Morgunblaðið - 12.07.1938, Page 2
2
MORGUNRLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. júlí 1938,
É------Á 16 klst.—-----
milli New Yoik og París:
Meti Lindberghs hnekt
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Miljónamæringurinn Howard Hughes, kvihmyndaframleið-
andi hefir hnekt meti Lindberghs flugkappa með því
að fijúga í einni stryklotu frá New York tii Parísa'r. Flaug
miljónamæringurinn leiðina á I6V2 klukkustund og lenti á
Le Bourget flugvellinum síðdegis í gær.
Þetta er fyrsti áfangi Hug-
hes á flugleiðangri kringum
hnötttinn. Hyggst hann að
hnekkja meti því er þeir
Wiley Post og Harold Gatty
settu á hnattflugi sínu 1933
er þeir flugu umhverfis jörð-
ina á 7 sólarhringum 49 mín-
útum. Ætlar Hughes að fljúga
umhverfis hnöttinn á 4 sólar-
hringum.
Lindbergh fiaug frá New
York til Parísar á 33*/^
klukkustund. En aðstæður ali-
ar eru aðrar nú en árið 1927.
Flugvjelum hefir farið mikið
fram. Hughes hefir 4 menn
með sjer í flugvjel sinni, sem
er útbúin öllum nýtísku tækj-
um. Loftskeytasamband höfðu
flugmennimir við land allan Howard Hughes.
ti'mann á meðan þeir voru á flugi og sögðu hvemig ferðalag-
ið gengi. í fiugvjelinni eru gúmmíbátar, sem hægt er að
bjarga sjer á ef eitthvað verður að og eru þessir björgunar-
bátar búnir loftskeytatækjum.
Howard Hughes er kunnur meðal annars fyrir kvik-
mynd aína „Hells Angels“ sem fjallar um flugmenn.
Námskeið Nor-
ræna fjelagsins
sett að Laugar-
vatni f kvöld
Kennarar þeir erlendir, sem
ætla að vera á námskeiði
Norræna fjelagsins að Laugar-
vatni, komu í gær með Lyru.
Fyrri hluta dagsins notuðu
þeir til að skoða sig um í bæn-
um. En kl. 4 komu þeir sam-
an í Oddfellow-húsinu til te-
drykkju.
Þar bauð Ásgeir Ásgeirsson
fræðslumálastjóri þá vel-
komna, en einn úr þeirra hóp,
Regnar Knudsen lektor frá Ár-
ósum þakkaði fyrir þeirra
hönd, og beindi nokkrum vel-
völdum orðum til íslands.
Hann kvað þetta vera í annað
skifti, sem hann kæmi hingað.
Var hann í söngflokk danskra
stúdenta er komu hingað fyrir
12 árum.
Island tekið í Alþjóða
tónlistarfjelagið
Khöfn 10. júlí F.Ú;
pptaka íslands t Alþjóða-
tónlistafjelagið hefir
.verið samþykt á fulltrúafundi
fjelagsins sem haldinn var í
London.
Fulltrúar Dana og Svía lögðu
það til, að ísland tæki þátt í
starfseminni sem hluti Dan-
merkur deildar þess, en það
náði eigi fram að ganga og var
samþykt, að ísland skyldi fá
rjettindi sem sjálfstæður þátt-
takandi í fjelaginu, með fullum
atkvæðisrjetti.
HEIMILISIÐNAÐAR-
FJELAG ÍSLANDS
25 ÁRA.
Þennan dag' fyrir 25 árum var
Heimiiisiðnaðarf jelag ís-
lands stofnað.
Fjelag þetta h’efir unnið ötul-
lega að aukinni" þekkingu lands-
manna á heimilisiðnaði, og hvatt
menn til að leggja rækt við haml.
Svo sem bæjarbúum er knnni-
ugt, hefir fjelagið gengist fyrir
fjölmörgum námskeiðum í hagnýt-
um heimilisiðnaði síðustu veturna.
Er hann hafði lokið máli
sínu bað hann alla vðistadda
að syngja ,,Ó guð vors lands“.
Kom það þá í ljós, að þessir
erlendu gestir höfðu flestir lært
þjóðsönginn.
Fyrripartinn í dag skoða
kennararnir bæinn, en leggja
af stað að Laugarvatni kl. 1,
og kl. 6 verður námskeiðið sett.
Eru þessi námskeið framúrskar-
andi vinsæl.
Fjelagið liefir fremur hljótt um
sig, en vinnur eigí að síður merk'
legt menningarstarf, er ,þ.orfir til
þjóðþrifa.
Elín Magnúsdóttir frá Dysjum
er 80 ára í dag. Ilún dvelur nú
á Elliheimilinu.
Brefar fimmfalda
hersiyrk sinn
i Palestiflnu
50 Acabar og 12
Gyðingar drepoir
i síðustn Tiku
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Ekkert lát er á hryðjuverkunum í Palestínu þó
Bretar hafi nú fimmfaldað herstyrk sinn
í landinu. Ástandið verður alvarlegra með degi hverj-
um. öllum íbúum Jerúsalemborgar hefir verið skipað
að halda sig innan húss allan sólarhringinn, nema tvær
klukkustundir á dag.
Síðastliðna viku 1 jetu 50 Arabar og 12 Gyðingar
lífið í árekstrum, sem urðu víðsvegar um landið,
milli þessara tveggja kynflokka. Auk þess særðust
fjöldi manns í óeirðum. Fjórir vopnaðir menn rjeðust
í morgun inn á rakarastofu í Jerúsalem, þar sem ver-
ið var að raka arabiskan lögreglufulltrúa. Skutu þeir
lögreglufulltrúann til bana í rakarastólnum. Eftir að
þessi atburður átti sjer stað tóku enskar herdeildir
Jerúsalem herskildi og ákváðu, sem að fram-
an greinir, að enginn má vera úti á götum nema á-
kveðnar tvær klukkustundir um hádaginn. Liggur alt
að því dauðarefsing við því, að fara út úr íbúðum út á
götu á þeim tímum, sem það er bannað.
Árás með byssustyngjum.
London 11. júlí 1938.
Sjóliðar af breska herskipinu „Repulse“ gerðu
áhlaup með byssustyngjum í dag, á múg arabiskra
manna í Haifa, er voru að grýta nokkra lögregluverði.
Áður hafði árangurslaus tilraun verið gerð til þess að
dreifa múgnum, með því að hleypa af viðvörunar-
skotum.
Ein herdeild af bresku fótgönguliði kom til Lydda
í dag frá Egyptalandi.
Hryðjuverk.
Hryðjuverk hafa átt sjer stað víðsvegar um Pale-
stínu í dag og í gær. Menn hafa verið grýttiy, hand
sprengjum varpað inn í almenningsvagna. Talsíma-
þræðir kliptir í sundur, járnbrautir skemdar o. fl.
Lögregluliðssveit rakst á arabiskan ofbeldis-
mannaflokk í dag á veginum milli Haifa og Nazaret,
og sló þegar í bardaga.
Hjeraðsmót Sjáifstæðis-
manna í Borgarnesi
Á firata hundrað manns
Danska flugvjel-
in kemur ekki
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
anska flotamálastjórnin er
hætt við að láta stærsta
flugbát Dana fljúga til Græn-
lands í sumar með viðkomu í
Reykjavík eins og ráðgert hafði
verið. Var þetta tilkynt í gær,
skömmu áður en flugvjelin átti
að leggja af stað.
Ástæðan til þess að hætt er
við flugferðina er sú, að mann-
ekla er nú í danska flotanum
vegna undanfarinna flugslysa
og rannsóknarleiðangra danska
flugflotans í Grænlandi og ís-
landi. Flugslys hafa sem kunn-
ugt er orðið þrjú í danska flug-
flotanum undanfarið með stuttu
millibili.
Flugvjelin sem átti að senda
ei Dornier Wal flugbátur með
5 manna áhöfn. Foringi flug-
leiðangursins átti að vera
Grandjean yfirmaður danska
flugflotans.
Allwheryarm<VHÖ
Sveinn Ingvars-
son setur tvð
nj met
í 100 og 400
metra hlaupi
Sveinn Ingvarsson hefir sett
tvö ný íslensk met í 100 og
400 metra hlaupi. Metið í 100 m.
hlaupinu setti hann s.l. sunnudag
á 10.9 sek. Eldra metið átti Garð-
ar Gíslason, H sek., frá árinu
1934. I gærkvöldi bnekti Sveinn
sínu eigin meti frá í fyrra í 400
metra lilaupi. Illjóp hann nú á
52.6 sek., gamla metið var 52.7
sek.
Eyrir utau þessi tvö met hefir
ekki náðst góður árangur þá
fyrstu tvo daga, sem búnir eru
af Allsherjarmóti I. S. I., nema í
1500 metra htaupi. Þar hljóp Sig-
urgeir Ársælssou vegalengdina
á næst skemsta títna, sem hlaupinn
liefir verið h.jer á íþróttavellin-
um.
TJrslit á sunnudag urðu þessi:
100 m. hlaup. Sveinn Ingvars
son (K. R.) 10.9 sek. Annar Bald
ur Möller (Á) á 11.2 og þriðji
varð Georg L. Sveinsson á 11.5.
500 m. hlaup, Fyrstur Sverrir
Jóhannsson (K. R.) á 16 mín. 35.5
sek.; annar Jón Jónsson (K. V.)
16.38.8 og þriðji Sigurgeir Ár-
sælsson (Á.) á 16.56.6.
Langstökk. Fvrstur Jóh. Bern-
hard (K. R.) 6.20 rnetra, annar
FRAMH. Á SJÖTTTJ 8ÍÐV
Á 5. hundrað manns sótti
flokksfund eða hjeraðsmót
Sjálfstæðisflokksins, er haldið
var í Borgarnesi á sunnudag-
inn. Var þar margt manna af
Akranesi og víðsvegar úr sveit-
um Borgarfjarðar, af Snæfells-
nesi og Dölum. En þaðan var
þátttakan minst, því sama dag
var hjeraðsmót Dalamanna að
Nesodda.
Nokkru fyrir hádegi setti
Thor Thors mótið og bauð menn
velkomna. Voru kosnir fund-
arstjórar þeir Ásmundur Jóns-
son verslunarm. í Borgarnesi og
Tómas Möller póstafgreiðslu-
maður Stykkishólmi. Var síðan
fundarhlje, en ræðuhöld hóf-
ust síðan kl. ,2.
Fyrstur talaði Thor Thors,
um stjórnmálin alment, Þor-
steinn Þorsteinsson alþm. um
fjármálin og störf f járveitinga-
nefndar, . Pjetur Ottesen um
landbúnaðarmálin og stefnur
flokkanna í þeim málum. Þá tal
aði Eyjólfur Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri um skipulagsmál
flokksins. Síðan var fundahlje.
Var í hljeinu tekin ljósmynd af
fundarmönnum.
Kl. 6 var mótið sett að nýju.
Þá buðu Sjálfstæðismenn í Borg
• nesi fundarmönnum kaffi.
Varð að tvísetja til borðs, en all-
ir fundarmenn gátu verið sam-
tímis í samkomuhúsinu.
Hjeldu nú ræðuhöld áfram,
er hófust með því að Friðrik
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.