Morgunblaðið - 20.03.1938, Page 7
Sunnudagur 20. mars 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
Sa
M.s. Dronning
Alexandrine
Burtför skipsins til Vest-
ur- og Norðurlandsins er
frestað til þriðjudags 22. þ.
m. kl. 6 síðd.
Skipaafgr. Jes Zimsen
Tryggvagötu. — Sími 3025.
Hús til sðlu
í Skerjafirði. Lítil út-
borgun. Tækifærisverð.
Uppl. í síma 4970.
Kaffikwöld
fyrir Strandamenn verður hald-
ið á föstudagskvöld ef nægileg
þátttaka fæst.
Áskriftalistar í Verslun Ásg.
Ásgeirssonar, Þingholtsstræti
21, og Versl. Þorkels Sigurðs-
sonar, Laugaveg 18.
Nokkrir Strandamenn.
HJÁLPRÆÐISHERINN.
Major Holte
stjóraar.
Kl. 11 f. h. Helgunarsamkoma.
Kl. 8V2: JESÚS FRÁ NAZARET
(Kvikmyndir). Horna- og stengja
sveit. Einsöngur. — Inngangur
35 aura. (Fyrir böm kl. 2 og 6).
Vegna breytinga
á búðinni verður lokað
mánudaginn 21. þ. m.
Versl. Sandgerði
Laugaveg 80.
Rammalistar
— fjölbreytt úrval —
nýkomið.
Innrömmun fljótt og vel af
hendi leyst.
Guðm. Ásbjörnsson.
Laugaveg 1. Sími 4700.
MÍUFUímSSKBiFSTO'i
Pjetur MagnfiuDaon
Einar B. Quðmundafon
GuBlaugur ÞorláksBon
Siuuir 3602, 3202, 2002. *
Auaturatrætt 7.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5.
Dagbók.
I. O. O. F. 3 == 11932081/2 = 8V20
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
NA-gola. Ljettir til.
Veðrið í gær (laugard. kl. 17):
Fyrir sunnan land er grunn lægð,
sem þoka-st ,til A eða NA. Vindur
er hægur NA hjer á landi. hiti
víðast 1—3 stig. Á SA- og A-laiuli
er dálítil rigning eða slydda.
Næturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12. Sími
2234.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni.
Helgidagslæknir er í dag Ey-
þór Gunnarsson, Laugaveg 98.
Sími 2111.
Frakkneski sendikennarinn, M.
Haupt, flytur á morgun kl. 8 fyr-
irlestur í háskólanum. Efni: „Fjé-
lagslíf og bókmehtir á 18. öli.
Framþróun að nýju skipulagi“.
Ollum heimill aðgangur.
Æfintýraleikurinn Sæbjört var
sýndur í fyrradag í Iðnó. Er leik-
urinn eftir Ragnheiði Jónsdóttur
og söngvar eftir Margrjeti Jóns-
dóttur kenslukonu. Leikstjóri er
Gnðmundur Pálsson gæslumaður
barnastúkuiínar Æskunnar nr. 1.
í fyrrasamur fór Guðmundur méð
leikflokk barna nm Vestur- óg
Norðurland, og sýndi aðallega
barnaleikinn Gilitrutt. Sýndi hann
mikinn áhuga með því að brjótast
í þessn ferðalagi, og varð heim-
sókn hans til skemtunar og hvatn-
ingar fyrir barnastúkurnar út nm
land. Nú ætlar Guðmundur að
fara með leikflokk barna í kaup-
staði hjer sunnanlands, og hefir
valið æfintýraleik þenna. Leikend
ur eru á aldrinum 11-—15 ára.
Það er segin saga. að börn hafa
altaf sjerstaklega gaman af því
að sjá jafnaldra sína á* leksviði,
og skemta þau sjer hið besta að
horfa á þenna æfintýraleik. For-
eldrar, sem vilja stýrkja starf-
seini barnastxiknanna, ættn að lofa
börnum sínum í Iðnó í dag kl.
5y2 og sjá æfintýraleik þenna.
Barnaskemtun K. R. er í dag
kl. 4 í K. R.-húsimr. Aðgöngumið-
ar seldir við innganginn.
M.s. Dronning Alexandrine.
Burtför skipsins til Vestur- og
Norðurlandsins er frestað til
þriðjudagsins 22. þ. m. kl. 6 síðd.
Eimskip. GuHfoss er á leið til
L’eith frá Vestmannaeyjnni. Goða-
foss fór frá Khöfn í gærmorgun
áleiðis til Vestm. Brúarfoss er í
Khöfn. Dettifoss fór frá Hamborg
um hádegi í gær áleiðis til Hull.
Lagarfoss kom að vestan og norð-
an um miðnæt.ti í nótt, Selfoss
er í Reykjavík.
Hjónaefni. Síðastliðinn föstu-
dag opinberuðu trúlofun sína ung-
frú Ástfríður Ólafsdóttir og Þor-
valdur P. Valdimarsson.
Bankablaðið er komið út og
flytur margar greinar og myndir
um áhugamál bankamanna.
Knattspyrnufjelagið Víkingur.
Æfing á fþróttavellinum í dag
kl. 1 y2 e. h.
Fram. Knattspyrnuæfing í I.
og II. fl. í dag kl. 10 f. h.
B.v. Tryggvi gamli fór á upsa-
veiðar í gærdag.
Sjúklingar á Laugaraesspítala
hafa beðið Morgunblaðið að flytja
Hjálpræðishersforingjunmn, sem
skemtu þeim með skuggamynda-
sýningnm og á annan hátt síðastl.
fimtudagskvöld, alúðarfylstu
þakkir.
Dularfull fyrirbrigði. í dag kl.
3 sýnir Kristján I. Kristjánssön í
Varðarlmsinu skuggamyndir af
manngerfingum, sem komið hafa
fram á fundum hjá miðlinnm
Láru Ágústsdóttur.
Danssýningu hefir ungfrú Bára
Sigurjónsdóttir með nemendnm
sínum í Góðtemplarahúsinu í
Hafnarfirði kl. 3 í dag. Hafði hún
sýningu s.l. sunnudag og hefir
márgt manna skorað á hana að
endurtaka sýninguna.
B.v. Hávarður ísfirðingur kom
liingað í gær til viðgerðar.
Unglingar í hænum hafa tekið
upp þann hættulega leik að
skjóta af bogum, og hefir að m.
k. eitt alvarlegt slys hlotist af
þessum leik. ,Varð ungur piltur,
Ólafur í. Hannesson, Karlagötu
2 fyrir ör, sem kom í auga hon-
um og er hætt við að drengurinn
missi sjón á auganu. Lögreglan
vinnnr að því í samráði við skól-
ana að fá unglinga til að hætta
þessuin hættulega leik.
Valur II. fl. Æfing á íþrótta-
vellinum í dag kl,- 2s:e. h.
Leikfjelag Reykjavíkur sýnir í
kvöld í síðasta sinn sjónleikinn
Fyrirvinnan.
Barnaskemtunin í Hafnarfirði
Verður endurtekin í dag' í leik-
fimishúsinu og hefst kl. 4y2 síðd.
Baraastúkan Æskan. Fræðsla
verður í dag á venjulegum fnnd-
artíma, Stud. theol. Sigurlaug
Björnsdóttir o. fl.
Víðavangshlaup í. R. Eins og
að undanförnu fer víðavangshlaup
íþróttafjelags Reykjavíkur fram
á áumardaginn fyrsta. Kept verð-
ur um L„Svana“bikarinn eftir
sömu reglum og áður, þ. e. í 3ja
manna sveitum. Öllum fjelögum
innan í. S. í. ér heimil þátttaka.
Þátttaka tilkynnist skriflega til
stjórnar í. R. vikii fyrir lilaupið.
Útvarpið:
Sunnudagur 20. mars.
9.45 Morguntónleikar: Tónverk
eftir Baeh (plötur).
12.00 Hádegisútvarp.
14.00 Guðsþjónusta í útvarpssal
(Ræða: sjera Björn Magnús-
son).
15.30 Miðdégistónleikar:
a) Tónleikar Tónlistarskólans.
b) Klassískir valsar (plötur).
18.30 Barnatími.
19.20 Erindi Búnaðarfjelagsins:
Jax-ðvegur og jarðlög (Jakob H.
Líndal bóndi).
20.15 Norræn kvöld, IV.: Svíþjóð.
a) Ávarp (Jón Eyþórsson).
b) Ræða: Aðalræðismaður Svía,
Otto Johansson.
c) (20.30) Sænsk tónlist. (End-
urvarp frá Stokkliólmi).
d) (2Í.00) Erindi: Guðlaugur
Rósinkranz yfirkennari.
e) Sænsk tónlist.
f) Frá stútdentalífi í Uppsöl-
um: Sigurbjörn Einarsson, fil.
kand.
g) Glunta-söngvar (plötur).
h) Upplestur á sænsku (plötur).
i) Sænsk tónlist.
Mánudagur 21. mars.
20.15 Erindi ungfrú Halldóru
Bjarnadóttur: Heimilisiðnaður
íslendinga í Vesturheimi (V.
St.).
20.40 Einsöngur (Gunnar Páls-
son).
21.00 Um daginn og veginn.
Hiiiiiiiimiiiiiiiiiiitiiiimiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiniiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimnmininmnimiiiiniiniitniinmiuifliuniic
I Latið arin ekki líða |
EE -sc
33
| án þess að gera það sem þjer getið til |
1 þess að viðhalda unglegu útliti yðar. I
| Nútímakonan notar |
1 Amanti snyrtivörur |
| til að varðveita æsku §
| sína og yndisþokka.
snyrtivörur fást allstaðar.
1 1
iiiiiiiiiuiniiiiuiiiiiuiiiniiiiiiiHiiiniiiuiiiiiiuiiiiimimimiiiiiiiiiuimiiiiiiiimiimiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiHHiiiiiiiiiiiiiiiiiTr
Árnesingamót
verður haldið að Hótel Borg laugardaginn 2. apríl n.k. og
hefst með borðhaldi kl. 7.30.
Áskriftarlistar og aðgöngumiðar hjá hr. kaupm. Guð-
jóni Jónssyni, Hverfisgötu 50 og á skrifstofunni á Hótel
Borg. Undirbúningsnefndin.
Ágæta norðlenska töðu
fáum vjer með m.s. DR. ALEXANDRINE
þ. 26. mars næstk. Pantanir sendist oss
fyrir þ. 24. þ. m.
Samband fsl. samvinnufjefaga
Sími 1080.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að maðurinn
minn, faðir og tengdafaðir
Guðmundur Guðmundsson
Njálsgötu 16, andaðist að heimili sínu að morgni 19. mars.
Dagbjört Jónsdóttir.
Guðmundur Guðmundsson. Guðlaug Grímsdóttir.
Engilbert Guðmundsson. Ebba Jónsdóttir.