Morgunblaðið - 12.03.1938, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.03.1938, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ Laugardagvr 12. mars 1938» F. U. S. Heimdalhir. Kaffikvöld heldur fjelag ungra Sjálfstæðismanna að Hótel ísland á morgun kl. 8y2. — Skemtiatriðin auglýst síðar Aðgöngumiðar verða seldir í dag í skrifstofu Sjálfstæðis- flokksins í Mjólkurfjelagshúsinu og kosta 2 krónur. Æskulýðsvika K. F. U. M. og K. Tvö kvöld. eftir. Samkomur bæði'kvöldin kl. 8^/2. I kvöld talar Steinn Sigurðsson. Efni: „Gleð þig, ungi maður!“ Annað kvöld talar síra Bjarni Jónsson. Efni: „Styrk- ist í Drottni“. Mikill söngur bæði kvöldin. — Notið þessi tækifæri. Allir velkomnir. Sðlumaður. Vanur 0g duglegur sölumaður óskast. Umsókn ásamt kaupkröfu og meðmælum sendist Morgunblaðinu fyrir 15. þ. m., merkt „Sölumaður“. Aðalfnndur Ekknasjóðs Reykfavíkur verður haldinn í húsi K. F. U. M. næstkomandi mánudag 14. mars klukkan 8y2. STJÓRNIN. Sími 1380. LITLA BILSTOBIN Er nokkuð stór. Opin allan sólarhringinn. Umbúðapappir í rúllnan. 40 og 57 cm. fyrirliggjandi. Eggert Kri§tjánsson & €o. Sími 1400. f Konan sem gerði Mr. Neville Chamberlain að stjórnmálamanni Almannarómur í Englandi veit að Mr. Chamber- lain ætlaði aldrei að verða stjór-nmálamaður, að það var konan hans, frú Anna Chamber- lain, fædd Cole, sem fekk hann til að breyta um skoðun. Mr. Chamberlain var 42 ára þegar hann kvæntist. Hann var þá kaupsýslumaður og hafði ekki áhuga á neinu öðru en starfi sínu. Þeir sem þektu föður hans, Joseph Chamberlain, einn glæsilegasta og áhrifamesta stjórnmálamann Breta, sem gerði kjörorðið „splendid isolation“ frægt og vann því hylli, undruðust hve ólíkir þeir feðgar voru. Yngri sonur „Joe“ Chamberlains, Sir Austen, hafði erft glæsimensku föður síns. En eldri bróðirinn, Neville (Neville og Austen voru þó aðeins hálfbræður), varð hræddur, þótt ekki væri annað, en að hann þyrfti að koma fram þar sem mikið bæri á honum. Hann virtist hafa erft aðeins einn eiginleika föður síns, ástina á blómum, einkum hinni alkunnu „orkideu“, sem nú þykir nokkurskonar tákn um Chamberlain-fjöl- skylduna. MORGUNBLAÐIÐ MEÐ MORGUNKAFFINU. Eq sama ár og hann kvæntist, árið 1911, breyttist þetta. Konan sem bann gekk að eiga, Anna Vera Cole, dóttir W. V. Cole majórs, var löngu áður en hún giftist farin að skifta sjer af stjórnmálum. Pullyrt er að hún myndi auðveldlega hafa get- að orðið þingmaður í parlament- inu, ef hún hefði ekki heldur valið hitt hlutskiftið, að stjórna heim- ili fyrir Mr. Neville 'Chamherlain. En hún myndi vafalaust ekki hafa aflað sjer jafn mikilla áhrifa á bresk stjórnmál, eins og hún hefir nú ef hún hefði gerst þingmaður. Það var strax sama árið og Mr. Chamberlain kvæntist að hann fór að gefa sig að bæjarstjórnmálum í Birmingham, þar sem hann var búsettur. En þegar hann var lagð- ur á brattann, leið ekki á löngn áður en hann sótti fram til met- orða. Fimm árum eftir að hann fyrst fór að liafa afskifti af stjórn málnm, var hann kjörinn yfir- borgarstjóri í Birmingham, þá 47 ára að aldri. Hvern þátt kona hans hefir átt í þesum framgangi er ekki hægt að segja. En árið 1918, þegar Mr. Chamberlain lagði fyrst út í lands málapólitíkina og var í kjöri fyr- ir íhaldsflokkinn í Ladywood- kjördæminu, stóð hún við hlið mannsins síns í allri kosninga- baráttunni. Hann hefir sjálfur sagt að sá stuðningur, sem hún veitti sjer þá, hafi verið ómet- anlegur. Síðan hefir braut Mr. Chamberlains legið jafnt og þjett upp á- við. Hann varð póstmála- ráðherra árið 1922, heilbrigðis- málaráðherra árið 1923 og síðan aftur frá 1924—1929 og enn árið 1931. Um skeið var hann fjár- málaráðherra, sem er önnur mesta tignarstaðan í breska ráðuneytinu, árin 1923—’24 og síðan aftur árin 1931—’37, er hann varð forsætis- ráðherra. Sjálf er frú Chamber- lain nú orðin, sem kona forsætis- ráðherrans, „fremsta kona Breta“, - first Lady of Britain. Hún hefir búsforráð í Downing Street 10, hinum nafntogaða bústað breskra forsætisráðherra, og veitir þar móttöku þjóðhöfðingjum og forvígismönnúm á öllum sviðum þjóðlífsins. Var þetta e. t. v. tak- mark hennar? * Dið er sagt um frú Chamber- lain, að hún skilji mann sinn betur en nokkur annar. Hún þreytist aldrei á því að lilýða á hann, þegar hann talar um starf sitt. En hún veitir honum lið einn- ig á annan hátt. Mr. Chamber- lain var heilbrigðismálaráðherra í fimm ár, en það starf álítur hún hið mikilvægasta, sem hann hefir unnið. Næstum á hverju kvöldi, þegar hann kom heim frá vinnu sinni, lagði hún fyrir hann nýjar tillögur, sem hann varð síðan að taka afstöðu til. Tillögur þessar voru um heilsuveriid fyrir fátæk- ar mæður og matgjafir fyrir fá- tæk börn í fátækrahverfunum í London og víðar. Hún hefir frá því að hún var ung stúlka lagt sig fram um að kynna sjer fje- lagsmál, ástand í skólum og sjúkrahúsum og líf fátæklinganna í fátækrahverfum stórborganna. Forsætisráðherrann leynir konu sína engu. Frá því er skýrt, að þegar hann var fjármálaráðlierra, hafi hún vitað um hvern einstak- an lið á fjárlagafrumvarpi hans, jafnvel áður en ráðuneytið fekk nokkuð um það að vita. Hann ráð- færir sig við hana nm allar ræð- ur sínar og hún les þær yfir áður en þær eru hreinritaðar. Hún hefir næmt eyra fyrir hrynjanda málsins, sem hann virðist skorta. En orðrómurinn, sem segir að hún skrifi ræður hans, er rangnr. Það hefir hún sjálf sagt. * Frú Chamberlain er fædd ,lady‘ — gengnr jafnan blátt á- fram, en þó smekklega til fara, og hænir að sjer við viðkynningu. Frú Anna Chamberlain. Mrs. Chamberlain hefir yndi af hljóðfæraleik, og hverskonar list- um. Hún getur rætt nm næstum alt milli himins og jarðar, er al- staðar yel heima, og málrómur hennar er þýður og hljómfagur. Þeir sem álíta, að Mr. Neville Chamberlain sje altaf alvarlegnr og byrstur á svip, hafa aldrei sjeð hann á heimili hans. Hann hefir gaman af smellnum tilsvörum og skemtilegum sögukornum, og eng- inn segir hetur frá en kona hans. Hún skilur „humor“ betur en nokknr annar. Heimilislíf breskn forsætisráð- herrahjónanna er óbreytt og borg- aralegt. Þan fyrirlíta hverskonar stáss og útfliir. Hún reynir að hlú að manni sínum á allan h átt, eins og hann vill, með því að gefa honum góðan og óbreyttan mat, sjá um að liti'r á veggjum og gluggatjöldum sjeu hlýir. En einn- ig á annan hátt hefir hún reynt að þóknast manni sínum. Hún er ein hinna fáu kvenna, sem standa virkilega framarlega nm lax- og silungaveiði. En eins og kunnngt er, er það hið mesta yndi Mr. Chamherlains að fara á veiðar í frístundum sínum og hann hefir kent henni að meta stöngina og hjólið. Það hefir lítið borið á Mrs. Chamberlain, síðan hún giftist. Hún hefir dregið sig í hlje og helgað manni' sínum og heimili alla krafta sína. Almenningur í Bretlandi veit þess vegna lítið nm hana. Síðan maður hennar varð forsætisráðherra sjást þp endrum og eins myndir af henni á prenti í breskum blöðum, er hún opnar sýningar, vígir spítala o. s. frv., eða ef hún er einhversstaðar op- inberlega með manni sínnm. En á næstu árum mun breska þjóðin kynnast þessari „fremstu konu“ sinni betnr. Hún er ein aðsópsmesta kona sem stjórnað hefir heimili í Dowing Street 19 um langt árabil.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.