Morgunblaðið - 04.12.1937, Page 3

Morgunblaðið - 04.12.1937, Page 3
Laugardagur 4. des. 1937. MORGUNBLAÐIÐ 3 Dósentsfrumvarpið rætt á Alþingi Frumvarpið er vantraust á kenslumálaráðherra 450 manns f atvinnubóta- vinnu Brjef Haralds sem ekki hefir komið fram Abæjarráðsfundi í gærkvöldi var •amþykt að f jölga verka mönnum í atvinnubóta- yinnunni þannig, að 450 menn alls fái vinnu frá næstk. fimtudegi, að (meðtöldum 50 einhleyp- um mönnum, en að því ■tilskildu, að ríkissjóður greiði með aukafjár- framlagi kostnað við vinnu 75 manna, auk þeirra sem nú vinna fyr- ir ríkissjóð. Verða þá í vinnunni 242 verkamenn fyrir reikning bæj- arsjóðs, 158 fyrir reikning rík- issjóðs og í ríkissjóðsvinnu og svo 50 einhleypir menn fyrir sameiginlegan reikning ríkis- og bæjarsjóðs svo sem verið hefir undanfarið. Brjef Haraldar Guðmunds- sonar til borgarstjóra um fjár- framlag úr ríkissjóði til atvinnu bóta, sem birt var í Alþbl. í gær, var ekki komið til borg- arstjóraskrifstofunnar og ekki heldur í pósthólf hennar, þeg- ar bæjarráðsfundurinn var haldinn. Væntanlega getur Alþbl. skil- að ráðherra brjefinu og hann komið því áleiðis til borgar- stjóra í dag. Verkefni Haralds Guðmundssonar. f öllu þvaðri Alþýðublaðsins í gær, um atvinnubótamálin, er þessi sjerkennilega setning: „En verkefni atvinnumálaráð- herra er auðvitað ekki annað og getnr ekki verið annað en að miðla hinn áætlaða atvinnubótafje milli kanpstaðanna, þar sem atvinnn- leysið er“. Til bæjarstjórnar Reykjavíkur eru nú og altaf gerðar kröfur um að verja til atvinnubóta meira fje, en áætlað er í fjárhagsáætlun bæjarins og bæjarstjórnin hefir nú, sem áður litið meira á at- vinnuþörfina, en hitt, að fylgja *ákvæmlega fjárhagsáætluninni. í FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Hann er for- sætisráðherra Kínverja hersins og hefir falið dr. Kung fyrrum fjármálaráðherra að gegna embætti forsætisráðherra. Bíll ekur á hjólreiðamann Hjólreiðamaður slasaðist í fyrrakvöld á gatnamótum Mímisvegar og Preyjugötu, er árekstur varð milli hans og bíls. Maðurinn, sem slasaðist, heitir Gestur Gunnlaugsson, Ilallveigar- stíg 10. Var hann fluttur á Land- spítalann og kom þá í ljós, að meiðsli hans voru ekki hættuleg. Má teljast sjerstök hepni að ekki lilaust stórslys af þessuin á- rekstri því annað framhjól bíls- ins fór yfir hjólreiðamanninn. FROSTHÖRKUR í DANMÖRKU. Kalundborg í gær. FÚ. Danmörku eru víða óvenjuleg- ar hörkur í dag, frost með mikilli snjókomu. Veðurfregnii' spá hríðarveðri um alt land og er búist við að erfiðleikar kunni að verða á því að halda uppi samgöngum á veg- um. HLUTLEYSI ÍTALA. London 3. des. F.Ú. IRóm var tilkynt í dag, að ítalskir flugmenn á Spáni hefðu skotið niður 455 flugvjel- ar fyrir spönsku stjórninni frá því að styrjöldin hófst. Ennfremur var tilkynt, að 35 ítalskir flugmenn hefðu látið lífið á Spáni. „Spyrjum að leikslokum“ segir ráðherrann Dósentsfrumvarpið, sem veitir síra Birni Magnússyni kenslu- og próf- rjettindi við guðfræðideild Háskól- ans kom loks til 1. umræðu í neðri deild í gær. „Við spyrjum að leikslokum“, sagði Haraldur Guðmundsson kenslumálaráðherra, þegar honum var á það bent, að frumvarp þetta væri blákalt vantraust á hans hneykslanlegu framkomu í garð Háskólans. Kenslumálaráðherrann ljet sjer sæma í umræðunum, að fara hinum svívirðilegustu orðum um dómnefndina, sem dæmdi í samkepninni um dósentsembætti guðfræðideildar, sagði að nefndin hefði „níðst á einum keppendanna, Sigurði Einarssyni"! Hjer verður skýrt frá því helsta, sem fram kom í um- ræðunum, en vegna rúmleysis verður að fara fljótt yfir sögu. Sveinbjörn Högnason, fyrri flutningsmaður, tók fyrst til máls. Hann kvað frumvarpið flutt að tilhlutun Framsóknar- flokksins. Það væri mjög auð- skilið bæði að formi og efni. Innihaldið væri þetta tvent: 1) að girða fyrir óþægindi, er að því hlytist fyrir stúdenta, kennaraskifti verða á miðju kensluári. Nú hefði síra Björn Magnússon verið fyrirvaialaust sviftur kenslu við guðfræði- deildina, og ætti með frumvarp- inu að koma í veg fyrir óþæg- indi, sem af því hlytust. 2) Ann að aðalefni frumvarpsins væri það, að tryggja Háskólanum aukna og betri starfskrafta í framtíðinni. Háskólinn fengi nú brátt aukið húsnæði og bætt skilyrði, og þá væri nauðsyn- legt að hann gæti átt völ á auknum starfskröftum. Kenslumálaráðherra Harald- ur Guðmundsson, kvaðst ekki geta mælt með samþykt frum- varpsins, eins og frá því væri gengið. Háskóladeild væri hjer veitt vald til að kveðja menn til kenslu, án samþykkis ráð- herra. Laun ættu þessir menn sennilega að fá úr ríkissjóði og væri því fjárveitingavaldið raunverulega tekið af Alþingi. Hinsvegar kvaðst ráðherra sammála því, að nauðsyn bæri til að endurskoða reglugerð Háskólans, og hefði hann nú hafist handa í þessu efni. En þótt flutningsmaður hefði algerlega rætt málið frá þess- ari hlið, væri hitt víst, að aðal- tilgangur frumvarpsins væri sá, að tryggja það, að síra Björn Magnússon þyrfti ekki að hverfa frá Háskólanum. — Jeg játa, sagði H. G., að síra B. M. er nokkur vorkun, því að hann hefir ekki búist við þeim úr- slitum, sem r.ú eru kunn; hann mun hafa einblínt á niðurstöðu FRAMH. Á FJÓRÐU SÍÐU. FULLVELDISHÁTÍÐ SJÁLFSTÆÐISMANNA Á AKRANESI. Sjálfstæðisfjelag Akraness helt fullveldishátíð 30. f. m. Samkoman hófst með sameigin- legri kaffidrykkju í stærsta sam- komuhúsi staðarins, bíóhúsinn. Strax er skemtunin hófst var orðið svo fjölment á henni að allir gátu ekki komist að kaffisam- drykkjunni í einu. Formaður fjelagsins, Jón Árna- son, setti samkomuna með stuttiri ræðu. Jóhann Guðnason mælti því næst nokkur orð til minningar um Magnús heit. Guðmundsson. Að því loknu heldu þeir Jóliann G. Möller og Jóhann Hafstein ræður við ágætar undirtektir. Ennfrem- ur tóku til máls Sveinn Guðmunds son fyrv. hreppstjóri og Petrea Jónsdóttir. Því næst söng Hjalti Bjarnason einsöng. Næst var sýnd kvikmynd og loks var dans stig- inn fram undir morgun. Samkomunni barst skeyti frá þingmanni kjördæmisins, Pjetri Ottesen, sem vegna sjerstakra á- stæðna gát ekki verið viðstaddur. Um 300 manns sóttui samkom- una, sem fór hið besta fram í alla staði og ríkti mikill áhugi meðal samkomugesta fyrir Sjálfstæðis- stefnunni, sem sýnir að strand- högg þau, sem rauðu flokkarnir hafa reynt að gera á Akranesi, hafa ekki komið þeim að neinu haldi. Þá er auður i hvers manns garði! Stjórnarflokkarnir oo Reykjavík Prjú mál voru til umræðu í E.d. í gær. Frumvarp um jöfnunarsjóð var til 2. umræðu. Voru nokkr- ar breytingartillögur frá Brynj- ólfi Bjarnasyni og körpuðu þeir um þær, flutningsmaður og Ing- var og Bernharð. Voru þær all- ar feldar. Magnús Jónsson lýsti því, að frumvarpið gengi út á, að taka enn fje af Reykjavík, en sjeð væri vandlega fyrir því, að enginn eyri kæmi þangað aftur, að minsta kosti ekki fyrstu árin. Páll Z. kvað enga þörf á því. Reykjavík væri svo vel stæð og útsvör þar hlut- fallslega lægst. Benti M. J. þá á það, að við annan tón kvæði venjulega um kosningar. Þá ætti hjer alt að vera á hausn- um vegna óstjórnar Sjálfstæðis- manna. En þegar fje þyrfti að fá, þá væri fjeð sótt hingað og talað um auð í hvers manns garði. Þá var lokið annari umræðu um klauflaxinn nýja, og fór hann til 3. umr. Loks var 2. umræða um nýju gjaldeyrislögin. Mælti Magnús Jónsson fyrir breytingartillög- um sínum og lýsti frumvarp- inu alment. Fjármálaráðherra mælti og með breyt., sem hann hefir borið fram um það, að af- nema aftur ákvæðið um frjáls- an gjaldeyri fyrir útgerðar- menn til kaupa á vörum til út- gerðarinnar, og þá um leið móti brt. M. J. um frjálsan gjald- eyri til greiðslu endurtrygging- ariðgjalda. Ræddu þeir einkum um það ákvæði þessara laga, þar sem banna á mönnum að fara til út- landa nema með leyfi lögreglu- sijóra. Bar M. J. fram brt. um að afnema þetta ákvæði, því að ef það væri samþykt, þá væri gengið þar nær persónu- legu athafnafrelsi en dæmi væru til. Umr. var ekki lokið. Friðrik Björnsson læknir var meðal farþega á Dettifossi síðast. Hefir hann dvalið erlendis síðan í maímánuði í vor, við framhalds- nám í sjergrein sinni, háls- nef- og eyrnalækningum. Friðrik dvaldi lengst af í Berlín, og vann þar á ýmsum sjúkrahúsum. Auk þess var liann um tíma í London og Kaupmannahöfn, til þess einn- ig þar að kynna sjer helstu ný- ungar á fyrnefndri sjergrein lækn isfræðinnar.' Ingólfur Þorsteinsson, lögreglu- þjónn í rannsóknarlögreglunni, var meðal farþega á Dettifossi frá Englandi síðast. Ingólfur dvaldi x þrjá mánuði í Englandi, Frakk- landi og Þýskalandi til að kynna sjer nýungar í lögreglumálum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.