Morgunblaðið - 12.07.1938, Síða 7
I>riðjudagur 12. júlí 1938.
7
Skritotofustarf
i Hamborg,
Pt’úður, reglusamur og dug-
legur piltur eða stúlka ca. 19
—25 ára, óskast á skrifstofu
mína. Góð mentun og æfing í
vjelritun, helst einnig í ísl.
hraðritun er áskilin. Tilboð
með upplýsingum, ásamt ljós-
mynd af umsækjanda, stílist
til mín, en sendist til hr. Bald-
vins Einarssohar, Eimskip,
Reykjavík.
Bförn Kristjánsson
Hamburg 8,
Kl. Reichenstrasse 1.
Kaupi ull
þvegna og óþvegna.
Steingr. Torfason,
'Hafnarfirði. Sími 9082.
Kaupum
gamalt steypujárn
(pott) fyrir 5—6 aura kg.
Hamar h.f.
nDettii@ss£S
fer á miðvikudagskvöld 13.
júlí vestur og norður.
Pantaðir farseðlar óskast
sóttir fyrir kl. 6 síðd. á
þriðjudag verða annars seld-
ir öðrum.
„ftalHoss11
fer á fimtudagskvöld 14. júlí
um Vestmannaeyjar til Leith
og Kaupmannahafnar.
Farseðlar óskast sóttir
fyrir kl. 6 síðd. á miðviku-
dag.
E.S. Nova
fer hjeðan væntanlega í
kvöld vestur og norður um
land til Seyðisfjarðar. Auka-
hafnir: Tálknafjörður og
Þingeyri. — Flutningi veitt
móttaka til hádegis.
P. Sinitlii & €o.
WF ixjptur getur það
EKKl - — ÞÁ HVERTi
MORGUNBLAÐIB
Dagbók.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
N-kaldi. Sennil úrkomulanat.
Háflóð er í dag kl. 5.25 e. h.
Sjávarhitinn í Skerjafirði var
14 stig í gær, en fáir baðgestir,
vegna þess að veður þótti kalt.
Jarðarför Þórunnar Gunnlaugs-
dóttur, móður Nínu myndhöggv-
ara og þeirra systkina, fer fram
í dag frá Hellusundi 7. Kirkjuat-
höfnin verður í fríkirkjunni.
65 ára er í dag Kristín Bjarna-
dóttir, Bókhlöðustíg 6 B.
Kveðjusamsæti var sænska fim-
leikaflokknuin haldið á sunnu-
dagskvöld að Hótel Borg. Hófst
samsætið með borðhaldi, en síð-
an var dans stiginn. Um miðnætt-
ið komu góðir gestir á samsætið,
en það var karlakórinn Fóstbræð-
ur, sem söng nokkur lög við mikla
hrifningu áheyrenda.
Dana, liafrannsóknaskipið fór í
leiðangursferð í gærmorgun.
Franconia, skemtiferðakip með
anieríska farþega kom hingað á
laugardagskvöld og var hjer á
sunnudaginn. Farþegar fóru til
Þingvalla og víða um nágrenndð.
Um kvöldið söng karlakórinn
„Fóstbræður" um borð og glímu-
flokkur sýndi. Á morgun kemur
hingað enskt skemtiferðaskip,
Arandorra Star.
Vinnuskólinn. Þeir vinnuskóla-
piltar, sem eigi voru skoðaðir af
lækni í gær, eiga að koma til skoð
unar í dag kl. 2 e. h. á lækninga-
stofu Oskars Þórðarsonar læknis,
Pósthússtræti 7. Allir piltar, sem
sótt hafa um dvöl í Vinnuskól-
anum að Kolviðarhóli, eru beðnir
að koma til viðtals við Lúðvig
Guðmundsson skólastjóra, í Mið-
bæjarskólanum (stofu 12 uppi,
gengið inn um norðurdyr) í kvöld
kl. 6V2.
Gertrud Rask. Skriífa skipsins
er bogin og verður að líkindum
að taka hana af. Ársæll Jónas-
son kafari vinnur að því.
Jurtasjúkdómar og eyðing þeirra
heitir bæklingur, sem nýlega hefir
\ ei'ið gefinn út. Er það úrdrátt-
ur út' fyrirlestrum, sem Anna
Weber hefir flutt fyrir garðyrkju
menn hjer í bænum. I dag kl. 5
og kl. 8 e. h. flytur hún fyrir-
lesti'a fyrir almenning í Kaup-
þingssalnnm.
Meðal farþega á Brúarfossi,
sem nú er á leið til landsins frá
Kaupmannahöfn, eru Geir Eoega
vegamálastjóri, Guðjón prófessor
Samúelsson, Guðmundur Finnboga
son landsbókavörður, Níels Dung-
al prófessor, Vigfús Einarsson
skrifstofustjóri, Steinn Steinsen
bæjarstjóri, Jónas Kristjánsson
læknir o. fl. (FÚ)
Knattspyrnufjel. Víkingur I. og
II. fl. Æfing í kvöld kl, iy2 e- h.
á gamla íþróttavellinum.
Faxþegar með m.s. Dronning
Alexandrine til útlanda í gær
voru m. a.: Chr. Berndtsen og frú,
tvær systur frá Landakoti, H.
Cliristensen og frú, Páll Stefáns-
son og frú, Magnús Brynjólfsson
og frú, Kjartan Berndtsen, Ragn-
heiður Þorsteinsdóttir, dr. Jón
Vestdal, Guttormur Erlendsson,
Jóel Johnsen, frú Storr, ungfrú
Storr, frú Alma Thorarensen,
Viggó Sigurðsson.
Silfurbrúðkaup eiga í dag frú
Friðrikka og Pjetur Thoroddsen
læknir á Norðfirði. Þau dvelja nú
hjer í bænum.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína Marta Eyj-
ólfsdóttir, Lindarg. 8 og Jón
Sigurþórsson, Hrauni við Kringlu
mýrarveg.
Fjöldi farþega kom með e.s.
Lyra frá útlöndum í gærmorgun,
mest erlendir ferðamenn, norskir,
danskir, sænskir, finskir og sviss-
neskir. Meðal ísl. farþega voru:
Ólafúr Proppé framkv.stj., frú
Beiijamínsson, ungfrú Benjamíns-
son, Knútur Arngrímsson, Sigríð-
ilr Sigfúsdóttir ljósmóðir, ungfrú
Þorláksson, Júlíana Guðjónsdótt-
ir, ungfrú Proppé o. fl.
ÚtvarpiS:
13.00 Skýrsla nm vinninga í liapp-
drætti Háskólans.
20.15 Erindi: Um húsfluguna
(Geir Gígja kennari).
20.40 Symfóníutónleikar (plötur):
a) Symfónísk tilbrigði, eftir
Cesar Franck.
STÖRF RÁÐGJAFAR-
NEFNDARINNAR.
FRAMH. AF ÞRIÐJU StÐU
undirbúnings málinu. En jatn-
framt tóku þeir fram, að þeir end-
urnýjuðu fyrirvara þann, sem ísl.
hluti nefndarinnar gerði um eign-
ar rjett Árnasafns um leið og
breytt var stjórnarfyrirkomulagi
þess, og í öðru lagi mótmæltu þeir
því, að þetta mál hefði verið af-
gert til fullnustu, heldur væri það
sem áður opið til frekari aðgerða.
Þess vegna hæri að halda málinn
áfram.
Að loknum fundum ritaði svo
ísl. nefndarhlutinn stjórninni um
málið, og fór fram á, að enda
þótt Danir vildu ekki taka tilboði
um að skipa sameiginlega sjer-
fræðinganefnd, þá gerði stjórnin
ráðstafanir til þess, að sjerfræð-
ingar væru látnir rannsaka það
til undirbúnings, af hálfu íslend-
inga.
Bjóðið gestum yðar og drekkið sjálf:
APPELSÍN og GRAPE-FRUIT
frá oss, sem búið er til úr nýum ávaxtasafa.
Bragðgoff, hres§andl.
H.í. ðlgsrðin Egill Skaltagrfmsson
Sími 1390.
AtvÍKiniidcIld
Háshólans
Iiefir breytt símanúni'
erum sínum, s|á 2 við-
bæti slmaskrár 1938.
Hið íslenska kvenfjelag
fer skemtiferð til Hvalfjarðar á morgun, 13. þ. m., kl. 10
árdegis frá Bifreiðastöð íslands. Konur tilkynni þáttöku
sína í síma 3482 fycir kl. 6 í dag. Þar verða einnig gefnar
allar aðrar upplýsingar.
t Lokað i dag frá kl. 12-4
vegna jarbarfarar.
Versl. Brekka.
©
Það tilkynnist ætting'jum og vinum að móðir okkar og
tengdamóðir,
Helga Árnadóttir,
frá Þernuœýri, andaðist aðfaranótt stmnudagsins 10. júlí á
Landsspítalanum.
Guðmundur Jónsson. Jón L. Jónsson.
Guðni Jónsson. Steinunn Guðjónsdóttir.
Bergþór Jónsson. Helga Finnsdóttir
Maðurinn minn og faðir okkar,
Guðmundur Einarsson,
múrari, andaðist að heimili sínu, Baldursgötn 22 A, mánudag-
inn 11. júlí.
Dagbjört Brandsdóttir og börn.
Jarðarför
Siggeirs Torfasonar kaupmanns
fer fram frá fríkirkjunni fimtudaginn 14. þ. m. kl. 2 e. h.
og hefst með bæn frá Elliheimilinu kl. 1.15.
Aðstandendur.
Jarðarför
Þuríðar
dóttur okkar fer fram miðvikudaginn 13. þ. m. og hefst kl. 1
með húskveðju á heimili okkar, Skólavörðustíg 17 B.
Jarðað verður frá fríkirkjunni.
Ólöf Jónsdóttir. Jóh. Árm. Jónasson.
,;t Hjartans þakkir til allra þeirra er auðsýndu mjer samúð
og hluittekningu við andlát og jarðarför dóttur minnar,
Jónínu Hansdóttur.
Sjerstaklega vil jeg þakka Bjarna Snæbjörnssyni lækni,
sen? af einstakri manngæsku hefir hjálpað okkur í margskon-
ar erfiðleikum, og bið jeg algóðan guð að launa honum það er
mest á liggur; og öllum þeim, er á einn eða annan hátt hafa
auðsýnt mjer vinsemd og hjálp, flyt jeg mínar hestu þakkir.
Hafnarfirði, 11. júlí 1938.
Ingunn Gísladóttir.