Morgunblaðið - 20.07.1937, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.07.1937, Blaðsíða 8
8 Þriðjudagur 20. júlí 1937L MoRGUNBLAÐIÐ J&uifis&afwœ Smálúða, Rauðspretta, Ýsa, Þyrsklingur, beinlaus og roð- laus fiskur. Dcglega nýtt. Fisk & Farsbúðin, sími 4781. Útsala. Mikill afsláttur af öllum sumarhöttum næstu daga. — Hagan, Austurstræti 3. Kaupi gamlan kop&r Vuld. Poulsen, Klapparstíg 2Ö. Mjólkurbússmjör og osta í heildsölu hjá Símoni Jónssyni, Lauiraveg 33. Sími 3221. Kaupi tómar flöskur, flest- ar tegundir, soyuflöskur og whiskypela. Gunnar Eysteins- son, Ásvallagötu 27. Sími 1821. Vjelareimar fást bastar hjá Poulsen, Klapparstíg 29. Hreinar Ijereftstuskur keypt- ar háu verði. Herbertsprent, Bankastr?eti 3. Sfyvið-fundið ÍTapast hefir kvéntaska með peningum 0g farseðli til Berg- en. Skilist til Karls Jónssonar, læknis, Túngötu 3. aa Kaupamaður duglegur og vel vanur sláttumaður, óskast til Viðeyjar. Upplýsingar x síma 3700. Otto B. Arnar, löggiltur út- varpsvirki, Hafnarstræti 19. — Sími 2799. Uppsetning og við- gerðir á útvarpstækjum og loftnetum. Ismábæ einum í Danmörku var ráðist á mann og voru fleiri menn teknir fastir, grunaðir um að vera sekir, en öll vitni vant- ,aði. Eini sjónarvotturinn var göm- ul kona, sem lögreglan hafði ekki fult traust á. Hún var leidd fyrir alla menn- ina, sem teknir höfðu verið fastir, til þess að vita, hvort hún þekti ekki þanjn seka. Hiin gekk hægt fram hjá þeim og sagði síðan alt í einu um leið og hún benti á einn þeirra: „Þetta er maðurinn!“ Þessu var vel tekið. Nú var maðurinn fundinn. En áður en varði, lijelt hún áfram: „Jeg þori að sverja, að þetta er maðurinn. Hann var bara of- urlítið liærri, og svo var hann dökkhærður!“ * — Mamma, jeg get ekki farið í skóla í dag. Mjer líður ekki vel. — Hvar líður þjer elrki vel ? — í skólanum. * — Hvernig stendur á því að 35 ára gömul kona er oft eldri á að líta en karlmaður um fertugt? — Ætli það sje ekki af því að hún er oftast nær í raun og veru eldri. * Verkföll eru framkvæmd með ýmsu móti upp á síðkastið, eink- um í Ameríku, þar sem þeir, er stöðva vinnu, sitja kyrrir á vinnu stöðvunum og hreyfa sig ekki fyr en í fulla hnefana. Svipað verkfall gerðu dansmeyj- ar í New York um daginn. Þær voru óáuægðar með kaup sitt og tóku það ráð áð búa utn sig á leiksviði leikhússins. Þær settust þar að að aflokinni sýningu eitt kvöld og voru þar um kyrt til næsta kvölds, svo ekkert gat orð- ið úr sýningum, fyr en kaupsamn- ingur komst í lag við leikhús- stjórann. * Ieinu úthverfi Lundúnaborgar bar mikið á því, að stolið væri kjöti í kjötbúðunum og komu þjófarnir venjulega í hverja biið á tuttugu daga fresti. Kaupmennirnir komu sjer sam- an um að fá leynilögreglumann til þess að hafa upp á sökudólg- inum og tókst það fljótlega, því að hann kom að honum, þar sem hann var að ræna stærðar lamba- steik. En þjófurinn var ekki menskur maður, heldur hundur. Kom það í ljós, að við næsta götuhorn beið hans tötralegur um renningur, sem tók við þýfinu. Reyndi hann að flýja, en tókst það ekki. Við yf'írheyrslu játaði hann, að hann hefði fjóra slíka hunda í þjónustu sinni. Þeir voru æfðir í því að stela varningi í ýmsum búðum og færa honum, en liann seldi varninginn aftur í lítilli btiðarkompu. Maðurinn varð að sætta sig við að fara í fangelsi, en hundarnir voru teknir í þjón- ustu lögreglunnar. * I Tokió er þegar fyrir nokkru hafinn mikill undirbúningur und- ir Olympínleikana, sem eiga að fara fram þar árið 1940. * Auppboði í Tranekær-höll á Langalandi vöktu 24 smá- skálar úr bláu gleri og viðeigandi glös töluverða eftirtekt. En mað- urinn, sem keypti þær, fjekk þær þó við sæmilegu verði. Skálar þessar voru kallaðar „skolskálar“ hjer áður fyr og not aðar í matarveislum greifanna þarna um slóðir. Þær voru látnar á borðið, og glösin fylt með vatni. Þegar greifinn gaf merki, tóku gestirnir liver sitt glas og supu á. Vatninu var þó ekki rent nið- ur, heldur tóku nú allir að skola kverkarnar af miklum móð, og síðan kom vatnið aftur í skálarn- ar, áður en byrjað var á næsta rjetti. Þessi siður var aldrei mjög tíð- ur á Norðurlöndum, en í Þýska- landi var hann algengur og víða annarsstaðar hjer áður fyr. Hangikjöt, Nýjar kartöflur Citronur Reyktur Lax off Rauðmagi Nýr Lax. BURFELL, Laugavep 48. Síml 1505 hœstarJettarmálaflutnlngBmaBnr. •Qrrifstofa: ©ddfellowhúsiC, Vonanrtrœti 10. (Xmi£&ng'ar nm austurdyrl. Z/lCky tmÝncfac Friggbónið fína, er bæjarin besta bón. . ( SxL^ixT x. 3W,áunbI»NÖ oCf, hcuj^pAmclukriih hxmrKX, ■hXjjrrKX, c&xcj, 1 Barnaleikfðng: Dúkkur — Mublur — Bílar —- Boltar — Bangsar — Hundar — Hestar — Byssur — Sverð — Dátar — Göngustafir — Kubbar — Nóa-arkir — Dúkkuvagnar — Spil — Flautur — Skóflur — Smíðaáhöld — Skip — Hjólbörur Dúkkuhús — Gúmmíkarlar —■ Stell — Perlufestar — Kúlukass- ar — Myndabækur — Hringar — Töskur — Lísur — Shirley Temple-myndir og margt fleira. K. Einarsson & Björnsson. WILLIAMSON: 66. SYSTURNAR FRÁ DUMULM gramt í geði gegnum konuna mína. Hún skrifaði hon- um og. heimtaði peninga, og hún heimsótti hann og spnrði hann, hvað hann ætlaði að gera fyrir mig, því að Grey liafði dáið svo skyndilega, að hann liefði ekki sett peninga á bók fyrir mig, eins og hann hafði lofað. Hún sagði honum ennfremur, að hann hefði lofað að launa mjer sjerstaklega fyrir vinnu mína og spurði, hvað hann ætlaði að gera við það. „Ekki liið allra minsta", var svar hans. Nú vitið þið, livers vegna jeg elti hann um leið og jeg slapp úr fangelsinu. Jeg hafði ekki aðstöðu til þess að neyða hann til þess að borga. Jeg var of háll á svellinu sjálfur. Ef jeg gerði honum tjón, gat hann náð sjer niðri á mjer. Eins og á stóð, hefði jeg látið mjer nægja að komast á burt með gimsteinana, sem hann liafði gefið unnustu sinni. f blöðunum sá jeg, að þeir voru tuttugu þúsund dollara virði, en það var einmitt sama upphæðin, og hann hafði fengið hjá Grey til þess að leggja grundvöll að fjárhag sínum. Ef nokkur dugur hefði verið í Conal Mac Fingon, hefði hann slegið tvær flugur í einu höggi og gert bæði sjálfum sjer og mjer greiða, en það varð nú ekkert úr því. Það hefir líka ef til vill verið heimsku- legt af mjer að vera að blanda mjer í nýtt mál, úr því að jeg vai' búinn að ná í það, sem jeg þurfti. En þegar jeg var kominn í þetta draugaherbergi, eiris og sumir kalla það, var eins og innri rödd hvísl- aði að mjer: „Hingað ertu nú kominn fvrir vilja örlaganna. I vasanum ertu með allra skemtilegasta leikfang, sem konan þín gaf þjer. Ef þú stingur Troy niður með því, verður draugunum um kent, en þú getur haft á brott með þjer öll þau verðmæti, sem þú finnur hjá honum“. Hugmyndin var góð og ofur auðvelt að framkvæma hana. Jeg vissi að það var töluvert að græða á þessu verki, því að Troy hafði töluvert mikið af verðmæti með sjer frá Nome. Nú er saga mín senn á enda. Það eina, sem ósagt er, er það, að jeg sagði Troy sitt af hvoru um Conway. Það gerði jeg eingöngu til þess að æsa hann upp og skjóta Comvay skelk í bringu. Þeir bræðurnir voru nákvæmlega eins á að líta, og jeg þóttist vita, að ef Conway sæi Troy, myndi lianu annað hvort halda, að hann væri genginn aftur, eða að hann sjálfur væri á hælunum á honum — og það hlaut að skyggja á gleði hans. Meðan Troy lá í gröfinni, gat Conway ltannske sef- að samviskubitið yfir að hafa þagað yfir Ieyndarmáli Greys. En væri hann enn á lífi og kæmi ljóslifandi, til. þess að leita rjettar síns, var útlitið ekki gott fyrir brúðguma, sem ætlaði að fara að ganga að eiga konu af stoltri aðalsætt. Það var hreinasta hneyksli, ef hið sanna í málinu vitnaðist, og það var lílrlegt, að frjettin um það myndi berast um alla Evrópu og vestur til Ameríku". „Jæja, lafði Daura“, sagði hann að lokum. „Eruð þjer nú búin að hevra það, sem þjer vilduð heyra og fæ jeg gimsteinana?“ Daura svaraði báðum spurningunum játandi og spurði Róbert síðan, hvort hann væri ekki sammála. Troy draup höfði mjög alvarlegur í bragði og sagði: „Gerðu eins og þjer sýnist. Hann hefir eyðilagt líf bróður míns og orsakað dauða hans með þögn sinni. En eftir að Iiafa hlítt á mál bans, er jeg innilega þakk- látui' fyrir að jeg skyldi hlífa Conway. Jeg finn, að maðurinn segir satt núna, og jeg ber ekki lengnr kala til Georgs Conway, þó að við getum aldrei orðið neinir rnátar eftir það sem á undan er gengið. Sleptu mann— inum — hann er búinn að fá það, sem liann ætlaði sjer* upphaflega að ná í, og mun láta aðra afskiftalausaj eftir þetta. Það mun honum sjálfum fyrir bestu“. „Jeg ætla að byrja nýtt og betra líf“, kjökraðii Morton. „Jeg er orðinn dauðleiður á mínu fyrra lífi. Jeg ætla að senda boð eftir konunni minni — hún. kemur með mjer á heimsenda, þegar hún heyrir um. gimsteinana — —“ „Við kærum okkur ekki um að heyra ráðagerðir yð- ar“, tók Troy fram í fyrir honum. „Farið hjeðan og: lofið okkur að vera í friði“. „Conal“, sagði Daura. „Viltu ekki fylgja honum og sjá um, að hann fari hjeðan frá evnni ?“ Þegar þeir voru farnir, leiddi Troy Dauru fram á ganginn. Kvöldið sem hann kom til hallarinnar hafði liún staðið þarna, sem þau stóðu nú, og kdmið, til þess- að segja honum, að reimt væri í Bretagneherberginu.. Þau mintust bæði þeirrar stundar. „Heldurðu að það hafi ekki verið rjett af okkur að~ breyta svona?“, spurði hún, þegar hann tók hana í faðm sinu. „Við höfum að minsta kosti gert það, sem okkur- fanst rjettast og við töldum best fyrir alla. Þú hefir með hugprýði þinni og kjark frelsað mig frá því að drýgja glæp. Og í nótt hefir þú bjargað lífi mínu. Þú: hefir líka vakið lífslöngun mína og lífsgleði á nýt,. með því að gefa mjer ást þína. Nú fyrst finst mjer- J>ess vert að lifa. Jeg liefi öðlast þá hamingju, sem jeg helt að væri ekki til í þessum dapra heimi“. „Heimurinn er ekki dapurlegur“, svaraði Daura. „Sjáðu, það er kominn dagur, og sólin er að koma- upp“. ,Já, nú sje jeg sólina“, svaraði hann og' liorfði íi tindrandi augu hennar. ENDIR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.