Morgunblaðið - 14.08.1937, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐTÐ Laugardagur 14. ágúst 19Sf.
A II 1 II i 1/ ii i n i# i i n i ii Fin
8HAN GHAI: Tl \KMARK JAPANi H ER Llll flugvjel - tvsr
Dr. Göbbels:
Farið ekki til
Englands.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
T> lað dr. Göbbels,
^ „Der Angriff geng-
ur í dag feti framar og
varar Þjóðverja við
að ferðast til Englands.
„B^esk blöð eru að
egna upp and-þýskt of-
sóknarhugarfar“, segir
blaðið.
Þetta er eina svar Angriffs
við mótmælum frá fjelagi
erlendra blaðamanna í
Berlín, og áskorun til
blaðsins um að sanna þær
sakir, sem það hafi bor-
ið á erlenda blaðamenn í
Þýskalandi alment og sjer
staklega á Mr. Norman
Ebbutt.
Þessar sakargiftir eru
„að þeir hafi rekið byltingar-
starfsemi og rækt starf sitt á
óheiðarlegan og ósiðlegan hátt
og flutt rangar fregnir frá
Þýskalandi. Með því hafi þeir
dregið úr áliti Þýskalands er-
lendis“.
Reknir úr landi.
Oso í gær. FÚ.
Enska blaðið „Daily Herald“
telur, að margir Þjóðverjar, er
nú dvelja í Ennglandi hafi
fengið aðvörun frá Scotland
Yard um að fara á brott úr
landinu og að sumir þeirra hafi
jafnvel haldið heim skyndilega
án þess að bíða eftir frekari
fyrirskipunum.
Stjóraarbylting
í Paraguay.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
Stjórnarbylting án blóðs-
úthellingar" var fram
kvæmd í Paraguay í dag.
í morgun lögðu sjóliðar und-
ir forustu Paradis ofursta undir
sig allar helstu byggingar í
höfuðborginni Paraguay og
neyddu stjórnina til að segja
af sjer.
Franco ofursti, forseti Para-
guay, sem brotist hafði til
valda með hervaldi fyrir 18
mánuðum flúði úr forsetabú-
staðnum í hermannaskála í
borginni, en var sóttur þangað
síðar í dag af Paradis ofursta,
sem neyddi hann til þess að
samþykkja lausnarbeiðni stjórn
arinnar.
Paradis lýsti yfir því síðar í
dag að Franco myndi rerða
forseti áfram.
YANQTZEDALURINN
Frjósamasta
hjerað Kína.
200 miljón £ hags-
munir Breta.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM.
KAUFMANNAHÖFN 1 GÆR.
Þótt enn hafi ekki orðið nema smáorust-
ur í Shanghai, er búist við að þá og
þegar brjótist út stórorusta milli jap-
anskra og kínverskra hersveita.
Japanskt flugvjelamóðurskip með sextíu flug-
vjelum liggur fyrir akkerum úti fyrir Shanghai.
Er búist við að flugvjelarnar verði látnar hefja
loftárás á Shanghai.
Stjórn alþjóðlega hverfisins í Shanghai kom saman á
fund í gær, en í henni eiga, sæti fulltrúar frá Bretum, Frökk-
um, ítölum, Bandaríkjunum, Kínverjum og Japönum.
Kínverski fulltrúinn sagði, að kínverska stjórnin gæti ekki
ábyrgst öryggi erlendra borgarhlutans, ef til styrjaldar kæmi.
íbúarnir í Shanghai eru skelfingu lostnir. Óttast þau sömu
örlög og árið 1932, er Japanir skutu á borgina.
1 Bretlandi er fylgst með mikilli athygli með at-
burðum þeim, sem eru að gerast í Shanghai. „Daily
Telegraph“ skýrir frá því, að Japanir virðist hafa í huga
að taka allan Yangtse-dalinn (frjósamasta hjerað Kína)
herskildi.
Breskir kaupsýslumenn hafa látið svo ummælt að það yrði
miklu meiri hnekkir hagsmunum Breta, ef Japanir legðu undir
sig Yangtse-dalinn, heldur en er Japanir lögðu undir sig Man-
sjúríu.
Bretar hafa lagt 200 miljón sterlingspund í jarðeignir og
framkvæmdir í Kína og þá fyrst og fremst í Yangtse-dalnum.
10 þús. Kínverjar.
London í gær. FÚ.
I Shanghai er nú níu
hundruð og fimtíu manna
vopnað lið, breskt, og er
liðsauki á leiðinni þangað
frá Hong Kong.
Yfirflotaforingi kínversku
deildar Asíuflota Breta er á
leiðinni til Shanghai með her-
skipinu Cumberland og ame-
ríska herskipið Augusta er
einnig á leiðinni þangað.
Kínverska stjórnin hefir í
dag tilkynt sendih. þeirra þjóða
sem njóta sjerrjettinda um sigl-
ingar á kínverskum varnaleið-
um, að siglingaleiðin um Yangt
sefljót neðan við Shanghai sje
lokið.
Þá hafi kínverskir bankar
lýst yfir því að þeir leggi nið-
ur störf 1 tvo daga og verslun-
arfyrirtæki hafa tilkynt
tveggja daga greiðslufrest.
Það er áætlað, að um tíu
þúsund kínverskir her-
menn sjeu í Shanghai og
á svæði því, umhverfis
borgina, sem gert var að
hlutlausu svæði með samn-
ingi milli Kínverja og Jap-
ana fyrir fimm árum. Jap-
anska frjettastofan held-
ur því fram, að 100 þús.
manna kínverskur her sje
á leiðinni til borgarinnar,
þar á meðal einkaher Chi-
ang Kai Sheks.
300 þús. mannvirki
eyöilogö.
Japönsk herskip skutu í
dag á nýja bryggju, sem
Kínverjar voru nýbúnir að
láta gera á bökkum Yangt-
se-fljóts.
Hafnarvirki þetta hafði kost-
að sem svarar 300.000 sterlpd.,
og var eitt hið veglegasta af
sinni tegund í Kína. Hin
stærstu hafskip gátu lagst upp
að þessari nýju bryggju. Hún
er nú alelda.
I Norður-Kína.
Japanskar hersveitir hafa nú
rekið lið Kínverja út úr bænum
Nankow í N.-Kína og einnig
burt úr járnbrautarstöðinni þar
— I morgun gerðu þeir vjel-
byssuárás á kínversku hersveit-
irnar sem verja Nankowskarð.
Síðar í dag þögnuðu fall-
byssur Kínverja, eftir að Jap-
anir höfðu gert loftárás á her-
stöðvar þeirra við skarðið.
Fastar flugferðir
yfir Norður-
heimskaut.
London í gær. FÚ.
"O ússneska stjórnin
gerir sjer vonir um
að geta stofnað til reglu
bundinna flugferða
milli Rússlands og
Bandaríkjanna á næsta
sumri.
Levanevsky flugmað-
ur, sem kallaður hefir
verið Lindberg Rússa,
og f jelagar hans, eru nú
komnir yfir Norðurpól-
inn, á leið sinni til Fair-
banks í Alaska.
Þetta er þriðja flug Rússa
yfir Norðurpólinn frá Moskva
til Ameríku.
Levanevsky hefir meðferðis
farm af grávöru, kaviar, ásamt
pósti.
Þýski flugbáturinn „Nord-
meyer“ er nú kominn til Azor-
eyja frá Lissabon, og hefir þá
lokið fyrsta áfanga tilrauna-
flugs síns yfir Atlantshaf til
Bandaríkjanna.
Eftir að gsslan við
ipán var ligi aiðir.
London í gær. FÚ.
Viðureign varð í dag í Mið-
jarðarhafi milli eins af
herskipum stjórnarinnar og kaf
báts sem Valenciastjórnin held-
ur fram að sje ítalskur. Skaut
það tundurskeyti á skip spönsku
stjórnarinnar og þrír sjóliðar
drepnir, en níu særðust.
Annað herskip spönsku
stjórnarinnar varð síðar fyrir
samskonar árás.
Þeir, sem komust af, er
spönsku oíluskipi var sökt með
tundurskeyti í Miðjarðarhafi í
gær, halda því fram, að skipið
sem tundurskeytið var úr, hafi
verið ítalskt. í einni frjett er
ílBgvjelar.
London í {’ser F.Ú.
í Englandi var í gær gerð
tilraun með nýung í flugtækm-
inni. Era það tvær flugvjelar
og er annari komið fyrir uppi
yfir hinni og hvílir hún á súl-
um.
Ætlunin er, að hægt sje að
nota þessar flugvjelar til lengri
eða skemri póstflugferða. Sjeu
þær notaðar til lengri flug-
ferða, þá flýgur lægri flugvjel-
in,með hina hvílandi á súlun-
um. T. d. nokkum spöl út yf-
ir Atlantshaf, en síðan hefir
efri flugvjelin sig til flugs og
hin neðri snýr þá til baka.
Til skemri póstflugferða má
aftur haga því þannig til, að
neðri flugvjelin sje langferða-
flugvjel, en hin efri fari styttri
íerðir með póst út frá aðalleið-
inni.
200 Þjóðverjar
í rússnesknm
fangelsum.
London í gær. FÚ.
Pýsk blöð birta í dag fregnir
um nýjar handtökur
þýskra borgara í Sovjet-Rúss-
landi. Sendiherra Þjóðverja í
Moskva hefir verið boðið að
mótmæla þessu við rússneska
utanríkismálaráðuneytið.
Þýsk blöð telja að tala
þýskra borgara, sem nú sitja
í varðhaldi í Rússlandi sje alt
að tvö hundruð, og sjeu það
aðallega handverksmenn og
verkfræðingar.
Nokkrir þeirra eru sagðir
hafa verið níu mánuði í fang-
elsi, án þess að rannsókn væri
látin fara fram í máli þeirra,
eða þeim gefið tækifæri til þess
að verja sig.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
ÞJÓÐHÁTÍÐIN í EYJUM
Reykvíkingar, sem fóru á þjóð-
liátíðina í Vestmannaeyjum eru
nú komnir aftur til bæjarins.
Róma þeir mjög hve hátíðin fór
vel fram, og var skemtileg.
„Hátíðin fór í alla staði fram
með reglu og prýði“, sagði einn
hátíðagestanna við mig í gær.
„Ekki har á neinni óreglu, eg
þykir mjer sjálfsagt að talta það
fram, því að oft er því fleygt, að
óregla sje á þjóðhátíðum í Eyj-
um. En þessar sögusagnir virðas-t
við ekkert hafa að styðjast".
E.s. Lyra kom til Yestmanna-
eyja um hádegi í gær. Mun henni
hafa seinkað um nokkra tíaaa
vegna storms og óveðurs.
M.s. Dronning Alexandrine er
væntanleg hingað annað kvöld.
Nefnd barnaheimilisins Vorboði
biður þess getið, að ekki verði
dregið í Happdrætt barnaheimilis-
ins 15. ágúst eins og til hafi stað-
ið, heldur 15. október næstkont-
andi.