Morgunblaðið - 12.07.1938, Side 8

Morgunblaðið - 12.07.1938, Side 8
Þriðjudagur 12. júlí 1938. 8 MORGUNBLAÐIÐ Pað hefir komið fyrir við og við í vor og sumar, að álfta- hjón hafa komið á Tjörnina og verið þar stund og stund. Þeir sem kunnugastir eru fuglalífinu þar segja svo frá, að þetta muni vera sömu álftirnar, sem sjest hafa þar stöku sinnum undanfar- ín ár. Af látæði þeirra er það greini- legt, að önnur þeirra, steggurinn, er ókunnugur „Tjarnarlífinu“, er aðkomufugl þar. En álftin er vafalaust ein af þeim, sem skreið þar úr eggi á árunum þegar tömdu og vængstýfðu álftirnar verptu suður í Tjarnarendanum. Því hún er svo gæf og gerir sig svo heima- komna. Og hún jetur með mestu græðgi brauðmola, sem fleygt er til hennar. ★ Er hjón þessi sýndu sig fyrst á Tjörninni var það mjög áberandi, að steggurinn hjelt sig úti á miðri Tjörn, og synti þar um með hin- um mesta reigingi, þegar álftin var upp við bakka að háma í sig ýmislegt góðgæti sem henni var boðið. Maki hennar virtist hafa mestu andstygð á „mannamatn- um“ og valkóki hennar rjett fyrir framan tærnar á fólkinu. En síðar meir virtist svo, sem hann væri farinn að sætta sig bet- ur við þessar heimsóknir „konu“ sinnar á fornar slóðir og uppátæki hennar að jeta hveitibrauð o. þessh. Fór hann þá a. m. lt. að dunda við að fá sjer í gogginn úti í Tjörn á meðan „frúin“ synti innanum kræsingar manna við bakkann. Maður nokkur sem á blóma- garð hjer í bænum hefir sagt blaðinu eftirfarandi sögu: I garði hans var álitlegur brúsk- ur af Garðabrúðu (Valeriana). Köttur sem átti heima í húsi ná- lægt garðinum tók upp á því, að hann át blóm og leggi plöntunnar. Svo var hann hændur að plöntu þessari, að þegar gott veður var, og kisa kunni vel við sig úti, varð plantan ekki varin. Kötturinn bældi sig niður í jurtastóðið, og japlaði á jurtinni endalaust. — Þegar betur var að gáð þá kom það í ljós, að fengi kisa að vera lengi í einu þarna, þá var hún ekki með sjálfri sjer. Hún varð sem sje þjettkend, því í jurt þessari eru eiturefni að sögn, sem kisa hefir orðið svona sólgin í. Hún „fór á fyllirí" í garðabrúð- 'unni. ★ Lundúnablaðið News Chronicle skýrir nýlega frá því að eftirleiðis verði málverk Rembrandts bönn- uð í Þýskalandi eins og búið er að banna van Gogh, Cezanne, Gauguin, Picasso, Matisse og fleiri látna og lifandi málara. Ekki má sýna opinberlega málverk eftir framantalda málara eða flytja málverk eftir þá inn í landið. ★ — Hvað hafið þjer unnið lengi við fyrirtækið hjá mjer. — Síðan þjer hótuðuð fyrst að segja mjer upp. ★ MÁLSHÁTTUR: Oft verður fátæk kona furstans kóróna. 3ofia2-fundM Armband tapaðist í Skerja- firði á laugardaginn, skamt frá flugskýlinu. Skilist á af- greiðslu blaðsins. Gulur verkfærakassi með verkfærum týndist á Þing- vallaveginum. Skilvís finnandi vinsamlegast geri aðvart í síma 1425. JCuup.s/Uyuu? | Til sölu vandað einbýlishús utan við bæinn með góðum lán- um áhvílandi. Tilboð leggist inn á afgreiðslu blaðsins auð- kent ,,H“ .fyrir 18 þ. m. , tJrval af þýskum sumarkjóla- efnum nýkomið. Saumið sumar- kjólinn sjálfar. Kaupið í kjólinn hjá okkur og þjer fáið hann snið inn, mátaðan eða alveg saum- an, með stuttum fyrirvara. Alt- af fyrirliggjandi tilbúnar blús- ur og kjólar. Saumastofan Upp- sölum, Aðalstræti 18. Erum í bænum. Tökum að okkur utan og innanhússþvott. Jón og Guðni. Sími 4967. 2 stórir silfurrefir til sölu með tækifærisverði í Kápubúðinni á , Laugaveg 35. ______________________________ I J í sumarfríið og sólskinið fáið þjer ódýra, hvíta og mislita kjóla hjá Guðrúnu Arngríms-1 dóttur, Bankastræti 11. Sími 2725. • I ! Kaupi gamlan kopar. ValdJ ‘ Poulsen, Klapparstíg 29. I Vjelareimar fást bestar hjá . Poulsen, Klapparstíg 29. Kaupum flöskur, glös og bón- dósir. Bergstaðastræti 10 (búð- in). Okið kl. 1—6. Sími 5395. Sækjum. Nýkomin sumarefni, röndótt, rósótt, einlit. Fóðurefni í mörg- Jum litum. Millifóðurstrigi. Vatt. Silkitvinni. Smellur o. fl. Sauma- stofa Ólínu og Bjargar, Ingólfs- stræti 5. Sími 3196. \ REYNIÐ PÖNNUFISKINN. Fiskbúðin Bára. Sími 4663. Hjálpræðisherinn. í dag kl. 8I/2: stór fagnaðarsamkoma fyr ir major og frú Gregersen m. fjölskyldu. (Forstjórar sjó- mannaheimilisins) og Kaptein Hilmar Andresen (nýja flokk- stjóra Reykjavíkurflokks) sem margir munu þekkja. Adjutant Svava Gísladóttir stjórnar, og adjutant Kjæreng og kapt. Asheim o. fl. aðstoða. Söngur og hljóðfærasláttur. Veitingar. Aðg. 50 aurar. Allir velkomnir! Friggbónið fína, er bæjarins bfcsta bón. Fullvissið yður um að það sje „FREIA“ fiskfars, sem þjer kaupið. . O. G. T. St. Verðandi nr. 9. Fundur í kvöld kl. 8. 1) Inntaka nýrra fjelaga. 2) Indriði Einarsson rit- höfundur flytur erindi. Otto B. Arnar, löggiítur úb varpsvirki, Hafnarstræti 19. — Sími 2799. Uppsetning og við- gerðir á útvnrpstækjum og loft- netum. I ! ■ÚrS-ttÆvðí' Lítið rólegt forstofuherbergi á efstu hæð í steinhúsi óskast 1. ágúst. Tilboð merkt „20“. Rjettur að hagnýta íslensk einkaleyfi nr. 59, 60 og 61 á kæliáhaldi, Frosted Foods Camp- any Inc., Dover, Delaware U. S. A. getnr fengist og einkaleyfin keypt. Menn snúi sjer til BUDDE, SCHOU & 0*o., Vestre Boulevard 4, Köbenliavn. Margrefhe SKÓLINN. Sauma- og sníðanámskeið byrjar 1. sept. Ved Stranden 20 Köbenhavn. _ i Bikum þök, kíttum glugga. Vanir menn. Sími 5292. EGGERT CLAESSEN hæstarjettarmáiaflutuingsmaðtir. Skrifstofa: Oddfellowhúsið, Vonarstræti 10. ílnngangur um austnrdyr). o o a ® ■c- FAITH BALDWIN; EINKARITARINN. 81. börnin okkar eru fjarlægari okkur en við vornm for- eldrum okkar“, andvarpaði hann. „Þau eru þrá, þyrst í lífið og taka ekki tilbt til neins“. Litlu síðar sagði Molly, er hún sá, að hann kveikti sjer í pípunni. „Þau kannast að minsta kosti við okkur“. „Hví skyldu þau ekki gera það?“, sagði hann undr- andi. „Höfum við ekki gefið þeim alt, sem foreldrar geta gefið börnum sínum, klætt þau og fætt, gefið þeim þak yfir höfuðið og veitt þeim læknishjálp og hjúkrun, þegar þau hafa þurft þess með. Og höfum við ekki gefið þeim þá bestu mentun, sem við höfum ráð á. Meira getur maður ekki gert fyrir börn sín“. Hann stóð á fætur og gekk heim að húsinu með þungum skrefum. Litln síðar heyrði Molly, að hann gekk upp stigann inni í húsinu. Hann stakk höfðinu inn um dyragættina hjá Önnu og spurði í úrillum róm: „Líður þjer nú vel?“ „Já“, svaraði Anna. „Viltu ekki koma inn fyrir?“ Hún Iá alklædd á rúmi sínu. Murdock gekk til henn- ar og strauk hár hennar hálf vandræðalegur. Hann var ekki vanur að láta tilfinningar sínar í ljós, og Anna, sem. þekti hann, vissi, hvað þetta kostaði hann. „Mjer Ieiðist hvað jeg var strangnr við þig“, sagði hann. „Kærðu þig ekki um það. Þegar maður er ung- ur, læknast sárin fljótt, Annie“. Hann hafði ekki kallað hana þessu gælunafni, síðan hún var smátelpa. Nú sagði hann það, áður en hann vissi af, og hún var glöð yfir að heyra það. Hún lagði kinnina blíðlega að öxl hans. „Það gerir ekkert tií, pabbi“, sagði hún. „Jeg hefi gert hrapallega skissu, það er alt og sumt, og mjer hefir fallið illa að vita að jeg færi illa að ráði mínu“. „Þetta jafnast alt“, sagði hann í hughreystingarróm „Jeg hafði áhyggjur ut af þjer, og var hræddur um, að þessir fínu kunningjar þínir myndu spilla þjer. Jeg var líka áhyggjufullur, þegar Kathleen flutti að lieim- an“. Orðin komu eitt og eitt á stangli, en Anna skildi hann vel. Þegar hann var farinn, háttaði hún og Iagðist til svefns. Hún fór að hugsa um, hvernig farið hefði milli Polly og Ted, þegar hún var farin. Hún gat ekki ann- að en öfundað þessa ungu stúlku af því, hve ófeimin hún var að láta í ljós tilfinningar sínar. I hennar aug- um hafði hún alt í einu breyst í dreka, kvenhetju, eldheita konu, sem, barðist örvæntingarfullri baráttu fyrir — fyrir hverju? Fyrir manni, sem þó elskaði hana ekki; en Anna var viss um, að hann átti eftir að elska hana. — Hann gleymir mjer fljótlega, hugsaði hún, með þakklátum huga, en um leið fekk hún sting í hjartað. Nú var þessi leiðin útilokuð fyrir hana. Hún skildi ekki, hvernig iiún hafði nokkurntíma getað farið hana. En hún hlaut að játa, að hún hafði trúlofast Ted, vegna þess, að hún vr særð yfir því, hve Fellowes hafði lítið hirt nm, hvað af henni yrði. Hún stóð á fætur lítil og grönn, í hinum þunna nátt- kjól sínum, og leit út um gluggann. Stjörnuljósið blik- aði í hinum rykuðu og skrælnuðu greinum trjánna. Hún hugsaði um Lawrenee Fellowes, og hún vissi, að hún myndi aldrei hætta að elska hann. Hún horfð- ist í augu við þá staðreynd, án þess að mögla. Það var þess virði að elska, þó að maður þyrfti að líða, og nú, þegar hún var komin að niðurstöðu, vissi, að ekki var hægt að rífa þessar tilfinningar upp með rótum, þá gat hún hagað tilveru sinni eftir því. Hún ætlaði að fá sjer atvinnu, eignast vini, vera að minsta kosti ekki óhamingjusöm, þó gæti hún ekki verið hamingjusöm. Einhversstaðar í heiminum hafðist hann við, vanna og lifði lífi sínu. Það varð hún að sætta sig við. Hún sofnaði og dreymdi, að hún mætti honum, að hann tæki hana aftur í faðm sinn, og ekkert gæti lengur aðskilið þau. Dagarnir iiðu hver af öðrum, og það varð óþolandi heitt í veðri. Jim hafði komið fjölskyldu sinni fyrir í litlu húsi á Long Island. Einu sinni kom hann í heim- sókn og sá móður sína vera í eldhúsinu, rauða og sveitta, og Ömm, niðurbeygða og föla af hitanum. Hann sagði, að þetta væri óðs manns æði, þær skyldu fara til Söru, konu hans, fá sjávarloft í lungun og heilbrigðan svefn. „Pabba er óhætt. Ef hann getur ekki komist af einn, skal jeg hjálpa honum“, sagði haun. „Það væri lagiegt, að hafa þig sjer til lijálpar í húsinu“, sagði faðir hans. „En við skulum lofa kveu- fólkinu að fara. Það hefir gott af því“. Jim hafði heyrt, að trúlofun Önnu væri farin út uirr þúfur. „Notaðu þíiia eigin heilbrigðu skynsemi, góða mín“, var alt og sumt, sem hann sagði við hana, og hann var ekki sjerlega óánægjulegur á svip. Anna fór með móður sinni út í sumarbústaðinn tií Söru næsta laugardag. Jim og Murdock fóru með þeim og komu aftur á sunnudag. Húsið, sem Sara var í, var lítið, en það lá í skemti- legu umhverfi rjett niður við sjóinn. Eldri börniu tvö voru orðin feit og sólbrún. Þau undú sjer vel og voru heldur þæg. Yngsta barnið þreifst líka ágætlega, og Sara sjálf var himinlifandi. Hún, gerði sjer eins Ijett fyrir með húsverkin og framast var unt, og sá, að hún myndi vera enn frjálsari, eftir- að þær mæðgnrnar komu, því að það var ómögulegt að halda gömlu konunni frá eldhúsinu eða hörnunnm. Anna borðaði og svaf, bakaði sig í sólskininu og varð rjóð og sólhrend. Ahyggjuhrukkurnar hurfu úr and- liti hennar, og taugaóstyrkurinn hvarf úr höndum hennar. Hún gat setið tímum saman og’ horft út á haf-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.