Morgunblaðið - 13.07.1938, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.07.1938, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 13. júlí 1938. Jf ORGUN BLAÐIi’ Jptorgtroljlafctd Útfcef.: H.f. Árvakur, R«yki«Tlk. Rltstjðrar: Jðn KJartanuon o* V«Jt*» SUftnttos {HíiyrK»S«uni»i8aT). Au*lýaln*ar: Árnl Óla. Rltatjðrn, au*ltaln*ar o* af*r«SQ«la: Auaturatriatl t. — Blaal 1103. ÁakriftarsJalð: kr. J.00 4, *»AnuBl. í lauaaaðlu: 15 aura síntakie.— H ,a«.ra Mwbðk. RÖDD FRÁ HÆRRI STÖÐUM að hlýtur jafnan að teljast' viðburðir á stj órnmálasvið inu, að sjálfur fjármálaráð- herrann lætur til sín heyra á opinberum vettvangi, ekki síst ef hann boðar einhver úrræði í vandamálum þjóðarinnar. Eysteinn Jónsson f jármálaráð herra er nýkominn hingað til bæjarins, eftir að hafa setið við hlið Einars Olgeirssonar sem fulltrúa KRON á aðalfundi S. 1. S. og lætur ráðherrann nú Ijós sitt skína í dagblaði sínu. „Árferði og innflutningur“ heitir grein fjármálaráðherrans. Byrjar greinin á hinum venju- lega harmasöng um erfið und- anfarin ár og svo vitanlega ekki geymt að minna á bjargráð fjár análaráðherrans, höftin. Það er vitanlega ekkert ann að en blekking og hún háska- leg, er hún kemur frá munni f jármálaráðherrans, að vera að telja sjálfum sjer og öðrum trú um, að t. d. síðasta ár hafi frá viðskiftalegu sjónarmiði sjeð, verið vont ár og nota þessa full yrðingu sem afsökun fyrir því •ófremdarástandi, sem þjóðin er aiú komin í. Fjármálaráðherranum, finsf út Titið ekki glæsilegt sem stendur og er það hverju orði sannara og stafar það ekki síst af því, hvernig búið hefir verið í hag- inn á undanförnum árum. Fyrir f jármálaráðherrann verður útlitið vitanlega enn sdekkra nú, vegna þess, að ekki tókst að herja nema lítinn hluta af 12 miljón króna ríkis- láninu, sem taka átti erlendis til þess að greiða með afborg- anir af lánum hins opinbera. Á þessu láni ætlaði fjármálaráð- herrann að lifa út kjörtímabilið, en þar sem lánið fæst ekki nema að litlu leyti, verður nú að finna önnur úrræði til að halda lífinu í stjórninni. Og ráðherrann hefir fundið úrræðið. Það er hans gamli „lífsins elixír“: Herða enn á ■innflutningshöftunum! Fjármálaráðherrann hefir ver ið einvaldur um framkvæmd innflutningshaftanna. Hann hef ir við hver áramót og svo aftur í fjárlagaræðunni á Alþingi sungið sjálfum sjer lof og dýrð fyrir framkvæmd þessara mála. "En hverjar eru svo staðreynd- irnar? Þær, að síðastliðið ár var innflutningurinn svo mikill, að fara verður alla leið til lúx- ns-ársins 1930 til þess að fá •samanburð. Þær, að safnast hafa fyrir hjer í bönkum milj- úna óreiðu- og vanskilaskuldir, vcgna þess að ekki hefir verið til gjaldeyrir til að greiða með skuldirnar. Fjármálaráðherrann er ný- kominn heim af aðalfundi S. I. S. Hann sendi á undan sjer töl- ur, sem sýndu, að innflutning- ,ur S. í. S. hefir á s. 1. ári vaxið um miljónir króna þrátt fyrir hin ströngu innflutningshöft. Það er höfðatöluregla fjármála ráðherrans, sem veldur þessum mikla innflutningi S. í. S. Til þess að gera höfðatöluregluna enn áhrifameiri kom fjármála- ráðherrann ásamt Einari Olgeirs syni með nýtt fjelag inn í S. í. S. — Kaupfjelag Reykjavíkur og nágrennis. Þetta fjelag telur að nafninu til 3500 fjelagsmenn svo að það ætti að auka drjúg- um innflutningskvóta S. 1. S. á þessu og næstu árum. Þegar litið er á árangurinn, sem orðið hefir af framkvæmd haftanna í höndum fjármála- ráðherrans, fara skrif hans um þessi mál blátt áfram að vera hlægileg. Hitt er svo aumkvun- arvert, að ráðherrann skuli, þrátt fyrir alt, enn vera þeirrar skoðunar, að innflutningshöft- in ein geti bjargað þjóðinni út úr öngþveitinu. Reynslan og staðreyndirnar virðast ekkert hafa kent ráðherranum. Gjaldeyrisskorturinn, sem þjóðin stynur nú undir, stafar vissulega ekki að litlu leyti af sjálfskaparvítum. Núverandi stjórn og hennar stuðningsflokk ar hafa um langt skeið stefnt fjármálum og atvinnumálum þjóðarinnar í beinan voða. Vald hafarnir — og þá ekki síst fjár- málaráðherrann — hafa talið öllu borgið, ef hægt væri að herja fje í ríkissjóðinn út úr þrautpíndum skattborgurunum og síðan að beita ströngum inn- flutningshöftum. Valdhafarnir gengu alveg framhjá hinu, að álögurnar miklu, sem fylgdu í kjölfar sí- hækkandi fjárlaga og langvar- andi hallarekstur á sviði fram- leiðslunnar hlaut að leita til gjaldeyrisskorts. Fjármálaráðherrann segist nú hafa komið auga á þá „stað- reynd“, að þjóðin lifi sem heild um efni fram. Hjer mun ráð- herrann eiga við einstaklingana, en ekki heildina, ríkið. En hve- nær skyldi fjármálaráðherrann koma auga á þá staðreynd, að ríkið — ríkissjóður — lifir yfir efni fram? En það er einmitt þessi stað reynd — hin taumlausa opin- bera eyðsla á nál. öllum sviðum — sem er undirrót allra méin- semdanna. Það er á þessu kýli sem verður fyrst að stinga. Eyðsla hins opinbera verður að vera sniðin eftir gjaldgetu þjóðarinnar á hverjum tíma. Sje þessa gætt og svo jafnframt hins, að atvinnurekstur lands- manna sje rekinn á heilbrigðum grundvelli, þá er víst að þjóðin á — þrátt fyrir alt — viðreisn- arvon. HihræSuefoið i dng Skíðakennarinn til í. R. Kristindómurinn og æskan Hjer fer á eftir út- dráttur úr ræðu þeirri, sem síra Þorsteinn Briem flutti á hinum al- menna kirkjufundi. Er- indið kallaði hann Krist- indómurinn og æskan. Ræðumaður talaði einkum um hina innri hlið máls- ins. Benti hann fyrst á þann sameiginlega grundvöll, sem heimili, skóli og kirkja gætu mæst á í þessu máli: að allir þessir aðilar vildu vinna að vexti og þroska allra góðra hæfileika ungmennanna og hjet hann sjerstaklega á heimili og skóla til samstarfs v.ið kirkjuna, að því að glæða þann hæfileika sem æðstur er og mest verður fyrir þroska allra hinna: trúar- hæfileikann. Kirkjan teldi, að í skjóli þess æðsta hæfileika þroskuðust og aðrir hæfileikar æskumannsins best. Trúarhæfi- leikinn væri að vísu undir þroska annara, hæfileika kom- inn. Þessvegna hafi kirkjan orð- ið sú mentamóðir, með þjóð vorri sem raun beri vitni um. Trúarhæfileikinn væri áskap- aður eiginleiki mannsins. Fc.ll- komin vöntun hans væri því vanþroskamerki eða misþroska, á sinn hátt eins og sjónarhæfi- leikinn geti horfið hjá dýrum, sem æ eru í myrkri. Hvað ræktun trúarhæfileik- ans snerti, hvíldi eigi æðra hlut- verk á neinnra herðum sem móð urinnar. En hún legði fvrsta grunninn, þó ábyrgðin hvíldi einnig á hverjum heimilismanni •— sem og kirkju og skóla, síð- ar meir. ,,1 gegnum Passíusá "?: Hall< gríms“, hjelt ræðumaður áfram, „þykist jeg sjá Pjetur hringj- ara, föður hans, er deyr með þá bók í höndum, er seinni rann- sóknir sýna, að hafi endurvakn- að í huga skáldsins, er hann kvað sálmana. Og í gegnum öll trúarljóð Matthíasar Jochums- sonar sje jeg móður hans með sveininn sjer við knje, að benda honum og fræða hann, eins og hann lýsir sjálfur í kvæði sínu um hana og í kvæðinu um jól- in heima. ★ Ræðumaður vildi með þessum dæmum benda á nauðsyn þess, að trúargrundvöllurinn væri lagður sem fyrst barninu í brjóst og benti á, að þó að báðum þessum skáldum hefði skeikað á gelgjuskeiði lífsins frá þeim grundvelli, þá hefðu þeir aldrei horfið frá honum. öll þau and- iegu auðæfi, sem þjóðinni væru frá þeim komin, væru þess vegna því að þakka, sem sáð hefði verið í barnshjartað. Prestar hefðu og hjer verk að vinna. Þeir ættu í húsvitjun- arferðum að r Ur erindi síra Þorsteins Briem á kirkjufundinum beina um val nautna, starfs og skemtana og loks að opna augu hennar fyrir göfugu lífstak- marki og þá fyrst og fremst, að „þjóna því besta í sjer sjálfum, en þjóna þó ekki sjálfum sjer“. „Sá, sem þjónar hinu besta í sjer sjálfum“, sagði ræðumað- ur, hann þjónar rödd guðs í sálu sinni og hann mun, fyr eða síðar finna þann, sem stend- ur á bak við þá rödd“. Hinni raunsæju æsku vorra tíma, hæfðu raunsæjar leiðir í trúarleit sinni. En hin raun- 'ækna trúarleit byndi öllum vöxnum mönnum. nýjar byrðar og ábyrgð. Því: „Raunsæasta æskan spyr um reynsluna og grannskoðar liana vægðarlanst hjá þeim sem hún þekkir best. Hjá föður sínum og móður og öðrum, sem henni hefir þótt vænst um og virt mest. Ef vjer íhugum þetta með hönd vora á hjarta, þá munum vjer öll í liverri stjett og stöðu, sem vjer erum, mega minnast bænar Hall- gríms: „Bið jeg nú Jesú blíði þig, sem bót mjer gjörðir vinna. Lát engan gjalda eftir mig ilsku nje synda minna“. Því að voðalegust syndagjöldin, hvort sem um hrot eða vanræksl- ur er að ræða, eru þau, sem óhjá- kvæmilega verða að koma fram á eftirkomendunum. En af þessu er aftur auðsætt, að dýrmætustu mennirnir fyrir kristn ina eru þeir menn, lífs eða liðnir, sem á verður bent og sagt: Þarna er reynslan, þarna er staðfesting- in á orðum Jesú Krists. ★ Nefndi ræðumaður dæmi þessa. Vjek hann síðan að æskulýð tveggja yngstu kynslóðanna. Æsk- an, sem nú elst upp, sje eigi verri en æskulýður, er föðurlandið ól næst á undan. „Vjer skulum ekki heldur halda“, hjelt ræðumaður áfram, „að sú æska a. m. k., sem þá gekk langskólaveginn, hafi átt við holl- ara trúarandrúmsloft að búa, utan æskuheimilis síns, en nú er, því að vísindi þess tíma, bæði náttúru- fræðis- og heimspekisvísindi þeirra tíma, voru stórurn mun skilnings- minni á alla trú, en þaiu eru nú orðin“. Munurinn lægi í því, að mi hefðu miklu fleiri heimili tileink- taka börnin sjálfjað sjer það sem voru ný vísindi tali, en auk þess ræða þessi mál.um trúarsannindin fyrir hálfri öld oftar af prjedikunarstól. |— en sem vær- stórhreytt síðan. Skilyrði heilbrigðs þroska trú-: Og í öðru lagi væri farið að bera arhæfileikans væri heilbrigt svo mjög á lífsfyrirlitningu meðal æskulíf. En til þess að skapa; yngri manna, er væri „skotgrafa- heilbrigði æskunnar þyrfti að arfur frá he;msstyrjöldinni og vekja lotning fyrir lífinu, leið- hörmungum h mnar“, en sem ræðumaður taldi að myndi fyrn- ast „eins og aðrar stríðsskuldir“, enda væru orðin kunn dæmi þess meðal yngri rithöfunda grannþjóð anna. „Enginn þarf að efast um .vor eftir vetur“, hjelt ræðumaður á- fram. „En þó hefir oft komist korká í ungviði, á milli heys og grænna grasa, ef birgðir voru þrotnar frá fyrri sumrum. Og þ. e. þetta sem nútímaæskan. á við að búa, andlega talað. Það eru fleiri lieimili á trúar- legur þrotum nú í landinu en þeg- ar vjer uxum upp. Og því er ef til vill enn hetur hlustað á lífs- fyrirlitningarhoðskapinn nú, en á Brandesarboðskapinn, sem yngstu rtthöí'undarnir fluttu oss sem mið- aldra erum í æsku, þó að þeir breyttust allir síðar. Vorið er þeg- ar að byrja hjá frændþjóðum vOr- um. Frægustu eftirstríðsskáldin meðal Svía og Norðmanna hafa nú einnig breyst í trúmenn, þó að þeir hefðu áður skrifað líkt og þeir, sem guðlausastir eru taldir vor á meðal. Það sem gerist með frændum vorum getur einnig gerst hjá oss. Allar vantrúaröldur hafa fyr eða síðar hrotnað í toppinum“. Vjek ræðumaður því næst að afstöðu kirkjunnar til íþrótta: „Kirkjan má þess minnast að Páll nefnir mannslíkamann musteri. Og lionum var ekki sama hvernig bú- ið væri að þessu musteri Guðs. Það var ekki tilviljun að þegar fenginn var liingað þjálfari frá Bretlandi, þá var maðurinn sem Bretar sendu ungur guðfræðingur sem las gríska Nýja testamentið sitt milli æfinga. Bresk kirkjufjelög vilja ala upp hraustar sálir í hraustum líkömum. Svíar hafa a. m. k. einn sjer- stakan íþróttaprest. En iir Noregi minnist jeg íþróttamanns, sem jeg sá í kirkju sinni og ganga þar til altaris á sportskyrtunni, áður en hann hljóp út í leikinn. K. F. U. M. hefir verið styrkur þátttak- andi í íþróttum með öllum þjóð- urn og svo er og hjer hjá oss. Sjónarmiðið, hraust sál í hraust- um líkama, var ríkjandi á presta- skólunum á Hólum og í Skálholti og enn var kirkjan fulltrúi íþrótt- anna á þjóðhátíð vorri 1874., enda urðu guðfræðingarnir sem þar glímdu fyrir konunginn kristin karlmenni sem prestar“. ★ Lokaniðurstaða ræðumanns var þessi: „Sá sem tilbiður Guð á ekki að vanrækja musteri hans. Það á ekki FRAMH Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.