægð fyrir suðaustan ís-
land og vindur víðast mjög hæg-
ur hjer á landi. Úrkomulaust vest
anlancfs, en lítilsháttar rigning á
N- og A-landi. Hiti 4—7 stig
nyrðra, en 8—13 stig syðra. Yfir
Grænlandi er grunn lægð, sem
þokast til A og mun brátt hafa í
för með sjer SV-S-átt hjer á landi.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
SV- eða S-kaldi. Þvkt loft, en ilr-
komulítið.
Thor Thors kom heim um síð-
ustu helgi úr fundaleiðangri um
Austur- og Norðurland. Hann sat
fundi á Vopnafirði, Egilsstöðum,
Norðfirði, Eskifirði. Reyðarfirði,
Fáskrúðsfirði, Siglufirði, Dalvík
og Akureyri. —- Thor lagði af stað
aftur í gærkvöldi, og Var ferðinni
nú heitið á Snæfellsnes, á fram-
boðsfundina þar.
Flugskýli í Vatnsmýrinni. Bæj-
arverkfræðingur hefir auglýst eft
ir tilboðum í þyggingu flugskýlis
í Vatnsmýrinni.
Próf. Bjami Benediktsson var
meðal farþega á Gullfossi í gær
til ísafjarðar.
E-listinn er listi Siálfstæð-
isflokksins.
Eimskip. Gullfoss fór til Vest-
fjarða og Breiðafjarðar í gær-
kvöldi kl. 11. Goðafoss fór frá
Hamborg í dag, áleiðis til Hull.
Brúarfoss er í Kaupmannahöfn.
Dettifoss kom að vestan og norð-
an í gær kl. 2. Lagarfoss var á
Blönduósi í gærmorgun. Selfoss
fór frá Vestmannaeyjum í gær á-
’leiðis til útlanda.
Hjúskapur. tíefin voru sama»
í hjótíaband í gær hjá lög-
manni ungfrú Rannveig Jóhanns-
dóttir, Hverfisgötu 50 og Ólafur
Guðjónsson frá Svurfhóli, Heim-
ili þeirra Verður f Staf holti í Staf-
holfstungum.
Sjálfstæðiskjósendur, sem
dvelja hjer í bænum, en eiga kosn
ingarrjett úti á landi, eru ámint-
ir um að kjósa nú þegar' á kosu-
ingaskrifstofu lögmanns í Miðbæj
arbarnaskólanum, opin kl. 10—If
og 1—5.
E-listinn er listi Sjálfstæð-
isflokksins.
John Bowering aðalræðismaður
Breta og frú haus taka á mótí.
gestum í dag á heimili sínu milli
kl. 4 og 6 í tilefni af afmælisdegi
hans hátignar konungsins, sem
verður minst liátíðlega í Bretlandi
í dag.
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnar-
firði hefir opna kosningaskrif-
stofu í Strandgötu 39 (áður útbú
Landsbanka íslands). Skrifstofan
er opin alla daga og þangað ættu
menn að snúa sjer viðvíkjancli Al-
þingiskosningunum. Sími 9228.
Útvarpið:
Miðvikudagur 9. júní.
19.10 Veðurfregnjr.
19.20 Utvarpshljómsveitin leikiw.
20.00 Frjettir.
20.30 Erindi: Hiuíi vikulegi helgi-
dagur (Pjetur Sigurðsson erind-
reki).
20.55 Tónleikar Tónlistarskólans.
21.25 Hljómplötur: Celló-konsert,
eftir Lalo (til kl. 22).
I I
anna
Bílferðir milli Akurevrar og
Reykjavíkur eru fyrir nokkru
byrjaðar, en vegurinn hefir ekki
verið ,,sem bestur. Sjerstaklega
hefir Holtavörðuheiði verið erfið
yfirferðar. Fyrsta hraðferðin milli
Borgamess og Akureyrar var far
jn s.l. sunnudag og kom bíllinn
til Akureyrar laust eftir kl. 1 um
nóttiua. Búist er við að vegurinn
verði orðinn greiðfær eftir eiun
eða tvo daga.
Hjónaefni. S.l. laugardag opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú
Kristjana Alexandersdóttir og
Óskar Guðmundsson, Grettisgötu
28.
E-listinn er Msti Sjálfstæð-
isflokksins.
drossía til söln. — UpplýsingekT
Útvegum allsonar vefnaðarvöru frá ítalíu.
Fjölbreytt sýnishornasafn hjer á staðnum.
Fljót afgreiðsla.
1 ' I
Eggert Kristjánsson & Co.
TlmburwerslniK
P. W. Jacobsen & Sðn.
Stofnuð 1824.
Símnefni: Granfuru - Carl-Lnndsgade, Köbenhavn 0.
Selur timbnr í stærri og smærri sendingum frá Kanp-
mannahöfn. ------ Eik til skipasmíða. ------ Einnig heila
skipsfarma frá Svíþjóð.
ílnfi \’oo/X riS fslaní! l mniv on 80 úr