Morgunblaðið - 12.07.1938, Page 3
MORGUNBLA^IÖ
3
Þriðjudagur 12. júlí 1938.
Stðrf ráðgjafar-
nefndarinuar
Danir vilja ekki ræða
um Árnasafnið
Dansk-íslenska ráðgjaf-
arnefndin hefir nú lok-
ið störfum sínum, og fóru
þrír nefndarmanna heimleið
is með Dr. Alexandrine í
gærkvöldi, þeir dr. Kragh,
Hans Nielsen fólksþingsm.
og próf. Arup, en Halfdan
Hendriksen, sem nú er for-
maður danska hluta nefnd-
arinnar, verður hjer enn um
tíma.
í íslenska liluta nefndarinnar
eru próf. Magnús Jónsson, sem er
formaður, Gísli Sveinsson sýslu-
maður, Jónas Jónsson og Stefán
Jóh. Stefánsson hæstarjettarlögm.
Fundirnir stóðn yfir frá 3. þ.
m. og þangað til í gær. Fóru þeir
fram í Reýkjavík, nema einn dag
á Þingvöllum.
Eins og áður voru verslunar-
mál og viðskiftin milli Danmerk-
ur og íslands eitt höfuðmál nefnd
arinnar. Fóðurtilraunum þeim,
sem farið liafa fram eftir tillög-
um nefndarinnar, er nú svo langt
komið, að telja má víst, að bæði
fiskimjöl, karfamjöl og síldarmjöl
sje mjög hentugt handa ýmsum
húsdýrum Dana, og þá sjerstak-
lega handa kúm og hænsnum. Er
með þessti opnaður svo að segja
ótakmarkaður markaður fyrir
þessar vörur í Danmörku, svo
framarlega sem verð er samkepn
isfært og duglega er gengið fram
í sölunni. Hafa verið birtar grein-
ar um úrslit þesáara tilrauna t
víðlesnustu fagritum danska land-
búnaðarins og sömuleiðis hefir
verið frá þeim skýrt á fjölmenn-
um sam.komum bænda.
★
Það mál nefiidarinnar, sem
mesta athygli mun vékja, er vafa-
laust endurheimt handrita og
gripa, úr söfnum í Danmörku. Bar
íslenski nefndarhlutinn það frarn
að tilhlutun stjórnarinnar, en til
hennar var því beint tneð þings-
ályktun þeirri, sem Gísli Sveins-
son og þingmenn úr öllurn flokk-
um báru fram á síðasta þingi, og
samþykt var þar andmælalaust
og' í einu hljóði.
Tillaga íslenska nefndarhlutans
var urn það, að skipuð yrði nefnd
sjerfræðinga, íslenskra og danskra,
er liáskólarnir bentu á, til þess að
undirbúa afhendinguna.
Danski nefndarhlutinn vildi
ekki fallast á þetta, heldur vitn-
aði til þess, að málinu hefði ver-
ið ráðið til lykta 1927. Fekst að
svo komnu ekkert frekara hjá
þeim. íslenski nefndarhlutinn ljet
þá bóka, að hann væri sammála
Alþingi urn það, að gera kröfu
til skjala og gripa þessara, og
væru því samþykkir tillögu
þeirri, sem Gísli Sveinsson bar
frarn af hálfu þeirra í nefndinni
um að fá nefnd sjerfræðinga tii
FRAMH. Á SJÖUNDU S&U
Ágúst Sigurðsson.
80 fyrirlestrar
r
um Island
Ágúst Sigurðsson
magister kominn
heim
Agúst Sigurðsson magister
kom með Lyru. Hann
hefir verið á ferðalagi um Norð-
urlönd síðan fyrir áramót til
að halda fyrirlestra um fsland.
Blaðið hefir átt tal við hann
um ferð hans, og skýrði hann
svo frá:
Jeg fór hjeðan í desember í
fyrirlestraferð mína. Ferðaðist
eg á vegum sænska fjelagsins
„Folkbildnings Förbundet“ og
Norræna fjelagsins. Fyrirlestrar
mínir fjölluðu um íslenskar
bókmentir fyr og síðar, ísl.
þjóðlíf og atvinnuvegi. Til skýr-
ingar hafði jeg tvær kvik-
myndir meðferðis er jeg sýndi
til skiftis eftir því sem við átti.
Var önnur kvikmynd sú er Ni-
els Nielsen jarðfræðingur tók,
en hin var mynd Fiskimála-
nefndar, sú er Guðm. Kam-
ban tók um sumarið. Fjekk jeg
að stytta þá mynd, svo hún
yrði sýnd á 25 mínútum.
Hve víða fóruð þjer og hve
marga fyrirlestra hjelduð þjer?
Jeg fór um endilanga Sví-
þjóð og til Finnlands, og hjelt í
alt í þessari ferð yfir 80 fyrir-
lestra. Var nál. helmingur
þeirra haldinn í skólum, en hin-
ir opinberir. í Finnlandi hjelt
jeg tvo fyrirlestra í útvarp, 1
fyrir háskólastúdenta og einn
fyrir aðra skólanemendur. 1
Svíþjóð hjelt jeg 3 fyrirlestra í
útvarp, og 3 fyrirlestra flutti
jeg opinberlega í Stokkhólmi.
í Noregi flutti jeg tvo fyrir-
lestra í útvarp.
■ 'Vi var jeg fulltrúi Stúdenta-
fjelags Reykjavíkur á norræna
stúdentamótinu er haldið var í
skipinu Gripsholm og í Gauta-
borg í maí í vor.
Yfirleitt fann jeg mikinn á-
huga meðal Svía, segir Ágúst
að lokum, á því að kynnast ís-
landi og íslenskum efnum. Vel-
vilji Svía gagnvart Islending-
um fer áreiðanlega vaxandi
með ári hverju.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband af síra Bjarna
Jónssyni ungfrú Kristín Bjarna-
dóttir og Bjarni Þóroddsson brjef
beri. Heimili þeirra verður á
Urðarstíg 12.
200 skáfar við
Gullfoss, Geysi
og Hvítárvatn
Mótlnu á Þingvöllum iokið
Hinu glæsilega Landsmóti skáta er nú senn lok-
ið. í gærmorgun tóku skátarnir upp tjald-
búðir sínar á Þingvöllum og heldu í ferðaiag
austur að Gullfossi og Geysi, að Hvítárvatni og víðar. Eru
um tvö hundruð skátar í þessari för. í kvöld eru skátarnir
væntanlegir í bæinn og mótinu verður hátíðlega slitið á
íþróttavellinum annað kvöld. „
Alt að 300 skátar hafa dvalið í tjaldborginni á Leirunum síðan
s.1. miðv.d. Veðráttan hefir brosað við þeim allan tímann, og þó hrifn
ing íslenku skátanna sje mikil yfir dvölinni þessa daga ber þó mest á
hrifningu erlendn skátanna.
Á meðan að skátarnir dvöldu á
Þingvöllum fóru þeir í lengri og
skemri ferðalög Á kvöldin skemtu
þeir sjer við varðeldinn með alls-
konar skemtunum.
Almennings-
dagurinn.
Almenningsdagar voru á laug-
ardag og sunnudag, Heimsótti þá
mikill mannfjöldi skátatjaldbúð
irnar. Ekki verður með neinni
vissu sagt hve margir aðkomu-
menn voru á Þingvöllum á laugar-
dag og sunnudag, en um eitt skeið
stóðu 70 bílar á Leirunúm hjá
skátatjaldbúðunum og gefur þaðj
nokkra. hugmynd um „gestagang-
inn“.
Það var fjörugt við varðeldinn
á laugardagskvöldið og fjöldi fólká
fyrir utan skátana sjálfa horfði
þar á allskonar skátaskemtun.
Upp úr hádegi á sunnudag fóf
aðkomufólk að koma í tjaldbúð-
irnar á snnnudag og helst stöðug-
ur straumur fólks allan daginn. ;
Skátarnir sýndu allskonar skáta
íþróttir, svo sem hjálp í viðlög-
um, hvernig tjöld eru reist úg
margt fleira.
Klukkan 4 e. h. heimsótti Karla
kórinn Fóstbræður skátatjaldbúð-
irnar og söng þar nokkur lög -við
mikla hrifningu. Skátahöfðinginn
þakkaði kórnum og skátarnir
hrópuðu ferfalt húrra fyrir kórn-
um.
Á hverju kvöldi kl. 8 voru fán-
ar dregnir niður á skátamótinu og
á sunnudagskvöld var sú stund
með sjerstökum hátíðablæ. Helt
skátahöfðinginn sjerstaka ræðu við
það tækifæri. Þakkaði hann öllum
þátttakendum bæði erlendum og
innlendum hinar góðu samveru-
stundir á Þingvöllum.
Yið þetta tækifæri var foringj-
um erlendu skátanna aflientar
gjafir til minningar um skáta-
mótið. Voru gjafirnar íslensk
gæruskinu. Skátar hyltu hverja
þjóð um leið og fulltrúi hennar
gekk fram.
Síðar um kvöldið skemtu menn
sjer uppi í gjá við síðasta varð-
eldinn á mótinu. Yar þar ýmis-
legt til skemtunar.
Finski skátinn, sem fyrir löngu
befir unnið húg og hjarta allra
skátanna á mótinu, helt að lokum
ræðu, sem var tekið forkunnarvel.
Mót þetta hefir verið íslensku
skátafjelögunum til hins mesta
sóma og mun verða ógleymaplegt
þeim er þátt tóku í því. Veðrátt-
an á , vitanlega sinn stóra þátt í
því að mótið hefír tekist svona vel,
en hinn frjálsi og heilbrigði fje-
^lagsandi skátafjelagsskaparins hef
ir j)ó samt ráðið mestu.
Sfld viD Strandir
I gærmorgun
En veðrið haml-
aði veiði
Síðan á laugardag hafa
komið hinííað 12 skip,
símar frjettaritari Morgun-
blaðsins á Siglufirði í gær.
Mestan afla liöfðu: Jón Þor-
láksson 450 mál, Eldborg 300,
Síldin 150, Hrönn 150 og hin frá
20—100 mál.
Ennfr. símar frjettaritari vor:
í nótt sást síld vaða á stóru
svæði á Strandagrunni og fengu
þar mörg skip smáslatta, og nokk
ur eru á leiðinni liingað með farm.
Annarsstaðar ekki frjest um síld.
Nú er komin NA-bræla og súld,
og ekki gott’ ‘veiðiveður.
SRN verksmiðjan hefir verið
sett á stað til þess að vinna úr
þeirri síld, sem komin var.
v. Renthe-Fink
sendiherra
kom í gær
Sendiherra Þjóðverja í Kaup-
mannahöfn, von Renthe-
Fink, kom hingað í gær ásamt
frú sinni og dóttur. Hann ætl-
ar að vera hjer um kyrt í
bænum ,í vikutíma. Fer hann
síðan til Akureyrar og þaðan til
Austfjarða. Hann býst við að
veroa hjer á landi til næstu
mánaðamóta.
Halldór Hermannsson
i heimsókn
Halldór Hermannsson prófess-
or og bókavörður kom
hingað um daginn með Kungs1
holm frá NeAv York.
Hann hefir ekki komið hingað
síðan 1930. Hann ætlar að vera
hjer til hausts, og halda nokkra
fyrirlestra við Háskólann.
Halldór prófessor fylgir með
mikilli eftirtekt úr fjarlægrð öllú
því sem gerist hjer heima. Hanii
er, sem kunnugt er meðal fjöl-
mentuðustu Islendinga sem nú ertt
uppi.
Heimfararnefnd Vestur-fslend-
inga ánafnaði Háskólanum
nokkru fje, er vOfu eflirslöðtaf
af fje því, sem nefndin liafði til
umráða. Skjddi af því stofna sjóð,
sem á að styrkja menningarsam-
band íslands ög Vesturheims. Eigi
hefir fje verið veitt úr sjóði þess-
um, fyrri en nú, að Halldór Her-
mannsson fær þaðan einliverja
þóknun fyrir fyrirlestra þessa,
eða ferð sína hingað í þessum er-
indum.
Hann ætlar innan skamms í
skemtiferð til Norðurlands. Hefir
hann aldrei ferðast um norðlensk-
ar sveitir.
B-liðsmótið hefst
á fimtudaginn
B-liðs knattspyrnumótið
hefst á fimtudaginn
kemur kl. 7 e. h. öll Reykja-
víkurf jelögin, fjögur, taka þátt
í mótinu. Kept verður um Vík-
ings bikarinn.
Fyrsta daginn verða tveir
kappleikir: Valur—Víkingur og
Fram—K.R. Dómari á fyrra
leiknum verður Ólafur Þor-
varðarson og Gunnar Axelsson
á þeim seinni.
Næst verður kept á laugar-
dag kl. 21/2 einnig tveir leik-
ir. Á kappleikjum sem eftir
eru verða þessir dómarar: Vík-
ingur—Fram, Þorsteinn Ein-
arsson, Víkingur—K.R., Ólaf-
ur Þorvarðarson; Valur—Fram,
Björgvin Schram; Valur—K.R.,
Sighvatur Jónsson. Úrslitaleik-
ur B-liðs mótsins fer fram
þriðjudaginn næsta kl. 8. Að-
gangur er ókeypis á alla leik-
ina nema á úrslitaleik, þá verð-
ur seldur aðgangur.
B.v. Geir kom frá Englandi í
gær.